Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 13 Ríkið tekur drjúgt HVAÐ fær ríkið fyrir hverja selda flösku af sterku víni? Þessari spurningu hafa vafalitið margir velt fyrir sér. Það á vist að heita leyndarmál hve álagningin er mik- il. að minnsta kosti gefur ÁTVR ekki slíkt upp. En blaðamaður fór á stúfana til að komast að hver álagningin er á nokkrum þekktum víntegundum og eftir þá könnun kom í ljós að ríkið fær reiðinnar býsn fyrir hverja selda flösku. Hver seld flaska af Vodka Wybor- owa kostar í ÁTVR 10.500. En hvað skyldi ríkið þurfa að borga fyrir hana. Jú, hver flaska kostaði í lok síðasta árs 354 krónur en þá var um FOB-verð að ræða. Álagningin er því 29,66 föld — já tæplega þrítugföld. Dágóð álagning það, eða finnst ykkur ekki. Smirnoff-vodkinn am- eríski gefur ekki alveg eins mikið af sér. Hver flaska þar kostaði 478 krónur í innkaupsverði og þá er miðað við sif—verð. í ÁTVR kostar Smirnoffinn 11.000 krónur. Álagn- ingin er því 23 föld. Nú rússneski vodkinn kostar ríkið 320.75 krónur í innkaupi hver flaska. Álagningin er því 34.29 föld — eða svo vitnað sé til prósentutölunnar þá er álagningin þrjúþúsund tvöhundruð tuttugu og níu prósent. Nú er rússneski vodkinn ódýrari í innkaupum en sá pólski en samt er hann dýrari! Já, vegir guðs eru órannsakanlegir — og ríkisins iíka. En hlutfallið er ekki alltaf svona. Til að mynda kostar hver flaska af Gordons gyn 761 krónu í innkaupi en í útsölu kostar hún 11.000. Álagning- in er því liðlega 14föld. Svo við tökum að lokum Bacardi Rom þá kostar hver flaska í innkaupum 569 krónur. í útsölu 11.200 krónur — álagningin þar er því liðlega lOföld. REYKINGAR „Tekist hefur að halda í horfinu66 í NÝÚTKOMNU Upplýsingariti Samstarfsnefndar um reykinga- varnir er m.a. birt línurit, þar sem sýnd er þróun tóbakssölu hér á landi árin 1968—1978 með tilliti til gramma á hvern íbúa. í ritinu segir m.a.: „Ljóst er að á þessu ári hefur glatast svolítið af þeim ávinningi, sem orðið hefur af reykingavarna- starfinu hér á landi. Þetta kemur meðal annars fram í því, að síga- rettusalan hefur aukist lítillega það sem af er árinu miðað við fyrra ár, en sala á öðrum tóbaksvörum hefur aftur á móti minnkað. Þegar á heildina er litið er stað- reyndin samt sú, að tekist hefur að halda i horfinu varðandi tóbaks- neyslu íslendinga. þegar litið er á fimm ára tímabil. Salan hjá Áfeng- is- og tóbaksverslun ríkisins er en um 100 grömmum minni á íbúa en hún var 1974. Ef ekkert hefði verið að gert varðandi fræðslu- og upplýs- ingastarf um skaðsemi tóbaks hefði aftur á móti mátt búast við verulegri aukningu tóbaksnotkunar síðustu fimm árin miðað við þróun áranna á undan. Áskorun samstarfsnefndarinnar og nokkurra félagasamtaka á sviði heilbrigðismála til stjórnvalda um aukna fjárveitingu til reykingavarna hefur enn engan hljómgrunn fengið. Samstarfsnefndin gerir sér þó vonir um að ríkisstjórnin láti eitt- hvað af þeim 2000 milljónum króna, sem nýákveðin hækkun á tóbaksvör- um færir ríkissjóði renna til reyk- ingavarna í landinu." fyrir alþingi um skeið, sem ein- mitt eykur rétt föður. Já, það er rétt. Vorið 1976 var lagt frumvarp til barnalaga fyrir alþingi, þar sem stórt skref er stigið til að jafna þetta misrétti. En enn þann dag í dag hefur þetta frumvarp ekki verið samþykkt og fengið sáralitla umræðu. Eg talaði við dómsmálaráðherra á sínum tíma, Ólaf Jóhannesson og Steingrím Hermannsson síðar. Þeir lýstu samúð sinni en ekkert hefur gerst. Það virðist algjört slen og áhugaleysi ríkja um þessi mál. Eg hef rætt við núverandi dómsmálaráðherra og auk þess þingmenn, ég hef gengið