Morgunblaðið - 25.11.1979, Side 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
5. grein
Naut — vog
20. apríl — 20. maí/
23. sept. — 23. okt.
nautið þverkallast við að sjá aðra hlið en
sína eigin.
En vogin hefur góð áhrif á nautið og það
hrífst af henni, sér kosti hennar þótt það
eigi erfitt með að viðurkenna þá á
stundum, finnst hún skemmtileg þótt ekki
megi alltaf hafa hátt um það. Skilji vogin
að svona er nautið bara gert og skilji hún
að tilfinningar þess eru miklu hlýrri og
meiri en það vill sýna geta þau átt góð
skipti. Auðvitað má nautið gæta sín að
hanga ekki fram af voginni, og hún má
líka gæta sín að ofbjóða ekki nautinu með
endalausum vangaveltum.
Jómfrúr dást að nautinu fyrir einbeitni,
en þar með er ekki sagt að þær hafi
sérstaklega mikla þolinmæði með þver-
móðsku nautsins og þeim eiginleika sem er
hvimleiður í fari nautsins: að viðurkenna
aldrei mistök sín. Nautið dáist að því,
hversu jómfrúin getur verið skörp, fljót að
hugsa og úrræðagóð, en það getur orðið
þreytt á smámunasemi og nöldri jómfrúar.
Venjulega fer vel á með einstaklingum í
þessum merkjum, þau eru bæði gædd
góðum slatta af heilbrigðri skynsemi og
hvorugt fer á mikið flug, ímyndunarafl
þeirra starfar fjarska rólega. Naut og
jómfrú standa fast á sínum reglum og þau
hafa sefandi áhrif hvort á annað. Þau
halda stillingu sinni við erfiðustu aðstæð-
ur, en geta hins vegar bæði misst fullkom-
lega stjórn á sér út af smáatriðum.
Jómfrúr gleyma aldrei að tala um galla
hjá öðrum og þetta er ekki einvörðungu af
ónáttúru, heldur er viðkvæmni jómfrúar
fyrir sjálfri sér slík, að hún getur ekki
afborið bresti sína og reynir að breiða yfir
þá með því að finna þá hjá öðrum í
staðinn. Rósemd nautsins hjálpar til að
hafa hemil á þessu og ýtir undir sjálfstrú
jómfrúar með yfirvegun og gætni. Þau
geta sem sagt lifað saman í góðum friði og
við allmikla ánægju. Auk þess sem bæði
hafa áhuga á peningum, eru ekki miklar
ævintýramanneskjur og una því ágætlega
návist hvort annars.
Krabbi — jómfrú
21. júní — 22. júli/
23. ágúst — 23. sept.
Við fyrstu sýn mætti ætla að krabbi og
júmfrú ættu lítið erindi í ástarsamband
hvað þá sambúð. Smámunasemi jómfrúar
getur sært krabbann ósköp oft. En mildi
hans og hlýja hefur jákvæð áhrif á
jómfrúna sem hættir svo oft til að taka
neikvæða afstöðu. Jómfrúr eru ekki eins
smeykar við að reyna sé að ráska með þær
þegar þær eru í návist krabbans og
margra annarra merkja. Og milli þeirra
getur skapazt samræmi og samhljómur.
Þau eru áreiðanleg og traust. Bæði hneigj-
ast að því að líta fremur á vinnu sem
nautn en býrði. Krabbinn nýtur þess að
vinna það er honum meðal annars tæki til
að safna sér innstæðum sem gætu verndað
hann gegn óvæntum áföllum. Jómfrú
getur ekki afborið að vera öðrum fjár-
hagslega háð. Sjálfsvirðing beggja er
eindregin og hana vilja þau ekki láta
flekka.
Krabbinn hefur fjörgandi áhrif á hug-
myndaflug jómfrúr og júmfrúin vill
vernda krabbann sinn. Jómfrú getur
fyrirgefið og þótt jómfrú eigi erfitt með að
beygja hnén getur hún það í innbyrðis
skiptum þeirra.
Vogin er loftmerki og því er nærtækt að
láta sér detta í hug að hún hafi ekki neitt í
þungt og stíflynt nautið. En það er ekki
alls kostar, vogin leynir furðanlega á sér.
Hún er föst fyrir þegar hún loks hefur
komizt að niðurstöðu, hún er hins vegar
mjúk í framkomu og er lagin að leiða
nautið án þess það taki eftir því. Hún
getur líka ruglað nautið heldur hressilega
í ríminu, vegna þess að nautinu finnst ekki
að svo mjög þurfi að fjalla um hvern hlut
eins og voginni. Nautið finnur snarlega
lausnirnar og vill svo standa við þær, þótt
þær teljist ekki hugmyndaríkar. Reynist
þær rangar viðurkennir nautið ekki mis-
tök sín, reynist hugmyndir vogar rangar
viðurkennir hún það — meira að segja
fjálglega. Þarna er auðvitað verulegur
munur á. Vogin finnst þetta ákaflega
þungbær ljóður á ráði nautsins og hún
reynir mikið til að telja því trú um að
nokkur sveigjanleiki sé nauðsynlegur,
réttlætiskennd hennar er misboðið þegar
Krabbinn — vogin
21. - 22. júlí/
23. sept —23. okt.
Þetta samband er eitthvað hið forvitni-
leegasta milli allra einstaklinga stjörnu-
hringsins, en ekki hið auðveldasta, það fá
baðir að finna fyrr en síðar. Sagt er að
afar erfitt sé að ná þessum merkjum í
jafnvægi og samskipti þeirra verða stöðug
og gagnkvæm áskorun. Þeim tekst sjaldan
að finna meðalveginn en lukkist það, er
lífið ekki samt og áður, gildi þess er annað
og meira, vegna þess að það hefur neytt
þau til að læra þá flóknu lexíu að mætast á
miðri leið.
Þau launa hvort öðru ríkulega ef þau
geta þetta. Það er mikilvægt mark báðum
að skilja hvort annað og það veitir þeim
Naut — jómfrú
20. apríl — 20. maí/
23. ágúst — 23. sept.
skyldi
eiga sam-
leið með
hverjum?