Morgunblaðið - 04.03.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980
31
$
leikurinn) 14. Hdl — Dc8, 15. Bg5
— Be5, 16. De3 — Rh5 (baráttan
stendur um f4. reitinn) 17. Df3 —
Rf6, 18. De3 — Rh5, (býður upp á
þrátefli, en Browne brást við.) 19.
Df3 - Rf6, 20. Rf5 - De6, 21. h4
- h6, 22. Bxf6 - Bxf6, 23. Rd5 -
bxd2 (betra er 23. Be5) 24. habl —
Be5, 25. h5 - c6,
(hægt og bítandi hefur Browne
aukið yfirburði sína og nú verður
Miles að gefa peð) 26. hxg6 —
fxg6, 27. Rde7 - Kh7, 28. Rxg6 -
Dxg6, 29. Hxb7 - Hfd8, 30. Hxd8
- Hxd8, 31. Hxa7 — Dg5, 32. G3
- c5, 33. He7 - Bf6, 34. Hc7 -
Dcl, 35. Kg2 - Be5, 36. Dg4 (enn
eykst þrýstingurinn á g7) Dc3, 37.
Hc6 - Bf6, 38. Rd6 - Dd4, 39. Df5
- Kh7, 40. De6 - Kh7, 41.Df5 -
kg8, 42. Rb7 (síðustu leikir voru til
þess að vinna tíma á klukkunni, en
nú kemur rothöggið.) Hf8, 43.
Rxc5 — Be7, 44. Re6 — Hxf5, 45.
Rxd4 - ha5, 46. Hc8 - Kf7, 47.
Hc7 og Miles gafst upp.
7. umferð
Sjöunda umferðin einkenndist
af miklum þunga og lítið var um
það að teflt væri á tvær hættur.
Þeir Jón L. Árnason og Sosonko
urðu fyrstir til að semja, enda gaf
staðan ekki tilefni til annars,
aðeins hrókapar og léttur maður
hjá hvorum enn á lífi eftir 16 leiki.
Helmers var nú stiginn upp úr
veikindunum, en skák hans daginn
áður gegn Vasjukov var frestað,
og mætti nú Torre. Norðmaðurinn
tefldi skiljanlega til jafnteflis og
uppskar það eftir fjörutíu litlausa
leiki.
Haukur Angantýsson fékk mjög
viðunandi stöðu eftir byrjunina
með hvítu gegn Vasjukov, en
seinna teygði hann sig allt of
langt. Rússinn fórnaði skiptamun,
fyrir þrjú peð sem var auðvitað
allt of mikið enda fór svo að
honum tókst að þvinga fram
vinning eftir bið gegn þrautseigri
vörn Hauks.
Margeir hafði hvítt gegn
Browne og tefldi byrjunina rólega.
Þegar bandaríski stórmeistarinn
var um það bil að lenda í tíma-
hraki stóðst hann þó ekki þá
freistingu að leggja til atlögu:
Svart: Browne
Hvítt: Margeir
17. c5! - d5 (Ef 17 ... Bxe4 þá á
hvítur millileikinn 18. cxd6 og
17... dxc5 yrði vitanlega svarað
með 18. Dc3) 18. Dc3 — dxe4
(Nauðsynlegt. Eftir 18 ... f6?, 19.
Rg5! er svartur mjög illa beygður)
19. Bxe5 - Da7. 20. b4 - a5!
(Með þessum djarfa leik riær
svartur uppskiptum sem tryggja
honum jafnt tafl) 21. a3 — f6, 22.
Bd4 - e5, 23. Be3 - Hxdl+, 24.
Hxdl — axb4, 25. axb4 — Da2,
26. b5 — Bxb5 — (Browne verst
öllum gildrum í tímahrakinu. Ef
26 ... Dxe2? þá 27. Db3+) 27. Bxe4
- Bc6.28 R-c ' - "" - „
. — oxco, 29. Kg2
(Svartur var eigi að heldur í
vandræðum eftir 29. Hd7 — Bf8)
De6, 30. Db4 - Hd8, 31. IIxd8+
— Bxd8, og jafntefli var samið
skömmu síðar.
