Morgunblaðið - 04.01.1980, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
2
Einar Bragi rithöfundur:
Tvo daga í f angelsi
frekar en að greiða
sekt vegna meiðyrða
Byrjar afplánun á mánudaginn
I leiguflugi
fyrir
ríkisstjóra
ARNARFLUG sendir í dag þotu
sína utan til að annast leiguflug
fyrir ríkisstjóra Sao Paulo í
Brasiliu, en hann er á ferð ásamt
um 70 manna fylgdarliði um
nokkur lönd í Evrópu og Asíu.
Verður vélin í þessu flugi i 13
daga og fylgir henni ein áhöfn.
Stefán Halldórsson starfs-
mannastjóri Arnarflugs sagði að
þetta væri nokkuð óvenjulegt
leiguflug, því hingað til hefði
félagið venjulega leigt vélar sínar
til að annast áætlunarflug á
vegum annarra flugfélaga. Þota
Arnarflugs tekur ríkisstjórann og
fylgdarlið hans í Róm á morgun
og verður m.a. farið með hópinn
til borga í Saudi—Arabíu og Irak
og hópnum síðan skilað í París.
Um frekara leiguflug Arnarflugs
sagði Stefán ekki enn fullráðið.
Um áramótin hættu hjá Arnar-
flugi 7 flugfreyjur, 4 flugvélstjór-
ar og einn flugmaður er sagt hafði
verið upp, og frá l.apríl n.k. munu
tveir flugvélstjórar í viðbót hætta.
Nokkrir flugmanna félagsins er
verið hafa í millilandaflugi annast
nú innanlandsflugið ásamt þeim
flugmönnum sem áður störfuðu
hjá Vængjum, en nú starfa hjá
félaginu alls 16 flugmenn, 5 flug-
vélstjórar og ein flugfreyjuáhöfn.
Ljósm. Kristján.
Ætla að skipta um númer
HAPPDRÆTTI Háskóla íslands hélt í
gær veislu þar sem voru meðal annarra
vinningshafarnir frá Stykkishólmi er
hlutu 45 milljón króna vinning á miða
sinn, 51931. í spjalli við Mbl. kom fram
að þau eiga þennan eina miða nífaldan
og ætla að skipta um númer og gefa
öðrum tækifæri til að vinna á hann enda
vita þau að lögmál líkindareiknings
segir að líkurnar séu einn á móti
einhverri stjarnfræðilegri tölu um vinn-
ingsvon fyrir þau á þetta númer, en
vinningurinn hefði fleytt þeim yfir
erfiðan hjalla í húsbyggingu. Hyggjast
þau því freista gæfunnar með nýjum
miða. Á myndinni eru frá vinstri Emil
Þór Guðbjörnsson, Guðmundur Magnús-
son rektor og Hrafnhildur Jónsdóttir.
Ljósm. Skúli Þórðarson.
Myndin var tekin á nýársnótt af bifreið, sem hafnaði á staur við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og er
ónýt á eftir. Bifreiðin vafðist utan um staurinn ef svo má segja og má telja það kraftaverk að
ökumaðurinn slapp lifandi. Hann lærbrotnaði á báðum fótum.
Rauði krossinn:
Á VEGUM Rauða kross íslands er nú tilbúið hjálparlið til að fara til
Thailands til hjálparstarfa, en í síðasta mánuði fór 7 manna hópur þangað
til að aðstoða við flóttamannahjálp. Að sögn Auðar Einarsdóttur hjá
Rauða krossinum hefur verið beðið um lið skurðlækna, svæfingarlækna og
skurðstofu- og gjörgæsluhjúkrunarkvenna ásamt fararstjóra er gæti farið
utan með stuttum fyrirvara.
Auður Einarsdóttir sagði að erfitt
væri að fá menn til að fara með
stuttum fyrirvara þar sem ekki væri
hægt að segja til um hvort þörf yrði
fyrir fólkið strax eða ekki fyrr en að
einum til tveimur mánuðum liðnum
og því væri nú til athugunar að
Norðurlöndin sameinuðust um að
útvega svona hópa. Hópurinn sem er
hins vegar tilbúinn að fara utan
núna með 6 daga fyrirvara er
Eyjólfur Haraldsson læknir, hjúkr-
unarfræðingarnir Karólína Bene-
diktsdóttir, Sigríður Guðmundsdótt-
ir, Þóra Arnfinnsdóttir og Anna
Óskarsdóttir og með þeim Baldvin
Hafsteinsson sem fararstjóri.
Áuður kvað fólkið hafa sótt nám-
skeið á vegum Rauða krossins líkt og
fyrri hópurinn og væri sem fyrr
segir reiðubúinn að hverfa utan með
6 daga fyrirvara. Þá sagði Auður að
ekki hefðu borist fréttir af hópnum
sem nú dvelst í Thailandi nema hvað
öllum liði vel, en illa hefur gengið að
ná sambandi við hópinn til að heyra
nánari fregnir.
