Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 4

Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGURIZ. TANÚAR1980 4 í sálfræðideildinni i Hólabrekkuskóla. Þrir af starfsmönnum, frá v. Grétar Marinósson, forstöðumaður deildarinnar, Kristin Ingvarsdótt- ir og Sigtryggur Jónsson. Ljósm. Emilia Sálfræðideild í nýju húsnæði í HAUST flutti Sálfræðideildin i Hólabrekkuskóla i nýtt og glæsilegt húsnæði, en jafnframt átti deildin 5 ára afmæli. var stofnuð 1974. En deildin á að þjóna skólunum í Breiðholti, og Árbæjarhverfi, þ.e. Breiðholtsskóla, Olduselsskóla, Seljaskóla, Fellaskóla, Hólabrekkuskóla og Árbæjarskóla. Sálfræðiþjónustu Reykjavíkurskólanna er skipt i þrjár deildir, sem þjóna skólunum í Vesturbæ, í Austurbæ og innan Elliðaáa. Þær eru staðsettar í Tjarnargötu 20, Réttarholtsskóla og Hólabrekku- skóla, og starfa allt árið að undanskildu fjögurra vikna sumarleyfi. Af þessu tilefni skoðuðu fræðslu- stjóri og nokkrir gestir nýju aðstöð- una og við það tækifæri sagði forstöðumaður deildarinnar, Grétar L. Marinósson, m.a.: „Þótt við séum eingöngu fimm ára, þá er starfsemi sálfræðideilda skóla hins vegar mun eldri hér á landi eða síðan Reykja- víkurborg réð Jónas Pálsson til starfa árið 1960. í nágrannalöndum hófst slík starfsemi rétt upp úr aldamótunum í kjölfar Child Guid- ance-hreyfingarinnar í Bandaríkj- unum, greindarprófaöldunnar sem átti upptök sín í Frakklandi, svo og upphaf sérkennslu í Danmörku og víðar. Hér sem annars staðar á þessi þjónusta að vera starfsfóiki skóla og yfirvöldum til ráðgjafar um umbæt- ur í skólastarfi, svo hægt sé að koma sem best til móts við þarfir hvers nemanda. Einnig til aðstoðar við fyrirbyggjandi starf til varnar því að vandkvæði rísi, til athugunar, leiðbeiningar og meðferðar á nem- endum sem valda sjálfum sér eða öðrum vandræðum námsiega og í hegðun og til námsráðgjafar við unglinga. Þetta er stórt hlutverk, raunar allt of stórt fyrir okkur í dag enda höfum við orðið að velja og hafna." Grétar ræddi bil það sem víða virðist liggja milli viðhorfa sálfræð- inga annars vegar og hins vegar kennara og foreldra og sagði að frumskilyrði til samkomulags væri að þeir hefðu tækifæri til að skiptast á skoðunum, svo eyða mætti fordóm- um og misskilningi. í ljósi þessa hefðu tvær sálfræðideildanna verið staðsettar inni í skólum og hafa stöðugt verið að auka starf sitt í skólunum. Að vísu erum við lengst af að drukkna í erfiðum málum einstakra barna og foreldra þeirra og kennara, sagði hann, en nú drukknum við þó að minnsta kosti inni í skólunum í augsýn allra en ekki í einrúmi úti í bæ, sagði Grétar. í Sálfræðideildinni í Hólabrekku- skóla starfa nú 7 manns að meðtöld- um ritara. Þar eru tveir félagsráð- gjafar, þrír sálfræðingar auk for- stöðumanns, tveir sem starfa víð skólana og einn sem bættist í hópinn í haust og sinnir eingöngu dagvist- arstofnunum. Sagði Grétar að starfsfólki hefði heldur verið að fjölga en hitt og að hópurinn væri góður. — í framtíðinni sé ég aukna vinnu við bætt tengsli heimila og skóla, við aukna samvinnu kennara og annars starfsfólks innan skólans, við samhæfðara átak til að koma betur til móts við þarfir bæði illa staddra og afburða vel gefinna nemenda og almennt aukna meðvit- und meðal allra þeirra sem vinna í þágu barna um mikilvægi bættrar geðverndar í skólum og á heimilum, sagði Grétar í lok ræðu sinnar. Sjónvarp í dav»: 11 mörk í enska boltanum ÞRÍR leikir verða á dagskrá ensku knattspyrnunnar sem er að venju á dagskrá sjónvarps síðdegis í dag, og eru það allt leikir úr fyrstu deildinni frá þvi skömmu fyrir áramót. Þetta eru hörkuleikir, og alls eru þar skoruð ellefu mörk. Að sögn Bjarna Felixsonar eru leikirnir þessir: Chrystal Palace gegn Middlesborough, Brighton leikur gegn Manchester City og loks verður sýnt úr leik Totten- ham og Aston Villa. íþróttaþáttur er einnig á dagskrá sjónvarps í dag, og þar verða lyftingar fatlaðra meðal efnis. Sjónvarp kl. 20:.')