Morgunblaðið - 25.11.1979, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
71
Frá brjóstagjöfog blegj-
um íhlutverk Orfeusar
+ SIGRÍÐUR Ella Magnúsdótt-
ir söngkona er nýkomin heim
með nýfæddu tviburana sina. t
viðtali við Mbl. sagði hún, að
sér og sonunum heilsaðist vel
og þessa dagana snerist allt um
brjóstagjöf og bleyjur, eins og
við væri að búast.
Synirnir voru teknir með keis-
araskurði og sagðist Sigríður
hafa haft miklar áhyggjur af því
er hún frétti af væntanlegum
keisaraskurði að lítið yrði úr að
hún gæti sungið í jólaóperu
Þjóðleikhússins. „Allir, sem hlut
áttu að máli, hafa greinilega lagt
sig fram og ég get varla sagt að
ég finni fyrir þessu lengur. Ég
prófaði strax á fæðingardeild-
inni að gera algengar öndunar-
æfingar til að athuga, hvort allt
væri á réttum stað, og ég tel mig
fljótlega vera tilbúna til að hefja
æfingar af fullum krafti."
Sigríður sagði einnig, að hún
væri viss um að þetta gengi allt
vel. Hún hefði góða hjálp heima
og nú einbeitti hún sér að því að
fclk í
fréttum L
safna kröftum. „Ég sef þegar
börnin sofa. Strákarnir eru
feiknasprækir og mjög matlyst-
ugir. Þetta eru mikil viðbrigði og
kannski mest fyrir dóttur mína,
sem er aðeins eins og hálfs árs.“
Sigríður fer með hlutverk Orf-
eusar í óperunni Orfeus og
Evridís.
A myndinni eru þau mæðginin
Sigríður og tvíburarnir með
stóru systur Önnu Leópoldínu
Sólveigu, sem verður áreiðanlega
dugleg að passa bræður sína
þegar þeir verða stærri.
Erindreki
íslenzkra
skáta tekur
þátti
„Operation
Drake ”
Tvítug Akureyrarmær,
Bjargey Ingólfsdóttir, er
fjórði Islendingurinn sem
hlýtur það hnoss að fá að
taka þátt í leiðangrinum
„OPERATION DRAKE“ í
viðtali við Mbl. sagði Bjarg-
ey, að hún myndi taka þátt í
leiðangrinum frá 20. júlí n.k.
til 7. október.
Bjargey lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akur-
eyri s.l. vor og starfar nú sem
erindreki hjá Bandalagi
íslenskra skáta. Þrír aðrir
Islendingar hafa fengið þetta
sama tækifæri, þ.e. Guðjón
Arngrímsson blaðamaður,
Hrafnhildur Sigurðardóttir,
sem tekur þátt í leiðangrin-
um þessa dagana og er vænt-
anleg heim rétt fyrir jól, og
Börkur Arnvíðarson, sem
leggur upp í leiðangurinn
eftir áramótin.
„Landið og íslenzki
hesturinn hafa náð á
mérsterkum tökumy*
Flug í 35 ár
HÉRLENDIS hefur dvalið undan-
farnar sex vikur Angela Mayer,
20 ára gömul stúlka frá Sviss.
Angela er hér öðru sinni, hún var
hér í eitt ár 1977—78 og þá sem
skiptinemi.
A meðan á dvöl hennar sem
skiptinema stóð var hún fyrst á
íslenzkunámskeiði í Reykjavík,
vann í fiskvinnslu og var við nám á
Húsmæðraskólanum að Lauga-
landi. Hún starfaði á upptöku-
heimili ríkisins í Kópavogi í tvo
mánuði og í eldhúsi á spítalanum á
Húsavík. Hún sagði þó skemmti-
legustu dvölina hafa verið á bónda-
bænum Jaðri hjá Egilsstöðum, en
þaðan var hún að koma, er Mbl.
ræddi við hana.
Angela talar góða íslenzku og
sagði að landið og þó sérstaklega
íslenzki hesturinn hefðu náð sterk-
um tökum á sér.
