Morgunblaðið - 12.01.1980, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980
19
Rússar
aðvara
Norðmenn
Ósló, 11. janúar. AP.
Landvarnaráðherra
Noregs, Thorvald Stolten-
berg, sagði í gærkvöldi að
alls engar ögranir hefðu
verið settar á svið með-
fram landamærum Noregs
og Sovétríkjanna.
Hann sagði þetta vegna ásakana
sovézku fréttastofunnar Tass þess
efnis, að norskir herforingjar
hefðu notað ástandið í Afghanist-
an fyrir „átyllu til þess að magna
spennu" á landamærunum.
„Norðmenn hafa ekkert gert til
að auka viðsjár," sagði Stolten-
berg í viðtali. „Staðhæfingar
Rússa hafa því við alls ekkert að
styðjast."
Aðspurður hvort ummæli Tass
hefðu leitt til viðbúnaðar á landa-
mærunum sagði Stoltenberg, að
hann vildi ekki ræða norskar
hernaðarráðstafanir.
Indira tekur við á mánudag
íbúar í litlu þorpi á Indlandi (agna Indiru Gandhi verðandi forsætisráðherra Indlands eítir að úrslit
kosninganna í landinu lágu fyrir. Indira mun sverja embættiseið sinn sem forsætisráðherra á
mánudagsmorgun eftir að hafa verið í stjórnarandstöðu i 34 mánuði. Ekki hefur enn verið tilkynnt
hverjir verða helztu ráðherrar í stjórn hennar.
Sexburar
í Flórens
Flórens, 11. janúar, AP.
KONA í FLórens fæddi í dag
sexbura eftir að hafa tekið horm-
ónalyf. Læknar við sjúkrahúsið
segja, að börnin, 4 stúlkur og 2
drengir, eigi mjög góða mögu-
leika á að komast til þroska.
Sexburafæðingin í Flórens er
önnur „stóra“ fæðingin á lta.Hu á
hálfu ári. í ágúst síðastliðnum
fæddi koúa í Napóli áttbura. Tvö
barna hennar lifa og eru komin
heim eftir að óttast hafði verið um
að öll myndu látast. Hvorki konan
né aðstandendur hennar hafa
nokkuð vilja segja við fréttamenn
þar sem þau hafa skrifað undir
samning við ítalskt tímarit sem
mun „sjá um hina stóru fjöl-
skyldu" eins og AP orðaði það
gegn einkarétti sögu þeirra.
■ ■■
\f/
ERLENT
ÓL varla hundsaðir
Washington, 11. janúar. AP.
BANDARÍSKA stjórnin hefur
komizt að þeirri niðurstöðu. að
hún geti ekki komið í veg fyrir að
Bandaríkjamenn taki þátt 1 Ol-
ympiuleikunum í Moskvu í sumar
þannig að vafi leikur á því að
Bandaríkin geti beitt slikum
refsiaðgerðum gegn Rússum.
Carter gæti í mesta lagi beðið
íþróttamenn og áhorfendur að
ákveða sjálfviljugir að fara ekki
til leikanna meðan sovézkt herlið
er í Afghanistan, að sögn banda-
rískra embættismanna. Þeir við-
urkenndu að ólíklegt væri að
Carter færi fram á slíkt nema
hann væri viss um að áskorun
hans yrði hlýtt.
Því hefur bandaríska stjórnin
ákveðið að hafast lítið að í þessu
máli, halda hugmyndinni um að
hundsa leikana vakandi og bíða og
sjá hvernig atburðirnir í Afghan-
istan og víðar hafa áhrif á al-
menningsálitið að sögn embætt-
ismannanna.
„Við erum á móti því að pólitík
sé leidd inn í Olympíuhreyfing-
una,“ sagði talsmaður bandarísku
Ólympíunefndarinnar. Ýmsir
íþróttamenn hafa tekið í sama
streng.
„Bann á leikana virðist til-
gangslaust," sagði A1 Oerter, fjór-
faldur ólympíumeistari í kringlu-
kasti, sem ætlar sér að vinna
fimmtu ólympíuverðlaunin í
sumar þótt hann sé orðinn 44 ára.
