Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 22

Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 Skaf tf ellingaf élagið eignast félagsheimili SKAFTFELLINGAFÉLAGIÐ í Reykjavík er um þessar mundir að eignast sitt eigið félagsheimili og er þar um að ræða austurcnda efstu hæðar hússins nr. 178 við Laugaveg í Reykjavík. Verður félagið þar næstu sunnudaga með opið hús til að gefa félagsmönn- um kost á að kynnast hvað er að gerast, þiggja kaffiveitingar og leggja húsakaupunum lið, en það hefur hlotið nafnið Skaftfcll- ingabúð. Opið hús verður n.k. sunnudag 13. janúar og síðan 20. og 27. jan. kl. 14—17 og verður einnig sýnd kvikmyndin „I jöklanna sól,“ sem félagið lét gera fyrir 25 árum. I frétt frá Skaftfellingafélaginu segir m.a. að Söngfélag Skaftfell- inga muni fá inni með starfsemi sína í hinu nýja félagsheimili og hefur það þegar haft sína fyrstu söngæfingu þarna og fengið nýtt píanó til notkunar. Þá segir í frétt Skaftfellingafélagsins: Atthagafélögin hafa treyst bönd milli byggða, milli átthaga og síðari heimabyggðar félagsmanna, sam langoftast hefur til skamms tíma verið sjálf höfuðborgin. Skaftfellingafélagið í Reykjavík er eitt þessara félaga. Ekki er það elst þeirra, aðrir urðu fyrri til en skaftfellskir vatnamenn að ríða á vaðið. Það er ekki heldur hið yngsta, því að enn er verið að stofna átthagafélög. Skaftfell- Atriði úr myndinni. Polanski í Fjalaketti FJALAKÖTTURINN sýnir i dag klukkan 17.00 í Tjarnarbíói kvik- myndina „Knife in the Water“, Hnífur i vatninu, eftir Roman Polanski og þrjár sýningar verða síðan á morgun klukkan 17.00, 19.30 og 22.00. Myndin er pólsk frá árinu 1962 og var fyrsta mynd Polanskis1 í fullri lengd. Hún hlaut F.I.P.R.E. S.C.I.-verðlaunin á kvikmynd- hátíðinni í Feneyjum árið 1962 og var útnefnd til Óskarsverðlauna árið 1963. Myndin fjallar um ung hjón sem fara í helgarferðalag og taka upp í bíl sinn ferðalang, sem á eftir að verða þeim afdrifaríkt. Enskur texti fylgir myndinni. ingafélagið var stofnað 1940 og á senn 40 ára afmæli. Þeirra tíma- móta minnist félagið með árs- hátíð, Skaftellingamóti, í Hlégarði laugardaginn 8. mars n.k. Skemmtun fyrir aldraðaí Háteigssókn Á morgun, sunnudag, kl. 3 held- ur Kvenfélag Háteigssóknar skemmtun fyrir aldraða í Há- teigssókn í Domus Medica. Þessi skemmtun er viðtekin venja i upphafi árs. Margt eldra fólk í Háteigssókn hefur komið á þess- ar skemmtanir félagsins. Að venju verður ýmislegt til skemmtunar. Þorsteinn Ö. Steph- ensen leikari les upp, skagfirska söngsveitin syngur undir stjórn frú Snæbjargar Snæbjarnardótt- ur. Frú Emma Hansen flytur eigin ljóð. Einnig verður almennur söngur. Það er von Kvenfélags Há- teigssóknar, að sem flest eldra fólk í Háteigssókn sjái sér fært að mæta á skemmtuninni. Formaður félagsins er frú Lára Böðvarsdótt- ir, Barmahlíð 54. Tómas Sveinson, sóknarprestur s.: 40802. Herzog hjá Fjalaketti FJALAKÖTTURINN verður með aukasýningu á mynd WERNERS HERZOGS, „Aguirre, reiði guðs“, í Tjarnarbíói í dag klukk- an 14.00. Hún var gerð í Vestur-Þýzka- landi árið 1973. Hún fjallar um leit Spánverja á 16. öld að E1 Dorado, landi gullsins, sem átti að vera nálægt Amazonfljóti í Brasilíu. Á myndinni eru frummælendurnir á fundinum. þeir Már Pétursson, Eirikur Tómasson, Hjalti Zophaniasson deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, en hann var dómsmálaráðherra til trausts og halds. Þá getur að líta Vilmund Gylfason, Tryggva Gunnarsson form. Orators og Önnu Gunnlaugsdóttur fundarritara. Ljósm. Mbl. Kristján. Fjölmennur fundur Orators ORATOR. félag laganema, gekkst á fimmtudagskvöld fyrir almennum fundi, en efni fundarins var „Endurbætur og opnun dómkerfisins“, en það mál hefur að undanförnu verið mjög til umræðu. Þrír frum- mælendur mættu á fundinn, en það voru þeir Vilmundur Gylfa- son dómsmálaráðherra, Eiríkur Tómasson lögfræðingur og Már Pétursson formaður Dómarafél- ags Reykjavíkur. í upphafi fundarins flutti Tryggvi Gunnarsson, formaður Orators, stuttan inngang og kynnti hann frummælendur. Síðan fluttu framsögumenn sínar ræður. Fyrstur tók til máls Vilmundur Gylfason. Hann ræddi um dómskerfið almennt og benti á ýmislegt sem þar mætti betur fara. Þá minntist hann á sérstakan skattadómstól, sem dæma ætti í skattsvikamál- um, en sá dómstóll væri nú í undirbúningi. Taldi Vilmundur, að sá dómstóll yrði mjög