Morgunblaðið - 07.12.1979, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.12.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1979 37 ir, eða fylgdust með þeim að minnsta kosti, og tilkynntu hlut- aðeigandi mjólkurbúi um þær án tafar. Þetta gerðist því miður ekki, eða mistókst, svo að gjöf fúkalyfja handa mjólkurkúm er nú hvort tveggja, eftirlitslaus og takmarkalaus. Munu þeir mjólk- urneytendur vandfundnir á íslandi, sem ekki fá þessi „ágætu" lyf öðru hverju eða jafnvel stöðugt með kúamjólkinni. Það er öllum ljóst, sem til þekkja og ekki síst mjólkurfram- leiðendum, að erfitt eða nær ógerlegt er að rekja til uppruna síns svolítið af fúkalyfi, sem finnst í innihaldi 2.000 1. mjólkur- tanka við móttöku í mjólkurbúi. Ekki dygði minna en stöðugar prófanir og mælingar á fúkalyfj- um í mjólk hvers einasta fram- leiðanda, til þess að finna þá brotlegu. Bannið í reglugerðinni er því gagnslaust, þangað til skipulögð hefur verið sjálf lyfja- gjöfin og eftirlit með henni. Ég ætla að láta íslenskar rann- sóknastofnanir um það, að birta fyrirliggjandi niðurstöður hér að lútandi, s.s. hversu mikið er af fúkalyfjum í mjólkinni og hverj- um truflunum við framleiðslu osta og súrmjólkur fúkalyfin í mjólkinni hafa valdið. Heilbrigð- iseftirliti ríkisins „undir stjórn landlæknis" er svo best treystandi til þess að gera grein fyrir því, hversu heilsusamleg þessi lyfja- gjöf er fyrir mjólkurneytendur. Lagfæringar Af framanskráðu er ljóst, að það er einkum tvennu, sem er ábótavant í matvælaeftirlitinu á íslandi, þ.e. stjórn eftirlitsins og reglugerðunum, sem starfa skal eftir. Hvort tveggja má lagfæra ef vilji er til þess. 1. Verksvið matvælaeftirlitsins er miklu stærra en svo, að Heil- brigðiseftirlit ríkisins geti farið með stjórn þess, til viðbótar öllu öðru, sem heilbrigðisþjónustan í landinu nær til. Auk þess er matvælaeftirlit sérgrein, byggð á staðgóðri þekkingu í matvæla- fræði, einkum á sviði gerlafræði og efnafræði, sem ekki er að vænta, að læknisfræðin nái yfir, að þeirri grein ólastaðri. Mat- vælaeftirlitið verður því að skilja frá Heilbrigðiseftirlitinu og setja það undir sérstaka stjórn, sem ekki hefur neitt annað eftirlit með höndum. 2. Reglugerðir um matvælaeftirlit eiga fyrst og fremst að vera þannig, að unnt sé að vinna eftir þeim. Skýringar á hugtökum eiga að vera greinilegar og rökréttar. Og í vörulýsingum á að setja greinilega fram það, sem vega skal og meta, þannig að séð verði í aðalatriðum, hvernig varan á að vera og hvernig ekki, til þess að hún teljist hæf til neyslu. Þetta, ásamt ákvæðum um merkingu vörunnar, ber að skoða sem lagaboð. í þennan kafla reglu- gerðar ber að forðast að setja ákvæði, sem ekki verður full- nægt undir fyrirliggjandi kring- umstæðum. í öðrum köflum reglugerðarinnar geta svo verið kröfur og leiðbeiningar um framleiðsluhætti og eftirlit, en þar verða afdráttarlausar skip- anir oft hlægilegar. Codex Alimentarius Fyrirmynd að matvælareglu- gerðum, þar sem settir eru annars vegar staðlar um gerð og merk- ingu matvæla og hins vegar leið- beiningar um framleiðsluhætti, er að finna í skráningu þeirri á alþjóðlegum matvælastöðlum (Codex Alimentarius), sem verið er að framkvæma á vegum FAO og WHO. I stöðlunum fyrir ein- stakar vörutegundir, eða