Morgunblaðið - 04.01.1980, Síða 3

Morgunblaðið - 04.01.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 3 Framkvæmdastjóri íslensks markaðar í Keflavík: Allur samdráttur hjá Flug- leiðum kemur illa við okkur RÁÐAMENN þeirra fyrirtækja á Keflavíkurflugvelli er annast þjónustu við flugumferð og farþega er um völiinn fara hafa lýst áhyggjum sínum vegna fækkunar ferða Flugleiða um Ísland og telja stefna í óefni þar sem fyrirsjáanleg sé fækkun starfsfólks í öllum starfsgrein- um er tengjast fluginu á ein- hvern hátt í kjölfar minnkandi umferðar. í samtali við Mbl. í gær lýstu þeir m.a. þeirri hug- mynd sinni að stjórnvöld reyndu að auka umferð um flugvöllinn t.d. með þvi að fá erlend flugféiög til að hafa viðkomu í Keflavík á leið sinni yfir Atiantshafið. — Allur samdráttur í ferðum Flugleiða kemur illa við rekstur okkar með því að verslun minnk- ar og verðum við þá að fækka við okkur starfsfólki verði sam- drátturinn varanlegur, sagði Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri íslensks markaðar. — Ég tel fullvíst að erlend flugfélög myndu vilja hafa hér viðkomu ef stjórnvöld fengjust til þess að lækka lendingar- og þjónustu- gjöld, en þá yrðu þau að vera samkeppnisfærari en nú er t.d. við flugvellina í Shannon og Prestwick svo dæmi sé tekið. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú 23 og sagði Jón ekki enn neitt ákveðið með uppsagnir. Sagðist hann hafa margfalda reynslu fyrir því að útlendingar óskuðu eftir því að staðnæmast á íslandi til að versla á Kefla- víkurflugvelli og taldi hann nokkurrar óánægju gæta meðal farþega Flugleiða eftir að þeir hafa ekki viðkomu á Islandi. Sagði Jón að salan hefði numið kringum 760 m.kr. á síðasta ári og væri kringum 92,5% hennar í erlendum gjaldeyri. Auka hefði átt flugumferðina — Ljóst er að alvarlegt ástand skapast hjá Fríhöfninni varðandi starfsmenn og vinnu- fyrirkomulag dragi verulega úr umferð um völlinn, sagði Þórður Magnússon fjármálastjóri Frí- hafnarinnar og sagði hann allar breytingar á því fyrirkomulagi vera pólitíska ákvörðun, og hefðu ekki verið ræddar. Starfs- menn í verslun eru 30 og 8 á lager. Opið er frá kl. 7—19 og utan þess tíma eru starfsmenn kallaðir til vinnu séu farþegar á ferðinni og sagði Þórður að með minnkandi umferð yrði hún einnig óreglulegri og stærri hluti hennar félli þá utan venjulegs dagvinnutíma. — Hefðu stjórn- völd sennilega fyrir löngu átt að gera tilraunir til að auka umferð um völlinn, en það virðist ekki hafa verið gert, sagði Þórður. — Minnkandi flugumferð hlýtur að koma við okkar starf og þar sem við erum ekki bjartsýnir á að önnur flugum- ferð komi í staðinn er fyrir- sjáanlegt að við þurfum að fækka starfsmönnum, sagði Knútur Höiriis stöðvarstjóri Olíufélagsins hf. er annast af- greiðslu eldsneytis á flugvélar. Sagði Knútur að um 20 starfs- menn ynnu við það og önnuðust einnig afgreiðslu fyrir flugvélar hersins og því augljóst að minnkaði flugumferð yrði að fækka mönnum, þótt menn héldu enn í þá von að ástandið yrði aðeins tímabundið og því hefðu ekki verið teknar neinar ákvarðanir ennþá. Vonandi tímabundið Jóhann Pétursson stöðvar- stjóri Pósts og síma á Kefla- víkurflugvelli sagði að frí- merkjasala væri jafnan nokkur til ferðamanna er færu út úr landinu en frá því árið 1970 hefði póstafgreiðsla á flugvellinum verið opin allan sólarhringinn, þ.e. næturvakt sem kölluð væri út þegar tilefni gæfust. Sagði hann frímerkjasölu auk sölu póstþjónustu til íslensks mark- aðar vegna sendinga fyrirtækis- ins til útlanda nema kringum 1,5—3 m.kr. á mánuði og væri frímerkjasalan allstór hluti þessarar upphæðar. Kvaðst Jó- hann óttast að mest ætti eftir að draga úr póstverslun íslensks markaðar er fram færi gegnum kynningarlistum, sem t.d. ferða- menn er hér hafa verið pöntuðu eftir þegar heim væri komið. Hjá pósti og síma á flugvellinum starfa nú 7 manns og kvaðst Jónann vona að ástand þetta væri aðeins tímabundið svo ekki þyrfti að koma til uppsagna. Pétur Guðmundsson flugvall- arstjóri var spurður hvort hugs- anlegt væri að auka umferð erlendra flugfélaga um Kefla- víkurflugvöll og sagði hann að flugvélar millilentu fyrst og fremst af hagkvæmnisástæðum og réðu þá vindar því hvort þær færu milli Evrópu og Ameríku um ísland eða sunnar. Þá vildu flugfélögin helst ekki millilenda nema til að taka upp farþega og væru hinar nýtilkomnu beinu ferðir Flugleiða þar skýrasta dæmið. Hugsanlegt væri að verslunarfyrirtækin gætu rekið áróður til að ýta undir frekari umferð og hefði það t.d. verið reynt fyrir nokkrum árum en forráðamenn flugfélaga yfirleitt gefið þetta svar að tæpast væri það hagkvæmt nema til að taka farþega. Þá taldi Pétur lend- ingargjöld það lítinn hluta af kostnaði við ferðina að þótt til kæmi einhver afsláttur þeirra myndu félögin tæpast láta það atriði ráða úrslitum. Einnig væri spurning um hversu mikla elds- neytissölu olíufélögin gætu ann- ast og óvíst hvort verð þess væri hagstæðara hér en á öðrum flugvöllum. Varðandi hina fyrirhuguðu flugstöðvarbyggingu sagði Pétur að ekki þyrfti endilega að breyta henni svo mikið þótt búist væri við minni umferð. Mest rými færi undir að taka á móti farþegum og innritun þeirra í ferðir, en biðsalur fyrir farþega sem millilentu væri ekki svo mikill hluti byggingarinnar. Hins vegar sagði hann hönnun byggingarinnar í sífelldri end- urskoðun með tilliti til umferð- arspádóma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.