Morgunblaðið - 04.01.1980, Side 1

Morgunblaðið - 04.01.1980, Side 1
32 SÍÐUR 2. tbl. 67. árg. FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Carter biður þingið að fresta SALT II Vopnabúnaður skammt frá Kabúl. Af þessari einu mynd má sjá hve gífur- legur herbúnaður Sovét- manna er. Yfir 50 skrið- drekum hefur verið raðað upp skipulega auk f jölda herflutningabifreiða og tjalda. Simamynd AP. Washington. Moskvu, Lundúnum. 3. janúar. AP. JIMMY CARTER, forseti Bandaríkjanna. bað í dag þingið að fresta umfjöllun um SALT II samkomulagi Bandaríkjanna og Sovétríkjanna vegna innrásar Sovétmanna í Afghanistan. Jody Powell, blaðafulltrúi forsetans, skýrði frá þessu. Hann sagði þó, að þetta þýddi ekki að SALT II samkomulagið væri endanlega úr sögunni. Thomas Watson, sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu kom í kvöld til Bandaríkjanna eftir að Carter kallaði hann heim. TASS-fréttastofan sovézka skýrði óvenjufljótt frá ákvörðun Carters og gagnrýndi hana, þar sem Sovétmenn hefðu aðeins veitt Afghönum „hernaðaraðstoð“. Innrás Sovétmanna hefur mælst misjafnlega fyrir víðs vegar um heim. Ríki austurblokkarinnar fögn- uðu henni. Evrópskir kommúnista- flokkar fordæmdu hana, en með semingi þó og brezki kommúnista- flokkurinn tók afstöðu með innrás- inni. Ýmis helztu blöð á Bretlands- eyjum hvöttu til harðari aðgerða, svo sem að stöðva hveitisölu til Sovétríkjanna, hætta við þátttöku í Olympíuleikunum, auka hervæðingu Vesturveldanna, hernaðarstuðning við Pakistan og að hafna SALT II samkomulaginu. Ásamt vestrænum ríkjum hafa flest ríki Asíu hvatt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna verði kallað saman til að fordæma íhlutun Sovétmanna. Víða kom til mótmælaaðgerða við sovézk sendiráð. í Istanbúl lézt einn háskólanemi þegar ráðist var á ræðismannsskrifstofu Sovétmanna. Saudi-Arabía hvatti ríki múham- eðstrúarmanna til að fylkja sér að baki uppreisnarmönnum í Afghan- istan. Yfirstjórn suðurvængs NATO lýsti yfir áhyggjum sínum vegna aukins styrks Sovétmanna. Harold Shear flotaforingi lýsti innrás Sov- étmanna sem sérstaklega vel út- færðri í öllum atriðum og sagði það ógnvænlegt að nú á skömmum tíma hefðu Sovétmenn náð sterkum ítök- um í Eþíópíu, Angóla og Afghanist- an — með því hefðu þeir náð ákjósanlegri fótfestu til að ná yfir- ráðum yfir Mið-Austurlöndum. Hreinsanir í afghanska hernum og vaxandi átök Kahul. Nýju-Delhi, Karachi, Moskvu — 3. janúar. AP. HARÐIR bardagar geisuðu víðs vegar i Afghanistan milli sovéskra hermanna annars vegar og her- manna, sem hafa risið upp gegn sovéskri innrás í landið, og skæru- liða múhameðstrúarmanna hins vegar. Indverska fréttastofan UNI sagði í dag, að sums staðar hefði Sovétmönnum vegnað vel í bardög- Jcrúsalcm, 3. jánúar. AP. ÞRÁLÁTUR orðrómur er á kreiki um það í hópi öfgasinnaðs rétttrú- arfólks i Jerúsalem að Messías sé að koma. Þrjá lærða og virta rabbía dreymdi sömu nóttina að siðasta stórorrusta jarðarinnar yrði háð í um en annars staðar hefðu þeir átt í vök að vcrjast, meðal annars í Herathéraði í vesturhluta landsins. Þar hafa Sovétmenn mætt harðri mótspyrnu. íranska fréttastofan skýrði frá árás skæruliða á fangels- ið i höfuðborg héraðsins, Herat. Þar hafi skæruliðar barist við sovéska hermenn og náð fangelsinu á sitt vald og frelsað alla fangana. Þá skýrði UNI frá því, að Sovét- apríl á þcssu ári og að þá mundi þúsund ára ríkið hefjast. Samkvæmt