Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 21

Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 21 Minning: Séra Pétur Magnús- son frd Vallanesi Fæddur 18. apríl 1893. Dáinn 19. desember 1979. í dag fer fram útför séra Péturs Magnússonar frá Vallanesi, en hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Mímisvegi 4 hér í borg þann 19. des sl. áttatíu og sex ára að aldri. Fæddur var séra Pétur 18. apríl 1893 að Vallanesi á Héraði. Voru foreldrar hans þau prestshjónin þar, séra Magnús Blöndal Jónsson, bróðir Bjarna Jönssonar frá Vogi og þeirra systkina og Ingibjörg Pétursdóttir Eggerz kaupfélags- stjóra og bónda í Akureyjum á Breiðafirði og bar því séra Pétur nafn afa síns þessa breiðfirska athafna manns. Fimm ára gamall missir hann móður sína og elst upp eftir það í skjóli föður síns og stjúpu, Guð- ríðar Ólafsdóttur en hún hafði áður verið gift Þorvarði Kjerúlf, lækni á Ormarsstöðum. í Vallanesi eyddi hinn ungi prestssonur bernsku og unglings- árum í stórum systkinahópi og tók meiri tryggð við þann stað en alla aðra dvalarstaði og kenndi sig jafnan við Vallanes eftir að hann fór úr föðurhúsum. Að afloknu embættisprófi í guð- fræði 1920, hélt hann til fram- haldsnáms í heimspeki og uppeld- isfræði um eins vetrar skeið við þýskan háskóla. Eftir þá náms- dvöl settist Pétur að í Reykjavík. — I einu erinda sinna í bókinni „Til mín laumuðust orð“ segir hann frá þeim atvikum sem lágu til þess, að hann gerðist prestur í Vallanesi, 16 árum eftir að hann iauk guðfræðiprófi, hann kemst svo að orði: „Þegar ég útskrifaðist úr háskólanum treysti ég mér ekki vegna efasemda í trúarefnum, er námið vakti, að gera prestsþjón- ustu að lífsstarfi mínu. Ég lagði, Biblíuna til hliðar, og tók að stunda bánkastörf, en varð síðar fulltrúi hjá málafærslumanni. — Og árin liðu. Lífið færði mér ýmiskonar reynslu og trúarhug- myndir mínar breyttust aftur. Eg tók með köflum að finna óþægilega til þess, að ég væri í andlegri sveltu, og mér tók að detta í hug, hvort ekki væri rétt fyrir mig að taka upp gamla þráðinn." Og þennan þráð tók hann upp er honum var veitt Vallanessprest- akall 1939 að aflokinni prestskosn- ingu þar. Hélt hann staðinn við ágætis orðstír uns hann lét af prestskap 1960, kominn þá fast að aldurstakmarki því sem lögum samkvæmt bindur enda á störf opinberra embættismanna. Eftir að séra Pétur lét af prestsstörfum, settist hann í helg- an stein í Reykjavík og hóf all umfangsmikil ritstörf, ritaði greinar í blöð og tímarit um hin ólíkustu efni sumpart í sérbækl- ingum og hvergi hræddur við að takast á við verkefnin pg það jafnvel þótt Nóbelsskald ætti í hlut. All mörg leikrit samdi hann á þessum árum og fékk fyrir sum þeirra opinbera viðurkenningu og nokkur hafa verið leikin í útvarpi. Fimm þessara leikrita hans hafa verið gefin út í bókarformi, og ber safn þetta nafn fyrsta leikritsins „Lífið kastar teningum." Tveim árum síðar, nánar til tekið árið 1972, birtust á prenti 25 ritgerðir hans. Nefndi hann safn þetta „Til mín laumaðist orð.“ Fjalla þau um hugðarefni höfundar á vegum trúar, siða, uppeldis, heimspeki og fagurfræða. Arið 1973 kom út safn 20 prédikana er hann nefndi: „Ég hef nokkuð að segja þér.