á milli emSættismanna og manna í dóms- kerfinu og alltaf fengið sama svarið. Þar var lýst samúð og svo framvegis en ekkert hefur gerst. En ég geri mér vonir um að frumvarpið verði samþykkt. Réttindaleysi föður óskilgetins barns er þá nánast algjör? Já, við erum langt á eftir nágrannaþjóðum okkar í þessum efnum. En það er ekki bara næstum ómögulegt fyrir föður óskilgetins barns að fá umráða- rétt, hann hefur engan lagalegan umgengnisrétt. Hann hefur ekki einu sinni rétt til að greiða meðlög óski hann þess. Ósk um það verður að koma frá móður. Nú svo tel ég meðferð barnaverndarnefndar og barnaverndarráðs ámælisverða. Maður hefur þar enga tryggingu að mál fái heiðarlega og vandvirka meðferð, lög og reglugerðir þar að lútandi eru svo óljósar og loðnar. Þú hefur ekki fengið né færð að sjá barn þitt. Er það ekki þungur baggi að bera? Það segir sig sjálft og sjálfsagt getur enginn skilið það nema hafa lent í því sjálfur — það er ólýsanlegt. Stúlkan bjó með okkur foreldrunum þrjú fyrstu ár ævi sinnar, síðan í sjö mánuði með mér einum. Síðan kemur samfé- lagið, ásamt móður barnsins, og segir: Þú færð ekki að sjá barnið þitt — þú færð ekki að umgangast það. Punktur basta og svo er talað um jafnrétti. Sér hver hvert jafn- réttið er. HELGARVIÐTALIÐ: Fyrir skömmu skipaði Vilmundur Gylfason dómsmálaráðherra í embætti umboðsfulltrúa Alþingis. Hann útnefndi flokksbróður sinn og fyrrum alþing- ismann, Finn Torfa Stefánsson. Um þessa embættisveitingu hafa verið deildar meiningar, greinar hafa veriö skrifaðar í blöð og fyrirspurnir og gagnrýni hefur komið fram á Alþingi. Því hefur verið haldið fram, að Vilmundur hafi verið að koma föllnum flokksbróður til hjálpar, og að með þessari embættisveitingu sé verið að vega að dómstólunum í landinu. Að framkvæmdavaldið, í skjóli Alþingis, sé að ná tökum á dómstólunum. Blaðamaður ræddi við Finn Torfa stutta stund í vikunni. Er starf umboðsfulltrúa beinlínis aöför að einum meg- inþætti stjórnkerfisins — dómstólunum? Til að byrja með takmarkast starf umboðsfulltrúa við þær stofnanir em falla undir dóms- málaráðuneytið. Dómstólarnir falla undir ráðuneytið en þeir eru, og ég legg áherzlu á þaö, sjálfstæðir í dómsathöfnum. Þaö er ekki ætlunin aö skipta sér af efnislegri niðurstööu dómstól- anna. Fjarri því. Ég held miklu fremur að segja megi, að hiö nýja embætti sé til styrktar dómstólunum. Hingaö leitar fólk, sem er óánægt með efnislegar niðurstöður dóma. Þaö stendur í þeirri trú, að framkvæmdavaldiö og ráöuneytiö geti breytt dóm- um en slíkt er aö sjálfsögöu rangt. Umboðsfulltrúi getur veitt fræðslu um þessa hluti, sem áreiöanlega kemur dómstólum vel líka. Finnur Torfi Stefánsson — umboðsfulltrúi Alþing- is. Ljósmynd RAX. Fékk starfið þrátt fyrir þingsetuna En ef umboösfulltrúinn telur niöurstöðu dómstóls ranga? Ef til þessa kæmi, gæti ég eigi aö síður ekkert aðhafst, þar sem dómstólarnir hafa úrskurðar- valdiö. Þeirra niðurstöðu veröur ekki breytt og mér dytti aldrei í hug að gera minnstu tilraun til þess. Er starfið þá í því fólgið að fá leiðréttar ákvarðanir stjórn- valda, þar sem tilefni reynist vera til? Nei. Það veröur jafnframt hlutverk umboðsfulltrúa aö veita fólki leiöbeiningar um samskiþti sín viö stofnanir ríkisvaldsins og lögfræöilega ráögjöf eftir því sem unnt verður. Það má segja aö að því leyti sé um að tefla vísi aö ókeypis lögfræöiaðstoð. Þeg- ar á þeirri fyrstu viku, sem ég hef starfað, hafa um 50 einstakl- ingar leitaö til mín og flest erindin hafa veriö aö fá leiösögn. Nú er sá grundvallarmunur á starfi umboðsfulltrúa hér og í Danmörku að þar stendur hann