Þótt bandarískir íþróttamenn
og fulltrúar þeirra ákveði að taka
ekki þatt í leikunum af fúsum
vilja vill Carter-stjórnin vera viss
um stuðning Vestur-Þjóðverja áð-
ur en hún leggur til að fallið verði
frá þátttöku í leikunum að sögn
bandarískra embættismanna.
| Helsinki -2 skýjað
V- Jerúsalem 13 skýjað
Jóhannesarborg 26 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 rigning
7 Las Palmas Lissabon London 19 skýjað 12 heið8kírt 5 skýjaö
Los Angeles 17 rigning
T T „ Madríd 8 heiðskírt
I/ Pi liir Miami 27 skýjað
yM'f Mallorca 12 skýjað
víða um heim Moskva New York -l2ðnjókoma 1 skýjað
Akureyri -3 alskýjað Ósló -5 skýjað
Amsterdam 0 skýjað París 3 skýjað
Aþena 12 skýjað Reykjavik 0 úrkoma
Barceiona 11 léttskýjað Rio de Janeiro 35 rigning
Berlín -8 skýjað Rómaborg 9 skýjaö
BrUssel -2snjókoma Stokkhólmur 0 skýjað
Chicago 6 rigning Tel Aviv 18 skýjað
Feneyjar 3 heíðskfrt Tókýó 8 heiöskírt
Frankfurt 0 skýjað Vancouver -6 snjókoma
Genf 5 skýjað Vínarborg -1 skýjað
Ekkert korn frá
EBE til Rússa
EBE
EKKERT lát er á við-
brögðum við innrás
Rússa í Afghanistan. Hér
fara á eftir nokkrar
fréttir um viðbrögð í
gær, föstudag.
EBE BANNAR
KORNSÖLU
BRUSSEL: Efnahagsbandalagið
staðfesti að það mundi ekki selja
Rússum korn í stað þess korns
sem Bandaríkjamenn hafa
stöðvað sölu á. EBE selur lítið af
korni til Sovétríkjanna, en
stjórn bandalagsins sagði að
hert yrði á eftirliti með korn-
útflutningi til Austur-Evrópu.
ANKER GAGNRÝNIR
VIN: Anker Jörgensen forsætis-
ráðherra Dana, sagði að loknum
samræðum við Bruno Kreisky,
kanzlara Austurríkis, að innrás
Rússa í Afghanistan boðaði
breytingu á framferði Rússa og
væri brot á alþjóðalögum. „Við
höfum áhyggjur af frekari af-
leiðingum málsins fyrir heim-
inn, ekki sízt vegna þeirrar
öryggisleysistilfinningar sem
hefur skapazt," sagði hann.
Jörgensen sagði að deilan um
staðsetningu nýrra kjarnorku-
eldflauga væri flóknari en áður
vegna innrásarinnar. Annað-
hvort yrðu Bandaríkjamenn og
Rússar að komast að samkomu-
lagi eða auka yrði herútgjöld,
koma upp nýju varnarkerfi og
kannski koma af stað nýju köldu
stríði. Þetta kvað hann hættu-
lega leið og sagði að engin önnur
skynsöm leið væri til en déten.te
og vona yrði að skynsemin sigr-
aði.
SCHMIDT HRINGIR
BONN: Helmut Schmidt, kanzl-
ari Vestur-Þýzkalands, hringdi í
Carter forseta til að ræða Afg-
hanistan-málið og önnur alþjóð-
amál. Talsmaður Bonn-stjórnar-
innar sagði að Schmidt færi
bráðlega til Washington og talið
er að hann geri það í marzbyrj-
un.
Schmidt hefur einnig ráðfært
sig við Giscard d’Estaing
Frakklandsforseta og stýrt fundi
í vestur-þýzka öryggisráðinu. Að
loknum þeim fundi var innrás
Rússa í Afghanistan harðlega
fordæmd en ítrekað að Bonn-
stjórnin ætlaði að halda áfram
slökunarstefnu.
