Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 17

Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 17 HELGI HÁLFDANARSON: EINN OG ÁTTA Skrýtið er það; æði margir virðast líta svo á, að nýliðin áramót séu um leið áratuga- mót, að áttunda áratug ald- arinnar hafi lokið með árinu 1979 og sá níundi sé þegar hafinn með ártalinu 1980. Þetta er því líkast, að tíu kílómetra vegalengd teldist lokið um leið og níundi kílómetrinn væri að baki, þó að sá tíundi væri enn fram- undan. Ýmsir virðast rétt- læta þetta tímatal með því að gera sér í hugarlund eitthvert núll-ár; en „árið núll“ gat því miður hvergi komizt fyrir í áraröðinni, því árið eitt e.Kr. hófst um leið og árinu eitt f. Kr. lauk, rétt eins og hitastigið +1°C tekur við af hitastiginu -1°C; þar er ekkert hitastig á milli; aðeins eru mót þessara tveggja hitastiga kölluð „hitahæðin 0°C“. Og jafnvel þótt fæðing Krists hefði tekið tólf mánuði, sem kallaðir væru „árið núll“, þá breytti það engu um þá hörðu staðreynd, að í hverj- um tug eru tíu einingar en ekki níu, hvort sem talin eru ár eða annað. Þess vegna var áttunda áratug eftir Krists burð ekki lokið fyrir en árið 80 var á enda runnið; á miðju ári 1980 eru einungis liðin 1979,5 ár frá fæðingu Krists; og næstu aldamót verða því ekki fyrr en í árslok árið 2000. En svo voru eitt sinn merkishjón, sem kunnu ekki að telja meira en átta. Þau sögðu „einn og átta“, þegar synir þeirra voru orðnir níu. Þetta voru, sem kunnugt er, þau Grýla og Leppalúði og strákar þeirra, jólasveinarn- ir. Um þá fjölskyldu er ýmislegt rauláð við börn um og eftir áramót, meðal ann- ars vísa, sem nú á tímum er oft höfð eitthvað á þessa leið: Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi; móðir þeirra sópar gólf og hýðir þá með vendi. Ég býst við að þessi sam- setningur sé fremur nýlega til orðinn; og kannski er hann ekki lakari en sumt annað af því tagi, þó að varla geti hann talizt ungu brageyra nein búningsbót. Raunar gat gengið á ýmsu um stuðlun í kveðskap fyrr en á vorri tíð, og ekki er fyrir það að synja, að saman væri rímað gólf og gólf. En Grýlu húsfreyju var annað fremur borið á brýn en þrifnaður; og gyllti stafur- inn minnir kannski öllu meir á stásslega múndér- ingu Sankta-Kláusar en ferðabúnað Giljagaurs og þeirra bræðra. Svo er að sjá, að þarna sé komin uppdubb- uð jólasveinavísa, sem forð- um var höfð á þessa leið: Jólasveinar ganga um gátt með gildan staf í hendi móðir þeirra hrín við hátt og hýðir þá með vendi. En það getur líka vel verið, að vísan um gyllta stafinn sé eldri en ég hef hugmynd um, og hin vísan sé síðari tilraun til að end- urbæta þann kveðskap um kvenskörunginn Grýlu og syni hennar, sem fylla ekki tuginn, því þeir eru einungis einn og átta, eins og árin, sem nú eru liðin af áttunda tug tuttugustu aldar. Sigurður Óskarsson, form. Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Nýja stjóm — sterka stjórn Á síðasta landsfundi Sjálfstæð- isflokksins var mörkuð sú stefna í kjaramálum, að dagvinnulaun ein- staklings mættu ekki vera undir þeim mörkum að nægðu til sóma- samlegrar framfærslu meðal- fjölskyldu. í kjaramálastefnu Sjálfstæðisflokksins er lögð áhersla á verndun kaupmáttar launa hins almenna launþega, láglaunafólksins og að tryggð sé afkoma elli- og örorkulífeyrisþega. Þá hafa sjálfstæðismenn tekið undir þá afstöðu verkalýðshreyf- ingarinnar, að með félagslegum aðgerðum megi leiða til aukins jafnaðar og þjóðfélagslegs rétt- lætis og að með slíkum aðgerðum sé hægt að bæta verulega lífskjör launafólks. í þeim stjórnarmyndunarvið- ræðum sem nú eru hafnar af hálfu formanns Sjálfstæðisflokksins er ljóst, að