Miles þjarmaði jafnt og þétt að
Ágúst Geirsson formaöur Félags isl. símamanna:
FÍS og PFÍ taki
höndum saman til hags-
bóta fyrir félagsmenn
Byrne og fyrr eða síðar hlaut
eitthvað að láta undan. Af þessu
endatafli má draga þann lærdóm
að tveir riddarar geta engu síður
unnið vel saman en tveir biskupar.
Svart: Byrne
48. Rf6+ — kg7, (Nú tapar
svartur peði þvingað. Hann hefði
því átt að reyna 48 ... Kh8, 49. Rc6
— a5, þó að ekki sé staðan fögur)
49. Re8+ - Kf7, 50. Rxc7 -
Kxe7,51. Rxa6 - Rd7, 52. Rc7 -
Rb6, 53. a5 og peðið rann upp.
Hvítt: Helgi Olafsson
Svart: Kupreichik.
Enski leikurinn.
I. c4 — e5, 2. Rc3 — Rc6, 3. e3 —
Rf6, 4. Rf3 - d5, 5. Cxd5 - Rxd5,
6. d3 — Be7 (Upp er nú komin
þekkt staða í Sikileyjarvörn með
skiptum litum:) 7. Be2 — 0-0, 8. 0-0
- Be6, 9. a3 - a5, 10. Dc2 - f5,
II. Hel — Rb6, 12. b3 (Svartur
hótaði a4) 12.-----Bf6, 13. Hbl
(Helgi víkur hróknum úr skálínu
biskupsins á f6) 13.----Re7, 14.
e4 — f4, 15. d4! (Sókn á væng er
best svarað með sókn á miðborð-
inu) 15.----exd4,16. Hdl — Rg6,
17. Rb5 — c5, (Kupreichik er
sóknarskákmaður og nú flækir
hann taflið með peðsfórn og ein-
hvern veginn er Helgi ekki með á
nótunum og finnur ekki besta
framhaldið) 18. Dxc5 — Hc8.
(í þessari stöðu er hægt að leika
Dd6 og hvítur hefur betra tafl t.d.
19. Dd6 - Bd7, 20. Rbxd4 - Be7
og þá 21. Re6 og eftir uppskiptin
hefur hvítur betra tafl.) 19. Dh5?
(Jóhannes Gísli skákskýrandi
sagði að annað hvort væri þessi
leikur snilld eða vitleysa og því er
ekki að leyna að leikurinn er
afleikur sem gerir góða stöðu
vonlausa. Drottningin verður nú
skotspæni svörtu mannanna á leið
þeirra að kóngi hvíts.) 19. — —
de7,20. Rfxd4 (e5 dugði ekki vegna
Hc5, 21. e5xf6 — Hxf6 og hvíta
drottningin fellur.) 20.--Hc5,
21. Rf5 - BxR, 22. exR - Rh4!
(Góður leikur sem endanlega gera
vonir hvíts að engu. Kupreichik
teflir lokin snilldar vel og gefur
ekkert eftir.) 23. Hel — dd7,24. a4
- Hxf5, 25. Dg4 - h5, 26. Dh3
(Frúin er rekin út í horn meðan
bóndi hennar er tekinn herskyldi.)
26.-----f3!, 27. Ba3 - He8, 28.
Bc4+ — RxB, 29. HxH+ — DxH, 30.
Bxc4 - De4, 31. Hcl - fxg2, 32.
Rd6 — Rf3+, 33. Kxg2 — Rel++ og
hvítur gafst upp.
LOKASTAÐAN
Nýlega sendi Póstmanna-
félag íslands frá sér fundar-
ályktun, sem mér þykir
ástæða til að gera nokkrar
athugasemdir við.
I ályktuninni er fullyrt og
því mótmælt að samið hafi
verið við Félag ísl. símamanna
í júní 1978 um að talsímavörð-
um skuli greidd hærri laun
fyrir „vandasamari póststörf“
en segi i sérkjarasamningum
Póstmannafélagsins.