Margeir
og Jón með
2Vt vinning
Á alþjóðlegu skákmóti í Prag
þar sem þeir keppa Margeir
Pétursson og Jón L. Árnason
eru þeir báðir með 2 og hálfan
vinning eftir 5 umferðir, en
Margeir auk þess með biðskák.
Margeir á biðskák við
Tranftetter og taldi sig eiga
lakari stöðu og Jón tefldi við
Hruska í gær og vann hann.
Ekki kvað Margeir hægt að
segja til um hverjir væru efstu
menn mótsins vegna fjölda
biðskáka, en nær allar skákir í
gær fóru í bið og verða þær
tefldar í dag fyrir hádegi og 6.
umferð síðdegis.
Jóhann vann
Pólverjann
JÓHANN Hjartarson vann í
gær Pólverjann Radziejevski í
tólftu umferð Evrópumeist-
aramóts unglinga í skák sem
nú fer fram í Groningen í
Hollandi og lýkur í dag.
Jóhann er þá í 10.—12. sæti
með 6 og hálfan vinning. Efst-
ur er Sovétmaðurinn Chernin
með 10 vinninga og hefur hann
þegar tryggt sér sigur á mót-
inu.
Elvar í 4.—7.
sæti í
næstsíðustu
umferð
ELVAR Guðmundsson sem
nú keppir á unglingamóti í
skák í Hallsberg í Svíþjóð
vann í gær í næstsíðustu
umferð Þjóðverjann German
og hefur hann nú 5 vinninga
af 8.
Elvar Guðmundsson sagði
að síðustu umferðina ætti að
tefla í dag, en hann er nú í
4.-7. sæti og bjóst við að
halda þeirri stöðu í síðustu
umferðinni. Efstur að ólok-
inni einni umferð er MeNabb
með 7 vinninga og Hodge með
6 og hálfan vinning.
„ÞAÐ ER EKKI nema um tvennt að ræða samkvæmt þeim boðum sem
ég hef fengið, og ég hef þegar lýst því yfir skilmerkilega að ég borga
ekki sektina, og því kemur að arrestingunni,“ sagði Einar Bragi
rithöfundur í samtali við Morgunblaðið í gær. Einar var sem kunnugt
er einn þeirra sem á sínum tíma voru dæmdir fyrir meiðyrði í garð
aðstandenda Varins lands.
Einar sagðist hafa fengið boð
um að mæta til afpiánunar í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg á mánudaginn kemur, þann 7.
janúar, klukkan 10 árdegis, og það
myndi hann gera. Einar Bragi
sagði sér ekki vera gert að sitja
lengi inni, aðeins í tvo daga. Sömu
fjárupphæð og honum var gert að
greiða í sekt hefur Einar þegar
greitt í Málfrelsissjóð.
Einar sagði það sína skoðun að
Vilmundi Gylfasyni hefði verið í
lófa lagið að náða sig og fella
niður refsingu, en það hefði hann
ekki gert. Mætti í þessu sambandi
nefna að tveir dómsmálaráðherr-
ar á undan honum hefðu setið í
embætti án þess að aðhafast í
málinu.
Einar sagði að lokum ekki vita
hvað aðrir þeir er dóma fengu
fyrir sömu sakir hygðust gera,
annað en það er hann hefði lesið í
blöðum um það mál, og sagði hann
ekki vera um samtök að ræða í því
skyni að greiða ekki sektirnar.
Málfrelsissjóð sagði hann ekki
mega veita styrki til greiðslu á
sektum, en styrki gætu menn
fengið úr honum til að standa
straum af málskostnaði. Það
hefðu bæði hann og fleiri gert;
sótt um og fengið styrki úr
Málfrelsissjóði til greiðslu á
málskostnaði vegna málaferlanna
er spunnust út af skrifum manna
um undirskriftasöfnunina Varið
land.
INNLENT
Vilmundur Gylfason:
Starfssvið
ráðuneytis
að framfylgja
og fullnusta
slíkum málum
VILMUNDUR Gylfason
dómsmálaráðherra var að því
spurður í gær hvort hann hefði
í hyggju að náða þá er dæmdir
voru fyrir meinyrði í garð
aðstandenda Varins lands.
Vilmundur sagði, að ráðherra
færi með náðunarvald, en
starfssvið ráðuneytis væri að
framfylgja og fullnusta slíkum
málum sem því er hér væri til
umræðu og í ljósi þess hefði
aðilum málsins verið send bréf
og töluðu dagsetningar þeirra
sínu máli. Bréfin hefðu verið
send þeim er ekki hefðu enn
gengið frá sínum málum, en
hann hafði ekki handbæra tölu
um það hversu margir hefðu
greitt sektir sínar og hversu
margir hefðu þá fengið til-
kynningu um að mæta til
afplánunar.
Fleiri tilbúnir að
fara til Thailands