Morgunblaðið - 04.01.1980, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.01.1980, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 INDLANDSBRÉF frá Skúla Magnússyni Indland á krossgötum Indira Gandhi: brotið gegn landslögum og lýöræöi Eins og lesendum er kunnugt situr bráöabirgöastjórn aö völd- um á Indlandi undir forsæti Charan Singh. Kosningar höföu veriö ákveönar um svipað leyti og þær sem fóru fram á íslandi, en var síðan frestað og standa nú fyrir dyrum dagana 3. til 6. janúar. Ástæöan fyrir frestuninni er talin vera stjörnuspá. Indverjar eru nefnilega ákaflega hjátrúar- fullir á okkar mælikvaröa, og er ég þó engan dóm aö leggja á hvaö er skynsamleg hjátrú og hvað ekki. Allir meiri háttar atburðir, eins og t.d. giftingar, eru ákvarðaðir samkvæmt úr- skuröi stjörnusþámanna. Stjórnmálamenn eru engin undantekning í þessu efni; Indira Gandhi er t.d. sögö hafa stjörnu- spámann sér viö hiið. Kannski eru þeir einmitt hinir raunveru- legu valdamenn landsins. Indland er eina — eöa næst- um því eina — land hins þriðja heims og fyrri nýlenda sem hefir lánast aö viöhalda lýöræöi, þótt þaö hafi líka hlotiö sín áföll, því aö glundroðinn í þessu landi er slíkur að sumir hér um slóöir telja ekkert líklegra en að hern- aöareinræöi taki við eftir kosn- ingar, a.m.k. ef stjórnmálamönn- unum tekst ekki aö komast aö einhverju samkomulagi. Lýöræöi á Indlandi hefir samt verið meö þó nokkuð ööru móti en á vesturlöndum, og kemur þar ekki síst til sérstök flokka- skipan — lengst af hefir ekki verið um neina stjórnarandstööu aö ræöa í indverska þinginu. Einkenni hins indverska flokka- kerfis hafa einkum veriö talin þessi: 1) Ægivald Kongress- flokksins yfir öllum flokkúm öör- um; 2) vöntun á allri tvískiptingu til hægri og vinstri; 3) þar af leiðandi vöntun á stjórnarand- stööu eöa skipulagðri stjórnar- andstöðu á þingi; 4) skipting flokka í alríkisflokka og svo flokka hinna einstöku fylkja; 5) fjöldi flokka og mikil „viö- koma“ þeirra. Kongressflokknum hefir stundum verið líkt viö bangana- tréö sem enginn annar gróöur nær aö þrífast undir. Til 1970 haföi flokkurinn jafnan um 300 fulltrúa í neöri deild þingsins, og erlíjinn „stjórnarandstööuflokk- ur“ komst yfir 30 fulltrúa! Ástæöan er m.a. sú aö Kon- gressflokkurinn er til orðinn sem samtök til frelsunar Indlands undan breskum yfirráöum — ekki sem stjórnmálaflokkur Gandhi var alltaf á móti því aö breyta flokknum í stjórnmála- flokk. Þá veldur einnig sterkt heföarvald Nehrus meöan hans naut viö. Stjórnmálaflokkum á Indlandi má skipta í tvennt: landsflokka og ríkja- eöa fylkjaflokka. Þeir síöarnefndu hafa ekkert fylgi í kosningum til þjóðþingsins. En þeir geta haft mikið fylgi í einstökum fylkjum, kannski um skamman tíma þó. Þessir flokk- ar byggja ekki á neinni heim- speki eöa hugmyndafræöi eins og hægri-vinstri. Þeir snúast um staöbundin dægurmál og treysta á einstaka sterka leiðtoga. (Ind- verjar eru ískyggilega miklir per- sónudýrkendur.) Sumir þeirra endast mjög stutt — kannski einar kosningar. Síöan 1947 — þegar Indland öölaöist sjálfstæöi sitt — hafa yfir hundraö slíkir flokkar séö dagsins Ijós. Þetta mun nokkuð sér-indverskt fyrirbæri, en sýnir Ijóslega hversu þjóöin er sundur- þykk. Þegar Indland öölaöist sjálf- stæði sitt var aðeins um tvo stjórnmálaflokka að ræða: Kongressflokkinn og Kommún- istaflokkinn. Fyrstu kosningarn- ar voru háöar 1951 — 1952, og þá voru flokkarnir orönir 77 aö tölu! Fyrsta umtalsveröa breyt- ingin á flokksskipulaginu átti sér staö 1964 þegar kommúnista- flokkurinn klofnaöi í tvennt. Mik- ilvægari atburður átti sér staö fimm árum síöar, þegar Kon- gressflokkurinn klofnaöi. Indira klauf sig frá. í kosningunum 1971 hlaut flokkur Indiru 350 fulltrúa, en hinn upphaflegi Kongressflokkur aöeins 16 (af samtals 515 sæt- um)! Áriö 