sumum fréttum dreymdi rabbíana að naumlega yrði komizt hjá kjarnorkustyrjöld milli risaveldanna. Aðrir sögðu að átökin miklu hefðu þegar átt sér stað og að Messías kæmi með friði og spekt. Kabbalistar hafa þótzt sjá merki komu Messíasar í eitt ár og margt menn hefðu hafið hreinsanir í afghanska hernum og að ýmsir háttsettir herforingjar hefðu verið settir af en ekki var getið um örlög þeirra. Sovésk dagblöð skýrðu frá bardög- um í landinu í dag. Izvestia skýrði frá því, að barist hefði verið í Kabúl og á landsbyggðinni, „Skæruliðar andbyltingaraflanna slitu síma- hefur þótt benda til þess að fótatak hans hafi heyrzt. Rabbíarnir vilja ekkert láta hafa eftir sér, en þegar einn þeirra, Ephraim Manella, var að því spurð- ur hvort Messías væri að koma, svaraði hann með gömlum máls- hætti Gyðinga: „Þeir sem segja vita ekki, þeir sem vita segja ekki.“ sambandi við Kabúl," sagði blaðið. Pravda sagði að rangt væri að álíta að „andbyltingaröfl myndu láta niður vopn. Erlendri íhlutun heims- valdasinna er ekki lokið í landinu," sagði blaðið. Harðir bardagar voru í Honarhér- aði. UNI hafði eftir diplómötum, að skæruliðar hefðu ráðist á tvær sovéskar flutningalestir. Engar fréttir voru af mannfalli þar. UNI skýrði frá, að harðnandi átök ættu sér nú stað í héruðunum Badakshan, Paktia, Kandahar og Nannarhar. Sovétmenn náðu í dag á sitt vald borgunum Kandahar og Jalalabar. Bardagar um Kandahar stóðu í tvo daga, að þvi er haft var eftir flóttafólki, sem flýði yfir landamær- in til Pakistan. Margir hermenn í afghanska hernum snerust gegn Sovétmönnum þegar þeir komu til borgarinnar, en einnig bárust fréttir af öðrum sem tóku Sovétmönnum fagnandi. Þá var haft eftir skærulið- um að mikið mannfall hefði orðið þegar barist var í Kabúl. Um 250 manns hefðu fallið, þeirra á meðal margir Sovétmenn. Kínverska blaðið La Kung Pao, sem túlkar skoðanir kínverskra stjórnvalda og gefið er út í Hong Kong, sagði í dag að Sovétmenn stefndu að því að sameina Baluchi- ættflokkana í Afghanistan, íran og Pakistan í eitt ríki og þar með láta þann draum frá tíð keisaraveldisins rætast, að fá aðgang að Indlands- hafi. „í dag þýðir þetta, að Sovét- menn ná kverkataki á líflínunni frá Mið-Austurlöndum til Evrópu," var skrifað og ennfremur, „innrás Sovét- manna er greinilega örvænting. Sov- étmenn hafa orðið að bylta þremur „vinum" sínum og koma þeim fyrir kattarnef. Staða Sovétmanna í Af- ghanistan er veikari en jafnvel Bandaríkjamanna i Víetnam". Tito á sjúkrahús BelKrad. 3. janúar — AP. JOSIP Tito, Júgóslavíuforseti. var í dag lagður inn á sjúkrahús í Ljublana vegna blóðtappa í fæti. í stuttri tilkynningu sjúkrahússins sagði. að Tito hefði verið lagður inn að ráði lækna hans. Tito er nú 87 ára gatnall. Gull- æði Lundúnum. 3. janúar. AP. VERÐ á gulli hækkaði enn í dag meira en nokkurn óraði fyrir. Þegar gjaldeyrismörkuð- um í Zúrich og Lundúnum var lokað í dag var verð á gulli 635 dollarar í Zúrich og 630 dollar- ar í Lundúnum hver únsa. í Hong Kong var verð á gulli enn hærra, þar seldist únsan á 619 dollara. Gullæði virðist hafa gripið um sig og almennt er talið að skýringin sé hið ótrygga ástand í heiminum. I gær var verðið á gulli 562 dollarar hver únsa á gjaldeyrismarkaðinum í Lund- únum. Sovéskar herflutningaþotur affermdar í Kabúl, höfuðborg Afghanistans. Símamynd AP. Jerúsalem: Komu Messíasar spáð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.