„Ég lauk námi s.l. vor og vann í
sumar sem fararstjóri heima í
Luzern í Sviss. Ég hef fullan hug á
að koma hingað sem oftast, en það
er bara svo dýrt að fljúga á milli.
Það var erfitt að læra íslenzkuna
og sérstaklega er erfitt að lesa
blöðin. Ég hef þó lesið nokkrar
bækur á íslenzku eftir Halldór
Laxness og nokkrar af íslendingas-
ögunum á þýzku."
+ UÓSMYNDARINN okkar,
Ólafur K. Magnússon, rakst einn
morguninn á tvo menn í kaffi-
teríunni á Loftleiðahótelinu og
auðvitað var ekki rætt um annað
en flug. Á borðinu lá líka
tímaritið Flug. Ásbjörn Magn-
ússon hjá Loftleiðum hóf um
1945 útgáfu þessa rits, sem ætlað
er öllu áhugafólki um flug, og
gaf það út fyrir eigin reikning.
Þá var hann flugumferðarstjóri
hjá flugmálastjórn. Áhuginn á
flugi var þá svo mikill, að það
var gefið út í 4000 eintökum.
Þegar Ásbjörn fluttist til Dan-
merkur til að opna fyrstu skrif-
stofu Loftleiða erlendis, þá gaf
hann útgáfuréttinn að blaðinu
Flugmálafélagi íslands og fleir-
um. Var það gefið út undir
ritstjórn ýmissa góðra manna,
svo sem Þorsteins Jósepssonar,
Sigurðar Magnússonar o.fl. En
gekk milli manna og dalaði, urðu
eyður í útgáfunni. Þar kom að
ungur maður, Jón Karl Snorra-
son, hóf sjálfur útgáfu þess með
leyfi flugmálastjórnar. Og nú
hefur Pétur Johnson (bróður-
sonur Arnars Johnson) gefið út
eitt blað af Flugi fyrir eigin
reikning, og er að koma út öðru,
og hefur samið við Flugmálafé-
lagið um það. En Ásbjörn er nú
aftur orðinn forseti Flugmála-
félagsins, og voru þeir þarna að
spjalla um ritið. Sagðist Ásbjörn
vera ánægður með að blaðið væri
aftur að fara í sama gamla farið.
— Við erum íhaldssamir, sagði
hann, og erum m.a. enn með
sama haus á blaðinu.
„Skemmtilegust var þó dvölin á bóndabænum Jaðri,“ sagði Angela
og bendir blaðamanni á staðsetningu hans á íslandskortinu.
Ljósm. Mbl. ól.K.Mag.
Tónlistar-
snillingar
framtíðar-
innar?
+ ÞEGAR börnin „tóku
útvarpið yfir“ s.l. fimmtu-
dag komu fram þessir
átta krakkar úr Tón-
menntaskóla Reykjavíkur
og fluttu frumsamið tón-
verk eftir þau sjálf.
Tónverkið nefndu þau
MAGUHRATA, og var
nafnið að þeirra sögn
fengið með því að taka
stafi úr nöfnum þeirra
allra og raða þeim upp á
margvíslegan hátt þar til
þau töldu útkomuna læsi-
lega.
Hólmgeirsdóttir, Hrafn-
hildur G. Hagalín, Mar-
grét Þorsteinsdóttir,
Tryggvi M. Baldvinsson
og Þórunn Sveinbjarnar-
dóttir. Stjórnandi og
kennari krakkanna er
Bergljót Jónsdóttir.
Þórir Steingrímsson
tæknimaður útvarpsins
sagði, er hann vann með
krökkunum að upptöku
verksins, að hann teldi
tónverkið fyllilega stand-
ast samjöfnuð við margt
af því sem þeir fullorðnu
láta frá sér fara.
Krakkarnir sem eru
14—15 ára, heita: Björk
Guðmundsdóttir, Bryndís
Bragadóttir, Dagrún
Hjartardóttir, Guðrún