Morgunblaðið - 07.12.1979, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.12.1979, Qupperneq 16
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1979 Lúðvík Jósepsson formaður Alþýðubandalagsins: Hann sá ótal möguleika til lands og sjávar Það er vissulega vel til fallið að minnast stjórnmálamannsins og þjóðarleiðtogans, Jóns Sig- urðssonar, einmitt nú. Það er tvennt, sem mér er efst í huga, þegar ég minnist stjórn- málamannsins og þjóðarleiðtog- ans Jóns Sigurðssonar. Hið fyrra er, hve glöggskyggn Jón Sigurðsson var á íslenzkt þjóðlíf, á stöðu atvinnuvega, á gildi verzlunar og viðskipta, á mikilvægi menntunar og á þýð- ingu framfara á öllum sviðum þjóðlífsins. Hið síðara er næmur skilningur hans á þjóðfrelsi, á því að þjóðin sé frjáls, á því að engin önnur þjóð hafi aðstöðu til að hafa áhrif á íslenzk þjóðmál. Þessi tvö grundvallareinkenni í fari Jóns Sigurðssonar og í öllu starfi hans eru mér ofarlega í huga, einmitt nú, eins og ástatt er í íslenzkum þjóðmálum. Þó að íslenzkt atvinnulíf væri bágborið á tímum Jóns Sigurðs- sonar og flestir kostir til úrbóta næsta fjarlægir, þá sá hann á mörgum sviðum nýja möguleika og benti á leiðir til framfara- sóknar. Hann sá ótal möguleika til lands og sjávar og hann hvatti landsmenn til dáða. Jón Sigurðsson trúði á framtíð íslenzks landbúnaðar, hann trúði á íslenzkan sjávarútveg, á verzlun og siglingar Islendinga. Hann efaðist ekki um að ísland væri byggilegt land, sem byði upp á óteljandi möguleika, ef vit og atorka, framsýni og frelsi fengi að njóta sín. Jón Sigurðsson skildi, að grundvallarskilyrði fyrir efna- hagslegum framförum yrði að vera stjórnmálalegt sjálfstæði þjóðarinnar. Hann vissi að lítill árangur myndi verða á sviði atvinnumála, á sviði mennta- og menningarmála og á öllum öðr- um sviðum íslenzks þjóðlífs, ef erlendir menn og erlend þjóð ættu að hafa á hendi stjórn íslenzkra mála og ráða hér stefnu og störfum. Jón Sigurðs- son vissi að í kjölfar pólitísks sjálfstæðis myndu efnahagsleg- ar og menningarlegar framfarir koma. Þau sannindi, sem hér hafa verið dregin saman í stutt mál um stefnu og starf Jóns Sigurðs- sonar, áttu að verða okkur nokkurt umhugsunarefni ein- mitt nú. Nú eru uppi raddir í okkar íslenska þjóðfélagi, sem mjög draga í efa gildi og möguleika íslenzkra atvinnuvega. Nú er sagt að draga eigi úr landbúnaði því hann sé hemill á hagvexti þjóðarinnar. Nú er klifað á þeirri heimsku að íslenzkur sjávarútvegur geti ekki tekið við meira vinnuafli og ekki megi vænta meiri framlaga frá honum í þjóðarbúið. — Og nú koma fram raddir, sem krefjast erlends atvinnurekst- urs hér á landi og að bezt sé að útlendir aðilar, sem nægilegt fjármagn eigi, byggi hér og reki atvinnufyrirtæki á sem flestum sviðum. Hvað hefði Jón Sigurðsson, þjóðfrelsishetjan, sagt við slíkum kröfum? Og hvað um hið pólitíska sjálfstæði? Eru ekki einnig komnar fram raddir hér á landi, sem boða erlenda samvinnu af því tagi, að íslendingar afsali sér hluta af sjálfsákvörðunarvaldi sínu? Dvelur hér ekki erlendur her, sem verið hefir hér í yfir 30 ár? Og hefir hann ekki hluta af okkar landi sem sitt yfirráða- svæði? Og sjást ekki merki þess á ótal sviðum, að erlendir aðilar hafi afskipti af okkar málum, og vilji m.a. ráða ótrúlega miklu um mál, sem þó ættu að flokkast undir íslenzk efnahagsmál? Spurningu Morgunblaðsins um það, hvort og að hvaða leyti íslenzkir stjórnmálaflokkar nú hafi sótt eða sæki fyrirmyndir sínar til Jóns Sigurðssonar, læt ég lesendum eftir að svara, en minni aðeins á þetta: Hvaða stjórnmálaflokkar á íslandi í dag sýna í verki, að þeir trúi á möguleika íslenzkra at- vinnuvega, í eigu og undir stjórn íslendinga? Og hvaða flokkar á íslandi í dag sýna í verki að þeir vilji, að Islendingar einir ráði yfir öllu íslandi og öllum málefnum þess, óháðir erlendum auðfyrirtækj- um og erlendum her? Steingrímur Hermannsson form. Framsóknarflokksins: Hann setti markið hátt og lét aldrei bugast Þegar minnst er Jóns Sigurðs- sonar kemur margt í huga. Þó er það einkum tvennt, sem ætíð hefur