Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 12

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 „Til meiri hagsbóta að gera úrbæt- ur á þeim vegum sem eru fyrir hendi‘ - segja Kristján Haraldsson og Heiðar Þ. Hallgrímsson verkfræð- ingar hjá borgarverkfræðingi, en þeir hafa lagst gegn byggingu Höfðabakkahraðbrautarinnar og brúargerð yfir Elliðaárdalinn Nokkrar umræður hafa farið fram að undanförnu um réttmæti vegarlagningar þvert yfir Elliða- árdal, skammt neðan við Arbæj- arstíflu. Þessi framkvæmd er samkvæmt aðalskipulagi sam- þykktu i borgarstjórn i april 1977, en var einnig í fyrra aðalskipulagi. Vegurinn er hluti hraðbrautar um Fossvogsdal og Hliðarfót niður að Sóleyjargötu. Skipulagið gerir jafnframt ráð fyrir tengivegi frá honum i suður að Breiðholtsbraut, i brekkunni milli efra og neðra Breiðholts, sem nefndur er Höfðabakki, og hefur vegurinn allur gengið und- ir þvi nafni undanfarið. Gjarnan er talað um „Höfðabakkabrú“ eða „Höfðabakkatengingu“ þeg- ar rætt er um veginn yfir dalinn milli Bæjarháls og Stekkjar- bakka. Skipulaglð sýnir einnig sérstaka umferðaræð rétt neðan við Stekkjarbakka, i beinu fram- haldi Fossvogsbrautar, og teng- ist hún Höfðabakkanum sem fyrr segir. Meðal þeirra sem lagst hafa gegn þessari vegarlagningu eru þeir Kristján Haraldsson og Heiðar Þ. Hallgrímsson verk- fræðingar hjá borgarverkfræð- ingi. Þeir störfuðu í fyrra 1 svokallaðri „þjóðveganefnd“, en það er starfshópur sem borgar- verkfræðingur skipaði til að koma með tillögur um hvernig nota ætti það fé sem ríkið greiðir til framkvæmda við þjóðvegi í þéttbýli. Höfðabakki var ekki á lista starfs- hópsins yfir þau verkefni, sem lagt var til að unnin væru á næsta fimm ára tímabili, og gerði borgarverkfræð- ingur athugasemd við það. Meirihluti nefndarinnar taldi raunar hæpið að leggja ætti þennan veg yfirleitt, en lagði til að þetta ár yrði notað til að athuga málið frekar. Borgarverkfræð- ingur leggur hins vegar áherzlu á að framkvæmd við þennan áfanga Höfðabakka hefjist þegar í vor. Blaða- maður Mbl. ræddi í vikunni við þá félaga, Kristján og Heiðar, og innti þá álits á málinu. Þeir telja að starfshópurinn hafi varpað nýju ljósi á ýmislegt tengt þessu máli, óvæntar breytingar á umferðinni hafi komið í ljós á síðustu árum og viðhorf til mikilvægra teng- inga hafi breytzt. Þetta allt valdi því að full ástæða sé fyrir ráðamenn borgarinnar að taka fyrri afstöðu sína til þessa máls til alvarlegrar endur- skoðunar. Hluti hraðbrautar um Fossvogsdal hjá Þróunarstofnun um íbúaþróun fram til 1998, að íbúafjöldinn í Reykjavík muni að líkindum standa í stað fram til aldamóta, en fjölga um það bil um 20 þúsund á öllu höfuð- borgarsvæðinu. Hins vegar er gert ráð fyrir talsverðri fjölgun íbúa í þeim spám sem núverandi aðalskipulag (’75—’95) byggist á, eða 40—45 þús- und. Mælanleg minnkun á bílaumferð Þetta hlýtur að hafa veruleg áhrif á umferð á höfuðborgarsvæðinu. Sömu- leiðis má geta þess, að með geysi- legum hækkunum á rekstrarkostnaði bifreiða hefur í fyrsta sinn orðið minnkun á bílaumferð, að því er Borgarmýri í árslok 1979. Nú er þegar vitað talsvert um ferðir Breiðhyltinga og Kópavogsbúa til þess hluta sem þegar eru byggður, sbr. það