Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 29

Morgunblaðið - 12.01.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 29 að gjalda en flestir honum óvandabundnir. Þó var reyndar rétt á mörkum að við litum svo á að hann væri okkur óvandabund- inn og við honum því að um alllangt skeið var hann höfuð hálfgildings stórfjölskyldu starfs- manna Borgardóms. Þessum hópi stýrði hann af einstakri lagni og hlýleik. Með réttsýni hans, léttri lund og margháttaðri reynslu virtist öll stjórn embættisins verða áreynslulaus og án árekstra. Ohætt er að segja að hann hafi litið á okkur öll sem jafningja og félaga sem hann studdi í daglegri önn og gladdist með á góðum stundum. Reisn Hákonar út í frá sem yfirmanns embættisins var jafnframt okkar stolt. Þannig var þetta og þessi sam- veruár skulu nú þökkuð af heilum huga. Um leið og við kveðjum þennan látlausa höfðingja með ríkurfi söknuði vottum við fjölskyldu hans dýpstu samúð. Kveðja frá Dómarafélagi íslands Hákon Guðmundsson fyrrv. yf- irborgardómari, sem lést á þrett- ánda dag jóla, var í tengslum við dómstóla og dómstörf alla starfs- ævi sína. Dómarastörfum gegndi hann að aðalstarfi frá 1930—1936, er hann var fulltrúi lögmannsins í Reykjavík, og síðar frá 1964— 1974, er hann gegndi embætti yfirborgardómara í Reykjavík. Hæstaréttarritari var hann 1936—1964, í 28 ár, eða nærfellt helming þéss tíma, sem Hæsti- réttur hefur starfað. Þá var hann formaður Félagsdóms frá stofnun þess dómstóls árið 1938—1974 og vann ómetanlegt starf við mótun á starfsháttum dómsins og úrlausn- um hans. Enn var hann formaður Siglingadóms frá 1964—1975. Við það bætast svo setudómara- og rannsóknarstörf í ýmsum málum. Af öðrum lögfræðistörfum Há- konar má nefna, að eftir hann liggja markverðar ritgerðir um lögfræðileg efni, er sýna m.a. að hann hafði ágætt vald á íslensku máli. Þá tók hann þátt í samningu lagafrumvarpa og margir minnast hinna frábæru þátta hans um dómsmál í Ríkisútvarpinu. Æviferill Hákonar, sem rakinn verður hér í blaðinu í dag, var litauðugur, enda var hann maður fjölhæfur, gæddur góðum gáfum og áhugasvið óvenju víðtækt. Þeim, sem kynntust honum, mun hugstæður leiftrandi áhugi hans á margvíslegum málefnum, svo og elja hans við að hrinda í fram- kvæmd þeim málum, er honum var hugað um. Hann var óvenju heilsteyptur persónuleiki, í miklu andlegu jafnvægi, íhugull og hleypidómalaus, vandur að virð- ingu sinni og þeirra stofnana, sem hann vann, maður góðgjarn og með næma réttlætiskennd. Hann var fróður um menn og málefni, hafði góða kímnigáfu, sagði vel frá og var hnyttinn í orðum. Fram- koma háns var virðuleg og reisn yfir honum. Til hans var mjög leitað um forystu í félagsmálum, enda var hann ósérhlífinn og úrræðagóður. Með slíkum manni var gott að eiga samleið. Hákon Guðmundsson tók að sér forystu í Dómarafélagi íslands árið 1965 og var formaður þess í 6 ár. Vann hann þar ágætt starf. Fyrir þá forystu og veigamikil störf í þágu dómgæslu kaus Dóm- arafélag Islands hann heiðursfé- laga árið 1974. Við leiðarlok blessa dómarar landsins minningu mæts dreng- skaparmanns og votta frú Ólöfu og öðrum vandamönnum samúð. Ármann Snævarr. Hákon Guðmundsson, yfirborg- ardómari, er kvaddur í dag. Aðrir munu