“ Öll þessi rit bera vott um frábæran stílista og oft snilldar- tök á efni. Um margar af ritgerð- um hans má hiklaust fullyrða að þær standa jafnfætis þeim bestu sem birtar hafa verið hérlendis og er þó þetta form bókmenntanna talið eitt vandmeðfarnasta þeirra allra. Landskunnur var séra Pétur fyrir prédikanir og erindi sem hann flutti í útvarp á prestsskap- arárum sínum. Vafalaust munu ritstörf hans halda lengur á lofti minningu prestssonarins frá Vallanesi en samskipti hans við okkur sam- tíðarmennina. Persónulega kynntist ég ekki séra Pétri fyrr en hann gerðist prestur austur á Héraði, en þó einkum eftir að hann gerðist prófdómari við landspróf í Eiða- skóla. Það var vissulega tilhlökk- unarefni að fá hann til sín á hverju vori og deila við hann geði í hálfan mánuð í hvert sinn. Sem prestur var hann vinsæll hjá sóknarbörnum sínum og lét hann sér annt um velferð þeirra og við sum batt hann traustum vináttuböndum. Öll prestverk sín framdi hann af sérstakri alúð og vandvirkni svo að til var tekið. En það er nú svo, að óvandvirkni, flaustur og subbuskapur getur líka sett svip sinn á prestsstörf eins og önnur störf, þótt lítt séu þau þá til þess fallin að auka á virðingu fyrir þeim presti er slíkt hendir eða því starfi er hann hefur talið sig kallaðan til að gegna. Sem prófdómari reyndist séra Pétur alveg frábær. Fór hjá hon- um allt það saman, sem hverjum prófdómara er nauðsynlegt að hafa til að bera. Kunnátta í fræðunum, nákvæmni og sam- viskusemi í dómum um úrlausnir en þó ekki síst sá velvilji og skilningur sem haldast verður í hendur við nákvæmni og sann- girni til þess að dómsniðurstaðan verði réttlát. Ekki minnist ég þess að landsprófsnefnd hafi nokkru sinni riftað þessum dómum okkar, jafnvel þótt stundum hafi verið telft á tæpasta vað og þá í þeim tilfellum að talið var að fremur væri um skort á þroska að ræða en getuleysi, sem mundi lagast, jafn- vel á næsta sumri og sem alltaf varð. Sem heimilismaður, þá daga sem prófið stóð yfir, var séra Pétur alveg einstakur, kurteis, nærgætinn og barngóður svo af bar. Kom það sér vel á okkar barnmarga heimili. Þegar börn okkar sóttu til hans kom mér í hug saga sem faðir hans, séra Magnús, sagði okkur eitt sinn er hann gisti hjá okkur hjónum og dóttir okkar sótti til hans, að kona sín hefði sagt að á meðan hundar og börn sæktu til hans þá væri hann ekki orðinn vondur maður. Séra Pétur var einhver mesti viðræðusnillingur sem ég hefi kynnst, þessi hæfileiki hans kem- ur vel fram í ritgerðum hans. Því fór þó víðsfjarri að við værum sammála, einkum greindi okkur á í stjórnmálum, bókmenntum og listum. Séra Pétur var mikill listunnandi, var fagurkeri, málaði myndir og lék á hljóðfæri. Hann varði eða hélt fram sjónarmiðum sínum oft af mikilli rökfimi, jafnframt því að deila á þær skoðanir sem honum voru önd- verðar en hann gat líka verið svo rökþéttur að lítt tjóaði við hann að deila. Eitt sinn bauð hann sig fram til þingmennsku, og var framboðsfundum þeim sem hann tók þátt í viðbrugðið, slíkir voru yfirburðir hans í málfærslunni, sem logaði af leiftrandi háði og skemmtilegheitum þótt honum tækist ekki að sama skapi að sannfæra kjósendur um ágæti málstaðarins. Til voru þeir sem fylgdu honum fund af fundi til að njóta þessarar óvenjulegu skemmtunar. Séra Pétur var alla ævi ógiftur, hef ég þó fáa hitt sem heitar þráðu að eiga fjölskyldu, það kom greini- lega