Morgunblaðið - 04.01.1980, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980
Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastjóri BSRB:
Jöfnum launin strax —
verðbólgan gerir það ekki
Launajöfnun er vinsælt kjörorð
stjórnmálamanna t öllum flokkum
— og meginþorri almennings hef-
ur lýst sig fylgjandi því, að
launakjör þeirra lægstu væru
bætt sérstaklega.
Hafa verið gerðar ýmsar til-
raunir til að breyta launahlutföll-
um bæði með lagaboði eða sér-
stökum takmörkunum í kjara-
samningum. Árangurinn af allt að
40 ára viðleitni í þessa átt er samt
ekki meiri en svo, að nýlega
birtust í sama dagblaðinu tvær
greinar — önnur eftir alþingis-
mann og hin eftir formann eins
stærsta verkalýðsfélags landsins
— þar sem fullyrt er, að þjóðfé-
lagsmisréttið í launamálum hafi
aldrei verið meira en nú.
Greinarhöfundar bentu ekki
sjálfir á neina lausn á vandamál-
inu — en báru fram ósk um
hreinskilnar umræður og sam-
stillt átak í því að söðla um —
orsök vandans var svo af báðum
talið vísitölukerfið — sem vænt-
anlega yrði þá að afnema eða
breyta.
Vísitölufiktið
hefur brugðist
Þessar skoðanir eru dæmigerð-
ar fyrir mjög útbreiddan mis-
skilning, sem hefur ríkt hér lengi.
Vísitöluskerðingar með svokall-
aðri „krónutölureglu" eða „vísi-
töluþaki" hafa verið margendur-
teknar af stjórnvöldum. Aldrei
hafa þær þó ráðið neina bót á
vandanum, heldur jafnan skapað
nýtt og aukið misrétti.
Ástæðurnar eru líka augljósar
hverjum þeim, sem grandskoðar
þessi tvö uppáhaldsáróðursbrögð
stjórnmálamanna sem fjölmiðlar
hafa magnað.
Launafarvegir í þjóðfélaginu
eru fjölmargir — og er grunn-
kaupið aðeins einn af mörgum.
Hinir heita ýmsum nöfnum —
námskeiðsálag — yfirvinnuálag —
hæðarálag — verkfæraálag —
bónushækkun — uppmælingar-
álag — verkstjórnarhækkun —
aflahlutur — fæðispeningar —
aldurshækkun — starfsþjálfun-
arhækkun — óþrifaálag — við-
gerða- og breytingaálag — þunga-
og erfiðisálag — fjarverutillegg
o.fl., o.fl., að ógleymdum sjálfum
yfirborgununum.
Flestallar þessar greiðslur eru
óskertar prósentuhækkanir ofan á
mjög lágan grundvöll — og á þær
koma því yfirleitt fullar vísitölu-
hækkanir og jafnvel stundum
meira (þar sem ein prósentuhækk-
unin kemur stundum ofan á aðra
prósentuhækkun).
Þótt grunnkaupskvíslin sjálf sé
stífluð, t.d. með „krónutölureglu"
eða „vísitöluþaki", þá brenglar það
bara og breytir fastlaunakerfi
eins og hjá opinberum starfs-
mönnum en allar aðrar rásir í
launamálum eru áfram óbeislað-
ar. — Og misréttið vex en minnk-
ar ekki.
Gerum launa-
byltingu
Eru þá engin úrræði til — er
þetta óumbreytanlegt náttúrulög-
mál? Vissulega ekki — en það
verður þá að gera samtímis fjöl-
margar og róttækar breytingar —
brjóta niður ýmsar gamlar og
úreltar hindranir í núverandi
launakerfum — og ef vel á að vera
þarf að framkvæma algerlega
launabyltingu hér á landi.
Ansi er nú hætt við, að þá
reynist e.t.v. tregastir og íhalds-
samastir ýmsir þeir, sem nú út-
hrópa mest vísitölukerfið sem
verðbólguvald.
Flestir þeirra, sem fjallað hafa
um launamál, hafa látið við það
eitt sitja að benda á þörfina á
breytingum, en skirrast við að
koma með beinar tillögur um
einstök verkefni eða framtíðar-
skipan þessara mála.
