Morgunblaðið - 04.01.1980, Side 31

Morgunblaðið - 04.01.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1980 31 Sagt eftir leikinn Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðsþjálfari: Þetta var eldskírn þessa hóps og stóðu strákarnir sig að mörgu leyti betur en ég átti von á. Pólverjar eru með mjög sterkt lið sem hefur undirbúið sig af mikilli kostgæfni og leikið í það minnsta 40 landsleiki að undanförnu og æft í langan tíma tvisvar á dag. Þeir eru nú á meðal sex bestu hand- knattleiksþjóða veraldar þannig að útkoma okkar er góð. Við megum þó ekki ofmetnast. Þetta var góður handknattleikur sem sást hér í kvöld hjá báðum liðum. Eg var svolítið hræddur um varnarleikinn fyrir leikinn en Guðmundur Sigmarsson í Fram GUÐMUNDUR Sigmarsson, tengiliðurinn sterki úr Ilaukum hefur ákveðið að skipta um félag — og mun hann ganga í Fram. „Það voru tvö félög, sem ég var ákveðinn að velja á milli og Fram varð fyrir valinu," sagði Guð- mundur Sigmarsson í viðtali við Mbl. Það er ekki að efa að bikar- meisturum Fram er mikill feng- ur i Guðmundi. Hann sýndi það með leikjum sínum í Haukum, þar sem hann var yfirburðar- maður, að hvaða félagi í 1. deild er mikill fengur að honum. Guð- mundur mun tilkynna félaga- skipti yfir í Fram í dag, að því er hann tjáði Mbl. H.Halls. hann var lengst af nokkuð góður þrátt fyrir að hægt sé að gera betur. Sóknarleikurinn var ágæt- ur og okkur gekk vel að opna vörn Pólverja. Við eigum sterka sókn- armenn eins og til dæmis þá Sigurð Gunnarsson og Þorberg Aðalsteinsson. Piltarnir þurftu að sanna sig í þessum leik og það tókst þeim bærilega. Það urðu mér hins vegar mikil vonbrigði að ekki skyldu vera fleiri áhorfendur í Laugardals- höllinni. Þetta er þjóðaríþrótt íslendinga og eina íþróttin þar sem við getum staðið verulega í erlendum þjóðum. Það mæta allt að 10 þúsund manns á knatt- spyrnuleik á Laugardalsvelli þrátt fyrir að engin von sé um sigur. Því koma ekki fleiri að sjá okkur? Við munum gera okkar besta í þeim tveimur leikjum sem eftir eru á móti Pólverjum hér heima og vonandi tekst okkur að sigra. Að lokum vil ég taka það fram, að ég var ánægður með íslensku dómar- ana í leiknum, þeir dæmdu vel. Ólafur Jónsson fyrirliði: Mér sýnist Jóhann þjálfari vera á réttri leið með liðið. Með smá- heppni hefðum við getað sigrað í leiknum. Við munum fara með því hugarfari í næstu leiki að leggja þá að velli og vonandi tekst það. Þorbergur Aðalsteinsson Með smáheppni hefðum við hæglega getað sigrað í þessum leik. Pólska liðið er sterkt enda hefur það æft gífurlega vel að undanförnu en við aðeins saman í 10 daga. Við munum gera allt til þess að sigra þá á laugardag og sunnudag. -þr. • Reykjavíkurmeistarar Fram í innanhúsknattspyrnu 1979—’80 Ljósm. Mbl. Emilía. Fram rauf ein- okun Valsmanna REYKJAVÍKURMÓTIÐ í inn- anhúsknattspyrnu fór fram í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld og lauk því með óvæntum sigri Fram. Það þarf varla að spyrja að því, að liðið sem Fram vann í úrslitunum var Valur, sem unnið hefur flest mót til þessa. Sigur Fram var með ólíkindum miðað við yfirburði Vals oft og tíðum. Fram vann 9—4 og var aðeins jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik. Baldvin