í ljós á okkar heimili. Hvað valdið hefur, veit ég ekki því til þess skorti hann hvorki andlegt né líkamlegt atgervi, vel farinn í andliti og snyrtimenni að af bar. Ekki veit ég þó hversu góður eiginmaður hann hefði orðið og áreiðanlega ekki eins og hann hefði viljað vera, til þess var hann kannski of ráðríkur og helst til nákvæmur, en hitt fullyrði ég, að sem faðir hefði hann orðið flestum betri. Ég vil ljúka þessum fátæklegu minningarorðum um séra Pétur vin minn með því að vitna enn til sama erindis í bók hans „Til mín laumaðist orð“ og áður var vitnað til, en erindið nefnir hann Valla- nes. Það hefst með þessum orðum: „Það bar iðulega til á prestskapar- árum mínum í Vallanesi, að ég gengi með langferðafólki upp á hólinn fyrir ofan íbúðarnúsið, til þess að það gæti sem best notið útsýnisins. Við slík tækifæri kom fyrir að einhver léti á sér skilja, að hann hefði heyrt meira látið af útsýninu þarna, en sér finndist ástæða til. Ég þykktist ekkert út af þessu, fyrir hönd prestsseturs- ins, en tók ævilega fram, að himininn væri það fegursta í Vallanesi." Nú hefur séra Pétri hlotnast nýr „Vallanesshiminn". Megi honum undir og í þeim himni reynast raun lofi betri. A þeim himinleiðum biðjum við, vinir hans honum allrar belssunar um leið og við þökkum fyrir samver- una hér megin grafar. Þórarinn Þórarinsson frá Eiðum. í dag er gerð frá Dómkirkjunni útför séra Péturs Magnússonar. Hann fæddist 18. apríl 1893 að Vallanesi. Faðir hans var Magnús Blöndal Jónsson, prestur þar, son- ur séra Jóns Bjarnasonar og konu hans, Helgu Árnadóttur, en móðir Ingibjörg Pétursdóttir Eggerz, kaupmanns í Akureyjum. Pétur ólst upp í Vallanesi. Kvað hann föður sinn hafa haldið þeim krökkunum mjög til vinnu, eins og þá hafi verið siður. Varð hann því fljótlega líkamlega stæltur. Hitt taldi Pétur að ekki hefði verið síður um vert fyrir andlega eflingu að í stóru baðstofunni í Vallanesi hafi á kvöldvökunni aftur og aftur verið lesnar allar gullaldarhókmenntir þjóðarinnar svo og allt það af ljóðum og sögum, frumsömdum eða þýddum, sem aldamótaskáldin góðu létu frá sér fara, að ógleymdum húslestr- um og sálmum. Eftir fermingu hóf Pétur lang- skólanám, fyrst á Akureyri en síðan í Menntaskólanum í Reykjavík og varð hann stúdent árið 1916. Þá innritaðist hann í guðfræði- deild haskólans og lauk þaðan kandidatsprófi árið 1920. Það sama ár hélt hann utan til fram- haldsnáms í Þýzkalandi og lagði þar aðallega stund á heimspeki og uppeldisfræði. Þegar heim kom, gaf hann sig um tíma að tungumálakennslu en árið 1923 réðst hann til starfa í íslandsbanka og síðan í Útvegs- banka íslands h.f. og starfaði hann þar til ársins 1933. Á árunum 1934 til 1937 fékkst Pétur við málflutningsstörf og önnur skyld störf í lögmannsstofu í Reykjavík og eftir það hafði hann með höndum ýmis önnur störf, þar til hinn 24. september 1939, er hann var skipaður sókn- arprestur í Vallanesi, en því emb- ætti gegndi hann tii ársins 1960, er hann lét af prestsstarfi fyrir aldurs sakir. Eins og hér kemur fram, lagði Pétur hönd á margar og ólíkar starfsgreinar. Má raunar segja, að hverju starfi'í hans höndum væri vel borgið, svo miklum hæfileik- um, sem hann var búinn. En í mínum huga er enginn vafi á því, að prestsstarfið hafi verið honum hugleiknast. Þar nutu sín hinar