."): F jallgöngugarpar á ferð Á dagskrá sjónvarps klukkan 20.55 í kvöld er mynd sem nefnist Kapio- hamar, eftir samnefndum hamri suður af Nýja- Sjálandi. Hamar þessi er um 1400 metra hár, venju- lega umvafinn brimlöðri, og er talinn afar torsótt- ur öðrum en fuglinum fljúgandi eins og oft er sagt í ævintýrum. Myndin fjallar um bar- áttu fjallgöngugarpsins Sir Edmunds Hillarys við fjallið, er hann hugðist klífa það ásamt mönnum sínum. Fjallið reyndist þcim erfitt viðureignar eins og vænta mátti, þeir lentu í byljum, urðu að róa niður hættulegar flúðir og klífa þverhnípta hamra- veggi, en allt er það þess virði þegar ánægjan við að ná hæsta tindinum er ann- Einn kunnasti fjallgöngugarp- ur veraldarsögunnar, Sir Ed- mund Hillary, sem meðal ann- ars hefur unnið sér það til frægðar að klífa Mount Everest fyrstur manna. ars vegar. — Ekki er rétt að taka spennuna frá sjón- varpsáhorfendum með því að segja hvernig fór, held- ur bíða myndarinnar. Sir Edmund Hillary er enginn viðvaningur í íþrótt sinni, sem nú nýtur æ meiri vinsælda víðs veg- ar um heim, og er ísland þar ekki undanskilið. Hil- lary varð fyrstur til að klífa hæsta fjall heims, Mount Everest, sem rís upp úr Himalajafjallgarð- inum norðan Indlands- skaga. Kleif hann fjallið ásamt félaga sínum, Ten- zing að nafni, hinn 29. maí 1953, sem frægt er orðið. Fyrir afrekið var Hillary aðlaður, og kallast síðan Sir Edmund Hillary, sleg- inn til riddara af þjóðhöfð- ingja Breska heimsveldis- ins. Útvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 12. janúar MORGUNNINN 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi 7.20 Bæn 7.25 Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15 Veðurfr. Forustugr. dagbl. (útdr.) Dagskrá. Tón- leikar. 8.50 Leikfimi 9.00 Fréttir. Tiikynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga: Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir). 11.20 Að leika og lesa Jónína H. Jónsdóttir stjórn- ar. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. SÍDDEGID__________________ 13.30 í vikulokin Umsjónarmenn: Óskar Magnússon, Guðjón Frið- riksson og Þórunn Gestsdótt- ir. 15.00 í dægurlandi Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Villiblóm Ellefti þáttur. Efni tiunda þáttar: Gestapó hefur handtekið þá Bournelle og Flórentín, en til allrar hamingju rekst Páll á Brúnó, fornvin sinn. Hann fylgir Páli til Beaujolais en þar frétta þeir að móðir Páls sé farin til sonar síns i Alsír. Þeir ákveða að leita hennar þar og taka sér far með flutn- ‘•gaskipi. Svavar Gests velur íslenska dægurtónlist til flutnings og f jallar um hana. 15.40 íslenzkt mál Jón Aðalsteinn Jónsson 16.00 Fréttir. Tilkynr.ingar. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Heilabrot Þýðandi Soffia Kjaran. 18.55 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dag- skrá 20.30 Spítalalíf Bandarískur gaman- myndaflokkur. Þýðandi Ellert Sigur- björnsson. 20.55 Kaipo-hamar Kaipo-hamarinn rís upp úr brimiöðrinu suður af Nýja- Sjálandi. 1400 metra hár og torsóttur öðrum en fugl- inum fljúgandi. Þennan tind hugðist Sir Edmund Annar þáttur:Skilnaðar- börn. Umsjónarmaður: Jakob S. Jónsson. 17.00 Tónlistarrabb; - VIII Atli Heimir Sveinsson f jallar um sænska nútimatónlist. 17.50 Söngvar í léttum dúr. Hillary klífa ásamt görp- um sínum, og til þess urðu þeir að berjast gegn ofsa- byljum, róa niður hættu- legar flúðir og sækja upp snarbratta hamraveggi. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. 21.25 Rómeo og Júlía s/h Bandarisk bíómynd frá ár- inu 1937, byggð á leikriti Shakespeares. Leikstjóri George Cukor. Aðalhlutverk Norma Shea- rer og Leslie Howard. Þýðandi Óskar Ingimars- son. 23.25 Dagskrárlok. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. KVÖLDID_____________________ 19.35 „Babbitt“, saga eftir Sin- clair Lewis í þýðingu Sigurðar Einars- sonar. Gísli Rúnar Jónsson leikari les (7). 20.00 Harmonikuþáttur í umsjá Bjarna Marteinsson- ar, Högna Jónssonar og Sig- urðar Alfonssonar. 20.30 Gott laugardagskvöld Þáttur með blönduðu efni í umsjá Óla H. Þórðarsonar. 21.15 A hljómþingi Jón Örn Marinósson velur sigilda tónlist, spjallar um verkin og höfunda þeirra. 22.15 Veðurfegnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.35 Kvöldsagan: „Hægt and- lát“, saga eftir Simone de Beauvoir Bryndis Schram byrjar lest- ur þýðingar sinnar. 23.00 Danslög. (23.45 Fréttir). 01.00 Dagskrárlok. LAUGARDAGUR 12. janúar 16.30 íþróttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.