Morgunblaðið - 12.01.1980, Síða 39

Morgunblaðið - 12.01.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980 39 r Fá Valsmenn þýskan þjálfara? í DAG kemur vestur-þýskur þjálfari til landsins á vegum knattspyrnudeildar Vals. Vals- menn hafa verið að leita fyrir sér með þjálfara um langt skeið og virðast málin nú vera komin á lokastig. Þjóðverjinn sem hingað kemur til viðræðna heitir Volker Hofenberg og hefur hin ágætustu meðmæli sem knattspyrnuþjálf- ari í heimalandi sinu. Hann mun stjórna æfingu hjá Val á sunnu- dag. Allt er samt á huldu með hvort hann verður ráðinn eða ekki. Viðræður milli hans og forráðamanna knattspyrnudeild- ar Vals eiga eftir að fara fram. Valsmenn hafa leitað víða fyrir sér og eru líka með tvo hollenska þjálfara í sigtinu og einn rússn- eskan ef ekki næst samkomulag við Volker Hofenberg. Enn eru nokkur 1. deildarlið þjálfaralaus. Víkingar, ÍBV, ÍBK og Valur. Allar líkur eru á að Þróttur ráði til starfa enska þjálf- arann Ron Lewin sem þjálfaði Iið KR fyrir nokkrum árum. En sennilega munu þessi mál öll skýrast á næstunni því nú fer hver að verða síðastur með að tryggja sér starfskraft fyrir sumarið. -þr Sævar Jónsson einn af traustustu varnarmönnum í íslenskri knattspyrnu í dag. Pétur Ormslev einn hættu- legasti framlínumaður Fram í knattspyrnu. Pétur og Sævar til Þýskalands ÞEIR Sævar Jónsson knattspyrnumaður úr Val og Pétur Ormslev úr Fram fóru í gærdag utan til V-Þýskalands og munu dvelja þar við æfingar í 10 til 15 daga. Ekki gat Mbl. fengið það staðfest hvar í Þýskalandi þeir munu dveljast en það mun vera hjá áhugamannafélagi og var allt útlit fyrir að þeir félagar myndu keppa með liðinu á morgun, sunnu- dag. -þr. Frjálsar íþróttir í KR á uppleið KNATTSPYRNUFÉLAGI Reykjavíkur eru nú starfandi milli þrjú og fjögur þúsund félagar í 11 deildum. Starf deild- anna allra er öflugt, þó það sé eðlilega misjafnlega mikið milli deilda. Frjálsíþróttadeild KR er ein deilda félagsins, sem starfað hefur hvað lengst með glæsibrag og er það metnaður allra góðra KR-inga að svo megi verða sem lengst. Á s.l. hausti tóku þeir Höskuld- ur Goði Karlsson og Valbjörn Þorláksson að sér þjálfun frjáls- íþróttafólks KR og hefur samstarf þeirra verið gott og þátttaka ungs áhugafólks verið með ágætum á æfingum deildarinnar til þessa. Betur má þó ef deildin vill ná sínu öndvegissæti meðal íslenskra frjálsíþrótta, þó félagið eigi enn mestu afreksmenn frjálsíþrótta í landinu, þá gera forráðamenn þess sér glögga grein fyrir því að sé þeim yngstu ekki sýnd sú virðing, sem þeim ber með góðri kennslu og leiðbeining, þá næst aldrei hið setta takmark. Frjálsíþróttadeild KR vill vekja athygli foreldra og ungs fólks á því að skipulegri æfingastarfsemi er haldið uppi af tveim reyndum mönnum á sviði frjálsíþrótta, sem nú hafa skipt með sér verkum, eftir þá reynslu sem þeir hafa af samstarfi sínu til þessa. Mun Höskuldur taka að sér yngra fólkið og byrjendur, en Valbjörn sjá um þá sem þegar hafa komist nokkuð áleiðis í íþróttinni. Æfingar munu fara fram í KR-húsinu, stóra sal, á miðviku- dögum kl. 19.40—21.20 og sunnu- dögum kl. 18.50—19.40 og eru þessar æfingar ætlaðar yngstu þátttakendunum. í Baldurshaga — undir stúku Laugardalsvallar — munu þeir sem eldri eru æfa mánudaga kl. 18.00-19.40, þriðjud. kl. 17.10- 18.50 og föstud. kl. 18.50 -20.30, auk þess sem lyftingaherb.-rgið er opið sömu daga og hér eru ^aldir. Þá skal og þess getið að í KR-saln- um verður tími fyrir stangar- stökkvara og kastara á sunnudög- um kl. 14.10-16.20. Forráðamenn frjálsíþrótta- deildarinnar hafa þá ákveðið í samráði við þjálfarana að gangast fyrir mótum bæði utanhúss og innan á komandi vikum og höfða þar til þeirra yngri jafnt sem þeirra eldri. Hyggst stjórn deild- arinnar vanda til þessara móta og veita sigurvegurum eiguleg verð- laun. Stjórn frjálsiþróttadeildar KR. Pétur Guðmundsson sem sést á myndinni fyrir miðju í baráttu undir körfunni sýnir nú mjög góða leiki með liði sínu í Bandaríkjunum. Pétur verður íslenska landsliðinu í körfuknattleik