sem fyrr var nefnt. Með tilsvarandi umferð frá því sem eftir er myndi umferð um brúna aukast upp í 5200 bíla á sólarhring, ef iðnaðarhverfin væru nú fullbyggð og þar af væru rúmlega 3100 Breiðholtsbílar, eða innan við níu af hundraði af heildarumferð Breiðholts. Af þessum ástæðum öllum teljum við að Höfðabakkabrúin sé óþörf, a.m.k. á næstu fimm árum. Einnig erum við þeirrar skoðunar að ólíklegt sé að við þurfum svokallaða Fossvogs- braut. Þegar búið verður að fullgera strandleiðina Elliðavog — Sætún, framlengja Bústaðaveg yfir Kringlu- mýrarbraut, lagfæra Suðurlands- braut, ættu þessar umferðaræðar að braut, er í raun og veru aðeins ein akrein fyrir umferð úr Breiðholti niður Reykjanesbrautina á mestu annatímum dagsins á morgnana. Framlenging Stekkjarbakka út á Breiðholtsbrautina mundi leysa veru- legt vandamál á vissum tímum dags og létta mjög á umferð um Álfabakka og Arnarbakka. Loks yrði það til mikilla bóta að ganga á fullnægjandi hátt frá gatnamótum Breiðholts- brautar, Reykjanesbrautar, og Ný- býlavegar, t.d. með hringtorgi eða vandaðri ljósastýringu. Þessa dagana er verið að ljúka lagningu Nýbýlaveg- ar að umræddum gatnamótum og því nauðsynlegt að ljúka þessum fram- kvæmdum sem fyrst. M.a. þarf að tryggja að taka megi vinstri beygjijaf BrelðholtsEraut inn í iðnaðarhverfið við Smiðjuveg, sbr. það sem fyrr var sagt um Smiðjuveginn. er líklega talsvert lengri en hér er um að ræða. Að okkar dómi er mikilvægara að bæta innkomuna í iðnaðarsvæðið í Ártúnshöfða, ekki sízt hvað umferðar- öryggi snertir, með því að gera undirgöng undir Vesturlandsveg í framhaldi af Breiðhöfða og létta þannig á gatnamótum Höfðabakka/ Vesturlandsvegar._________________ Vörum við einhliða arðsemismati í blöðum og annarsstaðar hafa fylgismenn brúarinnar hamrað á sparnaði vegfarenda og talið hann réttlæta að hún yrði byggð. Benda má á annan valkost sem yrði í það minnsta álíka „arðsamur". En við viljum hins vegar vara sterklega við einhliða arðsemismati við gatnagerð í borgum því að landnýtingar- og um- __hverfissjónarmið vegi þar áreiðanlega þyngra. T.d. má nefna að byggð hefur verið dýr hraðbraut, Elliðavogur/ Sætún, til þess að létta af Miklubraut sem ekki þolir öllu meira álag án brekkunnar. Með þessu er þó verið að lengja leið fjölda fólks. Þetta safnast fljótt í stórar upphæðir. T.d. myndu 20,000 bílar á sólarhring sem þyrftu að fara tveggja km lengri leið eyða aukalega l'/i milljarði króna á ári. Með hrikalegum brúa- og slaufu- framkvæmdum víðsvegar á Miklu- braut hefði vissulega mátt vera án strandleiðarinnar, en hvað hefðu íbúar í grenndinni sagt um það? Við mælum alla vega ekki með slíku. Umhverfi er ekki hægt að meta til fjár. Ýmsir annmarkar fylgja gerð brúarinnar Það eru ýmsir annmarkar sem fylgja myndu gerð Höfðabakkabrúar- innar Borgarminjavörður hefur þegar lýst áhyggjum sínum varðandi framtíð Árbæjarsafnsins ef meiri- háttar umferðaræð kæmi fast upp við kjarna safnsins. Þar yrði um að ræða ýmiss konar truflun af umferð og götulýsingu, auk þess sem vegurinn mundi slíta safnið frá Árbæjarhverf- inu. Safnið er enn í uppbyggingu og eru m.a. uppi hugmyndir um tækniminja- safn á þessu svæði. Yrðu þá bæði rafstöðin og stíflan