Morgunblaðið - 12.01.1980, Síða 40
' Sími á ritstjórn og skr'fstofu:
10100
JtUrgunbtabib
Síminn á afgreiðslunm er
83033
JW#r0imblnbi?)
LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1980
Flugleiðir:
Tían leigð
í tvo ar
frá 1. marz
FLUGLEIÐIR hvKgjast leijfja
DC-10 breiöþotu sína frá 1. mars
n.k. til bandaríska flugfélagsins
Air Florida. Veröur vélin leigö í
tvö ár án áhafnar. en stjórn
Flugl'eiða samþykkti á fundi
sínum i Ka'r aö heimila leijíuna.
samkvæmt upplýsingum Sveins
Sæmundssonar hlaöafulltrúa.
Samkvæmt upplýsingum Leifs
Magnússonar, framkvæmda-
stjóra flugdeildar Flugleiða,
verða notaðar tvær DC-8 þotur til
þess að annast flug Flugleiða yfir
Norður-Atlantshaf auk flugs
fyrir Air Bahama. Sagði Leifur
að ný ferðaáætlun á leiðinni yfir
Norður-Atlantshafið yrði gerð á
næstu tveimur vikum og m.a.
verður beina flugið milli New
York og Luxemburg tekið til
endurskoðunar og allt útlit er
fyrir að dregið verði úr því að
verulegu leyti m.a. til þess að
tíðni ferða um ísland verði meiri.
Þriðja DC-8 þota Flugleiða er á
söluskrá, en hins vegar á félagið
von á nýrri Boeing 727-200 í vor
og fer sú vél í Norðurlandaflugið
auk Boeing 727-vélanna beggja.
Mögulega verður þó önnur gamla
Boeing 727-vélin leigð.
DC-10 breiðþotan kom til
landsins fyrir liðlega ári, en
samkvæmt upplýsingum Sveins
Sæmundssonar blaðafulltrúa er
reiknað með að vélin komi aftur
inn á flugleiðir Flugleiða að
loknum tveggja ára leigusamn-
ingi við Air Florida.
Flugstjórar Flugleiða á
DC-10-vélunum munu því innan
skamms aftur taka til starfa á
Attunum.
Eins og sagt hefur verið frá
hefur fargjaldastríðið á Atl-
antshafsleiðinni skapað mikinn
vanda hjá Flugleiöum, en að
undanförnu hefur ýmislegt komið
í ljós sem bendir til þess að
fargjöld fari nú aftur hækkandi
og m.a. hefur bandaríska flugfé-
lagið Kapitol sem hóf flug á sl.
ári og bauð 350$ fargjald á
flugleiðinni til Brússel frá New
York, nýlega hækkað fargjaldið
upp í 450$.
Kröfur ASÍ liggja fyrir:
Geirfinnsmálið:
5% grunnkaupshækkim-
og verðbótakerfi YMSÍ
RÁÐSTEFNA Alþýðusambands
íslands um kjaramál gekk í gær
frá kröfum sambandsins í kom-
andi kjarasamningum. Krafizt er
almennrar 5% kauphækkunar,
teknar upp verðbótakröfur
Y’erkamannasambands ísiands
og lagður fram sérstakur félags-
iegur kröfupakki. Ráðstefnuna
sátu um 100 manns og voru
kröfurnar samþykktar sam-
hljóða, en um þriðjungur ráð-
stefnufulltrúa sat hjá við
atkvæðagreiðsluna.
Kjaramálaráðstefnan kaus
samninganefnd, sem skipuð er 41
samningamanni og samkvæmt
upplýsingum Snorra Jónssonar,
starfandi forseta ASI, þá gerir
hann ráð fyrir að óskað verði eftir
fyrsta viðræðufundi með viðsemj-
endum ASI, Y’innuveitendasam-
bandi Islands og Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna næst-
komandi mánudag. Sagði Snorri,
að þá væri ætlunin að kynna
viðsemjendunum kröfurnar.
Eins og áður segir, eru
verðbótakröfurnar hinar sömu og
formanna og sambandsstjórnar-
fundur Verkamannasambandsins
samþykkti nýlega. Þær gera ráð
fyrir verðbótum í krónutölu fyrir
neðan 300 þúsund krónur, sem
reiknist sem prósenta af þeirri
upphæð og síðan, að sama regla
gildi fyrir 400 þúsund krónur og
begar kjaramálaráðstefna Alþýðusambands tslands hófst í gærmorgun stóðu nokkrir fulltrúar
farandverkafólks með kröfuspjöld utan við Loftleiðahótelið og krofðust þess, að ráðstefnan tæki tillit tii
hagsmuna þeirra. Rauðsokkahreyfingin afhenti einnig miða með sinni kröfugerð. Myndin er af nokkrum
kjaramálaráðstefnufulltrúum sem taka við kröfumiðum af ungri stúlku. i.jAsm. Mbi.ói. K. m.
þar yfir. Laun milli 300 og 400
þúsund króna fái prósentuhækk-
un. Krafan á við óskerta fram-
færsluvísitölu, sem komi á
grunntaxta, þannig að álög,
reiknitölur og kaupaukar skerðist
ekki og að viðmiðunartölur vísi-
töluútreiknings breytist í sam-
ræmi við þær kauphækkanir sem
verða. Þessi verðbótakrafa olli
deilum á ráðstefnunni og sam-
þykktu t.d. verzlunarmenn kröf-
urnar með fyrirvara. Aðrir lýstu
hjásetu á fundinum í gær og mun
um þriðjungur ráðstefnufulltrúa
hafa setið hjá.
