Morgunblaðið - 12.01.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANUAR 1980
Þjóðstjórnarviðræður:
Fundir fram
á helgina
FULLTRÚAR stjórnmálaflokk-
anna ræddust við um myndun
þjóðstjórnar í gær og í dag er
gert ráð fyrir því að þeir raeðist
við á ný. Flokkarnir hafa fengið í
hendur greinargerð frá Seðla-
banka Islands um þann 25 til 30
milljarða króna félagsmála-
pakka, sem tilgreindur var í
þeim Iciðum til láusnar efnahags-
vandans, sem Þjóðhagsstofnun
hafði áður rciknað út. í gær-
kveldi barst svo flokkunum ný
skýrsla frá bjóðhagsstofnun, þar
sem gerð er úttekt á skattamál-
um.
Eftir fundina, sem ráðgerðir eru
í dag, er við því búizt, að formenn
flokkanna fjögurra hittist á
sunnudag. Að þeim fundi loknum
er búizt við því, að Geir Hall-
grímsson geri upp hug sinn varð-
andi áframhald tilraunar hans til
myndunar þjóðstjórnar.
Alþýðubanda-
lagið semur
tillögur í
efnahagsmálum
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
hefur að undanförnu unnið
að tillögum i efnahagsmál-
um og er talið að þær muni
liggja fyrir í endanlegri
gerð um eða upp úr helg-
inni.
Fyrstu drög þessara til-
lagna munu hafa legið fyrir
skömmu fyrir áramót og ítar-
legri gerð 3ja janúar, sem
síðan hefur verið til umræðu
m.a. við forystumenn Al-
þýðubandalagsins í verka-
lýðshreyfingunni.
Loðnuaflinn:
14 skip með
7060 lestir
FJÓRTÁN loðnuskip fengu afla í
fyrrinótt og gærmorgun 50 — 60
mílur vestur og norðvestur af
Barða., samtals 7060 lestir. Níu
fóru til Siglufjarðar, tveir til
Bolungarvíkur. einn til Patreks-
fjarðar og tveir á Faxaflóahafn-
ir.
Þessi skip tilkynntu um afla:
Ársæll 390 lestir, Óli Óskars 140,
Pétur Jónsson 670, Náttfari 520,
Húnaröst 620, ísleifur 440, Kap II
600, Jón Finnsson 530, Þórshamar
550, Skírnir 450, Hafrún 580,
Hákon 650, Gullberg 500 og Þórð-
ur Jónason 420.
„Tilkynni ákvörðun
mína á mánudaginnu
— segir Guðlaugur Þorvaldsson
„ÉG get ekki beðið með það
lengur að gefa ákveðið svar og
það er að vænta yfirlýsingar frá
mér á mánudaginn,“ sagði Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari þegar Mbl. spurði hann í
gær hvort hann gæfi kost á sér í
embætti forseta Islands.
„Það hefur verið mikill þrýst-
ingur á mig að undanförnu alls
staðar að af landinu. Ég hef
hugsað mjög mikið um þetta á
síðustu dögum enda um að ræða
ákvörðun, sem kann að breyta
mjög mikið mínum högum. En það
er ekki eftir neinu að bíða og ég
ætla að ákveða mig endanlega
núna um helgina," sagði Guðlaug-
ur.
Mynd þessa tók varnarliðið á Keflavíkurflugvelli af vél af gerðinni Tuploev TU —142, sem á
Vesturlöndum er kölluð Bear-Foxtrot. Vélar af þessari gerð eru notaðar til kafbátahernaðar. Þær eru
búnar tundurskeytum og djúpsprengjum. Raninn fram úr nefi vélarinnar er til þess að hún geti tekið
eldsneyti á flugi. Varnarliðið hefur aldrei fyrr sent fra áer mynd af flugvél af þessari gerð.
170 sovéskar flug-
vélar 4 loftvarna-
svæði Islands 1979
VARNARLIÐIÐ á Keflavíkur-
flugvelli fylgdist með ferðum
170 sovéskra flugvéla á loft-
varnasvæði íslands á árinu
1979. Voru ferðirnar þannig um
20 fleiri en árið 1978, en þá
voru þær nær tvöfalt fleiri að
meðaltali en næstu fimm ár á
undan.
Ferðir sovéskra flugvéla við
ísland hafa þannig aukist jafnt
og þétt undanfarin ár eins og
hernaðarumsvif Sovétríkjanna
um heim allan. Að sögn varnar-
liðsins hefur þeirrar breytingar
helst orðið vart í flugi Sovét-
manna umhverfis landið, að æ
fleiri tegundir flugvéla sækja nú
suður á Atlantshaf einkum þó
langdrægar kafbátaleitarflug-
vélar.