fjölbreyttu gáfur hans, hugmyndaflug og myndauðgi jafnt við skýringar á biblíutextum sem leiftrandi og skapandi hugsun hans og rökvísi við að kryfja vandamál líðandi stunda. Fór því fljótt orð af honum sem miklum kennimanni. Auk prests- starfa sinna í Vallanesi, prédikaði hann árlega hér í Reykjavik um margra ára skeið og var þeim guðsþjónustum jafnan útvarpað. Pétur var líka snjall tækifæris- ræðumaður og í kappræðum stóð- ust honum fáir snúning. Á það reyndi meðal annars, er hann bauð sig fram til þings í Suður- Múlasýslu. Fyrir tveim eða þrem árum var þekktur stjórnmála- maður spurður að því í sjónvarpi, hvað honum væri efst í huga eftir áratuga stjórnmálabaráttu. Hinn aðspurði þurfti ekki lengi að leita í huga sér. Án augnabliks hiks svaraði hann: „Það voru fram- boðsfundirnir með séra Pétri frá Vallanesi." Pétur átti sér fjölmörg hugðar- efni. Hann var ljóðelskur mjög og hafði á hraðbergi mikið af öndveg- isljóðum íslenzkra skálda sem og stórverk erlendra ljóðskálda, bæði á frummáli og í þýðingum. Svo trútt var minni hans, að hann gat tímum saman farið með slík verk án þess að fipast. Grundvöllurinn var að sjálfsögðu lagður í æsku hans á kvöldvökunni í Vallanesi, en að auki naut hann þess, að hann hafði sjálfur næmt brageyra og fékkst nokkuð við Ijóðasmíð, þótt minna færi fyrir því en skyldi. Pétur fékkst einnig nokkuð við leikritagerð. Hlutu tvö af leikrit- um hans verðlaun í samkeppnum og voru flutt í útvarpi. Mikið yndi hafði hann af góðri tónlist og lék sjálfur vel á píanó. Þá fékkst hann og nokkuð við myndlist. Pétur bjó áratugum sman í Reykjavík og undi hér vel hag sínum en fyrst og fremst átti Vallanes hug hans og meðan hann bjó hér fór hann þangað á hverju sumri og hausti. Um Vallanes kemst hann m.a. svo að orði í ritgerðasafni sínu: Til mín laum- aðist orð: „Annars voru það haustkvöldin, sem ég unni mest, þegar ég var að alast upp í Vallanesi — haust- kvöld, sem gátu búið yfir hásum- arhita — kvöld, sem virtust brjóta í bága við allar reglur, sem ríkja nærri slóðum íshafanna. Þessi kvöld gátu í senn verið full af fegurð og dularfullri kyngi. — Á fjarvistarárum mínum frá Valla- nesi, voru og eru ævinlega þessi kvöld, sem hugur minn og þrá beinist helzt að.“ En fyrst og fremst stóð hugur Péturs til prestsstarfa, til heim- speki og til uppeldisfræða. Hann var góður málamaður, víðlesinn og þar á meðal á öndvegisrit guð- fræðinga, heimspekinga og upp- eldis- og sálfræðinga. Var mjög fáttítt að hann væri ekki vel heima í hverju því umræðuefni, sem á góma bar. Hann var barn- góður og átti létt með að vinna trúnað barna og unglinga og óþreytandi var hann í að veita þeim tilsögn, hvort sem var á sviðum trúar, bókmennta eða lista. í predikanasafni sínu: ÉK hef nokkuð að segja þér, kemst hann á einum stað svo að orði: „Lát þér ekki gleymast, ungi maður, að sú stund kemur, er öll auðu blöðin, er þér hafa verið gefin í hendur, verða aftur af þér heimtuð og þess krafist, að þú gerir grein fyrir því, hvað þú hefur skrifað á þau. — Reyn að haga lífi þínu svo, að þú þurfir ekki að bera kvíðboga fyrir þeim reikningsskilum. Hvert augnablikskast, hvert æðarslag er eilifðarbrot, þú er krafinn til starfa. Hvað vannst þú Drottins veröld til þarfa? Þess verður þú spurður um sólarlag. Megi þessi alvöruþrungnu ljóðstef Einars Benediktssonar hvarfla sem oftast að huga þínum á ókomnum ævidögum. Megi áminningin, sem þau fela í sér, verða þér að logandi kyndli, er lýsi þér við að skrifa á auðu blöðin, sem lífið réttir þér.