verið mér minnisstætt frá æsku. Ég dáðist snemma að því hvað hann var ætíð staðfastur í sínum markmiðum, en þó öfga- laus, greip aldrei til neinna öfgafullra úrræða. Hann setti markið hátt og lét alcjrei bugast. Þetta finnst mér mjög athyglis- vert í hans fari. Jafnframt þótti mér snemma nánast undarlegt hvað hann gerði sér glögga grein fyrir því að framfarir yrðu að verða í atvinnuháttum landsmanna. Hann skildi þegar á þessari öld, sem var ekki öld tækninnar, að tækni og framfarir eiga ákaf- lega stóran þátt í bættum lífskjörúm og stuðlaði að því á ýmsan máta. Oddur Ólafsson forseti sameinaðs alþingis: Vakti áhuga þjóðarinnar á störfum Alþingis og kenndi henni að meta þau Forseti sameinaðs alþingis, Oddur Ólafsson, hafði eftirfarandi að segja um stjórnmálastörf Jóns forseta, er Mbl. ræddi við hann um ævi og störf Jóns Sigurðssonar: „Ég mótmæli í nafni konungs og þjóðarinnar þessari aðferð og ég áskil þinginu rétt til að klaga til konungs vors yfir lögleysu þeirri sem hér er höfð í frammi." Þann stjórnmálaatburð finnst mér að beri hvað hæst í seinni alda þjóðarsögu íslendinga, þegar Jón forseti Sigurðsson mótmælti með þeim orðum sem áður er lýst, framferði konungsfulltrúa í lok þjóðfundar. Hnípin þjóð í vanda, kúguð og hrjáð af aldalöngu stjórnmála- og viðskiptaófrelsi, beygð og mergsogin af harðrétti hvers konar, hrökk hér upp við sterka rödd, er andmælti misnotk- un valdsins. Stjórnmálamaður á heimsmæli- kvarða hafði með einni setningu rétt úr mögru bognu baki og vakið vonir með þjóð sinni. — O - Þegar Jón Sigurðsson, þrítugur að aldri, hóf stjórnmálabaráttu sína, þá átti hann að baki áralangt nám og starf, er virðist hnitmiðað til undirbúnings því forystuhlut- verki sem nú var framundan. Uppeldið á Rafnseyri, þar sem prestar og fræðaþular nutu þess að uppfræða fjölgáfaðan æsku- mann, og gerðu það svo rækilega, að 18 ára tók hann stúdentspróf án þess að hafa komið í latínu- skóla. Ársstarf eftir stúdentspróf við verslun Knudsons í Reykjavík, er veitti honum þekkingu á harð- drægni ísl. verslunar, kom honum síðar að haldi. Þriggja ára ritara- starf hjá Steingrími biskupi í Laugarnesi, er veitti honum tæki- færi til að starfa við bókasafn biskupsstólsins. Allt þetta ásamt 7 ára námi og störfum við málvís- indi og sögu í Kaupmannahöfn varð þess valdandi að við upphaf stjórnmálabaráttu sinnar hafði Jón aflað sér dæmafárrar þekk- ingar á sögu landsins, högum þess og atvinnuvegum. „Sennilega mun vera leitun á stjórnmálamanni hjá nokkurri þjóð, er hefur látið sögu lands síns þjóna málstað nútíðarinnar með slíkri kostgæfni og jafn ríkum árangri og Jón Sigurðsson," segir Sverrir Kristjánsson. Vafi leikur á hvers geta beri öðru fremur er segja skal með fáum orðum frá stjórnmálastarfi Jóns. Sjálfur taldi hann það sér mest til gildis að hafa komið í veg fyrir að ísland væri innlimað í Danmörku. Júlíbyltingin í Frakklandi 1830 og þær nýju skoðanir um stjórn- mál og þegnfélagsskipun, sem hún var sprottin af, vöktu alþýðu Evrópu af svefni deyfðar og áhugaleysis. Flugrit og bænaskrár hófu göngu sína, Danakonungur afréð að setja 4 ráðgjafaþing í ríki sínu og Baldvin Einarsson vakti fyrst- ur íslendinga máls á því í tveim ritgerðum að íslendingar yrðu að fá sérstakt innlent þing. Jón var á árunum 1830 og 1840 einn forgöngumanna fyrir þeim mörgu ávörpum sem Islendingar í Höfn sendu konungi og ýmsum málsmetandi mönnum í Dan- mörku um ýms hagsmunamál íslendinga. Jóni var ljóst að grundvöllur stjórnarbótar og þróunar á Islandi var endurreisn Alþingis. Hann kallar Alþingi frækorn allrar framfarar og blómgunar þessa lands vors. Hann hefur nú með félögum sínum og skoðanabræðrum útgáfu Nýrra Félagsrita og stofnar í rauninni stjórnmálaflokk. í fyrstu blöðum Nýrra Félagsrita ritar hann hverja greinina á fætur annarri um Alþing á íslandi. Þar gerir hann grein fyrir því hvernig alþingi eigi að starfa og fræðir lesendur um gildi þingsins fyrir þjóðina. Hann vill að þingfundir séu haldnir í heyranda hljóði,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.