Flug Sovétmanna einkennist
af þeirri útþenslustefnu, sem
þeir fylgja á öllum heimshöfun-
um, þar sem herfloti þeirra
lætur æ meira til sín taka. Sé
litið til lendinga sovéskra flug-
véla á íslandi, kemur í ljós, að
fyrsta sovéska flugvélin lenti á
Keflavíkurflugvelli í september
1957. Síðan höfðu ein eða tvær
flugvélar Sovétmann viðdvöl á
flugveilinum árlega nema árin
1963—66 og 1968—69. í kjölfar
jarðskjálfta í Perú 1970 og í
tengslum við hjálparstarf þar
var Sovétmönnum leyft að nota
Keflavíkurflugvöll fyrir 61 AN-
12 flugvél og 4 AN-22 vélar í júlí
1970 með því skilyrði, að vélarn-
ar dveldust ekki næturlangt á
flugvellinum. Aðeins 21—23 vél-
ar fóru um völlinn frá Rússlandi
til Perú. 18. júlí 1970 týndist
AN-22 vél á milli íslands og
Grænlands. Níu dagar liðu, þar
til tvær AN-12 vélar frá Aeroflot
komu til Keflavikur til að leita
að týndu vélinni. Sovétmenn
vildu einnig fá heimild til að fá
aðstöðu fyrir hervél á Kefla-
víkurflugvelli til leitarinnar, en
íslensk stjórnvöld höfnuðu þeirri
beiðni. AN-12 vélunum var upp-
haflega heimilað að dveljast á
vellinum í 7 daga en síðan til 20.
ágúst 1970. Þá hurfu þær á brott
án þess að týnda flugvélin fynd-
ist. Þegar Bresnéff heimsótti
Kúbu í ársbyrjun 1974, var
Sovétmönnum leyft að nota
Keflavíkurflugvöll fyrir AN-22
vélar, sem fluttu varning til
Kúbu, og lentu þær 22 sinnum á
vellinum. Frá 1974 hafa einstak-
ar sovéskar flugvélar lent í
Keflavík. Síðla árs 1978 hófst
nýr þáttur í flugsamskiptum
Sovétríkjanna og íslands, þegar
hóp AN-26 véla var heimilað að
lenda í Reykjavík á leið sinni til
Kúbu. Voru þrjár slíkar ferðir
farnar síðastliðinn vetur. Þess
má geta, að Sovétmenn notuððu
vélar af AN-gerð til liðs- og
hergagnaflutninga til Afghan-
istan við hernám landsins.
F asteignagjöldin:
Óhætt hefði verið að samþykkja
tillögu sjálfstæðismanna um
að fara hægar í sakirnar
— segir Birgir ísleifur Gunnarsson borgarfulltrúi
„Heildarálagning fasteignagjalda i Reykjavík á árinu 1980 er
6.236.480 þúsund krónur, sem er 83,8% hækkun frá fyrstu
álagningu síðasta árs.En i frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykja-
víkurborgar fyrir 1980 er gert ráð fyrir að heildarálagningin verði
5.744 milljónir króna, þannig að tekiurnar verða þá tæpum 500
milljón krónum meiri,“ sagði Birgir Isleifur Gunnarsson borgar-
fulltrúi í samtali við Mbl. í gær. „Hér er um að ræða gífuriega
hækkun fasteignaskatta, sem er mun meiri en frumvarp að
fjárhagsáætlun spáði fyrir um.
Þessi hækkun á rætur að rekja
til þess að fasteignamat hefur
hækkað verulega milli ára, en
auk þess bætast við nýjar eignir
frá ári til árs. Við Sjálfstæðis-
menn lögðum í borgarstjórn til
að ekki yrðu lagðir á fasteigna-
skattar í jafn ríkum mæli, held-
ur yrði aftur horfið til þeirra
álagningarreglna, sem giltu
1978, en það var síðasta árið,
sem við réðum ferðinni varðandi
álagninguna.
Greiðsla fasteignaskatta verð-
ur nú þungbærari fyrir allan
almenning, því hér er um að
ræða meiri hækkun en hækkun á
almennum launatekjum á sama
tíma. Reykjavík ásamt Kópavogi
er með hæstu álagningarprós-
entu af sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu, en hin sveitar-
félögin veita öll afslátt frá lög-
leyfðri álagningu.
Mér sýnist þessi álagning
benda til þess, að óhætt hefði
verið að samþykkja tillögu okkar
Sjálfstæðismanna um álagn-
ingarreglur og fara hægar í
sakirnar, en vinstri meirihlutinn
felldi okkar tillögu," sagði Birgir
ísleifur Gunnarsson.
Haukur í
tvísýnni
biðskák
„ÉG ER með 3,5 vinninga úr sex
umferðum og er nú að fara að
tefla biðskák úr þcirri sjöundu.
Staðan er tvísýn, en ég held nú að
ég standi betur að vígi ef eitthvað
er,“ sagði Haukur Angantýsson,
nýbakaður alþjóðlegur meistari í
skák, er Mbl. ræddi við hann í
gærkvöldi í Skien i Noregi, en
þar teflir Haukur nú á alþjóðlegu
móti.
Haukur vann tvær fyrstu skák-
irnar, gegn Nicklason og Wibe en
tapaði svo fyrir þeim Iskov og
Gulbrandsen, en þeir voru efstir í
gær eftir 7 umferðir með 5
vinninga. I fimmtu umferð gerði
Haukur jafntefli við Schneider og
vann svo Wahlbom.
Tefldar verða 9 umferðir.