Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 30

Morgunblaðið - 04.01.1980, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 n % Ekki dagur risanna Á ÍTALSKAN mælikvarða þá hreinlega drukknaði 1. deildin f knattspyrnu í morkum. en úrslit leikja urðu sem hér segir: Inter — Fiorentina 0—0 Pescera — AC Mílanó 2—1 Cagliari — Roma 1—3 Lazió — Torino 2—1 Juventus — Ascoli 2—3 Avellino — Perugia 2—2 Boiognia — Napóli 0—0 Catanzarro — Udinese 1 — 1 Tap Juventus á heimavelli kom auðvitað eins og skratt- inn úr sauðarleggnum, en Ascoli komst í 3—1 áður en heimaiiðinu tókst að minnka muninn með góðum enda- spretti. Pietro Anastasi og Franco Belotto (2) skoruðu mörk Ascoli, en Roberto Tavolo og Antonio Cabrini svöruðu fyrir Juventus. Þá kom tap meistaranna AC Mílanó gegn Pescera mjög á óvart, enda Pescera neðsta liðið í deildinni. Mörk Pes- cera skoruðu þeir Giordano Cinquetti og Piergiorgio Negrisolo, en eina mark ACM skoraði Pietro Gehdin. Þetta var ekki dagur ris- anna, þar sem Torínó tapaði einnig. auk þess sem Cag- Iiari, eitt af efstu iiðunum, tapaði og Inter varð að gera sér að góðu jafntefli á heimavelli sinum. Inter hefur þó enn foryst- una i deildinni, hefur 20 stig að loknum 14 umferðum. AC Milanó hefur 17 stig. Siðan koma fjögur félög með 15 stig hvert, Torínó, Lazíó, Perugia og Cagliari. 6:02,2 1:20,1 Sundfólk Ægis setur mörg ný met í SEINNI hluta desember mánaðar hélt Sundfélagið Ægir þrjú innanfélagsmót í sundi í Sundhöli Reykja- vikur. Á mótum þessum voru sett nokkur íslandsmet og ungi- ingamet. Helstu úrslit á mót- unum voru eftirfarandi: 1500m skriðsund karla. Ólafur Einarsson Æ 19:56,8 Sveinamet (20:41,2). lOOm fjórsund karla. Ólafur Einarsson Æ Sveinamet (6:20,1). lOOm flugsund karia. Ólafur Einarsson Æ Sveinamet (1:21,7). 400m baksund kvenna Þóranna Héðinsdóttir Æ 5:42,6 Telpnamet (5:48,8) 50m baksund karla. Hugi S. Harðarson Self. 30,6 Piltamet (31,3) 4xl00m bringusund kvenna Stúlknasveit Ægis 5:42,7 íslandsmet og stúiknamet (5:44,3 og 5:56,0) 4x50m bringusund kvenna Stúlknasveit Ægis 2:37,0 íslandsmets- og stúlkna- metsjöfnun. 4x50m fiugsund kvenna. Stúlknasveit Ægis 2:17,0 íslandsmet og stúlknamet (2:18,3 og 2:23,9) 4x50m skriðsund kvenna Stúiknasveit Ægis 2:03,7 Stúlknamet (2:04,5) 4x50m fjórsund kvenna Stúlknasveit Ægis 2:18,0 íslandsmet og stúlknamet (2:18,4 og 2:19,1) 4xl00m skriðsund kvenna Stúlknasveit Ægis 4:28,2 Stúlknamet (4:35,0) í svigunum fyrir aftan eru eidri metin. Eggert Jóhannesson raðinn þjálfari Víðis Gardi, 3. janúar. EGGERT Jóhannesson hefir ver- ið ráðinn þjálfari meistaraflokks Víðis fyrir næsta keppnistímabil. Undanfarin þrjú ár hefir Sigurð- ur Ingvarsson þjálfað liðið en hann býr hér í þorpinu. Verið er að koma fyrir flóðljós- um til æfinga á melavellinum og hefir verið komið upp þremur staurum og verið að leggja að þeim rafmagn. Engar byggingar hafa verið við melavöllinn og varð knattspyrnufélagið að kaupa sér skúr til bráðabirgða til að setja upp rafmagnstöfluna. Mikill hug- ur er annars í félögunum að koma sér upp litlu félagsheimili við völlinn sem mætti þá einnig vera í búningsaðstaða. Þyrfti byggingin að vera 160—180 fermetrar. Er mál þetta þó á algjöru frumstigi. Knattspyrnufélagið gengst fyrir firmakeppni í knattspyrnu í íþróttahúsinu í Njarðvíkum dag- ana 13. og 20. janúar. Öllum fyrirtækjum er boðin þátttaka. Spila fjórir menn í liði í senn en alls mega vera 9 manns í hverju liði. Skráning er þegar hafin hjá Þóri Guðmundssyni, en hann hefir nýlega tekið við formennsku knattspyrnudeildarinnar, en skráningu lýkur 10. janúar. Arnór. Frá framkvæmdunum við íþróttavöllinn. Búið er að koma upp ljósastaurunum og verið að leggja að þeim rafmagnið. Ljósm.: Jónas EKÍlsson • Frá gamlárshlaupi ÍR. Myndin var tekin í upphafi hlaupsins, en það hófst og endaði við ÍR-húsið í Túngötu, eftir að hlaupararnir höfðu hiaupið 10 kílþmetra hring um Vesturbæinn og Seltjarnarnes. Hörkukeppni var í gamlárshlaupi ÍR ÁGÚST Þorsteinsson UMSB bar sigur úr býtum í gamlárshlaupi ÍR er háð var á gamlársdag. Hörkukeppni var lengst af um þrjú fyrstu sætin. en Ágúst þó öruggur síðasta spölinn. Upp- gjöri Gunnars Páls Jóakimssonar ÍR og Mikko Háme ÍR um annað sætið lauk