Morgunblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
11
íslamski
marxisminn
íranskeisari sagði óhikað við
erlenda blaðamenn. að meðal
andstæðinga sinna væru ísl-
amskir marxistar, þ.e. hópur
mótmælenda, sem í senn eru
yfirlýstir fylgjendur spámanns-
ins og Marx og baráttumenn
fyrir samofinni trúarlegri og
stjórnmálalegri byltingu. At-
burðarásin styður þessa grein-
ingu.
Tvær túlkanir á írönsku bylt-
ingunni hafa samtímis litið
dagsins ljós. Annie Kriegel, sér-
fræðingur í marxisma fyrr, nú
og í framtíðinni, slær því föstu
af sínu Sinai-fjalli, að enn einu
sinni láti almenningsálitið á
Vesturlöndum blekkjast af allri
þessari yfirborðsmennsku
íslamskra „trúvakningar-
bragða", í bland við „trúarof-
stæki" og „rétttrúnað Kórans-
ins“. Af sama öryggi veltir
Helene Cariere d’Encausse, sér-
fræðingur í minnihlutahópum í
Sovétríkjunum, fyrir sér „óum-
breytanleika Sovétríkjanna" og
telur stjórnendur Sovétríkjanna
ráðvillta og óörugga andspænis
fjöldahreyfingum, sem gætu ein-
hvern næstu daga gripið millj-
ónir múhameðstrúarmanna í
Mið-Asíu, sem zarinn lagði undir
sig og bolsevikar innlimuðu í
sósíalistískt lýðveldi.
í báðum tilfellum breiða slíkar
fullyrðingar yfir götin í upplýs-
ingunum og óhjákvæmileg sefj-
unaráhrif. í höfuðlausu landi
mætast og fylkja sér í kringum
79 ára gamlan öldung allir and-
stæðingar einræðisins, leikbræð-
ur og trúbræður, frjálshyggju-
menn og rétttrúaðir, marxistar
og fylgjendur íslamsks lýðveldis.
Hversu fjölbreytt sem hún er,
þá rennur byltingin sitt hefð-
bundna skeið. Þeir sem hefja
hana, ljúka henni sjaldan.
Þremur árum eftir töku Bast-
illunnar voru lýðveldissinnar og
aðdáendur þingræðisins breska
og dreifingar valdsins horfnir.
Khomeini heldur eða virðist
halda samstöðunni, af því að
honum hafa fallið í skaut ómót-
mælanleg áhrif yfir fjöldanum.
Og þeir, sem bíða eftir völdun-
um, fylkja sér að baki honum.
Rifur má þó merkja í samstöð-
unni, þótt enginn hætti í augna-
blikinu á að draga alveldi Aya-
tollans í efa.
Brottför stjórnar Bazargans
batt enda á fyrsta skrefið. Sú
stjórn, sem aldrei megnaði í
raun að gegna hlutverki sínu,
var fulltrúi hægfara, frjáls-
lyndra eftirlifenda úr þjóðar-
fylkingunni, sem studdi Mossa-
degh fyrir 25 árum. Arás stúd-
entanna á bandaríska sendiráðið
dregur hlut íslömsku marxist-
anna. Hún útilokar pólitíska
stefnu Jimmy Carters (að halda
eðlilegu sambandi við hið nýja
íran og leggja þeim til varahluti
9g matvæli), myndar gjá milli
írana og Bandaríkjamanna og
gerir þjóðina enn róttækari.
Viss atriði minna á tækni
kommúnista. Tíl dæmis láta
stúdentarnir við sendiráðið
mannmergðina gera greinarmun
á bandarísku þjóðinni og stjórn-
völdum, „fólkið er heilbrigt, en
stjórnvöld eru spillt". En í
stærstum hluta þriðja heimsins,
sem býr við harðstjórn, ráðast
byltingarsinnar ósjálfrátt á
heimsvaldastefnur, án þess að
Moskva þurfi þar endilega að
hafa hönd í bagga.
Toudeh-flokkurinn, einu
marxistarnir í íran sem hlýða
beint tilskipunum frá Moskvu
(foringi þeirra bjó í Austur-
Þýskalandi fram að falli keisar-
ans), beitir eðlilega sínum að-
ferðum. Þeir leggja sig fram um
að nota eins lengi og mögulegt er
nafn Khomeinis, um leið og þeir
undirbúa næsta skref, hið ísl-
amska og marxíska lýðveldi.
Sovétríkin hafa eflaust furðað
sig á hve fljótt keisaraveldið lét
sig og á vanmætti Bandaríkj-
anna. Ottast Rússar smitun?
Telja þeir veldi sínu ógnað af
uppreisnum íslama í ríkjum
Mið-Asíu? Ef til vill, ef litið er
langt fram í tímann. En eins og
er bendir allt til þess að þeir hiki
ekki við að nýta sér tækifærið og
ýta undir múhameðstrúarmenn-
ina.
í Afganistan eru þeir búnir að
efna til stjórnar, ósvikinnar sov-
éskrar stjórnar. Að vísu rekur
þessi stjórn sig á uppreisnar-
menn, og enn einu sinni ímynda
Bandaríkjamenn sér að Sovét-
ríkin muni þar hitta fyrir sitt
Víetnam. Hernaðaríhlutunin ber
vitni um ásetning Sovétmanna
um að hnýta þar að. Andstætt
Bandaríkjunum skera Sovétríkin
ekki við nögl, þegar þau telja
markmiðið þess virði. Þau
bregða nákvæmu máli á land-
fræðilegt gildi viðkomandi
áfanga eða umbreytinga.