hluti af safninu. Þá myndi vegurinn kljúfa safnsvæðið í sundur. Það andrúmsloft sem verið er að reyna að skapa í safninu myndi glatast og 10,000 gestir sem heim- sækja það á hverju sumri fengju takmarkaða ánægju. Börn hafa ávallt sótt mjög frá hverfinu út í safnið og nágrenni þess, og kemur þarna því upp veruleg slysahætta. Gatnakerfi Breiðholts og Árbœjarhverfis samkvæmt endurskoðuðu aðalskipulagi, sem samþykkt var í borgarstjórn Reykjavikur í april 1977. Eins og sjá má er þar gert ráð fyrir Höfðabakkavegi frá mótum Vesturlandsvegar og að Breiðholtsbraut. Á kortinu má sjá að brúin og nyrsti hluti Höfðabakkans eru fyrst og fremst hluti Fossvogshraðbrautar. Einnig er gert ráð fyrir Ofanbyggðavegi frá Breiðholtsbraut (hringpunktur við suðausturmörk Seljahverfis) að Suðurlandsvegi. Ennfremur segja þeir: „Þessi veg- arkafli er ættaður allar götur úr aðalskipulaginu frá 1962, og þá var hann hugspður sem tengibraut milli tveggja hraðbrauta, Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar. Þróunarstofnun Reykjavíkur lagði svo áherzlu á að Höfðabakkinn yrði hannaður sem hraðbraut er ætlað væri að létta umferðarþunga af Miklubraut, og yrði hann því hluti hraðbrautarinnar um Fossvogsdal og Hlíðarfót. Yrði braut- in að vera samkeppnisfær við Miklu- braut, þótt veruíega lengri væri. Höfðabakkatengingin er því fyrst og fremst hugsuð sem hluti af hraðbraut um Fossvogsdal, en draga má nauðsyn hennar í efa, og bæjarstjórn Kópavogs hefur staðfastlega neitað að ljá máls á byggingu brautarinnar, sem yrði að mestu í landi Kópavogsbæjar. Forsendur Höfðabakkabrúarinnar er að finna í aðalskipulaginu sem gilda átti frá ’62—’83, en þar var m.a. gert ráð fyrir mikilli byggð á Keldna- og Úlfarfellssvæðunum. Eitthvað er óljóst með hvort borgin fái Keldna- svæðið til íbúðabygginga, en kjarni málsins er að íbúum Reykjavíkur hefur fækkað um nokkur hundruð manns á ári síðustu árin, og siðustu tvö árin hefur orðið hlutfallslega lítil íbúafjölgun á öllu höfuðborgarsvæð- inu í heild. Þá segir í nýrri skýrslu Bjarna Reynarssonar landfræðings talningar í helztu umferðarsniðum borgarinnar gefa til kynna. Það verð- ur því að teljast að umferðarspáin frá 1975 þarfnist verulegrar endurskoð- unar við, þar sem ýmsar forsendur hafa breytzt. Á umferðarspánni byggjast síðan áæt|anir um umferð á Höfðabakka árið 1995. til dæmis sýnir úrvinnsla úr talningu og viðóölum við vegfarendur sem fram fóru tvisvar í nóvember sl. á rampanum af Reykja- nesbraut upp á Vesturlandsveg til austurs, að líklega færu ekki nema 3,500 bílar á sólarhring um Höfða- bakkabrúna ef hún væri til í dag. Af þeim yrðu Breiðhyltingar í um 2,200 bílum, en það er um sjö af hundraði allrar umferðar til og frá Breiðholti í dag. Þessi talningarstaður var valinn vegna þess að um hann fara allir sem áhuga myndu hafa að fara um Höfða- bakkabrú. 