Morgunblaðið - 25.11.1979, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.11.1979, Qupperneq 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979 Sultur og seyra — og aldrei betri sala í morðtólum • Á síðasta ári eyddu þjóðir heims hvorki meira né minna en 212.000 milljónum sterlings- punda til hermála, og þar af runnu 60.000 milljónir sterl- ingspunda til vopnakaupa. Að meðaltali nam fjárfesting fyrir hvern hermann 130 sterlings- pundum á árinu, og má sjá, hversu há tala það er samanbor- ið við, að á sama tíma nam kostnaður við menntun hvers barns á skyldunámsstigi aðeins 130 sterlingspundum að meðai- tali. Þetta er sjöunda árið í röð, sem kostnaður við vígbúnað í heiminum eykst meira en verð- bólgan og nú er varið 70% hærri upphæðum til hermála en árið 1970. Þessar tölur hefur frú Ruth Leger Sivard lagt fram, en hún var til skamms tíma forstöðu- maður efnahagsmáladeildar á stofnun þeirri í Bandaríkjunum, Þróunarlöndin verja til- tölulega mestu fó til vígbúnaóar sem vinnur að takmörkun vígbúnaðar. I skýrslu sinni segir frú Siv- ard: — Stærsti liðurinn í efna- hagsmálum heims eru kaup og sala á vopnum. Vopnasalan nem- ur hærri upphæðum en svarar til þjóðartekna allra þjóða heims að einungis tíu undanskildum. Til dæmis er meira magn til af sprengiefni á jörðinni en af matvælum, og fjárfesting í þágu vígbúnaðar er 2.500 sinnum meiri en sú sem varið er til þess að koma á friði. Það hryggilegasta við þessa: tölur er sú staðreynd, að þjóðii þriðja heimsins verja stöðugt meira fé til hermála. Hafa út- gjöld hinna fátæku þjóða til hermála aukizt um 400% frá árinu 1960, en aukningin hjá iðnríkjunum á sama tímabili nemur 44%. Til dæmis verja Eþíópíumenn 64 milljónum sterlingspunda til hermála, en aðeins 35 milljónum til menntamála og 13 milljónum til heilbrigðismála. Samsvarandi tölur hjá Pakistönum eru 390 milljónir sterlingspunda til her- mála, 141 milljón til mennta- mála og 40 milljónir til heil- brigðismála. Á hinn bóginn verja Bretar 5.537 milljónum sterlingspunda til hernaðar- þarfa sinna, 6.673 milljónum til menntamála og 5.720 til heil- brigðismála. I skýrslunni greinir frá 132 vopnuðum átökum, sem hafa átt sér stað í 65 löndum frá árinu 1955. Langflest þessara landa eru í þriðja heiminum. Til dæm- is hefur nánast engin Afríkuþjóð staðið utan við vopnuð átök á þessu tímabili, svo að farið sé eftir stafrófinu frá Alsír til Zaire. - HAROLD JACKSON. VERSLUN & VIÐSKIPTi Er Kassaver það sem koma skal? • Ýmsar breytingar eru nú á döf- inni í bandarískum verslunarháttum og sem dæmi um það má nefna, að K-Mart-verslanahringurinn er nú að hverfa að nýrri gerð smásöluversl- ana, svokallaðra „kassaverslana", sem margir telja, að muni einkenna smásöluverslunina á næsta áratug. Nú þegar hefur verið komið á fót um 400 „kassa-verslunum“ í Banda- ríkjunum og búist er við, að þær verði þrefalt fleiri í lok næsta árs. K-Mart-verslanahringurinn, sem hér er tekinn sem dæmi, hefur rekstur fyrstu „kassa-verslunar“ sinnar á 10.000 ferfeta gólffleti, þar sem á boðstólum verða um 500 vöruheiti. í stað þess að verja fé og fyrirhöfn í það að stafla upp vörunum og raða í hillur er opnum kössunum komið fyrir á gólfinu og úr þeim geta viðskiptavinirnir síðan tínt þær vörur, sem þeir ætla að kaupa. Ekki er að efa, að allur kostnaður við verslunarrekstur- inn mun stórminnka og þá væntanleg álagningin líka. PETER DAY. Ekkert umstang, lægra verð AFREKSMENN Litla stúlkan með flughúfuna „Faddur flugmaður- • Þaö er löng leiö frá litla flugvell- inum í Croydon í útjaöri Lundúna til grýttrar og erfiðrar brautar skammt frá Darwin íÁstralíu. Þessi vegalengd ætti þó aö hafa vaxið mönnum enn meira í augum, þegar flugiö vað aö ryöja sér til rúms sem samgönguleið yfir heimshöfin um 1930. En Amy Johnson lét þessa erfiðleika ekki aftra sér, enda þótt hún þyrfti jafnframt aö kljást viö þá fordóma, aö konur gætu ekki stjórnaö flugvél. Hún ætlaöi aö láta drauma sína