í þessu sambandi tel ég
nauðsynlegt að rifja upp að-
dragandann að þessum samn-
ingi og verð ég þá að fara
nokkuð langt aftur í tímann,
eða allt til ársins 1970. Þá
hafði verið gert samkomulag
milli BSRB og ríkisins um að
kerfisbundið starfsmat skyldi
notað við röðun starfa í launa-
flokka. Þegar kom að röðun
talsímavarða sem þá hétu
talsímakonur var samkomu-
lagið ekki virt meir en svo að
þær voru settar flokki neðar
en starfsmatið sagði til um á
sama tíma og ýmsir aðrir
starfshópar voru hækkaðir frá
matinu. Að mati F.Í.S. réð hér
úrslitum hversu fjölmennur
hópurinn var eða á fjórða
hundrað talsins og ekki
kannski síður hitt að í þessum
starfshópi voru eingöngu kon-
ur. Síðan hefur það verið
baráttumál félagsins að fá
leiðréttingu á þessu ranglæti
en með misjöfnum árangri.
Á sínum tíma óskaði póst-
og símamálastjóri eftir því við
F.Í.S. að félagið tæki jákvæða
afstöðu til þeirra hugmynda í
sambandi við skipulagsbreyt-
ingar og hagræðingar í stofn-
uninni að talsímavörðum yrði
falið jafnframt símaafgreiðsl-
unni ýmis önnur störf í ríkari
mæli en verið hefði, eftir því
sem aðstæður leyfðu.
Myndi þá að sjálfsögðu
fylgja hærri laun til talsíma-
varðanna við þessa breytingu.
Á þeim forsendum studdi fé-
lagið þessar hugmyndir og
síðan hefur verið ör þróun í
þessa átt og fjöldi talsíma-
varða vinnur nú alhliða af-
greiðslustörf á póst og
símstöðvum víðsvegar um
landið. Erfiðara hefur þó
gengið að fá launabreytingar í
samræmi við þetta.
Er þá komið að samningum
F.Í.S. og fjármálaráðuneytis-
ins vorið 1978. Þá tókst sam-
komulag um að talsímaverðir
I skyldu flokkast í 7. lfl. en að
nýtt starfsheiti talsímaverðir
II kæmi inn í samning í 8. lfl.
Félagið lagði til að í þann
flokk færu þeir starfsmenn
sem vinna jafnframt síma-
afgreiðslunni við aðra þætti
svo sem við innheimtu eða
ritsímaafgreiðslu. Niðurstað-
an varð bó cö n()— yar
skilgreining fjármálaráðu-
neytisins sem samin var í
samráði við yfirmenn Pósts og
síma, en hún er þannig: „Þeir
sem vinna jafnframt talsíma-
afgreiðslu verulega við inn-
heimtu, talstöðva- eða fjarrit-
araafgreiðslu eða vandasam-
ari póststörf." Sá böggull
fylgdi þó skammrifi í þessu
máli að fjármálaráðuneytið
var ófáanlegt til að samþykkja
fleiri en átta einstaklinga á
tveimur stöðum í þetta nýja
starfsheiti, enda væri ekki
nema ár til næstu sérkjara-
samninga.
Enginn þessara starfs-
manna fékk þennan launa-
flokk út á „vandasamari
póststörf" heldur vegna inn-
heimtustarfa og talstöðva-
afgreiðslu. Síðan eru liðin tæp
tvö á og ekkert útlit fyrir
nýjum sérkjarasamningum, en
Ágúst Geirsson
þeir koma ekki til fyrr en
BSRB hefur gert aðalkjara-
samning. Á meðan eru fjöl-
margir talsímaverðir rangt
flokkaðir og verður ekki öllu
lengur við slíkt unað.
I ályktun Póstmannafé-
lagsins er því haldið fram eins
og áður segir að samið hafi
verið um hærri laun til félags-
manna í F.Í.S. en í P.F.Í. en
jafnframt að félaga í P.F.Í. sé
neitað um rétt stöðuheiti og
réttan launaflokk á póst- og
símstöðinni að Varmá, sem fór
í póstafgreiðslumannsnám á
póst- og símaskólanum og er
nú í hálfu starfi í stöðu
talsímavarðar á Varmá. Á
þeim forsendum hefur stofn-
unin neitað að flokka viðkom-
andi starfsmann sem póstaf-
greiðslumann í 9. lfl. enda þá
erfitt að standa gegn því að
talsímaverðirnir á stöðinni
sem vinna sömu störf hækki
úr 7. lfl.
Hér ættu félögin að geta
sameinast í baráttu fyrir því
að þessi starfsmenn fái rétt-
láta leiðréttingu í flokkaröð-
un.
I þessu sambandi er rétt að
geta þess að í alllangan tíma
hefur F.Í.S. krafist þess að
starfsmenn við afgreiðslustörf
á símasviði, svo sem við
talsíma, ritsíma, talstöðvar
ofl., ættu kost á sérstakri
námsbraut innan póst- og
símaskólans á sama hátt Qg
starfsmenn við póststörf.
Fulltrúar stofnunarinnar
hafa viðurkennt þörfina fyrir
slíku, bæði fyrir stofnunina og
viðskiptavini hennar, en lagt
til að mynduð verði sameigin-
leg námsbraut fyrir póst- og
símaafgreiðslu enda störfin
víða orðin það samslungin að
ekki verði á milli greint. Slíkt
yrði einnig hagkvæmara fyrir
stofnunina, sem fengi þá" al-
hliða afgreiðslufólk, sem hæfa
myndi víða betur, sérstaklega
á hinum smærri stöðum.
Ekki er enn afráðið hvað
verður í þessu máli, en víst er
að F.Í.S. hlýtur að knýja fast á
með viðunandi niðurstöðu í
því.
Að lokum skal minnst á þá
fullyrðingu í ályktun P.F.Í að
fjármálaráðuneytið hafi
ráðstafað póststarfi í Borg-
arnesi til F.Í.S. Hið rétta í
málinu er það að á sl. vori var
auglýst staða póstaf-
greiðslumanns í Borgarnesi.
Um stöðuna sóttu tveir starfs-
menn. Annars vegar aðili sem
þegar gegndi starfinu og svo
fyrrverandi símstjóri á stöð,
sem nýlega hafði verið lögð
niður. Hér var því ekkert
svigrúm til að meta hæfni
umsækjenda eða starfsaldur
þar sem staðan var í raun ekki
laus. Hinsvegar óskaði
stöðvarstjórinn í Borgarnesi
eftir því að fá að ráða
símstjórann fyrrverandi sem
sinn fulltrúa og staðgengil, en
slíkt hafði staðið lengi til.
Þetta samþykktu yfirmenn
stofnunarinnar enda var hér
um að ræða mjög hæfan
starfsmann með yfir 15 ára
starfsreynslu. En launakjörin
voru ekki í samræmi við þetta,
því til að byrja með fékk
starfsmaðurinn einungis Iaun
sem talsímavörður í 7. lfl.
Þessu undi hann ekki og leit-
aði til síns stéttarfélags, F.Í.S.
Eftir ítrekaðar tilraunir fyrst
við yfirmenn Pósts og síma og
síðan fjármálaráðuneytið
tókst félaginu um miðjan des-
ember sl. að fá starfsmanninn
flokkaðan í fulltrúaflokk í
samræmi við það starf sem
hann vann. Rétt er að taka
fram í þessu sambandi að
þegar málið var afgreitt í
fj ármálaráðuneyt-
inu lá fyrir erindi frá Pósti og
síma og samgönguráðuneytinu
þar sem þetta var stutt á þeim
grundvelli að stofnunin léti af
hendi lausa stöðu póstaf-
greiðslumanns um stundar-
sakir.
Það er að mínu mati ákaf-
lega óheppilegt ef félögin
beina kröftum sínum að því að
hnotubítast um einstakar
stöður hjá Pósti og síma, í stað
þess að sameinast í baráttu
fyrir bættum hag starfs-
manna stofnunarinnar, en
stærstur hluti þeirra er í
lægstu launaflokkunum. Á
undanförnum árum hafa ýmis
félög og starfshópar innan
BSRB bætt sinn hlut rn.eð
þrýstiaðgerðum og með því að
koma ýmsurn sérkjaraatriðum
inní aðalkjarasamning banda-
lagsins. Á sama tíma hafa
félagsmenn í F.Í.S. og P.F. í
setið að mestu eftir. Það er því
nauðsynlegt að félögin taki
höndum saman í komandi
samningum til hagsbóta fyrir
félagsmenn þeirra beggja.