9% umferðar um Breiðholt Fylgismenn Höfðabakkans benda máli sínu til stuðnings á að með vaxandi atvinnubyggð í Borgarmýri muni stóraukast ferðir um brúna. Samkvæmt þeirra áliti geta átt eftir að bætast við í Borgarmýri allt að 140 þúsund fermetrar gólfflatar til viðbót- ar þeim 150 þúsund fermetrum sem komnir voru alls í Ártúnshöfða og anna allri umferð vestur yfir Kringlu- mýrarbraut. Hugsanlega væri þó nauðsynlegt að leggja um Fossvog braut af lægri gæðaflokki en fyrirhugaða hraðbraut, sem yrði hjálparbraut fyrir Nýbýla- veg milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar. Aðrar úrbætur til meiri hagsbóta Stundum hefur verið sagt, að Höfðabakkabrúin myndi bæta mjög samgöngur til Breiðholts. Að okkar mati er raunhæfara og til miklu meiri hagsbóta fyrir Breiðhyltinga, að gerð- ar verði ýmsar tiltölulega ódýrar úrbætur á þeim vegum sem þar eru fyrir hendi, einkum tengingum Breið- holts við Reykjanesbrautina. í þessu sambandi má nefna úrbætur á gatna- mótum Smiðjuvegs og Breiðholts- brautar, en um Smiðjuveginn fara 10—11 þúsund bílar á sólarhring, eða þrefalt það umferðarmagn sem færi um Höfðabakkabrúna, þar af eru um 4,500 bílar að fara á milli Breiðholts og Kópavogs. Þessi gatnamót eru ein mestu slysagatnamót á höfuðborgar- svæðinu. Þar sem ekki er sérstök biðrein fyrir þá sem taka vinstri beygju inn á Smiðjuveg af Breiðholts- Þessar úrbætur og fleira í þessum dúr yrði til miklu meiri hagsbóta fyrir Breiðhyltinga en Höfðabakkabrúin. Og þar sem ekki er gert, ráð fyrir þeim áfanga Höfðabakkans sem liggur samsíða Vesturberginu í brekkunni milli efra- og neðra Breiðholts, hefði brúin í för með sér að veruleg umferðaraukning yrði strax á Vestur- bergi. Umferðaraukning þar er ekki forsvaranleg að okkar mati, vegna þess hvernig háttar þar til við þá íbúðargötu. Ferðin stytt um tvær mínútur Frá þungamiðju Breiðholts eftir núverandi götum að gatnamótum Höfðabakka/ Vesturlandsvegar eru 4,5 km, en með tilkomu fyrsta áfanga Höfðabakka, þ.e. brúarinnar og braut- arinnar norðan við hana, yrði vega- lengdin 2,5 km. Núverandi leið er alla jafna greiðfær samanber þó það sem fyrr var sagt, svo að þarna er um að ræða að stytta ferð þeirra Breiðhylt- inga sem stunda vinnu í Ártúnshöfða eða Borgarmýri úr um fimm mínútum niður í um þrjár mínútur. í þessu sambandi má hafa í huga að meðal- lengd í vinnu fyrir borgarbúa í heild Eins og Kínamúr í Elliðaárdal Brúin sjálf er 80 metra löng, þunglamalegt mannvirki með löngum fjögurra til fimm metra háum fylli- ngum til beggja handa, og mun tróna sem nk. Kínamúr þvert yfir Elliðaár- dalinn. Milli stíflunnar og vegarins myndast ankannaleg „skvompa" og sérkennilegar hraunmyndir hverfa. Við tilkomu Höfðabakka mun um- ferðarvandinn niður við Vesturlands- veg aukast, en þar eru þegar miklar biðraðir við umferðarljósin, einkum á morgnana. Einnig kemur til sögunnar nýr vandi þar sem eru gatnamót Höfðabakka og bæjarháls. Höfða- bakkinn verður ráöandi gata. Þótt umferðin verði ekki til þess að valda hinum þunga straumi af Bæjarhálsi miklum erfiðleikum. Talað hefur verið um að Bæjarhálsumferðin fái sér- staka akrein á Höfðabakkanum niður að Vesturlandsvegi og að núverandi vinstribeygjuakrein til vesturs verði tvöfölduð. Þótt svo verði er vandinn á morgnana ekki leystur, því mest öll Bæjarhálsumferðin, um það bil 10,000 bílar á sólarhring, er á leið niðrí bæ, en mestöll Höfðabakkaumferðin á þessum stað yrði á leið niður Ártúns- höfða eða upp í Mosfellssveit, og þyrftu þessir tveir straumar því að

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.