verða til þess að rekja ættir hans og æviferil. Er því hér aðeins um að ræða fátæklegar þakklæt- iskveðjur frá þeim samferða- mönnum Hákonar undanfarin 10 ár, sem báru gæfu til að vinna með honum að landverndarmálum, sem voru eitt af meginhugðarefn- um hans. Hákon var formaður stjórnar Landverndar fyrstu 10 ár þeirra samtaka og varð því til að móta stefnu þeirra. Hann var alla tíð aldursforseti innan stjórnarinnar og var það gæfa samtakanna að eiga Hákon að við framkvæmd þeirra mála, sem samtökin hafa að hugsjón. Hákon var samnefnari alls hins bezta í íslenskri menningu, gagn- menntaður og víðlesinn, og skóg- rækt, landvernd, náttúruvernd og ekki sízt mannvernd voru hugðar- efni, sem hann helgaði alla sína krafta. Hvorki tími né fyrirhöfn voru til spöruð til að sjá þeim málum farborða. Á síðasta starfs- ári gekk hann ekki heill til skógar, en karlmennið Hákon Guðmunds- son lét ávallt hugsjónirnar sitja í fyrirrúmi fyrir eigin velferð. íslenzk þjóð sér nú á bak einum af sínum beztu sonum og fyrir þá gæfu að fá að njóta leiðsagnar hans verða stjórnendur Land- verndar honum ávallt þakklátir. Frú ÓLöfu og dætrum Hákonar sendum við innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum Guð að blessa minningu hans. F.h. stjórnar og starfsfólks Landverndar, Karl Eiríksson. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera velrituð og með góðu línubili. Margrét Astvalds- dóttir — Kveðja Fædd 31. maí 1959. Iláin 15. dcsember 1979. I svartasta skammdeginu og miðjum jólaundirbúningi barst okkur sú harmafregn að Magga væri dáin. Við kynntumst flestar Möggu að hausti fyrir þremur árum er við stofnuðum saumaklúbb. Magga var einstaklega kát og lífsglöð. Gleði hennar er okkur minnisstæðust úr árlegum ferða- lögum og hófi saumaklúbbsins, er síðast var haldið á hinu nýja heimili þeirra í Hafnarfirði, og kom þar vel fram hve gott var hana heim að sækja. Oft hefur verið einmanalegt hjá þeim mæðgum Huldu litlu og henni, er Ingólfur var á sjónum, en innileg eftirvænting er hans var von í land. I mars síðastliðn- um fæddist þeim önnur dóttir, Ása. Fjölskyldan var nýflutt á sitt eigið heimili, og var tilhlökkunin mikil, því nú ætluðu þau að halda jól öll saman í fyrsta sinn. Það er erfitt að skilja af hverju ung móðir er kölluð burt frá manni og tveimur ungum dætrum. En einhver hlýtur tilgangurinn að vera, þó að hann sé ofar okkar skilningi. Við minnumst Möggu með mikl- um söknuði og skarð hennar verður seint uppfyllt. Biðjum við góðan Guð að styrkja Ingólf og dætur á þessari erfiðu stund. Saumaklúhburinn. Minning — Kristín María Magnúsdóttir Þín náðin, Drottinn, nóg mér er, ví nýja veröld Kafstu mér. þinni birtu, hún brosir öll, í bláma sé ég lífsins fjöll. (Sálmur E.K.) Þegar kirkjuklukkurnar hringdu inn jólahátíðina kvaddi Kristín Magnúsdóttir þennan heim. Kristín var frá Ólafsvík, dóttir Magnúsar Kristjánssonar smiðs og konu hans, Kristínar Þórðardóttur. Magnús var tvíkvæntur, seinni kona hans var Katrín Eyjólfsdóttir. Börn Magn- úsar og Kristínar voru 7, 4 komust upp, en Magnús og Katrín eignuð- ust 3 börn. Þessar línur sem ég skrifa um mína kæru vinkonu, Stínu, eins og hún var kölluð, verða um okkar persónulegu kynni og samskipti en ekki