Morgunblaðið - 04.03.1980, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 04.03.1980, Qupperneq 27
35 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 einn sjálfstæðismaðurinn af öðrum hefur verið leiddur upp í vitnastúku Morgunblaðsins og látinn vitna gegn Gunnari Thoroddsen, ófrægja hann og svívirða á alla lund að undanförnu. Minnir þetta einna helst á hreinsunarréttarhöld aust- antjalds. Uppistaða hinna vel æfðu vitnisburða er ávallt sú sama. A. Gunnar Thoroddsen var einn af glæsilegustu og efnilegustu for- ystumönnum Sjálfstæðisflokksins fyrst í stað. (Nánar tiltekið uns hann leyfði sér að ljá tengdaföður sínum lið í forsetakosningunum 1952.) B. Gunnar hefur sýnt undirferli og farið á bak við flokksbræður sína. (Með sjálfstæðum, hljóðlátum athugunum sínum á sérhverjum hugsanlegum möguleikum á lausn stjórnarkreppunnar.) C. Gunnar hefur svikið Sjálf- stæðisflokkinn og stefnu hans með myndun núverandi stjórnar. Við skulum athuga þessa vitnis- burði nánar hvern fyrir sig. A. Oft ratast kjöftugum satt á munn. Gunnar var einn af allra glæsilegustu forystumönnum Sjálf- stæðisflokksins þegar á unga aldri, og er það enn. I samræmi við það hefur hann nú stýrt pólitísku fleyi sínu í höfn með þeirri karlmennsku, þrautseigju og óbilandi sigurvissu, sem einungis afreksmönnum og óskabörnum örlaganna er auðið. Fyrir slíkum víkingum stenst ekkert. Afbrýðisemi, illvild, öfund, hefnigirni, júdasarkossar, svika- sættir, persónulegt og pólitískt vélræði, einangrunarsamsæri, frystingarbandalög og útíkuld- annklíkur, allt tvístrast þetta og molnar fyrir heiðarlegri framgöngu kempunnar, sem aldrei svíkur sína huldumey, sjálfstæðishugsjónina, þótt aukvisar og ættlerar veiti henni umsátur. Gunnar Thorodd- sen, þessi Ódysseifur íslenskra stjórnmála, kemur fláráðum fénd- um sínum í opna skjöldu í fylling tímans og lætur þá snýta rauðu. Gervöll þjóðin fagnar því að fá að nýju stjórn og myndugleik í landið. En þetta kemur að sjálfsögðu ekki allt fram i vitnastúku Morgun- blaðsins heldur einungis mátulega mikið til að framhald vitnaleiðsl- unnar verði nægilega trúverðugt. B. „Gunnar Thoroddsen hefur sýnt undirferli“. Við, sem höfum fordómalaust fylgst með Gunnari í ræðu, riti og persónulegum sam- ræðum í gegnum árin, vitum að þetta er auvirðileg lygi. Gunnar er ekki þeirrar gerðar, að hann þori ekki að koma framan að mönnum, það hefur alþjóð fengið að sjá að undanförnu. En vegna þeirra, sem ekki þekkja Gunnar nægilega og kynnu að leggja trúnað á þennan rógburð, skal eftirfarandi enn einu sinni rifjað upp: Árið 1952 fóru fram forsetakosn- ingar á íslandi. Ásgeir Ásgeirsson tengdafaðir Gunnars Thoroddsens var meðal frambjóðenda. Þáverandi meirihlutaforysta Sjálfstæðis- flokksins ákvað að blanda sér í málið sem slík og styðja séra Bjarna Jónsson þáverandi vígslu- biskup í Reykjavík og setti flokks- vélina á fullt og Morgunblaðið með til að tryggja honum kosningu. Gunnar Thoroddsen, einn af for- ystumönnum Sjálfstæðisflokksins, einn af þeim glæsilegustu, eins og vitnaleiðsla Morgunblaðsins hefur þegar leitt í ljós, reis einarðlega gegn þessari starfsemi flokksfor- ystunnar og mótmælti henni. Hann lýsti því yfir, að forsetakjör lýð- veldisins íslands væri hafið yfir pólitíska flokkadrætti og lýsti sjálf- stæðismenn frjálsa og óbundna sérhverjum flokkspólitískum kvöð- um og skyldum í þessum efnum. Stór hluti þáverandi sjálfstæð- ismanna fylgdi þessari ábendingu Gunnars Thoroddsens og Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti íslands, sem alkunnugt er. Forysta Sjálfstæðisflokksins reis úr öskunni að nokkrum tíma liðn- um og Ólafur Thors þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins lýsti því yfir fyrir alþjóð, að sæst hefði verið á þessi mál innan Sjálfstæðis- flokksins og sérhvert missætti væri grafið og gleymt og Sjálfstæðis- flokkurinn gengi að nýju heill til skógar. Þessi sætt þótti eðlileg, rökrétt og sanngjörn. Rökrétt og sanngjörn vegrja þess, ^ð \ (fopetakosningun- um 1952 staðfesti þjóðin þá túlkun Gunnars Thoroddsens, að eðli sínu samkvæmt skyldu forsetakosningar á íslandi vera óháðar flokkspóli- tískum böndum. Þessi þjóðarúr- skurður hefur síðan öðru sinni verið staðfestur með eftirminnilegum hætti, þ.e. við forsetakosningarnar 1968. Þær kosningar áttu og eftir að verða sígilt dæmi um dramatísk tilbrigði rammslunginnar örlaga- glettni í garð Gunnars Thorodd- sens. En það er saga út af fyrir sig og skal látin ósögð hér og nú. En væri sú saka rakin til hlítar, myndi andlegt atgervi Gunnars og karl- mennska koma því betur í ljós. Án þess ég geti fullyrt neitt um það, þá hef ég tilhneigingu til að trúa því, að Ólafur Thors hafi meint þetta og mælt af heilum hug, þetta með sættirnar. Hann var þeirrar gerðar, stór í sniðum og ærlegur. — Mikill foringi. Hvað sem því líður er hitt þó deginum ljósara fyrir löngu síðan, að viss hópur innan Sjálfstæðis- flokksins fyrirgaf Gunnari Thor- oddsen aldrei sjálfstæði það og einurð, er hann sýndi og viðhafði 1952. Gervöll saga Gunnars undir merkjum Sjálfstæðisflokksins síðan 1952 er menguð þessum beiska sannleika. Vorið 1979 var haldinn í Reykja- vík 23. landsfundur Sjálfstæðis- flokksins, sem fyrr segir. Vegna vaxandi óánægju með slappa for- ystu flokksins lá það fyrir, að átök yrðu á fundinum varðandi for- mannskjör. Sem kunnugt er var Geir Hall- grímsson kjörinn formaður flokks- ins með verulegum atkvæðamun gagnvart mótframbjóðandanum, Albert Guðmundssyni. Eitt ákæruatriði Geirsmanna á hendur Gunnarsmönnum nú að undanförnu er reist á þessari niður- stöðu landsfundarins. Sagt er sem svo, að sumir hafi greinilega ekki getað sætt sig við ákvörðun lands- fundar varðandi formennsku í Sj álf stæðisf lokknum. Þessi röksemd er ágætt dæmi um hálfsannleik af lakara taginu. Menn skyldu gera sér ljóst, að það eru engin gamanmál að fella ríkjandi formann í stórum stjórnmálaflokki með naumum meirihluta, ef við- komandi formaður heldur öllu sínu til streitu. Það er heldur ekkert grín að komast það nærri honum, að hann rétt lafi áfram í for- mennskunni. Margir þeir, sem kusu Geir Hallgrímsson formann á 23. landsfundi Sjálfstæðisflokksins voru ýmist haldnir efasemdum eða óánægju með formanninn. Atkvæði þeirra ákvörðuðust af því, að miklu skipti fyrir flokkinn að hann gengi aaprpjlega jtil hafður og öruggur í fasi frá þessum fundi, hvað stjórn og forystu áhrærði. Þessu til sönnunar kemur sá hluti sannleikans, sem ekki hefur verið haldið á loft af Geirsmönnum á undanförnum dögum, að varafor- mannskandidat Geirs Hall- grímssonar féll við þetta sama formannakjör fyrir Gunnari Thor- oddsen. Var þó ekki við veifiskata að etja þar sem Geirskandídatinn var, kempuna Matthías Bjarnason Vest- firðingagoða og fyrrverandi ráð- herra með láði. Menn geta spáð í það hver fyrir sig, hvort þeir hafi verið margir sjálfstæðismennirnir úr Vestfjarðakjördæmi, sem snið- gengu Matthías við þessa kosningu, hvað sem leið afstöðunni til Geirs Hallgrímssonar. Ég sagði Gunnari það, þegar ég óskaði honum til hamingju eftir úrslitin, að ég hefði ekki kosið hann, minna mátti það ekki vera. Gunnar brosti og handtakið var þétt og hlýtt engu að síður. Það útheimtir annað tveggja nema hvort tveggja sé, alvarlega pólitíska gláku eða ábyrgðarlausa ófyrirleitni, að ganga af þessum fundi með þeim ásetningi að setja Gunnar Thoroddsen út í horn, skipa honum að hræra hvorki legg né lið og helst að halda kjafti. Slík framkoma er ekki einungis frekleg móðgun við Gunnar sjálfan, heldur hnefahögg í andlit Gunnarsmanna, sem töldu sig vera að tryggja það á síðasta landsfundi, að núverandi formaður hefði nægilegan stuðning við bakið til að koma fram með reisn, en Gunnar Thoroddsen gengi honum næstur hvað áhrif og umsvif í flokksforystunni snerti. I ljósi þess, sem hér hefur verið rakið, er það í senn grátlegt og broslegt þegar Geir Hallgrímsson gerir sig digran vegna síðasta landsfundar og ætlar sér að hafa Gunnar Thoroddsen fyrir hund í bandi og sparka í hann ef hann biður ekki um leyfi til að pissa. Það er út af fyrir sig eftirtektar- vert, þótt það skipti litlu máli, að það er ýmist að Geir og klíka hans þykjast ekkert hafa vitað um kann- anir Gunnars, eða þeir segjast hafa haldið um þær dagbækur vikum saman. En kjarni málsins er að sjálf- sögðu þessi: Geir hafði vikum sam- an haft tækifæri til að láta til sín taka við stjórnarmyndun fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins, bæði beint og óbeint. Allt kom fyrir ekki. Þjóðin var slegin óhug og vonbrigðum og vandamálin voru hvarvetna að spretta upp eins og gorkúlur á haugi. Þá rýfur Geir Hallgrímsson sætt- ir og skráða jafnt sem óskráða málamiðlun fri) síðastá lapdsfundi með því að gefa ekki sjálfkrafa varaformanni flokksins, Gunnari Thoroddsen boltann og ljá honum tækifæri til að sýna hvað hann gæti til að hefja orðstír sjálfstæðisstefn- unnar á ný til vegs og virðingar með vasklegri framgöngu sinni og fagmánnlegum vinnubrögðum til heilla fyrir land og þjóð. Þetta var skýlaus réttur Gunnars sem varaformanns fyrir hönd frjálslyndari afla innan Sjálfstæð- isflokksins, ekki hvað síst með tilliti til þess, að leifturstefnu hægri armsins hafði að flestra dómi verið hafnað í síðustu kosningum. Þann ósigur bar auðvitað að horfast í augu við og endurmeta hina pólitísku stöðu. Það þarf heilmikinn nashyrn- ingshátt og pólitíska blindu til að koma ekki auga á þá óhjákvæmi- legu leikfléttu Sjálfstæðisflokksins í stjórnarmyndunarskákinni, sem einungis Gunnar Thoroddsen fyrir hönd frjálslyndari armsins var-fter um að framkvæma. En það er ekki laust, sem skratt- inn heldur. Gunnar er knúinn til að draga rétt hinna frjálslyndu með töngum út úr klónum á Geirsklík- unni við tilfallandi óhljóð, emjan og grátkór afturhaldsaflanna í flokkn- um, þar sem forsöngvarinn er allt í senn, laglaus, taktlaus og raddlaus. Það er nú ljóta mússíkin. Hvern fjandann sjálfan áttu frjálsir menn í frjálsum flokki deginum lengur að una þessu enda- lausa grútmáttlausa þjóðstjórnar- þukli og kratakukli flokksforyst- unnar, sem engan hljómgrunn átti á Alþingi og var að fléstra dómi fyrirfram dæmt til að verða að pólitísku fúleggi. Öll venjuleg form og hefðbundin mynstur höfðu verið þrautkönnuð til hins ítrasta án minnstu vonar um árangur, hvað snerti þingræðislega lausn stjórn- arkreppunnar. Sérhver flokksfor- ysta hafði fengið sín 'tækifæri, en ekki tekist. Þjóðarskútan var komin með slagsíðu svo að vatnaði inn á dekkið. Þegar svo er komið, mælá öll skynsamleg rök með því að losað sé á flokksböndum, ef slíkt má sýni- lega leiða til lausnar. Landið, þjóðin og þingræðið standa beinlínis á öndinni og bíða þess milli vonar og ótta, að þingmenn, sem bundnir eru af stjórnarskránni með eiðstaf til að fara fyrst og síðast eftir sann- færingu sinni, láti að sér kveða með einhverjum þeim hætti, er verða megi til bjargar. Ég veit ég mæli fyrir munn margra er ég segi, að ég hefði talið Gunnar Thoroddsen bregðast frjálslyndari armi Sjálfstæðis- flokksins, hefði hann ekki undir framangreindum kringumstæðum tekið frumkvæðið í sínar hendur með svo til hvaða hætti sem var. Það sver sig í ætt við smásmugu- hátt og réttlæti faríseans í guð- spjöllunum að ætlast til þess að Gunnar Thoroddsen gæfi Geir Hallgrímssyni skýrslu á heilum og hálfum klukkutíma um athuganir sínar þegar svona var komið og eftir að Geir hafði margbrotið á Gunnari skráðar og óskráðar leik- reglur. Og skyldi ekki Geirsklíkan mundu hafa tekið viðbragð og hvæst og höggvið til Gunnars, hvaða aðferð sem hann hefði við- haft í stjórnarmyndunarstarfi sínu, ef ekki í þessum dúrnum, þá í hinum. Svari hver því, sem honum þykir líklegast. Það er einhver hinn grófasti dónaskapur og fyrirlitning í garð pólitískra viðsemjenda sem ég hef orðið vitni að, þegar Geirsmenn klifa á því, að með hljóðlegum athugunum sínum í kyrrþey hafi Gunnar Thoroddsen valdið því, að Geir Hallgrímssyni hafi ekki tekist að mynda stjórn. Er virkilega ætlast til þess að almenningur taki það alvarlega, að Framsóknarflokk- ur, Alþýðuflokkur og Alþýðubanda- lag, hver fyrir sig og allir í senn, meti það meira á örlagastundum þjóðarinnar að skemmta sér við heimiliserjur Sj álfstæðisflokksins og gera þær að pólitísku markmiði en að ná sem víðtækastri og sterkastri samstöðu til að þoka áleiðis hugsjónamálum sínum og umbjóðenda sinna með ábyrgum hætti, og vinna þannig að þjóðar- heill? Þetta er argvítugur áróður og flestu er nú ýtt á flot til að leiða hugann frá pólitísku getuleysi, klúðrun pg klaufaskap. Hafi þetta hugarfar í garð við- semjendanna stöðugt svifið yfir vötnunum við stjórnarmyndunar- tilraunir Geirs Hallgrímssonar, þá var varla við miklu að búast. Geir Hallgrímsson hafði allt, sem hann þurfti í höndunum til stjórn- armyndunar. Hann hafði Morgun- blaðið, flokksvélina, radar, miðun- arstöð, stjórntæki og áhöfn. Hann kunni bara ekki á þetta. Flokks- skútan var að sigla í strand. . Gunnar Thoroddsen gerði ekkert til að torvelda siglingu þessa skip- stjóra. Hann var einungis stýri- maðurinn, sem stjakað hafði verið út úr brúnni, svo að Geir gæti af algerri einbeitingu rýnt með alvar- legum augum sínum í radarinn, án þess að vera stöðugt að líta upp til að passa, að Gunnar kæmi ekki of nálægt stýrinu. Stýrimaðurinn stóð rólegur og æðrulaus úti á brúarvængnum og horfði til stjarnanna. Það var honum nóg. Þegar boðarnir taka að rísa fyrir stafni, skundar Gunnar inn í brúna og gefur Geir sitt útreiknaða strik. Geir fýlir grön og heimtar að fá að yfirfara útreikn- inginn sjö hundruð sjötíu og sjö sinnum. Gunnar segir, því miðu-, ekki hægt, við erum að sigla í strand. Sjö hundruð sjötíu og sjö sinnum segir Geir og verður svo alvarlegur í augunum, að Gunnar sér að þetta er vonlaust. Hann vindur sér út úr brúnni og fer í léttabát með einkennisstöfum og númeri Sjálfstæðisskútunnar við fjórða mann. Þeir innbyrða í leið- inni þann fimmta, sem hafður hefur verið í togi í mjólkurtrogi síðan í kosningunum. Sá er galvask- ur og hress og skilur það mætavel að Geir er ekki enn búinn að reikna það sjö hundruð sjötíu og sjö sinnum, hvort taka skuli mjólkur- trogið um borð eða skera það aftan úr. Síðan siglir léttabáturinn Gunn- arsstrikið en Geir gamla strikið. Enginn veit enn, hvort Geir ætlar að stranda Sjálfstæðisskútunni eða leggja hart í bak og elta Gunnar. Af því, sem nú hefur verið sagt, má öllum vera ljóst, að undirferlis- ákæran á hendur Gunnari er löð- urmannleg tilraun af hálfu Geirs- manna til að fela eigin bolabrögð, flokksræðislega valdníðslu og rofn- ar sættir. Undirferlisákæran er lúalegt högg undir beltisstað. C. „Gunnar hefur svikið Sjálf- stæðisflokkinn með stjórnarmynd- un sinni." Hvað það snertir, að með ein- hvers konar faríseafræðimennsku væri unnt að renna málamynda- stoðum undir ákæruna um brot á flokkslögum af hendi Gunnars Thoroddsens í sambandi við stjórn- armyndunina, þegar tekið hefur verið tillit til ofríkis og ófyrirleitni Geirsklíkunnar gagnvart honum innan flokksforystunnar, þá hefur almenningsálitið þegar kveðið upp sinn dóm í þeim efnum með hlið- sjón af bolabrögðunum innan Sjálf- stæðisflokksins annars vegar og þjóðarástandinu hins vegar. Dómsorðið er skýrt og skorinort, svo sem vera ber: Nauðsyn brýtur lög. 6. Menn, sem tekið hafa skakkan pól í hæðinni og eru nánast að sigla flokki sínum í strand, skyldu ætla sér af í drembilæti sínu. Flokksræðisprinsarnir, klíku- varðliðarnir og reglufarísearnir í Sjálfstæðisflokknum, sem hrækt hafa ósleitilegast í áttina til Gunn- ars Thoroddsens að undanförnu og látið skína í tennurnar, átta sig væntanlega á því fyrr en síðar, að sendingar þeirra ná ekki hálfa leið að marki, heldur berast fyrir stormi almenningsálitsins og rétt- lætisins til baka í þeirra eigin andlit. Ef þessir menn vilja hafa mín ráð, þá ættu þeir að draga verulega úr þessari munnvatnsframleiðslu sjálfra sín vegna. Þá verður auð- veldara að snyrta sig í tæka tíð og taka sig saman í andlitinu fyrir nánustu framtíð. Morgunblaðið, sem heyktist á því að standa við tilboðið um sögulegar SJÁ NÆSTU SÍÐU Með grein þeirri, sem hér fer á eftir, fylgdi bréf til ritstjóra Morgunblaðsins þar sem segir m.a.: „í þeirri von, að Morgunblaðið sé enn sem fyrr á þeim buxunum að leyfa sem flestum sjónarmiðum að koma fram, sendi ég þessa grein með ósk um birtingu. Mér er það ljóst, að ég bið ekki um lítið, þegar hvort tveggja er haft í huga, lengd greinarinnar annars vegar og efni hennar og innihald hins vegar. Komið hefur fram í máli manna að undanförnu, að flokksráðs- fundurinn á dögunum hafi verið góður öryggisventill til að gefa mönnum kost á að blása út. Þetta er að líkindum rétt metið. En það er bara ekki nóg, að blásið sé út á lokuðum flokksfundi. Hinn almenni flokksmaður verður líka að gæta síns heilsufars í þessum efnum. Þótt meðfylgjandi grein sé kjaftfor, — það viðurkennist vafningalaust, að það er hún, — tel ég ekki óeðlilegt eða ósanngjarnt, að eitthvað hressilegt komi á móti öllum þeim hamagangi, er átt hefur sér stað í blaðinu gegn Gunnari Thoroddsen að undanförnu. En þetta er að sjálfsögðu mín skoðun. Ég er einnig þeirrar trúar, að með því að gefa okkar, sem þið á Morgunblaðinu mynduð að líkindum kalla hina lausari og óstýrilátari aðila innan flokksins, tækifæri til að taka spretti og blása út á síðum blaðsins, tryggi Morgunblaðinu í leiðinni tvennt sjálfu sér til handa, sem því ætti að vera nokkurs virði. Þar á ég við að annars vegar viðvarandi áhrifavald í skoðanamyndun almenn- ings Sjálfstæðisstefnunni til góða, og hins vegar áframhaldandi hlutverk baðstofunnar mitt í dagsins önn. Þetta finnst mér að verði að hafa sinn gang, enda þótt einhverjar orðahnútur kunni af og til að hrjóta að fótum blaðsins sjálfs í hita umræðunnar. Morgunblaðið má með öðrum orðum aldrei verða orðsjúkt, og hefur enda ekki verið það til þessa, eftir því sem ég hef litið til. Þessi ræða mín er ekki einvörðungu flutt til að greiða meðfylgjandi grein götu, heldur hef ég víðara samhengi í huga. Ég er þeirrar trúar, að Sjálfstæðisflokkurinn komist til góðrar heilsu á ný fyrr en síðar. Þau ónot, sem gripið hafa um sig í bili eru ekki hættuleg meinsemd, miklu trúlegra að það séu vaxtarverkir. Frjáls og hispurslaus umræða innan flokksins mun smám saman hreinsa loftið og stuðla að sátt og einingu að nýju.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.