Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 7

Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 7 Fúlegg Tímans Manninum á götunni þótti það ekkert skrýtið, þótt lýðræðisleg samtök í skólum landsíns skyldu sjá ástæðu til þess að mótmæla innrás Rússa í Afganistan fyrir utan sendiráð þeirra á fimmtu- daginn. Blóðsúthellingar og yfirgangur af þessu tagi hefur aldrei vakið sérlega hrifningu æsku- fólks í sæmilega siðuðum þjóðfélögum. Og áreiðan- lega hefur verið efnt til útifundar af minna tilefni en hér var gert. Það vekur þess vegna furðu, að Tíminn skyldi í gær sjá ástæðu til þess að gera lítið úr mótmæla- fundinum: „Eggjum kast- að í rússneska sendráðið . í gær“ er áberandi fyrir- sögn á forsíðunni, þótt eggið hafi aldrei verið nema eitt. Og auðvitað þurfti „nokkra" til þess að kasta þessu eina eggi. Nazreddin laug því einu sinni upp, að hann heföi orpið eggi og sýndi konu sinni sem trúnað- armál, en hún var hin argasta kjaftakind. Þegar Nazreddin var síðan kall- aður fyrir soldáninn voru eggin orðin mörg þús- und. Þannig höfðu þau margfaldast í meðförun- um eftir því sem sagan var oftar sögð. Og eins virðist komið fyrir þeim á Tímanum. Það er engu líkara en fúleggjunum fjölgi þar með degi hverj- um. Lágkúran er söm viö sig „Áróðursstríðið um Af- ganistan: Eins og manna af himni sent fyrir Cart- er“ er fyrirsögn á „fréttaskýringu" Þjóðvilj- ans í gær, sem skrifuð er af ritstjóranum Árna Bergmann. í þessari furðulegu ritsmíð er reynt að drepa málunum á dreif með næsta sér- kennilegum hætti, eins og niðurlagið ber með sér: „Það er engu líkara en að Carter hafi ekki í langan tíma verið jafn- heppinn og þegar Kreml- arbændur ákváöu að höggva á hnútinn í Af- ganistan með því að senda herliö þangað." „ ... með því að senda herlið þangað" eru óneit- anlega hógvær orö, þeg- ar um blóðuga innrás er aö ræöa, þar sem börn, konur og karlar hafa mætt skriðdrekum með hnúum og hnefum aö vopni og annað ekki, en síðan kramizt undir þeim. Blóðbaðið verður skelfi- legra með hverjum degi og átökin harðari. Og það getur enginn verið í vafa um það lengur, hvers eðlis þau séu. Það getur verið, aö þessir atburðir séu fyrst og fremst „manna af himni sent fyrir Carter" í hugum Þjóðviljamanna. Fyrir Af- gana hafa þeir í för með sér óumræðilegar hörm- ungar og þjáningar sem enginn sér fyrir endann á. Eggjum kastað í rússneska sendiráöið í gærdag ». MODVIUIINN — SIDA I ia af irter | larma tn sovetriKianna -i Þafi krmur þvl alli aft þvl eim I o* vkollinn ur saufiarleRgnum. | þegar a-ftslu menn Frakklands I og Veslur Þyskalands. Giscard I D'Kslaing og Hrlmul Schmidt, ' hali slungifi saman nefjum um | þaft meft hvafia hrlti þeir gelu - rrynl afi bjarga slfikunarstrfnu I sambufi auslurs og veslurs — a þrail fyrlr alll Sovétmenn sárir Sovrimenn rru brrsymlrga mjfig sártr yfir þvl hvernig Bandarlkjammn hafa brugfiisl vift rkk' slst a þetta vifi um rift- Pakistan Sama blafi birtlr fra- t ir * « . • sagnir fmtaritara sinna I Kabul U on DcElir a m k hafa komifi þvi afi foringjar margklofmna hrrvfinga skarulifiahopa mu hamrfistrúarmanna hafa komifi a ffil samnginlegu rafii Hl afi taka vifi og nyu afistofi tra muhamefiskum rlkjum Su grrmja sem aberandi er I soveskum blofium yfir fram vindg mala vrrfiur ofur skiljan- leg þegar þess er g*ll hve ra>ki Irga Bandarlkjamenn hala néll alburfii srr nl framdrauar Varnarmálaráfiherra þeirra Harold Brown. hrfur lagi grundvoll afi hernafiarsamstarfi vifi Klna Ralt rr vifi Brrta um rflingu floUslfifivar a rynni DiegoGarciaa Indlambhafi Þa helur Bandarikjamonnum loks ins tekist aft fa Tyrki ttl afi Iryfa aflur afnol af herstfifivum og hlerunarstofivum sem hafa vrr ifi lokafiar fyrir Bandarikja monnum slfian I Kypurdeildunni 1975 Segja ma. afi Bandarlkja monnum berist fleiri ivkilm lil afi hrrssa upp a hrrnafiarsioftu slna m þeir grla nvtt Þrir hafa m.a hafnafi nlbofii Israela og Egypla um hrrnafiarafislofiu a landi þessara rlkja Mrira en svo eflir afi Carler tilkynnti um refsiafigrrfiir grgn Sovrirlkjunum hrkkuftu vrrfi- brrf a markafii I Wall Strrrl um trp lultugu stig. og rr þafi mesU stðkk upp a vifi a hrilu Þafier engu llkara en afi Cart Helgi Tryggvason: Réttur og skylda 1. Leikreglur barna Þegar lítil börn fara að leika sér saman, verður þeim venju- lega