til bóta. Næstur talaði Már Pétursson, formaður Dómarafélagsins. Hann fann að ýmsu sem dóms- málaráðherra hafði sagt og virt- ist ekki sérlega hrifinn af hug- myndinni um sérstakan skatta- dómstól. Hins vegar benti Már á leiðir til að bæta dómskerfið og bar þar hæst frumvarpið um Lögréttu. Síðastur frummæl- enda talaði Eiríkur Tómasson lögfræðingur. Hann fjallaði um ýmsar hugsanlegar úrbætur á dómskerfinu og lýsti sig sam- þykkan öllum breytingum til hagræðis, svo framarlega sem þær skertu ekki réttaröryggið. Ekki var Eiríkur, fremur en Már, ýkja hrifinn af hugmynd- inni um sérstakan skattadóm- stól, en taldi þó að hér væri um tilraun að ræða sem ekki gæti leitt neitt illt af sér, þó fram- kvæmd væri. Er frummælendur höfðu lokið máli sínu voru almennar um- ræður. Að síðustu töluðu frum- mælendur aftur og stilltu þeir ræðutíma sínum í hóf, enda klukkan langt gengin í tólf. Fundurinn var fjölmennur og voru bæði fundarmenn og frum- mælendur sammál um að hann hefði tekist vel. Frá fundinum i Lögbergi. Sighvatur Björgvinsson, f jármálaráðherra: Frétt Þjóðviljans uppspuni f rá rótum Sighvatur Björgvinsson, f jármálaráðherra, hefur beðið Morgunblaðið að birta meðfylgjandi bréf til Einars Karls Haraldsson- ar, ritstjóra Þjóðviljans:- Einar Karl Haraldsson ritstjóri Þjóðviljans Reykjavík Reykjavík, 11. jan. 1980 I Þjóðviljanum í gær er haft eftir Birni Friðfinnssyni, fjár- málastjóra Reykjavíkurborgar, að gert hefði verið ráð fyrir því að ríkissjóður greiddi um 1000 millj- ónir króna upp í reikninga sjúkra- stofnana til borgarinnar í desem- ber, en þær greiðslur hefðu ekki komið. Hefði þetta valdið því, að um sl. áramót hefði staða borg- arsjóðs verið neikvæð um 1200 milljónir króna og í fyrirsögn í fréttinni segir Þjóðviljinn að með þessu móti hefði fjármálaráð- herra snuðað borgina um 1 millj- arð króna í desember. Þar sem frétt þessi er hreinn uppspuni frá rótum, hafði ég tal af fjramálastjóra Reykjavíkurborg- ar, Birni Friðfinnssyni, í gær- morgun og óskaði skýringa. Fjár- málastjórinn sagði að frétt Þjóð- viljans væri ekki frá honum kom- in, enda hrein rökleysa, og tilbún- ingur blaðamanns Þjóðviljans. Ríkissjóður hefði ekki vanrækt neina greiðsluskyldu til borgar- sjóðs upp á 1000 milljónir króna af þeirri einföldu ástæðu, að borg- arsjóður hefði ekki átt neina kröfu á ríkissjóð um þá fjárhæð vegna sjúkrastofnana borgarinnar í des- embermánuði. Hins vegar hafi borgaryfirvöld Reykjavíkur leitað eftir því við Tryggingastofnun nkisins, að Tryggingastofnunin ívilnaði borgarsjóði með því að greiða honum fyrirfram í desem- bermánuði 150—200 milljónir króna, sem að réttu lagi áttu ekki að greiðast fyrr en eftir áramót. Frétt Þjóðviljans, þ.á m. um milljarða vanskilin hjá ríkissjóðir, væri þannig hreinn tilbúningur blaðamanns Þjóðviljans og ekki á neinn hátt frá fjármálastjóra Reykjavíkurborgar kominn. Fjármálastjórinn, Björn Frið- finnsson, sendi skriflega yfirlýs- ingu þessu til staðfestingar og blaðamanni Þjóðviljans, Einari Erni Stefánssyni, samrit af yfir- lýsingunni. Mér kom ekki til hugar annað en að Þjóðviljinn myndi sjá sóma sinn í því að leiðrétta eigin rangfærslur með birtingu - yfirlýsingar fjármála- stjóra Reykjavíkurborgar. í blað- inu í dag sé ég að það er hins vegar ekki gert, en fullyrt í fyrirsögn að fjármálastjórinn staðfesti frétt Þjóðviljans. Ég vil því hér með óska eftir því við þig, að blað þitt geri það sem ég tel að það hafi átt að sjá sjálft sóma sinn í að gera í gær og birt meðfylgjandi yfirlýsingu fjár- málastjóra Reykjavíkurborgar. Ég tel nauðsynlegt að það sé gert og rétt að Þjóðviljinn sjái sjálfur um að leiðrétta sínar eigin rangfærsl- ur, en til þess að öruggt megi teljast að sú leiðrétting komist opinberlega á framfæri hef ég jafnframt óskað eftir því við Morgunblaðið, að það birti með- fylgjandi athugasemdir, þannig að menn sem bornir eru röngum sökum í fjölmiðlum fái þó tæki- færi til að bera hönd fyrir höfuð sér á opinberum vettvangi, þó svo að verði þá að bera annars staðar niður en í frumheimildinni, Þjóð- viljanum. Með kærri kveðju Sighvatur Björgvinsson Hr. fjármálaráðherra Sighvatur Björgvinsson, Fjármálaráðuneytinu, Reykjavík Yfirlýsing í Þjóðviljanum í dag er ekki rétt farið með efni símtals við Einar Örn Stefánsson blaðamann, um

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.