Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 20

Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 Útgefandi mliXnÞiÞ hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á kr. eintakið. mánuði innanlands. I lausasölu 230 Frumskylda sjálfstæðra þjóða Þau þrjú Norðurlanda, sem aðild eiga að Atlantshafsbanda- laginu, Danmörk, Noregur og ísland, vóru öll hernumin í síðari heimsstyrjöldinni, þrátt fyrir þá yfirlýsta hlutleysisstefnu. Sú bitra reynsla, sem brann á baki þessara þjóða, sannfærði þær um, að hlutleysið býður hættunni heim. Það varð því að leita haldbetri leiða til að gegna þeirri frumskyldu hvers sjálfstæðs ríkis að tryggja öryggi sitt. Það var gert með samátaki lýðræðisþjóða; aðild að Atlantshafsbandalaginu. í lok síðari heimsstyrjaldarinnar innlimuðu Sovétríkin Eystra- saltsríkin þrjú og slógu hrammi sínum á gjörvalla A-Evrópu. Innrásin í Tékkóslóvakíu var dæmigerð fyrir valdbeitingu þeirra á þessu „áhrifasvæði". Útþenslustefna Sovétríkjanna hefur allar götur síðan sagt til sín í flestum heimshornum. Kúbudeilan, hernaðarafskipti með kúbönsku herliði í Afríkuríkjum og Víetnömum í Asíu og innrásin í Afghanistan eru nokkur dæmi af fjölmörgum þessu til staðfestingar. Útvörður Norðurlanda í austri, Finnland, fór heldur ekki varhluta af rússneskri íhlutun. Innrás Sovétríkjanna í Finnland á sinni tíð og margs konar þrýstingur á síðari árum eru talandi dæmi þar um. Flotaumsvif Sovétmanna á Norðurhöfum, sem ná allt upp að Islandsströndum, segja og sína sögu. Upplýsingar brezka blaðsins Daily Telegraph um sovézkar heræfingar með hugsanlega innrás á Hjaltlandseyjar og ísland fyrir augum, sem fram fóru á Eystrasalti 1978, eru og íhugunarefni, svo ekki sé meira sagt. Atlantshafsbandalagið hefur tryggt frið í okkar heimshluta í rúma þrjá áratugi. Þrátt fyrir hávært tal lítils minnihlutahóps gegn aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu er viljayfirlýsing meiri hluta þjóðarinnar ótvíræð. Um það ber undirskriftasöfnun Varins lands og kjörfylgi lýðræðisflokkanna ótvírætt vitni. Þorri Islendinga vill tryggja öryggi þjóðarinnar með óbreyttri utanríkisstefnu. Ekkert hef ur breytzt Innrás Sovétríkjanna í Afghanistan, sem var hlutlaust land utan varnarbandalaga, er enn ein sönnun hvors tveggja: útþenslustefnu Sovétríkjanna og algjörs vanmáttar hlutleysis í öryggismálum þjóða. Þetta grófa hernaðarofbeldi hefur verið fordæmt hvarvetna um hinn lýðfrjálsa heim og þykir að því leytinu verra en innrásin í Tékkóslóvakíu, að Afghanistan var utan svonefnds „áhrifasvæðis" Sovétríkjanna. Þó skýtur skökku við þegar Mbl. spyr nokkra frammámenn íslenzkra sósíalista um álit þeirra á þessari hernaðaríhlutun. Einar Olgeirsson, hinn aldni forvígismaður íslenzkra sósíalista sem skipar heiðurssæti framboðslista þeirra í Reykjavík, og Ingimar Jónsson, formaður svokallaðrar „íslenzkrar friðarnefnd- ar“ og Alþýðubandalagsforingi í Kópavogi, vildu ekkert láta hafa eftir sér um málið — og þögn er sama og samþykki, segir máltækið. Benedikt Davíðsson, frambjóðandi Alþýðubandalags á Reykjanesi, segir málið það flókið, „að of langt væri að fjalla um skoðun sína á því“, Elín Guðmundsdóttir, formaður kvenfélags sósíalista, neitaði að svara vegna þess að hún hefði „of einhæfar upplýsingar og þekkti ekki forsögu málsins". Aðrir vóru skýrari í máli. María Þorsteinsdóttir fyrrverandi formaður Menningar og friðarsamtaka kvenna, sagði: „Ég lít á þetta sem hernaðaraðstoð." Þessi skoðun hljómar eins og „Fréttir frá Sovétríkjunum", sem hún ber ábyrgð á. Jón Múli Árnason útvarpsráðsmaður Alþýðubandalagsins sagði hreint út: „Stjórn Afghanistan bað sovézku stjórnina um aðstoð og var hún veitt sem betur fer.