framangreind atriði verða grundvallaratriði og ekki líkur á að samstarf náist um stjórnarmyndun með þeim stjórn- málaflokkum sem ekki viðurkenna MATTHEA Jónsdóttir hlaut fyrir skömmu gullverðlaun fyrir akvarellur er hún sýndi á alþjóð- legri biennalsýningu í Frakk- landi. Var sýningin í listamiðstöð Lyonborgar. í framhaldi af þessari viður- kenningu verður listakonan kynnt víða um heim og eru upplýsingar Sigurður öskarsson nauðsynlegar aðgerðir í þessum efnum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki útilokað samstarf við neinn hinna þriggja stjórnmálaflokk- anna í þessum viðræðum, en í um starfsferil og æviágrip m.a. birtar í árbók sem dreift er af Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna og alþjóðasamtökum listamanna. Forseti sýningarinnar er Roland Laznikas, franskur list- gagnrýnandi, sem skipulagt hefur fjölmargar listsýningar og fengið fólk frá ýmsum löndum til að sýna í Frakklandi. umfjöllun fjölmiðla síðustu daga hefur verið rætt um hugsanlega stjórnarsamvinnu við Alþýðu- bandalagið. Ljóst er að slíkar ályktanir byggja fyrst og fremst á þeirri staðreynd að afstaða þess- ara flokka til kjaramála láglauna- fólks er að verulegu leyti hin sama. Miðstjórn og þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins hafa veitt Geir Hallgrímssyni fullt umboð til þess að kanna möguleika á stjórnar- myndun. Sjálfstæðismenn eru sammála um að meginmáli skipti í þessum viðræðum hverjir mögu- leikar eru fyrir hendi um sam- vinnu til að takast á við þau brýnu verkefni í kjara- og efnahagsmál- um sem framundan eru. Fram- undan er barátta við óðaverð- bólgu, barátta fyrir bættum lífskjörum og trygging efnahags- legs sjálfstæðis íslensku þjóðar- innar. Meðan þessi verkefni eru leyst kann að verða nauðsynlegt fyrir verðandi stjórnarflokka að leggja til hliðar um sinn a.m.k. gömul deiluefni. Matthea Jónsdóttir Hlaut gullverðlaun fyrir akvarellur LJONinyna inui. /t/«u. Frá afhendingu nýja sjúkrabilsins á Eskifirði 30. desember s.l. Ný sjúkrabifreið til Eskifjarðar Eskifirði, 3. janúar. EINS og kunnugt er setti dómsmálaráðuneytið reglugerð um áramótin 1977—1978 þess efnis, að lögreglan úti á landsbyggðinni hætti öllum sjúkra- flutningum, en í þess stað skyldu heimamenn sjá um þessa flutninga framvegís. Þegar þetta var Ijóst hafði Lionsklúbbur Eskifjarðar um þaö forgöngu að keypt yrði sjukrabifreið i bæinn. Samþykktu þeir á fundi hjá sér seint á árinu 1977 að reyna að fá samstöðu allra aöila um fjáröflun til að kaupa sjúkrabíl. Leit- uðu þeir brátt til allra félagasamtaka á staðnum og var samþykkt hjá öllum þessum félögum að standa saman um þetta stórverkefni. Kosinn var einn fulltrúi frá hverju félagi í sam- starfsnefnd og var for- maöur hennar Sveinn Sig- urbjarnarson. Samstarfs- nefndin sá svo um útveg- un á bílum og búnaði þeim er honum fylgir. Bíllinn var pantaður þann 28. nóvem- ber 1978 og er af gerðinni Chevrolet Suburban með drifi á öllum hjólum og hentar vel til þessara flutninga. Bílaklæðningar í Kópa- vogi sáu um þær breyt- ingar sem gera þurfti á bílnum og hefur þetta fyrirtæki innréttað flesta ef ekki alla sjúkrabíla lands- ins og vinna og frágangur mjög góöur. Bifreiðin kostar ellefu og hálfa milljón króna og hefur safnast um níu og hálf milljón upp í það, svo ennþá vantar um tvær milljónir upp á að endar nái saman. Samstarfs- nefndin sendi bréf út til allra fyrirtækja á staðnum um miöjan desember s.l. og er vonast eftir góðum stuðningi þar. Eignaraðilar að bílnum verða félögin en um reksturinn sér Eski- fjaröardeild Rauða kross- ins. — Ævar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.