Úndirritaður ætlar hins vegar
að freista þess að koma hér á
framfæri tveimur hugmyndum,
sem vísi að umræðugrundvelli í
væntanlegri samningagerð stétt-
arfélaganna á þessu nýbyrjaða
ári.
Það skal tekið fram, að mark-
miðið er að framkvæma launa-
jöfnun strax með frjálsum kjara-
samningum — en síðan væri
kaupgjaldsvísitala í fullu gildi.
Þannig verði haldið óbreyttu út
allt samningstímabilið því launa-,
hlutfalli, sem samkomulag tækist
um í byrjun.
Eitt allsherjar-
launakerfi
Víðtækri samvinnu verði komið
á með öllum heildarsamtökum
launafólks, þ.e. Alþýðusambandi
íslands, Bandalagi starfsmanna
ríkis og bæja, Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands,
Bandalagi háskólamanna og Sam-
bandi íslenskra bankarnanna.
Reynt verði að ná samstöðu um
meginatriði rammasamnings, þar
sem kveðið væri á um lágmarks-
kaup, verðlagsbætur, vinnutíma-
ákvæði, yfirvinnugreiðslur, vakta-
álag og e.t.v. fleiri sameiginlega
þætti eins og félagsleg réttindi,
starfsfræðslu o.fl.
Leitast verði einnig við að
samræma sjónarmið þessara sam-
taka varðandi mat á menntun,
starfsþjálfun og ýmsum stjórnun-
arþáttum starfa.
Hvert þessara samtaka geri
síðan sjálfstæða samninga við
sína viðsemjendur á svipuðum
tíma.
Einstök stéttarfélög semji jafn-
framt um endanlega röðun, starfs-
aldursákvæði, bónus og uppmæl-
ingareglur, og önnur sérsamn-
ingaákvæði fyrir sína félagsmenn,
með rammasamninginn sem fasta
viðmiðun.
Þar sem slíkir heildarsamn-
ingar væru alger nýjung og hlytu
að verða flóknir og vandasamir,
þrátt fyrir mikla einföldun frá því
sem gilt hefur, þá yrði gildistími
fyrstu samninga af þessu tagi að
vera stuttur. Tækifæri til end-
urskoðunar og leiðréttingar á ein-
stökum atriðum þarf að geta átt
sér stað innan mjög langs tíma.
Prósentukerfi
skrúfað niður
Eflaust hefur ýmsum þegar
ofboðið sú hin mikla bjartsýni
(eða einfeldni) að láta sér detta í
hug að reyna að sameina öll þessi
stéttarsamtök um svona gagn-
gerða launabyltingu.
Hér skal því bent á einfaldari
útfærslu sem miðar að því að
breyta með vissum samræmdum
aðgerðum þeim sundurleitu launa-
kerfum, sem nú eru í gildi. Heild-
arsamtökin mundu samt sem áður
þurfa að koma sér öll saman um
sams konar launajöfnunaraðgerð-
ir. Þar kæmi eftirfarandi til
greina:
a) Grunnlaunahækkanir á lægstu
launin verði hlutfallslega mest-
ar og fari síðan prósentuhækk-
unin stöðugt minnkandi eftir
því sem ofar dregur.
Þannig verður launajöfnun
framkvæmd strax og henni
stjórnað með samkomulagi, í
stað þess að láta sívaxandi
verðbólgu framkalla ófull-
komna launajöfnun einhvern
tímann í framtíðinni.
Jöfn krónutöluhækkun á
grunnlaunin eða á kaup, sem er
yfir ákveðnu marki (grunn-
launaþak), kæmi einnig til
álita sem leið að þessu marki.
b) Allar prósentutölur í núver-
andi kjarasamningum, sem
bætast ofan á grunnkaup eða
ákveðna viðmiðun (aflahlut
o.fl.), mætti lækka eftir fyrir-
framgerðu samkomulagi og á
sama hátt hjá öllum.