rætast, kærði sig kollótta um alla fordóma. Hún lærði fyrst aö aka bíl, og setti þá upp flughúfu og snaraði sér í flugmannsbúning og flaug alein í lítilii flugvél hátt í loft upp. Hún var fæddur flugmaður, en lét lífið í flugslysi viö Thames ána og er ýmislegt enn á huldu um þaö skapadægur hennar. Hún var 37 ára aö aldri, en haföi á fáum árum skapað sér mikinn frægöarferil sem flugmaöur og hefur engin kona skákaö henni síöan. Á næsta ári munu Ástralíumenn minnast þess, aö 50 ár eru liðin frá því að Amy Johnson lenti eins hreyfils flugvél sinni af geröinni Gipsy Moth skammt frá Darwin og haföi þá unniö það afrek að hafa fyrst kvenna flogiö frá Bretlandi til Astralíu. Þetta gerðist síödegis 24. maí áriö 1930. í Hull, fæöingarborg Amy, er ráögert aö minnast þessa atburðar meö sérstakri athöfn. Amy Johnson var látlaus ung stúlka, og jafnvel dálítiö feimin, en hún var staöráðin í því aö bjóöa tíöarandanum birginn og sýna þaö og sanna aö kona gæti flogið flugvél. Hún naut skilnings og stuönings fjölskyldu sinnar og lagöi stund á flugtækni og geröist flugmaöur eftir mjög skamma þjálfun. Þegar hún var 26 ára gömul og haföi aðeins stundað flug um 11 mán- aöa skeiö og í 80 klukkustundir alls, lagði hún upp frá Croydon flugvelli til Ástralíu. Feröin þangaö var um 10.000 mílur. 19 dögum síöar lenti hún flugvél sinni í Darwin viö gífurleg fagnaöarlæti. Hún var alþjóöleg hetja og naut hylli hvar sem hún kom. Hún vann hugi og hjörtu ástr- ölsku þjóðarinnar vegna hugrekkis síns og fallegrar framkomu, og ekki spillti þaö fyrir aö fólk leit rómantískum augum á flugið, sem þá var enn á bernskuskeiði. Á næstu árum setti Amy hvert metið á fætur ööru í langflugi um heim allan, og geröist brautryðj- andi í þróun flugtækninnar. Á stríðsárunum geröist hún flug- maður fyrir Air Transport Auxilary og flutti flugvélar frá verksmiöjun- um, þar sem þær voru settar saman, til herflugvallanna. Á sunnudagsmorgni, 5. janúar 1941, lagöi hún af staö frá flugvell- inum í Blackpool í tveggja hreyfla vél af geröinni Airspeed Oxford. Síöar um daginn steyptist flugvélin niður í ósa Thamesárinnar. Amy haföi líklega villzt í veðurofsa og flugvélin oröiö uppiskroppa meö eldsneyti. Enginn veit þó meö vissu nákvæmlega hvaö geröist og hvorki líkiö né flugvélin hafa nokkru sinni fundist. — David O'Reilly MENGUNI Eitrað úr- felli ógnar 20.000 sænskum vötnum • í Svíþjóð fjölgar þeim stöð- ugt, sem krefjast þess, að al- þjóðlegar stofnanir grípi í taum- ana og komi í veg fyrir, að sænsku vötnin verði endanlega eyðilögð vegna mengunar frá Bretlandi og Vestur-Þýskalandi. Sérfræðingar telja, að u.þ.b. 20.000 fiskivötn séu í hættu stödd vegna mengandi loft- strauma, sem berast yfir Svíþjóð, einkum frá Englandi, yfir Norðursjóinn, og frá V-Þýskalandi og Póllandi. Meng- unarefnin, sem falla til jarðar með regninu, valda því að sýru- stigið hækkar og afleiðingarnar eru þær, að fiskurinn deyr. Lars Eliasson, sem er í forsvari fyrir sænskum stangveiðimönnum, segir að enn sé lítið vitað um langtímaáhrif mengunarinnar á fólk, skepnur, skóga og akra. Brennisteinsmengunin er lang- verst viðureignar og umhverfis- verndarmenn leggja hart að sænsku stjórninni að höfða mál á hendur þeim þjóðum, sem menguninni valda, en hún hefur lengi verið treg til vegna þess hve erfitt er að sanna ábyrgð hverrar og einnar. Erfftt að sanna ábyrgð Svíar eru ekki eina þjóðin, sem orðið hefur fyrir barðinu á menguninni. Samband nor- rænna stangveiðimanna, sem Norðmenn. íslendingar, Finnar, Danir og Svíar eiga aðild að, hefur nú þegar farið þess á leit við bresk stjórnvöld og v-þýsk, að þau dragi úr menguninni. Haft er eftir Lars Overrein, sem stjórnað hefur rannsóknum Norðmanna á „eiturregninu" : „Súrt regn er eitt umfangsmesta og alvarlegasta mengunarvanda- málið um heim allan og það er með öllu ógerlegt að segja fyrir um afleiðingarnar.“ — Chris Morgensson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.