ættartala, til þess er ég ekki nógu kunnug. Ég kynntist Stínu fyrst í Grundarfirði, þá sem ungri stúlku, var hún bústýra hjá Hjálmtý Árnasyni á Hópi og var mjög kært með þeim, og hefði hún ekki orðið fyrir þeirri sorg að missa hann í sjóinn haustið 1940, hefði hún orðið meira en bústýra á Hópi. Var náinn kunningsskapur milli heimilanna Hóps og Ás- geirshúss og varð mér mjög hlýtt til þessa ágæta fólks. Vorum við Stína mjög handgengnar hvor annarri, meðal annars var hún hjá mér er ég átti mitt fyrsta barn. Stína var mjög þokkaleg stúlka, ævinlega glöð og hlý í viðmóti við alla, ákaflega nærfærin við sjúkl- inga, enda oft á þeim árum fengin til að sitja hjá veikum. Hún var framúrskarandi hreinleg og snyrtileg og var svo hög í höndum og lagin við allan saumaskap að allt sem hún gerði með nálinni var með afbrigðum vel gert. Stína var í Grundarfirði þar til hún missti sinn kæra vin í sjóinn, fór hún þá til Ólafsvíkur og bjó með bróður sínum meðan hann lifði. Þar þekktu allir Stínu í Jónshúsi. Ég kom þar til hennar og þetta litla hús sem er eitt elsta húsið í Ólafsvík, ilmaði og glansaði af snyrtimennskunni hennar Stínu, Hreinn Þorsteins- son - Minningarorð Hreinn Þorsteinsson kvaddi þennan heim á snöggan og óvæntan hátt, er hann hné niður við störf sín um borð í m/s Snæfelli 29. desember sl., aðeins 49 ára gamall. Hans skarð verður vandfyllt, því þar fór sérstæður persónuleiki. Ég, er þessi fátæk- legu kveðjuorð skrifa, átti því láni að fagna að kynnast honum og eiga fyrir einlægan vin í tvo áratugi. Hreinn var fæddur hér á Akur- eyri 23. nóvember 1930. Hann ólst upp í stórum systkinahópi. Faðir hans, Þorsteinn Halldórsson, er látinn fyrir nokkrum árum. Bjó Hreinn með móður sinni, Rann- veigu Jónsdóttur, að Glerárgötu 14 í mörg ár og reyndist henni einstakur sonur. Áttu þau þar saman fallegt og gott heimili. Þar var gott að koma. Rannveig býr nú með yngsta syni sínum, Sævari, að Þórunnarstræti 112 hér í bæ. I júní 1977 gekk Hreinn að eiga Sigurlínu Jónsdóttur, og var það mikið gæfuspor. Eignaðist hann þar stjúpbörn, sem urðu honum mjög kær. Mikið er á Sigurlínu lagt, sem nú í annað sinni fylgir eiginmanni til hinstu hvíldar. Hreinn fór ungur til sjós og stundaði þá atvinnu alla tíð af lífi og sál. Held ég, að hann hefði aldrei unað sér lengi með fast land undir fótum. Var hann á togurum Útgerðarfélags Akureyringa og fleiri skipum og naut alls staðar trausts fyrir dugnað og samvisku- semi. Ungur að árum varð hann fyrir því slysi að hnoðnagli lenti í hægra auga hans, og missti hann sjón á því auga. Síðar lenti hann í öðru slysi um borð í skipi sínu, er mölbraut annan handlegg hans, og átti ha-nn lengi í því. Hreinn átti sér fleiri áhugamál, en sjó- mennskuna. Hann hafði mikla ánægju af hestum og átti hin seinni ár að jafrfaði tvo hesta. Hreinn Þorsteinsson var dulur maður. Hann bar ekki tilfinningar sínar á torg, en þrátt fyrir hrjúfa framkomu var viðkvæm lund þar á bak við. Einlægur hlýleiki, ómæld greiðasemi og hjálpfýsi voru hans aðalsjnerki. Er það trú mín að margur hafi notið hjálpar úr hendi hans án þess að hátt færi. Hann var sannur trúmaður, sem alla tíð varðveitti sína barnstrú af heilum hug. Ég þakka honum samfylgdina. Hans verður