BRÚÐA BRENND
BANGKOK: Um 1,000 múham-
eðstrúarmenn mótmæltu innrás
Rússa í Afghanistan, brenndu
brúðu sem átti að tákna Leonid
Brezhnev forseta og hrópuðu
„Dauði yfir Sovétríkjunum"
fyrir framan sendiráðið í Bang-
kok, Thailandi.
Borin voru spjöld sem á stóð:
„Múhameðstrúarmenn í Thai-
landi styðja baráttu Afghanist-
ans gegn sovézku herliði" og
„Blóðs múhameðskra bræðra
verður hefnt“. Múhámeðs-
trúarmenn eru um fjórir af
hundraði Thailendinga og til-
tölulega hófsamir þótt nokkrir
þeirra berjist fyrir sameiningu
við Malaysíu.
FYLGJA RÚSSUM
VÍN: Blöð í Austur-Evrópu
gagnrýndu Bandaríkin harðlega
fyrir að leggjast gegn innrás
Rússa í Afghanistan. Greinar
birtust í búlgörskum, tékkóslóv-
akískum og ungverskum blöðum
þar sem sovézka innrásin var
fordæmd. En ekkert var minnzt
á málið í rúmenskum blöðum.
HAFÐIR í HALDI
TOKYO: Sovézkir hermenn
höfðu hóp japanskra fréttaritara
sem þeir grunuðu um að vera
njósnara Kínverja í haldi í sex
tíma í Kabul fyrr í vikunni að
sögn blaðsins Mainichi.
f .t'L
Islands
ferma skipin
sem hér
segir:
ANTWERP:
Skógafoss 12. jan.
Fjallfoss 17. jan.
Reykjafoss 24. jan.
Skógafoss 31. jan.
Fjallfoss 6. feb.
Reykjafoss 14. feb.
ROTTERDAM:
Skógafoss 11. jan.
Fjallfoss 18. jan.
Reykjafoss 23. jan.
Skógafoss 30. jan.
Fjallfoss 7. feb.
Reykjafoss 13. feb.
FELIXTOWE:
Mánafoss 16. jan.
Dettifoss 21. jan.
Mánafoss 28. jan.
Dettifoss 4. feb.
Mánafoss 11. feb.
Dettifoss 21. feb.
HAMBORG:
Mánafoss 18. jan.
Dettifoss 24. jan.
Mánafoss 31. jan.
Dettifoss 7. feb.
Mánafoss 14. feb.
Dettifoss 24. feb.
PORTSMOUTH:
Ðakkafoss 14. jan.
Brúarfoss 15. jan.
Bakkafoss 4. feb.
Selfoss 7. feb.
Bakkafoss 25. feb.
HELSINGBORG:
Háifoss 16. jan.
Laxfoss 22. jan.
Háifoss 29. jan.
Laxfoss 5. feb.
Háifoss 12. feb.
KAUPMANNAHÖFN:
Háifoss 17. jan.
Laxfoss 23. jan.
Háifoss 30. jan.
Laxfoss 6. feb.
Háifoss 13 feb.
GAUTABORG:
Skeiösfoss 12. jan.
Álafoss 16. jan.
Tungufoss 23. jan.
Úöafoss 30. jan.
Álafoss 6. feb.
MOSS:
Skeiösfoss 14. jan.
Álafoss 18. jan.
Tungufoss 25. jan.
Úöafoss 31. jan.
Álafoss 8. feb.
BERGEN:
Skeiösfoss 16. jan.
Tungufoss 21. jan.
Álafoss 4. feb.
KRISTIANSAND:
Álafoss 19. jan.
Úðafoss 1. feb.
GDYNIA:
Múlafoss 11. jan.
Lagarfoss 24. jan.
írafoss 7. feb.
HELSINKI:
Lagarfoss 21. jan.
írafoss 4. feb.
WALKOM:
Lagarfoss 22. jan.
írafoss 5. feb.
WESTON POINT
Kljáfoss 16. jan.
Kljáfoss 30. jan.
simi
Frá REYKJAVIK:
ámánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
á miðvikudögum til
VESTMANNAEYJA
EIMSKIP