ekki fyrr en á síðustu 50 metrunum í þessu 10 kíló- metra langa hiaupi. Þá var barist hart um ailt upp í 12. sæti og breyttist innbyrðis röðun kepp- enda oft. Alis hófu 20 konur og karlar hiaupið og luku allir keppni, langflestir léttir í spori þrátt fyrir jólahaldið. Meðal keppenda voru tvær af fremstu hlaupakon- um landsins í dag, Lilja Guð- mundsdóttir ÍR, sem kom heim i jólafrí frá Svíþjóð, og Thelma Björnsdóttir UBK. Árangur Lilju er athyglisverður og bendir til þess að hún hafi undirbúið sig af kostgæfni í vetur. Árangur Ág- ústs er ekki síður athyglisverður fyrir pað að hann hefur átt við iangvarandi meiðsli að stríða, en virðist loks vera að ná sér af þeim. Úrslitin í hlaupinu, sem háð var nú fjórða árið i röð og er að verða að hefð meðal hlaupara. urðu annars: 1. Ágúst Þorsteinss. UMSB 32:18 2. Gunnar P. Jóakimss. ÍR 32:29 3. Mikko Háme ÍR 32:31 4. Gunnar Snorrason, UBK 34:36 5. Óskar Guðmundsson FH 34:38 6. Einar Guðmundsson FH 34:51 7. Lúðvík Björgvinss. UBK 34:57 8. Ágúst Gunnarsson UBK 34:59 9. Ágúst Ásgeirsson ÍR 35:21 10. Jóhann Sveinsson UBK 35:32 11. Steinar Friðgeirss. ÍR 35:43 12. Stefán Friðgeirss. ÍR 36:36 13. Lilja Guðmundsdóttir ÍR 37:04 14. Sigurjón Andrésson ÍR 37:32 15. Magnús Haraldsson FH 37:51 16. Björn Pedersen ÍR 38:07 17. Guðmundur Ólafss. ÍR 38:22 18. Sigurður Haraldss. FH 38:43 19. Ingvar Garðarsson HSK 43:30 20. Thelma Björnsd. UBK 47:45 I ■?í • Skúli óskarsson, íþróttamaður ársins 1978, virðir fyrir sér hinn glæsilega verðlaunagrip sem fylgiur útnefningunni hverju sinni. íþróttamaður arsins 1979 útnefndur í dag í DAG munu samtök íþróttafréttamanna tilkynna úrslit í hinni árlegu kosningu sinni á „íþróttamanni ársins“. Þetta er í 24. skipti sem samtök íþróttafréttamanna gangast fyrir slíku kjöri. Það var fyrst árið 1956 sem íþróttamaður ársins var kjörinn og þá varð Vilhjálmur Einarsson fyrir kjörinu, en það var einmitt sama ár og hann hlaut silfurverðlaun sín í þrístökki á Olympíuleikunum í Melbourne í Ástraiíu. Hingað til hafa 17 íþróttamenn hlotið umræddan heiðurstitil og hinn veglega verðlaunagrip er honum fylgir. Vilhjálmur Einarsson hefur oftast hlotið sæmdarheitið eða fimm sinnum alls. Hlutur frjálsíþróttamanna hefur verið áberandi bestur í kjörinu um íþróttamann ársins. Alls hafa frjálsíþróttamenn verið kosnir 12 sinnum. Knattspyrnumenn, handknattleiks- og sundmenn þrívegis og einu sinni körfuknattleiksmaður og lyftingamaður. Fyrirkomulag kosningarinnar hjá íþróttafréttamönnum er þannig að hver fjölmiðill hefur yfir að ráða einum atkvæðaseðli og ritar á hann nöfn 10 íþróttamanna. Hlýtur efsti maður 10 stig, sá næsti 9 og svo koll af kolli. Til þess hafa eftirtaldir íþróttamenn hlotið titilinn íþróttamaður ársins. 1956 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir 1957 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir 1958 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir 1959 Valbjörn Þorláksson ÍR frjálsar íþróttir 1960 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir 1961 Vilhjálmur Einarsson ÍR frjálsar íþróttir 1962 Guðmundur Gíslason ÍR sund 1963 Jón Þ. Ólafsson ÍR frjálsar íþróttir 1964 Sigríður Sigurðardóttir Val handknattleik 1965 Valbjörn Þorláksson ÍR frjálsar íþróttir 1966 Kolbeinn Pálsson KR körfuknattleik 1967 Guðm. Hermannss. KR frjálsar íþróttir 1968 Geir Hallsteinsson FH handknattleik 1969 Guðmundur Gíslason ÍR sund 1970 Erlendur Valdimarsson ÍR frjálsar íþróttir 1971 Hjalti Einarsson FH handknattleik 1972 Guðjón Guðmundsson ÍA sund 1973 Guðni Kjartansson ÍBK knattspyrna 1974 Ásgeir Sigurvinsson Stand. Liege knattspyrna 1975 Jóhannes Eðvaldsson Celtic knattspyrna 1976 Hreinn Halldórsson KR frjálsar íþróttir 1977 Hreinn Halldórsson KR frjálsar íþróttir 1978 Skúli Óskarsson UÍA lyftingar 1979 ? ? ? ? ÞR Þór mætir Ármann í kvöld fer fram einn leikur í 2. deild í handknattleik. Á Akureyri leika Þór og Armann og hefst leikurinn kl. 20.30. Á morgun laugardag leika svo Armenningar við KA og hefst sá leikur kl. 15.00. Má búast við hörkuviðureign í báðum þessum leikjum, því víst munu norðanmenn vilja bæta upp fyrir slakan árangur í leikjum sínum að undanförnu. f 'i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.