Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 17

Morgunblaðið - 12.01.1980, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 17 Frá pallborðsumræðunum s.l. miðvikudaK, í.v. Knútur óskarsson, séra Halldór Gröndal, Þórður Sverrisson, Konráð Guðmundsson og Bjarni Árnason. Ljósmynd Mbi. RAX. jr S.I. með námskeið í gisti- og veitingahúsarekstri: Nýjar rekstraraðferðir eru framtíðarverkefnið Stjórnunarfélag íslands gekkst fyrir námskeið um gisti- og veitingahúsarekstur fyrir við- komandi aðila i s.l. viku og stóð námskeiðið í þrjá daga að Hótel Loftleiðum. Alls sóttu um 40 veitingamenn víðs vegar af land- inu námskeiðið sem var sett upp að beiðni Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda. Almennt var fjallað um stjórn- un og rekstur veitingahúsa og lögð var sérstök áherzla á kynningu kerfa til þess að bæta hráefnisnýt- ingu. Þá var fjallað um aðferðir til þess að gera sér grein fyrir daglegri afkomu veitingastaða að sögn Þórðar Sverrissonar fram- kvæmdastjóra Stjórnunarfélags íslands. Framsögumenn á námskeiðinu voru þeir Pétur Maack dósent við Háskóla íslands, Tómas Tómasson rekstrarstjóri hjá Brauðbæ, Þórð- ur Hilmarsson rekstrarráðgjafi 40 veitingamenn víðs vegar af landinu sóttu námskeiðið hjá Hagvangi og Þórður Sverris- son framkvæmdastjóri Stjórnun- aifélagsins, en hann stjórnaði síðan pallborðsumræðum með þátttöku Knúts Óskarssonar hjá Ferðamálaráði, Séra Halldórs Gröndal sóknarprests og fyrrver- andi veitingamanns, Konráðs Guðmundsonar hótelstjóra á Hót- el Sögu og Bjarna Árnasonar framkvæmdastjóra hjá Brauðbæ. Þórður Sverrisson sagði í sam- tali við Mbl. að í pallborðsumræð- unum hefði komið fram almennur vilji fyrir því að taka upp nýjar og betri aðferðir við rekstur veitinga- húsa á íslandi. Þá kom ennfremur fram að hótel- og veitingarekstur er að verða ótrúlega stór atvinnu- rekstur hér á landi. Þessi iðnaður er kominn í fjórða sæti hvað varðar gjaldeyristekjur. Þá má geta þess að almenn ánægja kom fram hjá þátttakend- um á námskeiðinu með námskeið sem þessi og í því sambandi sagði Þórður aðspurður að Stjórnunar- félagið gerði nokkuð af því að skipuleggja námskeið fyrir ein- staka þjóðfélagshópa, t.d. hefði það skipulagt námskeið fyrir Dómarafélag íslands á s.l. ári og áhugi væri vaxandi á þessu. Konráð Guðmundsson hótel- stjóri á Hótel Sögu sagði aðspurð- ur að námskeiðið hefði tekist með ágætum og hefðu komið fram margar mjög athyglisverðar hug- myndir um breyttan og bættan rekstur gisti- og veitingahúsa. Sex fyrirtæki í Japan á móti 600 í Sviss: Síga fram úr Sviss- lendingum í úragerð JAPANIR framleiddu fleiri úr á s.l. ári heldur en Svisslendingar í fyrsta sinn í sögunni samkvæmt upplýsingum frá Samtökum úraframleiðenda í Japan. Yoshinori Shirakawa fram- kvæmdastjóri bandalagsins sagði á fundi með fréttamönnum í vikunni að búast mætti við því að þegar upp væri staðið hefðu Jap- anir framleitt í kringum 59 millj- ónir úra á móti 50 milljónum Svisslendinga, sem til þessa hafa framleitt mest allra. Svisslendingar framleiddu um helming allra úra á markaðinum árið 1970, en árið 1975 fór verulega að halla undan fæti hjá þeim með tilkomu elektrónísku úranna, en þá hófu Japanir fyrir alvöru að framleiða úr og hafa þeir stöðugt verið að auka markaðshlutdeild sína. Á árinu 1978 voru framleidd alls um 230 milljónir úra í heiminum og framleiddu Svisslendingar þá um 22%, Japanir um 19%, Sovét- menn um 12% og Bandaríkjamenn um 11%. Shirakawa sagði að helztu vand- ræði Svisslendinga væri hár launakostnaður, of sterk staða svissneska frankans svo og að þeir hefðu ekki náð nægilega góðu valdi á elektrónikkinni, en það hefðu japönsku fyrirtækin Seiko og Citizens hins vegar gert og stæðu fremst allra á því sviði. í dag eru starfandi um 600 úrafyrirtæki í Sviss, en á s.l. áratug voru þau flest starfandi um 1300, en í Japan eru aðeins starfandi sex fyrirtæki. VltJolUr 11 VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl Inngangur að HEINESEN William Heinesen: í MORGUNKULINU Samtímasaga úr Færeyjum. Þorgeir Þorgeirsson þýddi. Myndskreytingar: Ólafur Gísla- son. Mál og menning 1979. I morgunkulinu er