Elíasson var mark- hæstur hjá Fram með 3 mörk, einnig skoraði Pétur Ormslev þrivegis. Tvö mörk skoraði Guð- mundur Steinsson og eitt mark skoraði Rafn Rafnsson. Atli Hilmarsson skoraði tvívegis fyrir Val, en þeir Ingi Björn og Grímur Sæmundsson skoruðu einnig hvor sitt markið. Keppt var í tveimur riðlum og urðu úrslit sem hér segir: 1. riðill: KR — Þróttur 5—1 KR — Fylkir 4—2 KR — Fram 4—5 Fylkir — Fram 5—9 Þróttur — Fram 4—6 Fylkir — Þróttur 5—5 2. riðill: Valur — Ármann 10—2 Valur — Leiknir 12—4 Valur — Víkingur 6—5 Víkingur — Leiknir 10—3 Víkingur — Ármann 6—4 Ármann — Leiknir 6—4 Svo sem sjá má, var síður en svo um einstefnu að ræða í riðlunum, Valur keppti grimmt við Víking og Fram átti í stríði við KR. • Viggó Sigurðsson svífur inn í vítateig Pólverja og skorar eitt af fjórum mörkum sínum í leiknum. Ljósm. Mbl. Emilía. Herslumuninn vantaði hjá íslenska landsliðinu PÓLVERJAR sigruðu íslendinga i landsleik í handknattleik sem fram fór í gærkvöldi með 25 mörkum gegn 23, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14 — 12 fyrir Pólverja. Það voru lengst af miklar sviptingar í leiknum, einkum undir lokin, þegar menn töldu sig hvað eftir annað sjá vendipunkta i leiknum, án þess að úr yrði. T.d. má nefna að á 56. minútu leiksins voru tveir Pól- verjar reknir af leikvelli með stuttu millibili þegar staðan var 23—21 Póllandi i hag. ísland minnkaði muninn í eitt mark, en i staðinn fyrir að ísland næði að jafna, tókst Pólverjum að bæta við marki þrátt fyrir að þeir væru aðeins fjórir innl á vellin- um. Og þegar staðan var 22—24 og Pólverjar enn tveimur færri, lét Sigurður Sveinsson Woiczak markvörð verja frá sér vítakast. Þá má einnig geta þess, að varið var frá Bjarna Guðmundssyni úr hraðaupphlaupi þegar staðan var 25—23 fyrir Pólland og 30 sekúnd- ur til leiksloka. Má segja að þá fyrst hafi úrslit leiksins verið ráðin. Þeir 2000 áhorfendur sem mættu í Höllina voru tæpast sviknir þó að landinn hefði tapað. Islendingar eru orðnir vanir því í gegnum árin, en það yljar alltaf þegar islenskum landsliðum tekst að veita fremstu þjóðum heims verðuga keppni og rúmlega það. Islenska landsliðið gerði marga hluti vel í leiknum í gær og var óþekkjanlegt frá slökum leikjum gegn Bandaríkjunum, eins og reyndar var við að búast. Höfuð- verkurinn var þó áberandi sá sami og í leikjunum gegn USA, þ.e.a.s. varnarleikurinn, hann var oft frekar slakur og verður að kippa honum í liðínn. íslendingar hafa alltaf getað skorað mörk, meira að segja verið snjallir á þeim vett- vangi. En gegn ótrúlega snörpum Pólverjunum stóðu íslensku leik- mennirnir allt of oft sem freðnir væru. Ef litið er á gang leiksins, þá leit ekki vel út hjá íslenska liðinu í byrjun. Pólverjar komust í 4—2 á skömmum tíma og virtust hafa lítið fyrir áhlaupum sínum. Þetta breyttist þó, einkum fyrir tilstilli Jens Einarssonar, sem varði um tíma mjög vel. ísland jafnaði sem sagt 4—4 og síðan voru allar jafnteflistölur upp í 9—9 með liðin til skiptis í forystu, Pólverja þó heldur oftar. Þegar staðan var ísland — Pólland 23:25 síðan 12—11 fyrir Pólverja kom afdrifarík mínúta þegar línu- maðurinn Wilkowski skoraði tvívegis, fyrst af línu eftir