mikill styrkur í þeim átökum sem framundan eru. Stefnan sett á Evrópukeppnina „ÉG er mun bjartsýnni en áður á góðan árangur í Polar-Cup- keppninni eftir þessa vel heppn- uðu landsleikjaferð,44 sagði Einar Bollason í gær er Mbl. ræddi við hann um ferðina, sem körfu- knattleikslandsliðið fór til Luxemborgar og írlands. Við höfum reyndar sett stefnuna á Evrópukeppnina 1981 og munum gera allt til þess að vel takist til í þeirri keppni. Við verðum í C-keppninni og stefnum að þvi að verða í tveimur efstu sætunum og komast í B-keppnina. Það verður crfitt að fjármagna þetta fyrir- tæki. sem mun kosta um 20 milljónir. Vinsældir körfuboltans hér á landi munu byggjast á góðum árangri landsliðsins í framtiðinni, en ekki þeim er- lendu leikmönnum sem hér leika. Ég hef farið þess á leit við Mark Christianssen að hann verði að- stoðarþjálfari hjá mér og líklegt er að af því verði. Því, sem er einna helst ábótavant hjá körfu- boltamönnunum okkar, er að þeir eru ekki í nægilega góðri líkams- æfingu. Það kom greinilega fram í ferðinni. Þá mun það vera rétt að flest félögin hér æfðu lítið sem ekkert yfir jólin en það gengur ekki ef árangur á að nást. Ég er nú kominn með góðan landsliðs- kjarna með sterkum leikmönnum. Nokkrir leikmenn komu mjög á óvart í ferðinni út eins og til dæmis Torfi Magnússon sem hef- ur aldrei verið betri svo og Jónas Jóhannesson. Þó átti Kristinn Jörundsson góða og jafna leiki og varð hann stigahæsti leikmaður ferðarinnar með 50 stig. Við ætl- um okkur að æfa allt næsta sumar og þá ætti árangurinn að fara að koma í ljós. Þá megum við ekki gleyma því, að okkur bætist góður liðsstyrkur þegar þeir Pétur Guð- mundsson og Flosi Helgason koma heim og æfa með okkur. -þr. Nýir erlendir leikmenn í körfu FRAM og ÍBK urðu bæði fyrir því áfalli að missa án fyrirvara sína erlendu leikmenn og þjálf- ara, eins og flcstum er kunnugt. Bæði liðin hafa þó hrugðist skjótt við og fyllt í skörðin. Framarar hafa ráðið til sín blökkumann. Darrell Shouse að nafni. Hljómar þetta eftirnafn kunnuglega, enda er hér um að ræða bróður Danny Shouse, sem leikur hér á landi með meistara- flokksliði Ármanns. ÍBK hefur einnig ráðið til sín nýjan am- erískan leikmann frá Indiana. Ileitir sá leikmaður Monnie Ostr- om. Loks má geta þess, að John Johnson hefur ráðið sig upp á Akranes og mun þjálfa og leika með ungu liði ÍA-manna. Aðeins eru 3 ár síðan körfu- knattleiksdeild ÍA var stofnuð. -þr. Tvísýn barátta Úrslit á Íslandsmótinu í Meistaraflokki kvenna í körfuknattleik til þessa. KR - ÍR 54-43 ÍS - ÍR 46-49 ÍS - KR 35-59 Friðleifur sigraði MEISTARAMÓT TBR í öðl ingaflokki fór fram í TBR Húsinu sunnudaginn 6. jan- úar 1980. Úrslit urðu þessi: í ein- liðaleik karla sigraði Frið- leifur Stefánsson KR Garðar Alfonsson TBR í úrslitaleik 15-5,15-3. Í tvíliðaleik karla sigruðu Kjartan Magnússon TBR og Garðar Alfonsson TBR þá Hæng Þorsteinsson TBR og Viðar Guðjónsson TBR 18— 14.18-15. Í tvenndarleik sigruðu Ilængur Þorsteinsson TBR og Lovísa Sigurðardóttir þau Reyni Þorsteinsson KR og Vildísi K. Guðmundsson KR 11-15,15-5,15-1. Meistara- mót TBR MEISTARAMÓT TBR í ein liðaleik 1980: Hið árlega meistaramót félagsins i einliðaleik fer fram i húsi TBR, Gnoðar- vogi 1, sunnudaginn 20. jan- úar n.k. Keppt verður i Meistara A og B- flokki karla og kvenna. Mótið hefst kl. 14.00 og skulu þátttökutilkynningar hafa borist til TBR eigi siðar en miðvikudaginn 16. janúar n.k. Keppnisgjald verður 3.500 kr. -----«-« 4--- Skíða kennsla UM IIELGINA gengst Skiðafélag Reykjavíkur fyrir kennslu i göngu og svigi við skiðaskálann í Hveradölum. Innritun fer fram hjá lyftuvörðum. Allir velkomnir. Aðalfundur Ness AÐALFUNDUR Golfklúbbs- ins Ness fer fram á morgun sunnudag og hefst kl. 14.00 i Haga við Ilofsvallagötu. Stjórnin. Knattspyrnu- námskeið NÚ stendur yfir knatt- spyrnunámskeið hjá drcngj- um 6—10 ára í Gerpluhús- inu í Kópavogi. Námskeiðið stendur yfir til 1. apríl. Innritun fer fram á staðn- um. Allar upplýsingar i Gerpluhúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.