Hjá Sameinuðu þjóðunum
fylgja fulltrúar Moskvu sömu
línu og önnur ríki, sem eiga
hagsmuna að gæta í sendiráðum.
Útvarp Svoétríkjanna hefur þó
kvatt stúdenta og stutt baráttu
þeirra við heimsvaldasinna. Svo
er skipt um tón, þegar kemur að
bandarísku fulltrúunum. En úr-
slitin ráðast í íran: hverjum
mun íran tilheyra eftir daga
Khomeinis? Ef anti-auðvald-
stefna breiðir sig út yfir landa-
merki allra olíuframleiðsluríkja,
hvað verður þá um sjálfstæða
Evrópu?
Teningunum hefur enn ekki
verið kastað. Trúarleg fyrirlitn-
ing Khomeinis á Bandaríkjunum
nærir hreint pólitískt hatur
marxista á heimsveldissinnum.
Bandaríkjunum hættir til að
samsamast heimsveldisstefnum
á sama hátt og íslamskir bar-
áttumenn samsamast boðunar-
mönnum sósíalisma.
I heimi múhameðstrúarmanna
hafa skilin milli trúar og stjórn-
mála alltaf verið nokkuð yfir-
borðskennd. Karlar og konur,
sem æða tómhent á móti
skothríðinni og æpa „Allah er
mikill“, eru í hlutverki krossfara
eða öllu heldur píslarvotta, en
ayatollarnir og mollarnir binda
sig ekki allir við íslamskt lýð-
veldi. Marxistar eru ekki einir
um þá list að kunna að kalla
lýðinn út á götuna.
Stjórnmálin í íran koma ólg-
unni upp á yfirborðið, þar sem
nýtt ríki er í mótun í bylting-
unni. Fyrir hvatningu og leið-
sögn yfirmanna shita-kirkjunn-
ar losnar um trúarhreyfingu,
sem hætt er við að raski jafn-
vægi í landinu, verði hún bæld
niður. Svo gæti farið að shitarn-
ir hlýði á morgun kalli manns að
nafni Imam.
Við getum áttað okkur á
skynsamlegum rökum íslömsku
marxistanna. Ekki er ég samt
viss um að atburðarásin sjálf
fylgi skynsemi, sem á uppruna
sinn á Vesturlöndum. Trúarof-
stæki er ekki töfrasproti til nota
fyrir einfaldar sálir. Það er líka
viss barnaskapur í því að um-
breyta óskapnaðinum í mynstur
leniniskrar hernaðarlistar.
eftir franska fréttskýr-
andann Raymond Aron
Agnar Kl. Jónsson kjörinn
fyrsti heiðursfélagi Lög-
fræðingafélags íslands
HINN 19 desember sl. var hald- félags íslands. Á fundinum var
inn aðalfundur Lögfræðinga- Agnar Kl. Jónsson ambassador í
Kaupmannahöfn kjörinn fyrsti
heiðursfélagi félagsins. Ilann
hefur sem kunnugt er annast
útgáfu Lögfræðingatals i þrjú
skipti, ritað sögu Stjórnarráðs
Islands i tveimur bindum. auk
margs annars um lögfræðileg
efni.
Fráfarandi formaður, Hallvarð-
ur Einvarðsson rannsóknarlög-
reglustjóri, flutti skýrslu stjórnar
um starfið á liðnu ári. Var það
með fjölbreyttasta móti, margir
fræðafundir um lögfræðileg efni
haldnir, þar sem bæði voru
íslenskir og erlendir fyrirlesarar
og í októbermánuði var haldið
málþing að Minniborg í Grímsnesi
um viðfangsefni úr stjórnarfars-
rétti. Síðasti fræðafundur var
haldinn 13. desember sl. og ræddi
þar dr.' Ármann Snævarr hæsta-
réttardómari um efnið: Foreldra-
réttur — barnaréttur. Hugleið-
ingar um væntanleg barnalög.
Hina nýju stjórn félagsins
skipa: Gunnar G. Schram prófess-
or, forseti lagadeildar, formaður.
Guðmundur Vignir Jósefsson hrl.
varaformaður og meðstjórnendur
eru : Friðgeir Björnsson borgar-
dómari, Ingibjörg Rafnar lögfr.,
Logi Guðbrandsson hrl., Pétur
Hafstein stjórnarráðsfulltrúi og
Skarphéðinn Þórisson hdl.
Oll börn
œttu að f a
að lœra að dansa
Símar20345’ 24959,38126,
74444, 39551.
Kennslustaðir
Reykjavík: Kópavogur:
Brautarholt 4, Hamraborg 1,
Drafnarfell 4, Þingholsskóli
Félagsheimili Fylkis Seltjarnarnes:
(Árbæ). Felagsheimiliö.
Hafnarfjörður:
Gúttó.
Mosfellssveit:
Hlégaröur
AKRANES:
Innritun í Röst sími 1716 mánud
7. janúar kl. 12—5.
Innritun og
upplýsingar
kl. 13—19
Ath.
Konubeat
tímana.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU