Morgunblaðið - 04.03.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
21
Jón bætti met sitt
um f jórar
„ÉG stefndi ekki sérstaklega á
þetta mót, og hélt mínu striki á
æfingunum, sem fyrst og fremst
miðast við keppnirnar í sumar.
Komst ekki i úrslitin, en bætti
talsvert minn bezta árangur í
1500 frá því í fyrra og hljóp á
3:45,6 mínútum,*4 sagði Jón Dið-
riksson frjálsíþróttamaður úr
UMSB í spjalli við Mbl. í gær. Jón
tók um helgina þátt í Evrópu-
meistaramótinu í frjálsíþróttum
innanhúss í Sindelfingen í Vest-
ur-Þýzkalandi og bætti íslands-
met sitt innanhúss í 1500 metrun-
um um rúmar fjórar sekúndur,
og náði árangri sem oftast hefur
nægt til að komst í úrsiitin á
mótinu.
„Ég hef aðeins hlaupið eitt
hlaup innanhúss í vetur og senni-
lega hefði því tekist til betur ef
sekúndur
maður hefði fyrst og fremst hugs-
að um þetta mót, og keppt mikið
innanhúss," sagði Jón. Hann sagði
að aðeins hefðu sex hlaupið í 300G
metra hlaupinu á mótinu, en í
þeirri grein setti hann nýlega
Islandsmet. Félagi hans frá Jág-
ermeister Bonn/Troisdorf varð í
fjórða sæti í hlaupinu á svipuðum
tíma og Jón náði á dögunum.
Jón sagðist hafa æft mikið og
vel í vetur, og hefði sérstaklega
góð tíð hjálpað verulega. „Veðrið
hefur verið frábært, aðstæður til
æfinga eru góðar og hef ég marga
góða menn til að æfa með, æfi t.d.
í kvöld með hinum frægu hlaupur-
um Villy Wullbeck, Heinz Paul
Wellman o.fl. af beztu millivega-
lengdahlaupurum Þjóðverja. Hér
er allt eins og bezt verður á kosið,“
sagði Jón að lokum. — ágás.
Haukarnir sprungu
VALUR vann algeran yfirburða-
sigur á Haukum í l.deild kvenna
íslandsmótsins í handknattleik
um helgina, leikið var í Hafnar-
firði og urðu lokatölur leiksins
18—10, Val í hag.
Staðan í hálfleik var þó jöfn,
6—6, og var þá jafnræði með
liðunum. En í síðari hálfleik
sprungu Haukastúlkurnar ein-
hverra hluta vegna og mörkin
hlóðust upp. Tölur síðari hálfleiks
eru 12—4 fyrir Val og segir það
sína sögu.
Þetta ver frekar slakur leikur af
beggja hálfu, sýnilega þó einkum
hjá Haukum. Bestu menn vallar-
ins voru líklega markverðirnir,
Jóhanna hjá Val og Sóley hjá
Haukum. Munaði mestu fyrr
Hauka, að Margrét Theodórsdótt-
ir náði sér aldrei á strik í leiknum.
Mörk Hauka: Margrét 4/3, Sjöfn
3, Sesselía 2 og Svanhildur 1 mark.
Mörk Vals: Harpa 6, Erna 5/4,
Ágústa Dúa 3, Karen og Elín 2
hvor. SP
• Spánska liðið Atletico Madrid sigraði Val
með þriggja marka mun, 24—21 í fyrri leik
liðanna sem fram fór í Madrid á laugardags-
kvöld. Leikur liðanna var mikill baráttu leikur
sem einkenndist af taugaspennu og miklum
átökum. Á myndinni hér fyrir ofan sést
Þorbjörn Guðmundsson með nös sína fulla
af bómull en Þorbjörn fékk óblíðar móttökur
hjá vörn Spánverjanna. Engu að síður
skoraði hann sjö mörk og átti góðan leik.
Ekkert markanna var skorað úr vítaköstum.
Bak við Þorbjörn sést í annan frönsku
dómaranna sem dæmdu leikinn. Á bls. 24 og
25 má sjá myndir og frásögn af leiknum.
Ljósm. Mbl. þr.
- Ég virðist bara ekki geta
skorað núna, segir Petur
hreinlega ekki geta skorað. Eitt
slíkt timabil er að ganga yfir
núna, sagði Pétur Pétursson
knattspyrnukappi þegar Mbl. sló
ÞAÐ koma alltaf slæm tímabil
inn á milli og þá virðist maður
Alopmppn iWhWr
á þráðinn til hans á sunnudags-
kvöldið. Pétur hefur ekki skorað
í fjórum siðustu leikjum Feye-
noord og þykir það vissulega
saga til næsta bæjar.
Um helgina tapaði Feyenoord á
heimavelli sínum fyrir Excelsior
0:4. Þrátt fyrir þennan mikla
markamun var leikurinn ekki eins
ójafn og tölurnar gefa til kynna
því Feyenoord átti aragrúa tæki-
færa, sem ekki nýttust. Pétur fékk
góð marktækifæri í leiknum en
hann var ekki á skotskónum. Mikil
viðhöfn var fyrir leikinn því þetta
var kveðjuleikur HM-stjörnu
Hollendinga Wim Jansen, en hann
hefur leikið með Feyenoord hátt á
annan tug ára. Honum var vel
fagnað að vonum en ekki er gaman
fyrir hann að kveðja með stórtapi.
Jansen heldur innan skamms til
Bandaríkjanna.
Pétur er enn markhæsti leik-
maður úrvalsdeildarinnar í Hol-
landi með 20 mörk en Kees Kist
hefur nálgast hann mjög, en hann
hefur skorað 19 mörk. Hann
skoraði þrennu fyrir AZ’67 um
helgina. — Það eru margir leikir
eftir svo ég óttast þetta ekki. Ég
ætla mér að verða markhæstur í
mótslok, sagði Pétur.
-SS.
J
Heim fékk
rosa skell!
VÍKINGSBANARNIR í
Evrópukeppninni í hand-
knattleik, IK Heim. fengu
heldur betur rassskell er
liðið mætti Calpisa Alicante
á Spáni í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa. Tölurnar
voru hreint ótrúlegar, 40—
25 fyrir Calpisa, eftir það
staðan í hálfleik hafði verið
20—10. Er hætt við að Heim
eigi ekki mikla möguleika í
síðari leiknum, varla vinnur
liðið með meira en 15 marka
mun.
KA-menn
ráða Skota
2. DEILDAR lið KA í
knattspyrnu hefur gengið
frá ráðningu þjálfara fyrir
komandi keppnistimabi).
Hafa þeir leitað út fyrir
landsteinana og loks tryggt
sér skoskan þjálíara. Sá
heitir Alex Willoughbey og
er 37 ára gamall.
W’illoughbey þessi var áð-
ur lengi atvinnumaður hjá
skoska stórliðinu Rangers
og síðan þjálfaði hann ungl-
ingalið Aberdeen um skeið
áður en hann lagði land
undir fót. Þjálfaði hann um
skeið lið í Hong Kong og
gerði það lið að mcistara.
Um tíma voru horfur á því
að vestur-þýskur þjálfari
kæmi til KA og kom einn
slíkur reyndar. En dvöl hans
hér á landi varð ekki löng og
varð ekkert úr samningum.
3 met
Katrínar
TVÆR íslenskar sundkonur,
þær Katrin Sveinsdóttir og
Þóranna Héðinsdóttir, tóku
um helgina þátt í ungl-
ingameistaramóti Norður-
landa sem fram fór í Kupio í
Finnlandi.
Katrín setti telpnamet í
100 metra skriðsundi, synti
á 1:04,09 minútum. Hún setti
einnig telpna- og stúlknamet
í 400 metra skriðsundi á
timanum 4:46,76. í 200
metra skriðsundi fékk hún
timann 2:19.04.
Þórönnu gekk ekki eins
vel og var hún langt frá sínu
besta. í 100 metra skrið-
sundi fékk hún tímann
1:04,41, í 200 metra skrið-
sundi 2:20,63, í 200 metra
fjórsundi 2:39,33 og í 100
metra baksundi 1:15,04.
FH-ingar
fara til
Fortuna
6—8 PILTAR úr 2. aldurs-
flokki kanttspyrnuliðs FII
eru senn á förum til Vestur-
Þýskalands nánar tiltekið
til Kölnar 23. mars. Þar
munu þeir æfa og leika hjá
Fortuna Köln, liðinu sem
Janus Guðlausson leikur
með við góðan orðstir. Munu
strákarnir dveljast. hjá
þýska félaginu til 8. apríl.
Af Janusi er þáð að segja.
að honum gengur mjög vel
þessar vikurnar og Fortuna
á mikla möguleika á þvi að
flytjast í „Búndesliguna".
Síðast vann Fortuna útsig-
ur. 2—1 gegn Wuppertaler.
en þar áður stórsigur, 5—2,
gegn helsta keppinautnum
Hannover 96.