“ Þessi íslenzku viðbrögð við hernaðarofbeldi Sovétríkjanna í Afghanistan eru einkar athyglisverð og lærdómsrík fyrir íslenzkan almenning. Þau sýna ótvírætt að í raun hafa sterk áhrifaöfl í innsta kjarna íslenzkra sósíalista ekkert lært og ekkert breytzt frá því að þau réttlættu innrásina i Finnland. I þeirra huga er ofbeldi ýmist gott eða illt, eftir því hver beitir því. Eðli verknaðar skiptir ekki máli, heldur hver að honum stendur. Og Sovétþjónkunin blómstrar eins og auðræktuð jurt í gróðurhúsi, enda segir Árni Bergmann ritstjóri Þjóðviljans, að nú hafi Sovétmenn „höggið á hnútinn" í Afghanistan og „Carter hafi ekki í langan tíma verið jafn heppinn". Kommunistum á íslandi er sama um örlög Afghanistans. Þeir hugsa aðeins um eigið skinn, leggja t.a.m. áherzlur á, að harmleikurinn í Afghanistan sé „áróðursstríð". Þetta er svonefnt tvöfalt siðgæði. Hér er um innrás að ræða, klippt og skorið. En þetta sýnir þó inn í hugskotið. Það er gott. Og hvað merkir: að höggva á hnútinn? Auðvitað að leysa vandamál. Leysir innrás vandamál? Nei, venjulegt fólk skilur ekki svona málflutning — sem betur fer. VÆNTANLEGAR forsetakosningar hafa mjög verið til umræðu manna á meðal að undanförnu og nöfn margra manna verið nefnd í sambandi við þær. Hér birtast svör nokkurra þeirra, sem nefndir hafa verið: „Kemur ekki til greina“ — segir Guð- mundur Kjærne- sted „ÞESSU er fljótsvarað. Þetta er svo fjarri lagi að ég hef ekki einu sinni leitt hugann að því,“ sagði Guðmundur Kjærnested skipherra hjá Landhelgisgæzlunni við Mbl. en margir hafa nefnt hann sem heppilegan mann í forsetaembætt- ið. Guðmundur sagði að það hefði verið nefnt við hann hvort hann væri reiðubúinn að gefa kost á sér en hann kvaðst hafa tekið því fjarri. „Þetta kemur ekki til greina af minni hálfu,“ sagði Guðmundur. „Hef ekki af- skrifað þann möguleika“ — segir Hjalti Þórarins son „ÉG hef ekki afskrifað þann mögu- leika að gefa kost á mér“, sagði Hjalti Þórarinsson yfirlækir við Landspítalann í samtali við Mbl. í gær, en nafn Hjalta hefur verið nefnt í sambandi við forsetakjör. „Ég hef fengið margar áskoranir og að sjálfsögðu mun ég íhuga málið gaumgæfilega áður en ég tek ákvörðun. Það verður þó vart í bráð, þar sem ég er á förum til útlanda í kynnisferð í minni grein,“sagði Hjalti. „Gef ekki kost á mér til framboðs“ — segir Gylfi Þ. Gíslason MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá Gylfa Þ. Gíslasyni prófessor: Þegar fregnir tóku að birtast um það fyrr í vetur, að forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, hygðist ekki gefa kost á sér til framboðs á ný, og þó einkum eftir að hann lýsti því yfir í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar, að svo yrði, hafa margir farið þess á leit við mig, að ég gæfi kost á mer til næsta forsetakjörs. Þegar ég lét af þing- mennsku fyrir hálfu öðru ári, gerði ég opinberlega grein fyrir því, hvaða störfum ég hefði hug á að sinna á næstu árum. Þau áform mín eru óbreytt. Ég mun því ekki gefa kost á mér til forsetafram- boðs á sumri komanda. Reykjavík, 11. janúar 1980 Gylfi Þ. Gíslason „Hef hugsað mér að hljóta meiri reynslu í starfi minu hjá FIDE“ — segir Friðrik ólafsson FRIÐRIK Ólafsson forseti FIDE er einn þeirra manna, sem nefndir hafa verið sem líkleg forsetaefni. Morgunblaðið spurði Friðrik hvort hann myndi hugsanlega gefa kost á sér í embættið: „Þessu hefur verið skotið að mér og það yljar manni auðvitað um hjartaræturnar að vera nefndur á nafn í sambandi við þetta virð- ingarembætti. En það er auðvitað annað að vera sameiningartákn þjóðar og leiðtogi en að starfa fyrir skákhreyfinguna og reyna að sætta menn og málefni úti í heimi. Ég held líka að mig vanti vissa reynslu og þekkingu til þess að gegna embætti forseta íslands og hef hugsað mér að starfa lengur fyrir Alþjóða skáksambandið og hljóta meiri reynslu í því starfi áður en ég fer að huga að öðru. Ég sá nú reyndar í sjónvarpsfréttun- um á dögunum hvaða eiginleikum fólk telur að forsetinn þurfi að vera búinn og það er nú langt í frá að ég sé búinn öllum þeim eigin- leikum, sem þar voru nefndir!" Kröfur