fyrir að reyna að líkja eitthvað eftir því, sem þau sjá og heyra fyrir sér, t.d. úr daglegu nauðsynjastarfi innan húss og utan, o.fl. Þetta er eðlilegt, vegna þess að hermihvötin er þeim í blóðið borin. Sú hvöt er líka mannsbarninu afar nauð- synleg til þroska, vegna þess að það þarf að læra svo margt og mikið með því að líkja eftir öðrum, enda er eðlisávísun þess miklu minni en hjá dýrunum. Mannsbarnið er því miklu há- ðara umhverfi sínu, til þroska eða vanþroska eftir atvikum, heldur en uppvaxandi afkvæmi dýranna. En ímyndunarafl barnsins leitast við að fylla drjúgum upp það, sem á vantar. Ég vil þessu næst leiða athygli ágætra lesenda að einu atriði sérstaklega: Börnum er eðlilegt í leikjum sínum að viðhafa ein- hverjar ákveðnar reglur fyrir félagsleik sínum. Sumt skal vera sameiginlegt öllum og öllum heimilt. Um ýmislegt í leiknum fer á víxl eftir vissum skilyrðum. Annað er algerlega bannað. Réttindi og skyldur eru hug- tök, sem koma snemma á dagskrá hjá börnum í leik á þann hátt fyrst og fremst, að engum er leyfilegt að gera hvað Helgi Tryggvason sem honum kann að detta í hug. Börnunum finnst að það verði að vera leikreglur, sem eru eitthvað í líkingu við fyrirmyndir frá fullorðna fólkinu, eins og eðlilegt er. Börnin þurfa fyrirmyndir að svo mörgu, þar sem þau, eins og að ofan getur, eru miklu fátæk- ari en dýrin af því, sem snertir eðlisávísun, en eru sérlega með- tækileg fyrir mótunaráhrif. En þegar við nefnum leikregl- ur og yfirleitt almennar reglur fyrir gildandi hegðun, kemur margt upp á teninginn, svo sem geifluð hugmynd um hið altæka „frelsi" hvers einstaklings, þannig að hver og einn geti sagt: Mitt frelsi á ekki að mótast af því, sem einhverjum öðrum þóknast að segja, því að þá er það ekkert frelsi! Slík ömurleg málfærsla hefur á öllum tímum viljað skjóta upp kollinum hjá vanhugsandi fólki. En allra frá- leitast er það á þessum tímum, þegar mannkyninu fer fjölgandi með ógnþrungnum hraða, svo að það ástand krefst vaxandi gætni og tillitssemi í öllum umferðar- reglum hins daglega lífs, til þess að forðast 1) dauðaslys eða 2) ævarandi örkuml. Þetta gildir jafnt á landi og sjó og í lofti. Og ætli það séu ekki margir sann- færðir um það í hjarta sínu, að t.d. umferðarslysin gerast langt um fleiri fyrir það, að allt of mörgum verður það á að hugsa of mikið um að halda utan að sínum eigin réttindum, en gleyma að festa sér í minni, að réttindi hvers manns enda þar, sem hann rek-ur sig á rétt náungarts til þess að komast hjá sömu áföllum. En svona atriði er nauðsynlegt að íhuga og velta fyrir sér þeim óalandi öfgahug- myndum, sem leika lausum hala á þessu sviði, sérstaklega með tilliti til þeirra, sem eru að vaxa upp. Nánar rætt í næsta þætti. VANTAR ÞIG VINNU (n VANTAR ÞIG FÓLK í tP Þl ALGLVSIR l'M ALLT LAN'D ÞEGAR ÞL ALG- LYSIR I MQRGLNBLADINL Árshátíð í Austurbæjarbíói frestað Árshátíöum yngrideilda og unglingadeilda KFUM og KFUK, sem vera áttu í dag kl. 13.15 og 15.00 er frestaö um einn dag og veröa sameiginlega sunnu- dag kl. 13.15 í Austurbæjarbíói. Músikleikfimin hefst mánudaginn 14. janúar Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir konur á öllum aldri. Tími fyrir byrjendur og framhaldsnemendur. Kennt verður í húsi Jóns Þorsteinssonar. Kennari Gígja Hermannsdóttir. Upplýsingar og innritun í síma 13022 eftir kl. 1 alla daga. I dag kl. 15.00 Danski listmálarinn BODIL KAALUND flytur fyrirlest- ur meö litskyggnum: „Tradition og fornyelse í grönlandsk kunst", í fyrirlestrarsal hússins. Eftir fyrirlesturinn mun hún ásamt grænlensku listakonunni AKE HÖEGH leiðbeina gestum um grænlensku listsýninguna „Land mannanna“ í sýn- ingarsölum hússins. Sýningin er opin daglega kl. 14—19. Verið velkomin. NORRÆNA HUS0 POHJOLAN TAIO NORDENS HUS Hef flutt skrifstofu mína aö Sigtúni 7, Rvík. (Breiðfjörðsblikksmiöju). Nýr sími 81171. Annast eins og áöur framtals- og bókhaldsaðstoö svo og ýmiss konar ráögjöf og umsýslu. Athugiö aö panta framtalsaöstoðina tímanlega. Símatími kl. 3—6 virka daga. Siguröur S. Wiium, skrifstofa, Sigtúni 7, Rvík. Sími 81171. Blaöberi óskast nú þegar til að bera út Morgunblaóiö í Hraunsholt (Ásar). Upplýsingar gefur umboösmaöur Morgun- blaösins í Garöabæ, sími 44146. JMtolpititltfftfetfe

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.