snjalla sendingu frá Klempel og síðan eftir hraðaupphlaup. En Sigurður Sveinsson átti síðasta orðið í fyrri hálfleik er hann skoraði úr víta- kasti. Pólverjar náðu fjögurra marka forystu í upphafi síðari hálfleiks, 16—12, en þá kom Kristján Sig- mundsson í markið eftir að Jens hafði drabbast nokkuð niður. Kristján varði hvert skotið af öðru og staðan var enn orðin jöfn á 42. mínútu, 17—17. Síðan sáust jafn- teflistölurnar 18—18, 20—20 og 21—21. Klempel skoraði þá 23. mark Pólverja úr víti og í næstu sókn var brotið á Viggó en ekkert dæmt, Pólverjar brunuðu upp og skoruðu, 23—21. Lokakaflanum hefur þegar verið lýst. Sóknarleikur íslenska liðsins var aðallinn að þessu sinni, nýt- ingin var 49% sem er ágætt gegn slíkri þjóð. Þorbergur, Viggó og Sigurður Gunnarsson áttu allir stórleik í sókninni, einnig Bjarni, auk þess sem Steindór var frískur á línunni. Auk þessara fimm leikmanna var Ólafur fyrirliði lengst af inni á og þó að hann hefði verið mistækur í leiknum, virtist liðið sterkast þegar þessir sex leikmenn voru inn á. Varnar- leikurinn var oft, of oft, máttlaus, þar virtust ýmsir íslensku leik- mannanna hreinlega ekki hafa snerpu á við mótherja sína. Oft fóru Pólverjarnir í gegn eftir einfaldar bolvindur. Markvarslan var furðugóð miðað við hve slakur varnarleikurinn oft var, vörðu bæði Jens og Kristján þokkalega. Takist að bæta varnarleikinn, þarf ekki að hafa áhyggjur, því lið þetta verður alltaf líklegt til að gera mörg mörk gegn hvað mót- herja sem er. Ef á heildina er litið, er landsliðið á réttri leið, vonandi tekst að fylgja þessum mjög þokkalega leik eftir með öðrum betri. Mörk íslands: Sigurður Gunn- arsson 5, Þorbergur 4, Sigurður Sveinsson 4 (allt víti), Viggó 4, Steindór og Bjarni 2 hvor, Olafur Jónsson og Guðmundur Magnús- son 1 mark hvor. Klempel skoraði mest fyrir Pólverja, 7 mörk, 3 víti, Kaluzinski og Vilkowski skoruðu 5 mörk hvor. Leikinn dæmdu þeir Gunnlaug- ur Hjálmarsson og Karl Jó- hannsson og gerðu það þokkalega, öðru hvoru þótti manni þó halla á okkar menn. gg. 49% nýting hjá íslenska liðinu SÓKNARNÝTING íslenska landsliðsins í leiknum í gær- kvöldi var allgóð. í fyrri hálf- leiknum átti liðið 25 sóknir en skoraði 12 mörk. Og í þeim síðari 22 sóknarlotur og gáfu 11 þeirra mörk. 47 sóknarlotur í heildina og 23 mörk eða um 49% nýting. Markverðir íslenska liðsins vörðu 13 skot í leiknum. Jens Einarsson varði 6 skot, fékk á sig 17 mörk. Jens var inná allan fyrri hálfleikinn og rétt framan af þeim síðari. Kristján Sig- mundsson varði 7 skot í síðari hálfleiknum og fékk á sig 8 mörk. Nýting leikmanna liðsins var sem hér segir: Viggó Sivrurósson Atli Hilmarsson Sigurður Gunnarsson Ólafur Jónsson Þorbergur Aðalsteinss. Steindór Gunnarsson Bjarni Guðmundsson Sigurður Sveinsson Guðmundur Magnúss. skot mðrk bolta glatað 7 4 3 1 0 0 9 5 4 1 4 9 4 4 3 2 4 2 fiskar 2 vítaköst 4 4 ailt úr vítask. 1 . 1 fiskarl vitakast Sigurður Sveinsson mísnotaði vítakast á 59. mínútu, pólski markvörðurinn varði. Tveimur ís- lendingum var vísað af leikvelli í tvær mínútur, þeim Guðmundi Magnússyni og Þorbirni Jenssyni. Þrem Pólverjum var vísað af velli. -þr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.