ASÍ: F'élagsmálapakk- inn í 23 liðum ALÞÝÐUSAMBAND íslands leggur fram með kröfum sínum sérstakan kröfupakka um félagsmálabætur, 23 kröfur, sem samþykkt- ar voru á kjaramálaráðstefnunni í gær. Hér verður í stuttu máli gert grein fyrir þessum félagsmálapakka: Gerð er krafa um breytingu á lögum um atvinnuleysistrygg- ingar, sem fela í sér rýmkaðan bótarétt, hækkun bóta, lengri bótatíma og flutning greiðslna í fæðingarorlofi frá Atvinnuleys- istryggingasjóði til almanna- trygginga. Þá er þess krafizt við ríkisvald og/eða atvinnurekendur, að for- eldri skuli eiga rétt á fæðingaror- lofi á fullum launum í þrjá mánuði og greiðist laun af al- mannatryggingum og að foreldrar geti fengið leyfi og laun í veik- indatilfellum barna þeirra. Sé barn 10 ára eða yngra, geti foreldrar fengið leyfi á launum, þegar sá sem venjulega annast barnið er veikur, og gildir þá einu hvort um er að ræða heimavinn- andi foreldri, sem er veikt, dag- mamma eða annar aðili, þegar foreldri þarf að fylgja barni til* læknisskoðunar, þegar foreldri þarf að hafa samband við þá uppeldisstofnun, sem barnið kann að vera á, t.d. dagheimili, þegar faðir þarf að vera heima til þess að annast barn eða börn fjölskyld- unnar vegna fæðingar nýs fjöl- skyldumeðlims. Þá eru settar fram kröfur um 7 ára áætlun um að koma dagvist- unarkerfi í viðunandi horf, svo að unnt sé að fullnægja þeirri eftir- spurn, sem er eftir slíkri þjónustu. Orlof verði 27 virkir dagar fyrir alla, sem unnið hafa 10 ár eða lengur hjá sama atvinnurekanda og sé starfsmaðurinn 50 ára eða eldri skal hann fá 4 daga að auki og skulu allir starfsmenn fá or- lofstillag að upphæð 60 þúsund þegar þeir fara í leyfi. Vextir af orlofsfé verði hækkaðir til sam- ræmis við vexti af sparisjóðs- reikningum. I skattamálum eru gerðar þær kröfur, að upp verði tekin sam- tímasköttun, barnabætur verði hækkaðar, svo og persónuafslátt- ur og skattaeftirlit verði aukið. Þá er þess krafizt að húsaleiga verði frádráttarbær til skatts. Þá verði skattleysismörk hækkuð. Sjómenn, sem unnið hafa í 25 ár fái fullan rétt til ellilífeyris við 60 ára aldur og sé um skerta starfs- orku einstaklings að ræða geti hann notið ellilífeyris frá 62ja ára aldri. Þá er þess krafizt að bætur almannatrygginga verði hækkað- ar almennt, svo og tekjutrygging og að kostnaður vegna tannvið- gerða verði tekinn inn í almanna- tryggingar. Þess er krafizt að eftirvinna verði afnumin í áföngum, þannig að fimmtudagur falli út 1980 og síðan einn dagur á ári hverju þar til öll eftirvinna er aflögð. Þá er lagt til að frumvarp til laga um aðbúnað og hollustuhætti verði samþykkt, teknar verði upp viðræður við ríkisvald um lög- skráningu sjómanna og að séð verði um að réttur sjómanna í veikinda- og slysatilfellum verði eigi minni en fólks í landi. Þá er krafizt meirihlutaaðildar að stjórnum lífeyrissjóða verkalýðs- félaga og slysatryggingar verði hækkaðar. Þess er krafizt að lögfestir verði frídagar á öllum fiskiskipum yfir jóladagana og að ríkisframlag verði aukið til byggingar og rekst- urs sjómannastofa. I húsnæðismálum er þess kraf- izt að byggingasjóði verkamanna verði séð fyrir þriðjungi þess fjármagns, sem byggingaþörf landsmanna segir til um. Þá er krafizt breytinga á lögum um rétt verkafólks til uppsagnar- frests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms og slysatilfella og einnig er krafizt löggjafar um orlofsheimili. Þá eru settar fram kröfur um dagvistun og húsnæð- ismál aldraðra. Ýmislegt fleira er í þessum félagsmálapakka en síðasta kraf- an og hin 23. er um farandverka- fólk. Þess er krafizt að húsnæði þess standist ströngustu kröfur, samið verði um hámarksverð á fæði farandverkafólks og að tryggt sé að í hverri verstöð sé trúnaðarmaður, sem sinni rétt- mætum kröfum farandverkafólks og gæti hagsmuna þess gagnvart atvinnurekendum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.