Sjá nánar um kjaramála-
ráðstefnu ASÍ á bls. 21.
Hækkun fasteignagjalda í Reykjavík:
Á íbúðarhúsnæði 60%
á atY Ínmihúsnæði 55%
„STOFN fasteignagjalda
er framreiknaðar um 55%
á lóðum og atvinnuhús-
næði og um 60% á íbúð-
arhúsnæði og álagn-
ingarprósentan er óbreytt
frá 1 fyrra, eða 0,5% á
íbúðarhúsnæði og 1,25% á
atvinnuhúsnæði,“ sagði
Björn Friðfinnsson fjár-
málastjóri Reykjavíkur-
borgar, er Mbl. spurði
hann um fasteignagjöld
Reykvíkinga í ár.
Björn sagði, að eins og
gjöldin væru álögð næmu
Erla Bolladóttir dregur
framburð sinn til baka
fasteignaskattar tæpum 6,4
milljörðum króna; 3,1
milljarði á íbúðarhúsnæði
og 3,3 á öðru húsnæði.
Skattar af leigu- og íbúða-
lóðum eru áætlaðir 86 millj-
ónir króna, vatnsskattur og
aukavatnsskattur 1660
milljónir króna og bruna-
bótaiðgjöld 741 milljón
króna.
Samanlagt fasteignamat
íbúðarhúsnæðis í
Reykjavík er um 620 millj-
arðar króna, annars hús-
næðis 263 milljarðar og
ógjaldskylds húsnæðis 79
milljarðar. Fasteignamat
alls húsnæðis er því 962
milljarðar króna.
Sjá: Birgir ísleifur Gunn-
arsson: Ohætt hefði verið að
fara hægar i sakirnar. Bls. 2
ÞAU TÍÐINDI gerðust í Geirfinnsmálinu í gær, að Erla Bolladóttir
dró algjorlega til baka fyrri framburð sinn í málinu. óvíst er á þessari
stundu, hvaða áhrif þetta kann að hafa á niðurstöðu málsins fyrir
Hæstarétti, en málflutningur hefst á mánudaginn. Þegar dómur var
kveðinn upp í málinu í sakadómi Reykjavikur í desember 1977 vó
framburður Erlu þungt á metunum, en þá nokkru áður höfðu Sævar
Marinó Ciesielski og Kristján Viðar Viðarsson alfarið dregið
framburði sína til baka og sama hafði gert Sigurður óttar Hreinsson,
þ.e. bifreiðarstjórinn svokallaði í málinu.
Það mun hafa verið um hádegis-
bilið í gær, að Erla hafði samband
við lögmann sinn og óskaði eftir
því að draga framburð sinn til
baka. Lögmaðurinn hafði sam-
band við ríkissaksóknara sem ósk-
aði eftir því við sakadóm Reykja-
víkur, að Erla kæmi fyrir dóminn
og staðfesti hinn nýja framburð
sinn. Fyrir dóminum skýrði Erla
svo frá, að hún hefði aldrei farið
ferðina til Keflavíkur að kvöldi 19.
nóvember 1974, kvöldið sem Geir-
finnur Einarsson hvarf, eins og
hún hafði sagt í fyrri framburði
sínum. Kvaðst hún aldrei hafa
heyrt á Geirfinn minnzt. Þá neit-
aði hún einnig að hafa unnið að
því að koma líki Geirfinns fyrir í
Rauðhólum, eins og hún hafði
áður haldið fram.
Hjörtur Aðalsteinsson, fulltrúi
yfirsakadómara, stjórnaði dóm-
haldi í gær, en viðstaddir voru
m.a. verjendur hinna dæmdu í
málinu og ríkissaksóknari, Þórður
Björnsson, sem mun hefja sókn-
arræðu sína fyrir Hæstarétti á
mánudaginn, eins og áður hefur
verið getið í Mbl.
Erla Bolladóttir hlaut þriggja
ára fangelsisdóm í undirrétti.
Sævar Marinó og Kristján Viðar
voru dæmdir í fangelsi til æviloka,
en Guðjón Skarphéðinsson var
dæmur í 12 ára fangelsi.
Fataiðnaður:
50%fram-
leiðniaukning
TÆKNIDEILD Félags
íslenskra iðnrekenda hefur
undanfarna mánuði unnið að
svokölluðu „Fataverkefni" í
samvinnu við flest fyrirtæki í
fataiðnaði á Islandi með það
fyrir augum að bæta framleiðsl-
una og auka framleiðnina, en
að mati Ingjalds Hannibalsson-
ar deildarstjóra tæknideildar
ættu þessar hagræðingarað-
gerðir að hafa í för með sér
30—40% framleiðniaukningu.
Ingjaldur sagði í samtali við
Mbl. að þegar væri kominn
góður árangur í ljós hjá nokkr-
um þeim fyrirtækjum sem
lengst væru komin með breyt-
ingar í samræmi við álit
sænskra ráðgjafa sem hafa
starfað að þessu verkefni, m.a.
væru þrjú þeirra þegar komin
með 30—50% framleiðniaukn-
ingu. Sjá nánar bls. 17—18.