fleiri tegundir saman, eru lýsingar á vörunni og uppruna hennar, gerð grein fyrir þeim efnisþáttum og aukaefnum, sem í henni skulu eða mega vera, og mengun, sem ekki má þar vera, ennfremur hvernig varan skuli merkt. Staðlar þessi (Recommended Standards) hafa lagagildi hjá þeim þjóðum, sem gangast undir þá, og auðvelda þeir þá mjög milliríkjaviðskipti, svo sem til var ætlast. Út eru nú Fjórir hreppar með fund í tilefni „Barnaársins44 komnir um eitt hundrað svona staðlar. Til viðbótar þessum stöðl- um eru svo gefnar út reglur um framleiðsluhætti (Codes of Prac- tice). Eru þetta allstór rit með ítarlegum leiðbeiningum og út- skýringum varðandi framleiðslu matvælanna. Út eru komnar nokkrar svona reglugerðir, m.a. fyrir frystan fisk og lagmeti. ísland hefur tekið þátt í þessari alþjóðlegu staðlagerð frá upphafi hennar, árið 1964. Síðustu 3 árin hefur verið skipulögð hér dreifing á stöðlum, reglugerðum um fram- leiðsluhætti og margvíslegum skýrslum og skjölum um þessi mál til viðkomandi aðila hérlendis. Má þá vænta þess að einhverjum hafi lærst að taka rétt á hlutunum, næst þegar semja skal eða endur- skoða reglugerðir um matvælaeft- irlit, og lögð verði þá niður sú grautargerð, sem ráðandi hefur verið í þessum efnum siðustu árin. í TILEFNI „barnaárs“ gang- ast barna- og áfengisvarna- nefndir Hvalfjarðarstranda- hrepps, Skilmannahrepps, Leirár- og Melahrepps fyrir fundi í Heiðarskóla í dag föstudag. — Umræðuefni fundarins er að Hrefna Tynes æskulýðsleið- togi flytur erindi sem hún nefnir: Foreldrar, börn og heimili. — Þá flytur Karl Helgason fulltrúi áfengis- varnaráðunauts erindi um áhrif áfengisneyzlu fullorð- inna á börn. Nemendur í Heiðarskóla lesa úr ritgerðum sínum er þau sömdu í tilefni af „viku gegn vímuefnum" nú í haust. — Fundarmenn geta komið með fyrirspurnir, sem leitast verður við að svara.— Fundurinn er öllum opinn og vilja nefndirnar hvetja foreldra til að fjölmenna á fundinn, sem hefst í Heiðar- skóla, sem fyrr segir kl. 14.30 í dag. (Úr fréttatilk.) EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Landslidið Það má með sanni segja að á „Vitltum Heimildum" sé samankomið landslið íslenskra popptónlistar- manna, því hér koma m.a. fram, Stuömenn, Lonli Blú Bois, Lumm- urnar, Halli og Laddi, Diddú og Egill, Gunnar Þórðarson, Brimkló ásamt mörgum fleiri frá- bærum mönnum og konum. \fít TTAD IXFTMTT TITO V iLLliiíl JQLliVVILIJ1 Ji nn r*rT1 rriT fin «dU blUULUb 7. Drykkjuvísa l‘W2 (E"V, ri'ö-Göössr' :ir*a?i* wíaage) 2, IJt á stoppistcíð 3. Rurt með þér 5. Katrín og Olivcr 6. Dansað á dekki VA íp.Wohófcw E. S.Bíólagið 9. Það blanda aiiir ianda 4. Sói í dag [Jwjb M-jgi'óssort) lO.Ásvörtmn lakkskóm: Hlið2. 1. Óskadratimur j 5. A góðtim degi 9. i'.freyjar i (Sróíár. S lOÆiskisaga | SíBSTAKAB ÞAB.KtB TR í AsryA>,DSSOMA« r v»í« val '..aoa A ; ÞfssA ok.cn> tiTi.iT•''PSTtjB •iAi.I.OÓflSS! 6. Ég er maðtuinn hcnnar i wuwmm »>. Jónínu hans Jóns úfrna ItwíSfddseö/todi'íð; W'mjiA j Ai-i-UR fCrnw Sn Hliðl. I. Mér cr aiveg sáina j 2. Hcirn í Búðardai I 7, Vertu ekki að horfa j svona ailtaf á mig 4. Bióðrautt sóiarlag 3. Ródi raunamseddi 8, Túri kiúrt Villtar Heimildir — 201aga studplata sem borgar sig aö eignast, enda kostar . 0 _ .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.