Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 16

Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 16 JMtoigtiiiltfjiMfe Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson: Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Málamiðlun Þeir, sem væntu þess, að alþingiskosningarnar yrðu afgerandi um stjórn landsins, hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum. Þvert á móti eru niðurstöðurnar torráðnar um raunverulegan vilja kjósenda og hafa þær ýmist verið túlkaðar sem krafa um nýja vinstri stjórn eða að henni hafi verið hafnað, sem er sönnu nær. Hversu svo sem það nú er, liggur hitt fyrir, að þrátt fyrir yfirlýsingar um hið gagnstæða er svo mikil togstreita og tortryggni milli vinstri flokkanna, að þess er naumast að vænta, að þeir geti unnið saman af heilindum allir þrír í náinni framtíð. I áramótagrein sinni í Morgunblaðinu gerir Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þessi mál að umræðuefni, um leið og hann leggur áherzlu á, að við blasi stöðvun atvinnuveganna og þar með atvinnuleysi, nema efnahagsvandinn verði leystur. Við þvílíkar kringumstæður beri að stefna að sem víðtækastri samvinnu um stjórn landsins og kanna m.a. möguleika á myndun þjóðstjórnar. Hann nefnir þrennt til sem markmið slíkrar málamiðlunar: 1. Rjúfa verður vítahring verðbólgunnar, þar sem verðbreytingar eru framreiknaðar með sjálfvirkum hætti frá einu sviði til annars og síðan koll af kolli með einni kollsteypunni af annarri. Semja verður um, hvar vítahringinn skuli rjúfa og hvernig vernda skuli hag þeirra, sem einskis mega í missa. 2. Sameiginleg útgjöld verður að miða við, að svigrúm sé til að tryggja kaupmátt þeirra, er lægri hafa launin, og beina sameiginlegum útgjöldum í arðvænlegustu farvegi fyrir þjóðarheildina. Blandast víst fáum hugur um, að þar hlýtur áherzlan að verða lögð á orku- og vegafram- kvæmdir, sem eru ekki síður félagslega mikilvægar en fjárhagslega arðbærar, þegar byggðamál eru höfð í huga. 3. Móta verður nýja atvinnustefnu, auka framleiðslu og skapa framtaki landsmanna og atvinnufyrirtækjum skilyrði til þess að greiða launþegum kaup og tryggja þeim sambærileg lífskjör og eru bezt í öðrum löndum. Með þeim hætti er unnt að koma í veg fyrir atvinnuleysi og þann landflótta, sem á hefur borið, þegar fleiri fara af landi brott en hingað sækja. Markið á að setja svo, að menn undrist ekki yfir því, hvers vegna launakjör hér séu lakari en annars staðar, heldur hitt, hvernig okkur hefur tekizt að skapa hér betri kjör en víðast annars staðar. Geir Hallgrímsson bendir réttilega á, að þjóðstjórn yrði ekki mynduð til langlífis, — „m.a. þar sem skipulagsbundin stjórnarandstaða er nauðsynleg innan þings þegar til lengdar lætur, en hugsa má sér slíka stjórn fram á árið 1981, enda næðist málefnalega samstaða um afmörkuð verkefni og lausn brýnustu vandamála til að brjótast út úr þeirri sjálfheldu, sem við íslendingar erum nú í.“ Vitaskuld má hugsa sér aðrar gerðir meirihluta- stjórna, eins og Geir Hallgrímsson rekur í grein sinni. í því efni skiptir mestu, að þjóðkjörnir fulltrúar reynist vanda sínum vaxnir og ráðist í það verkefni, sem þeir buðu sig fram til að leysa og þeir hafa verið kjörnir til að leysa. Öll undanbrögð nú eru sviksemi við þjóðina. Enginn einn flokkur hefur nægilegan þingstyrk til þess að ná öllu sínu fram. Þess vegna verður að ná málamiðlun, — og ráðast gegn verðbólgunni eftir þeirri leið, af því að aðrar leiðir eru ekki færar. Svipmyndir frá París Ekki var mikið um jólaskreytingar í Parísarborg í ár — má nefna sem dæmi að Eiffelturninn sem alltaf hefur verið upplýstur með jólaljósum var grár og gugginn í vetrarmyrkrinu. An efa kemur þar sparnaðaráætlun borgaryfirvalda við sögu. Fréttaritari Mbl. í París, Anna ,Nissels, sendi þessar svipmyndir frá jólaviku í Parísarborg. Á franska vísu eru jólin haldin hátíðleg 25. desember og að sjálfsögðu kemur jólasveinninn þar við sögu sem í öðrum vestrænum löndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.