Væri t.d. samið um að lækka
prósentur um 1/5 hluta þá yrði
1% hækkun að 0,8%
5% hækkun að 4%
40% hækkun að 32%
100% hækkun að 80%
Þetta væri mjög áhrifarík
launajöfnunaraðgerð.
c) Ýmsum álagsgreiðslum fyrir
persónuleg óþægindi mætti
e.t.v. breyta úr prósentutölum í
sömu krónutölu ofan á tíma-,
viku- eða mánaðarkaup þeirra
sem búa við sömu aðstöðu.
Þetta gæti komið til greina
við greiðslur fyrir vaktavinnu,
yfirvinnu, gæsluvaktir, óþrifa-
leg störf, verkfærapeninga o.fl.
Launajöfnun eða
kjaraskerðing
Tilgangurinn með grein þessari
er eins og fyrr segir að skapa
umræðugrundvöll og vekja athygli
á þeirri staðreynd, að vísitölumál
eru flóknari en svo, að þau verði
afgreidd með þeim einföldu skerð-
ingarákvæðum, sem hingað til
hafa tíðkast hér á landi, oftast
með lagaboði.
Launajöfnun er vandasöm að-
gerð, þar sem taka þarf tillit til
margra þátta. Verðbótavísitalan
er hins vegar aðeins mæling á
þeim verðhækkunum sem átt hafa
sér stað á hverjum ársfjórðungi og
er ætlað að tryggja hlutfallslegt
gildi launa. Samtenging á þessu
tvennu er því afleit blanda tveggja
óskyldra hluta, og getur beinlínis
valdið ranglæti.
Launafólki vil ég að lokum
benda á að kynna sér rækilega allt
það, sem borið verður á borð fyrir
það af ráðamönnum og fjölmiðlum
á næstunni. Nauðsynlegt verður
að greina þar glöggt á milli
annars vegar raunverulegra
launajöfnunaraðgerða og hins
vegar þeirrar áráttu stjórnvalda
og atvinnurekenda að nota ætíð
afnám eða skerðingu fullra vísi-
tölubóta til stórfelldrar almennr-
ar kjaraskerðingar.
Úlafsvík:
Góð áramót
í dásemd-
arveðri
Ólafsvík. 3. janúar.
DÁSEMDARVEÐUR var hér á
nýársnótt, logn og því sem næst
frostlaust. Hátíðarhöld fóru vel
fram og er ekki vitað um nein
slys eða óhöpp, né ólæti. Húsfyllir
var við guðsþjónustur og mann-
margt var á jólatrésskemmtun-
um.
Töluvert er um skreytingar,
bæði af hálfu hreppsins og félaga-
samtaka auk einstaklinga. Lions-
klúbbur Ólafsvikur gaf stórt jóla-
tré sem staðsett er á hafnarsvæð-
inu. Á nýársnótt komu klúbbfélag-
ar að venju fyrir skreytingu með
blysum í Ölafsvíkurenni. Ljómuðu
þar hátt á lofti ártölin 1979 og
síðan 1980. Haft var á orði að
ljósameistarar klúbbsins í ár væru
miklir listaskrifarar.
Eins og áður sagði gekk allt
óhappalaust þótt mikið sé verið
með flugelda og þess háttar. Vilja
sumir meina að öllu fari aftur og
eigi það eins við um það sem sé til
gamans gert. Því til sönnunar
hefur verið minnst á að fyrir um
30 árum skeði það hér á gamlárs-
kvöld, að fjóshaugur einn tókst á
loft og dreifðist síðan um allstórt
svæði, þar á meðal yfir samkomu-
hús hreppsins, sem varð þá auð-
vitað l.ítt girnilegt til samkomu-
halds það kvöldið. Náðist til hinna
seku sem urðu að verka eitthvað
upp eftir sig. Þessi saga er ekki
seld dýrar heldur en keypt var.
Hér vestra eru menn ekki
svartsýnni en gengur og gerist.
Reiknað er með að bátar hefji
róðrá næstu daga, reyndar er einn
á sjó í dag og er því von á fyrsta
afla vertíðarinnar í kvöld. Helgi.
/ _ /ZII . . :■■ : /
FLIÓTT &VEL! Litmyndir á Kodak pappír
.
HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI AUSTURVER QLÆSIBÆ S:20313 S:36161 S:82590 Umboðsmenn um land allt