1974 sameinuðust sjö flokkar og stofnuðu svokallaöan Þjóðarflokk. Þegar Indira ákvað kosningar 1977 mynduöu fjórir flokkar fylk- ingu gegn henni, áöur nefndur Þjóöarflokkur þar á meðal og svo sá hluti Kongressflokksins sem var andstæöur Indiru. Þetta var hiö margnefnda Janata- bandalag, stofnaö 23. janúar 1977. Kosningarnar voru háöar í mars og lyktaði svo aö Kon- gressflokkurinn (Indira) hlaut 153 (áöur 350), Janata 293 og allir aörir flokkar 78; óháöir 15. Alls hafa kosningar til þjóö- þingsins veriö haldnar sex sinn- um síöan 1947. Ef þær síðustu eru ekki teknar með hefur Kon- gressflokkurinn mest haft 370 sæti, minnst 283 af samtals 489 (minnst) og 520 (mest) þingsæt- um. Sé hins vegar litið á at- kvæöafjöldann, hefur Kongress mest hlotiö tæp 48% atkvæða. Hann hefur meö öðrum orðum stjórnaö landinu í aldarfjórðung án þess að hafa nokkru sinni til þess meiri hluta þjóöarinnar aö baki sér. Spyr einhver: Er þetta lýðræði? Einmenningskjör- dæmaskipan viröist vera skýr- ingin. í stuttu máli stendur Indland nú á krossgötum. Janata- bandalaginu hefur mistekist. Indira stendur uppi afhjúpuö: hún hefur bæöi ráöist gegn lýðræðinu í landinu (herlögin alræmdu) og veriö dæmd brot- leg gegn landslögum. Hin fjölmenna og sundur- þykka indverska þjóö þarfnast leiötoga. í dag viröist myrkt framundan. Pondy, 13. des. 79. Injrveldur Hjaltested. Elísabet Erlingsdóttir. Sólveijf M. Björling. Tónlist eftir JÓN ÁSGEIRSSON ing fór með hlutverk Orf- eos og naut raddblær henn- ar sín mjög vel, en vel mátti merkja reynsluleysi hennar á sviði. Rödd henn- ar býr yfir mikilli hlýju og var túlkun hennar sann- færandi, einkum í „Ég hef glatað Evridís". Amor var á þessari sýningu fluttur af Ingveldi Hjaltested, sem hefur þá tegund af rödd er dregur sérlega vel. Þó að hún leysti sitt verkefni vel af hendi var auðfundið, að staðsetning og aðstaða til að heyra í hljómsveitinni háði henni mjög. Slíka erf- iðleika má yfirstíga með því að stilla baksvið hátal- ara nokkuð hátt, áður en áheyrendur heyrðu nokk- urn mun og þar með treysta enn betur þau tengsl er nauðsynlega þurfa að vera á milli stjórnanda og söngvara. Á þriðju sýningu sungu Sigríður Ella Magnúsdóttir og Anna Júlíana Sveins- dóttir og sjötta söngkonan er kemur fram í einsöngs- hlutverki í þessari óperu. Elísabet Erlingsdóttir fór með hlutverk Evridísar og gerði hlutverki sínu vel skil. Rödd hennar féll vel að innilegri túlkun hennar og eftir að hafa séð þrjár Onnur og þriðja frumsýning Á ANNARRI frumsýningu Orfeo og Evridís eftir Gluck sungu Sólveig Björl- ing hlutverk Orfeo, Ólöf K. Harðardóttir Evridís og Ingveldur Hjaltested Am- or. Ólöf hafði einnig sungið sitt hlutverk á frumsýning- unni og sýndi það einnig þá að hún er glæsileg söng- kona. Strax í fyrstu aríunni sinni „Hér á engjum ódáinsheima“ og í þriðja þætti í dúettinum „Ó, örlög sem ráðið“ reis söngur hennar hæst. Sólveig Björl- sýningar í röð verður að segja það, að hér er um að ræða ótrúlega vel sam- stillta flytjendur og eini munurinn sem hægt væri að benda á, verður aðeins rakinn til mikils munar á reynslu flytjenda. Á þess- ari sýningu söng Sigríður Ella frábærlega sem og á frumsýningunni og Anna Júlíana Sveinsdóttir bætti miklu við frá því á frum- sýningunni og söng báðar aríurnar sínar í fyrsta þætti mjög vel. „Aguirre, Reiði guðanna44 sýnd í Tjarnarbiói LAUGARDAGINN 5. janúar sýn- ir Fjalakötturinn kvikmyndina „Aguirre, Reiði guðanna" eða „Aguirre, The Wrath oí God“ eftir Werner Herzog í Tjarnar- bíói. Myndin er gerð í V-Þýzkalandi árið 1972 og fjallar hún um leit Spánverjans Aguirre að „E1 Dor- ado“, landi gullsins á 16. öld. Myndin er kvikmynduð af Thomas Mauch. I aðalhlutverkum eru Klaus Kinski, Helena Rayo, Del Negro og Ruy Guerra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.