utan við stjórnsýsluna. Hér hins vegar er hann í kerfinu ef svo má aö oröi komast. Þú ert starfsmaöur í dómsmálaráðu- neytinu og settur í embætti af flokksbróöur þínum. Er þetta ekki ókostur? Menn eru ekki á eitt sáttir um uppbyggingu svona starfs. Ég fyrir mitt leyti tel þessa leið góða og gilda. Reynslan veröur svo að skera úr um hvort svo sé eða ekki. Umboðsfulltrúi í Danmörku hefur ekkert formlegt vald en embættið nýtur mikillar viröingar í Danmörku og ég vona að þaö takist aö vinna því sömu virð- ingar og áhrifa hér. En er þá pólitísk veiting til þess fallin að skapa viröingu? í strangasta skilningi eru allar embættisveitingar ráðherra póli- tískar, hvort heldur hann er að ráða vélritunarstúlku eða for- stjóra ríkisstofnunar. Hann ber stjórnmálalega ábyrgð á öllum slíkum ákvöröunum. I mínu tilviki held ég að seta mín á Alþingi hafi verið talin mér til ókosta er umsókn mín um starfið var metin og ég hafi hlotið starfið þrátt fyrir þessa þingsetu en ekki vegna hennar. Þetta kemur Ijós- lega fram er ráöningarskilmálar eru skoðaðir. Um möguleika mína til þess aö afla starfinu virðingar get ég að sjálfsögöu ekki sjálfur dæmt. Ertu þá hættur í pólitík? Ég hef ekki lengur atvinnu af pólitík. Má ekki segja, að vegna þess aö þú gegnir þessu embætti telji ýmsir sig standa í þakk- arskuld við þig og geta helzt goldiö þá skuld með atkvæöi sínu ef til kemur? Ég vonast til þess að eiga eftir að vinna þeim gagn sefn til mín leita. En fyrir það ætlast ég ekki til endurgjalds því aö með því geri ég einungis skyldu mína. Þú sagöir áöan, aö fyrst um sinn takmarkaðist starfið við þær stofnanir, sem falla undir dómsmálaráðuneytið. Síðar er því ætlaö að ná til allra ríkis- stofnana. Nú eru þar ýmsir flokkspólit ískir menn og konur. Segjum svoað þú sæir ástæöu til að hirta einhvern fyrir emb- ættisníðslu og hann væri flokkspólitískur. Gæti þá ekki fortíö þín valdið því að þú yrðir sakaður um pólitískar ofsókn- ir? Þetta er spurning um hversu embættismönnum er treystandi til aö líta hlutlægt á mál, og varðar mitt starf ekki sérstak- lega heldur embættismenn yfir- leitt. Mitt mat er það, að ef eitthvað freisti embættismanna til hlutdrægni þá muni ýmislegt annaö vega þar þyngra en stjórnmálaskoðanir. Þar má til dæmis nefna frændsemi og vin- áttu. Þegar Geir Hallgrímsson skipaði í embætti húsameistara ríkisins og var í starfstjórn þá úthrópaði Vilmundur Gylfason það sem siðleysi og spillingu, — hann sagöi ráðherra engan rétt hafa til slíks. Nú er Vil- mundur í starfstjórn en samt setur hann þig í embætti. Er það ekki siöleysi eða er ekki sama hver er? Ákvörðunin um að stofna til starfans var tekin drjúgum tíma fyrir síöustu alþingiskosningar. Á þeim tíma var ekki vitað hvort ég næði kosningu og sú ákvöröun þess vegna því alveg óháö mínum högum. Þá er þess einnig að gæta aö þegar þessi ákvörð- un var tekin þá sat Alþýðuflokk- urinn ekki í starfstjórn, eins og margir hafa haldið fram, heldurí minnihlutastjórn með stuðningi Sjálfstæðisflokksins. Auk þess er rétt að benda á, aö ráðn- ingarskilmálum er hagað með sérstökum hætti. Ég er ráöinn með 3ja mánaöa gagnkvæmum uppsagnarfresti og þess utan er ég ráðinn til eins árs. Þá rennur starfstími minn sjálfkrafa út. Þannig eru gerðar sérstakar ráöstafanir til þess, að sá ráð- herra, sem kemur á eftir Vil- mundi Gylfasyni sé óbundinn af því aö hafa mig í vinnu áfram telji hann mig óhæfan. Hann getur skipt um mann, sýnist honum svo. Hendur hans eru algjörlega óbundnar. Þetta er einsdæmi og því engan veginn sambærilegt. H. Halls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.