fyrsta skáldsaga Williams Heinesens. Hún kom út 1934. Heinesen sem er að verða áttræður (15. janúar) hóf bókmenntaferil sinn með ljóða- bókinni Arktiske elegier (1921). I morgunkulinu er þriðja bókin sem Mál og menning gefur út eftir Heinesen í þýðingu Þorgeirs Þor- geirssonar með styrk frá Norræna þýðingarsjóðnum. Áður eru komn- ar Turninn á heimsenda, ljóðræn skáldsaga í minningabrotum úr barnæsku, og smásagnasafnið Fjandinn hleypur í Gamalíel. Vert er að vekja athygli á þessum bókum eftir einn helsta sagna- meistara norrænna þjóða. Á það skal ekki síst lögð áhersla að þýðingar Þorgeirs Þorgeirssonar eru gerðar af vandvirkni og eftir- minnilegum hagleik. í morgunkul- inu vitnar um að Þorgeir er enn að sækja í sig veðrið. I morgunkulinu er að mörgu leyti góður inngangUr að skáld: verkum Williams Heinesens. í sögunni kemur fram hin einkenni- lega blanda af dul og raunsæi sem setur svip sinn á allt sem Heine- sen hefur samið. Hann lýsir af nærfærni ungu fólki og þó einkum eftirvæntingu ástarinnar og þeim seið sem henni fylgir. Það er skammt í örvæntingu þegar til- finningunum er misboðið, um- hverfið þrengir að viðkvæmum kenndum. Jafnframt deilir Heine- sen á ýmislegt í fari þeirra sem með völdin fara, en mest ber á rækilegri og miskunnarlausri út- tekt á trúargrillum. í morgunkul- inu er þó minni ádeilusaga en ýmsar aðrar skáldsögur Heine- sens. Hún er fyrst og fremst breið lýsing á lífi Færeyinga á tímum þegar nútíminn heldur innreið sína í gervi vélknúinna skipa. í skipi sem kemur af hafi í lok bókarinnar er fólgin von um betri tíð. Vel mætti að því finna að í morgunkulinu sé saga þar sem of margar persónur koma við sögu, mynd höfundarins sé eilítið rugl- ingsleg og skorti hnitmiðun á köflum. Það rúmast margt í sög- unni og víða er komið við. Þetta getur þó varla talist galli þegar þess er gætt hve sagan er heillandi ' lestur. Ymsar persónur bókarinn- ar og sögusvið hafa öðlast meiri dýpt í síðari bókum höfundarins. Hér erum við kynnt fyrir því fólki og umhverfi sem Heinesen valdi sér ungur að yrkisefni. Heimur sögunnar minnir þráfaldlega á De fortabte spillemænd (1950) sem kom út á íslensku undir nafninu Slagur vindhörpunnar í þýðingu Guðfinnu Þorsteinsdóttur. Sálræn innsýn Heinesens er oft með ólíkidum. Glöggt dæmi er lýsingin á háskalegri ferð þeirra Josva og Hildu innundir eyna, en pilturinn rær með stúlkuna á bátskænu inn í dimman helli þar sem verður að fara eftir þröngri rennu. Hugmyndir um varúlfa og víti eru rifjaðar upp í frásögninni af samskiptum Josva og Hildu, enda Heinesen lagið að draga upp myrkar myndir og sýna inn í leynda heima þótt hann dvelji oft við hið barnslega og óspillta í tilverunni. En kannski er rödd Bókmenntir eftir JÓHANN HJÁLMARSSON hans hljómmest þegar hann lýsir ólgandi djúpum tilfinningalífsins, fólki sem er á mörkum brjálsemi. Rómantísk lífssýn tekur oft völdin af raunsæismanninum og ein- hvern veginn finnst manni að þetta sé í samræmi við færeyska þjóðarvitund. í bókmenntum Fær- eyinga er hið dulkynjaða og draumkennda oft það sem mest ber á og snilldarlega túlkað af William Heinesen fleiri höfundum en William Heinesen. I upphafi í morgunkulinu er talað um sólarglóð sem getur verið í senn fyrirheit eða váboði. Þessi kafli er ákaflega fallegur skáld- skapur og nýtur sín vel í þýðingu Þorgeirs Þorgeirssonar. Þannig er sviðsmynd Heinesens: „Bátana sem stefna þennan morgun útnorður grámoskuna á Þrymseyjarsundi til framandi djúpsjávarmiða ber í þverhníptar eyjar sem rísa handanvið regn- slæður og öldufalda en renna áður en varir útí grámann einsog þær hverfi. af sviði raunveruleikans inní veröld sagna og hindurvitna. Það er hinsvegar þessi bátur með bláleitum pústreyk og gljáþvegnu dekki, kompás og loggi, veiðarfær- um og sjóklæddum mönnum sem verður hinn áþreifanlegi vettvang- ur þarsem framtíð öll og afkoma veltur á lifrar- og lýsismettuðum aflafengnum og því hvernig tekst að hrifsa hann uppúr djúpunum." Þess skal að lokum getið að myndskreytingar Ólafs Gíslason- ar, vinjettur við hvern kafla, miðla andrúmi sögunnar og eiga því heima þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.