“ Sjálfur var Pétur mikill og einlægur trúmaður, hjálpsamur og góðviljaður. I raun lét hann aldrei af prestsstarfi. Hann var alla tíð að miðla öðrum af reynslu sinni og þekkingu og benda á, að framar öllu öðru bæri að keppa að þroska sálarinnar og ræktun hug- arfarsins. Að því marki stefndi hann sjálfur í lífi sínu. Þykir mér ólíklegt, að hann hafi þurft að bera kvíðboga fyrir sínum reikn- ingsskilum. Á yngri árum og fram eftir öllum aldri var Pétur mjög mann- blendinn og hrókur alls fagnaðar þar sem hann kom, enda aufúsu- gestur. Hin síðustu ár dró hann sig hins vegar úr fjölmenni og nokkurrar hlédrægni og varúðar tók að gæta hjá honum í um- gengni við ókunnuga aðila en þeim mun meiri rækt lagði hann við vini sína, kunningja og fjölskyldu. Hann andaðist að heimili sínu, Mímisvegi 4, hér í borg, hinn 19. fyrri mánaðar. Ég hefi þekkt Pétur allt frá því er ég man fyrst eftir mér. Fannst mér þegar í æsku mikið til hans koma og hefir það álit ekki minnkað með árunum. Létt lund hans, leikandi kímni og aðrir eðliskostir hans auk ýmissa sameiginlegra áhugamála okkar urðu til þess, að ég átti með honum miklu fleiri óglcymanlegar ánægjustundir en nokkrum tölum verður á komið. Fór þeim fjölg- andi eftir því sem aldursmunar okkar tók minna að gæta. Hann verður mér, og að ég hygg öllum, sem áttu nokkui veruleg skipti við hann, ætíð minnisstæð- ur. Að ósk Péturs verða jarðneskar leifar hans lagðar til hinztu hvílu í kirkjugaðrðinum á Selfossi. Sálu hans bið ég fararheilla og blessun- ar í nýjum heimkynnum. Jón Bjarnason. Séra Pétur í Vallanesi er látinn. Hann var orðinn heilsuveill. And- látsfregnin kom mér ekki á óvart. Við séra Pétur vorum hvorki sveitungar né jafnaldrar. En at- vikin höguðu því þannig að leiðir okkar lágu saman úm hríð við þó nokkur en næsta ólík tækifæri. Þegar hann var sóknarprestur í Vallanesi átti ég sæti í skólanefnd á Hallormsstað. Við vorum jafnan kvaddir til skólasetninga og skóla- slita. Ein hugvekja hans við slíkt tækifæri hefur orðið mér minnis- stæðari en margt annað talað orð, sem ég hef hlýtt. Við vorum báðir í framboði við alþingiskosningarnar 1949. Hann mun hafa verið elstur frambjóð- enda í Suður-Múlasýslu þá, en allra manna hressastur þegar gengið var til leiks á málþingum. Var létt yfir framboðsfundum og einstaklega góður félagsandi á ferðalögum frambjóðenda. Úrval úr ræðum og ritum séra Péturs hefur verið gefið út í þremur bindum. Sá sem blaðar í þessum bókum kemst að raun um að enda þótt oft væri grunnt á glettni og jafnvel gáskanum hjá presti þá var hann undir niðri mikill alvörumaður. Séra Pétur var í raun mjög gagnrýninn á samtíð sína. Fannst hún vanmeta suma göfugustu þættina í menningararfleifð fyrri kynslóða. Og hann óttaðist um afdrif slíkra menningarverðmæta í ölduróti framtíðar. Við fráfall séra Péturs minnist ég margra glaðra samverustunda okkar og góðra. Frá hans hendi mætti ég ávallt mikilli vinsemd og kveð hann með þökk í huga. Bróður hans Páli og öðru skylduliði sendi ég alúðarkveðjur. Vilhjálmur Hjálmarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.