sárt saknað af mér og öllum þeim öðrum, sem áttu vináttu hans. sem ég átti eftir að kynnast betur. Árin liðu hvert af öðru og ég flutti til Reykjavíkur. Næstu árin sá ég Stínu aðeins nokkrum sinnum er ég var á ferð um Snæfellsnes, þar til 1971 að ég hitti hana í Reykjavík. Var hún þá nýkomin af Vífilsstaðahæli þar sem hún hafði dvalið í nokkra mánuði. Var hún húsnæðislaus og bað mig að út- vega sér eitthvað sem ég og gerði, því Stína mín flutti inn til mín um haustið og var hjá mér í 5 ár, þá Við hjónin vottum eiginkonu, aldraðri móður, systkinum og stjúpbörnum okkar dýpstu samúð og biðjum algóðan guð að styrkja þau í sinni miklu sorg. Ásdís Árnadóttir. Norðlenzkt skammdegið grúfir yfir Eyjafirði, og er því allra veðra von. En harmafréttum eru allir jafnóbúnir að mæta. Þann 29. desember s.l. spyrst lát Hreins Þorsteinssonar, Glerárgötu 14, Akureyri. Hann varð bráðkvaddur um borð í m/s Snæfellinu. Þessi sviplega frétt er áfall kynntist ég fyrst hennar sérstöku skapgerð, hún var svo góðlynd og jafnlynd að hún átti fáa sína líka. Ég fór til Grundarfjarðar að dvelja þar um jólin, en nokkru áður en ég fór dreymdi mig Hjálmtý Árnason, vissi ég í draumnum að hann var dáinn. Spurði ég hann á hvaða ferðalagi hann væri og sagðist hann vera á leiðinni að sækja hana Stínu. Ég heimsótti Stínu áður en ég fór vestur og sagði henni drauminn, hún brosti og sagði, kannski það fari að styttast fyrir mér. Og þegar ég fór fylgdi hún mér fram á gang og þar sá ég hana í síðasta sinn er hún sagði: þú skilar kveðju minni til allra kunningjanna fyrir vestan. Um það bil sem Stína flutti inn til mín sótti hún um pláss á Hrafnistu því hún var alla tíð heilsutæp og var því alltaf hrædd um að verða rúmföst og vildi þá ekki vera þar sem hún væri öðrum byrði. Ég saknaði Stínu þegar hún fór frá mér og ég sakna hennar nú, en samgleðst henni samt að vera komin í æðri og betri heim. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Guð blessi ættingja Kristínar Magnúsdóttur. Elísabet Helgadóttir. öllum, sem þekktu hann, og þeim mest, sem þekktu hann bezt. Hreinn var sterkur og einstæð- ur persónuleiki, æðrulaus með öllu, hrjúfur við fyrstu sýn, en mátti í rauninni ekki aumt sjá. Hreinn var höfðingi í lund, vildi öllum veita og gott gera sem hann mátti. Vissi hægri hönd hans aldrei hvað sú vinstri gaf. Hreinn var hlédrægur og orðvar með afbrigðum, hreinskiptinn, trölltryggur og traustur sem klettur úr hafinu. Tilfinningasemi var honum lítt að skapi, og lét hann ógjarna uppi hug sinn. Þó sagði hann oft fá orð í fullri meiningu og svaraði gjarnan hvat- skeytlega fyrir sig. Hann hafði unun af því að sýnast vondur maður. Það fórst honum þó oft ófimlega. Fátt fyrirleit Hreinn meir en kveifarskap. Honum þótti ekki við hæfi að ganga haltur meðan báðir fætur voru jafnlang- ir. Þar brá honum til fornmanna að lífsskoðunum. Þeim þótti og hin versta hneisa að veröa sótt- dauður. Hreinn dó sem hverjum vöskum manni sæmdi, við starf sitt í sjálfri hringiðu athafnalífsins. — En skarð hans verður vart fyllt. Guð gefi honum góðan byr á síðustu siglingunni. Eiginkonu Hreins, móður og öðrum nákomn- um votta ég einlæga samúð. Halla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.