Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 37

Morgunblaðið - 04.03.1980, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MANUDEGI TIL FOSTUDAGS sölu og neyslu, til að reyna að vernda einstaklinga og almenning frá því ægilega böli, sem neysla slíkra efna hefur í för með sér. Ef rétt stefna væri ríkjandi meðal þjóðarinnar, mundi hver einstakur hafa vit og vilja til að láta ekki leiða sig í þær hættur, sem neysla áfengis og eiturlyfja hefur í för með sér. Og það er auðvitað sú stefna, sem verður að sigra, ef ekki á illa að fara. En meðan svo er ekki, verður að berjast ötullega gegn þessum hættulegu efnum og brýna fyrir mönnum ógnir þær, sem af þeim stafa, í stað þess að stuðla að neyslu þeirra. I. A. • Hefði socialisminn farist? Mér krossbrá, er ég sá leikskrá frá einum skóla í Reykjavík því þar var mynd af banhungruðu barni, og átti mynd- in að túlka illa stjórn í heiminum. Víst er það þroskandi að vekja meðaumkun með meðbræðrum, en er ekki líka nauðsynlegt að leita að orsökinni fyrir ástandinu. Það hlýtur að hafa haft áhrif á matvælaframleiðsluna í heimin- um, þegar sócialisminn lagði undir sig bestu landbúnaðarlönd Evrópu og lagði þar með í rúst landbúnað- inn. Ungverjar skyldu iðnvæðast og þá urðu þeir að fá málmgrýti frá Kína. Það var ekki allt prakt- iskt, sem Stalin lagði til. Bresnev dundaði við að útrýma bændum frá Úkraínu, þegar hann var að læra og dóu 614 millj. og landbún- aður hefur verið stundaður víðar í Rússlandi. Samyrkjubúin hafa reynst illa og Trotský var myrtur, vegna þess að hann trúði ekki á þau. Lengi vel fengu bændur að hafa 8% af landinu fyrir sig og útkoman varð sú, að bændur skiluðu 40% af heildarframleiðslu, en hin 92% skiluðu bara 60%. Þrátt fyrir þetta má ekki hrófla við samyrkjubúskapnum, því að eftir kokkabókum Marx eiga hlut- irnir að ganga. Fyrir tveimur árum skoðaði landbúnaðarnefnd frá Kanada ástandið í þessum málum í Rúss- landi og þeir sögðu, að 25 landbún- aðarverkamenn framleiddu ekki meira en 1 slíkur í Bandaríkjun- um, 17 þyrfti á móti einum í Kanada. Þeir ganga líka í Rúss- landi þessir brandarar: „Veistu hvað gerðist þegar Krusjoff sáði maísnum? — „Hann uppskar hveiti frá Bandaríkjunum." „Hvenær er flokkurinn til hægri?" — „Það er þegar svolítið er til að borða í sveitunum, þegar hann er til vinstri þá er ekkert til í sveitunum, en smáhungurlús í borgum. Þegar flokkurinn er upp á sitt besta, þá er ekkert til, hvorki í borg né sveitum." Þessi sem var að rengja Búkovský hefði átt að hlusta. Maður hefur lesið um pyntingarnar í geðveikrahælunum og aðbúnaðinn í fangabúðunum, svo manni brá ekki mjög mikið, en þegar hann lýsti skortinum og það með að þegar Bandaríkjamenn út á þessa nok sagt slökunarstefnu, sem Rússar halda þannig, að því meira sem þeir fá frá hinum frjálsa heimi, því verri verða þeir sjálfir í ofsóknum og færa sig meira upp á skaftið sbr. Afganist- an, þá seldu þeir gjafakortið á okurverði til Angola og Kúbu, því þar er auðvitað skorturinn, en almenningurinn í Rússlandi svelti áfram. Þessu mun ég aldrei gleyma. Maður sýnir best mann- kærleikann,- með því að berjast á móti sócialismanum, því hann er eins og hesturinn hans Atla, það grær ekki gras í sporunum hans. í tilefni skákmótsins í Reykjavík langar mig til að spyrja að því, hvort sócialisminn í Rúss- landi hefði farist og undirskrift Breznevs að Helsinkisáttmálanum hefði beðið hnekki, ef kona og sonur Kortsnois hefðu fengið hið langþráða frelsi. Húsmóðir Þessir hringdu . . . • Mislukkuð æfing „Mér krossbrá, þegar ég heyrði viðtalið hans Ómars Ragn- arssonar við meðlimi Flugbjörg- unarsveitarinnar sunnudaginn 24. febr. í sjónvarpinu. Mér skildist að mannskapurinn hefði verið kom- inn að því að farast úr kulda og vosbúð hérna rétt fyrir utan bæjarlækinn. Á sama tíma og sjómennirnir okkar geta verið úti á reginballarhafi í stormi, rign- ingu og pusandi ágjöfum dögum og vikum saman án þess að vökna, nema þá helst ef áhuginn er það mikill fyrir vinnunni að þeim gefist ekki tími til að kasta vatni á venjulegan máta en láta það renna innanklæða niður í sokkana sína. Ég spyr: Átti þetta viðtal, að vera brandari ársins 1980 eða á maður að trúa því, að björgunar- sveit sem gefur sig í það að bjarga öðrum, kunni ekki að búa sig út í votviðri og það að vetri til. Mikið þarfaverk ynni sjóklæðagerð, ef hún gæfi þessari ágætu björgun- arsveit hlífðarföt svo þjóðin þurfi ekki að eiga það á hættu að þessir menn farist einhvern daginn úr vosbúð og kulda fyrir klæðaleysi. HÖGNI HREKKVÍSI . H'/A9EZt\>Lr MÉÐ HANOA Mtd V. " Kjólaútsala barna- og dömupeysur, prjónabútar í kjóla og peysur, allt á óvenju hagstæöu veröi. Nýtt og fjölbreytt úrval af kvöld- og dagkjólum. Þaö borgar sig aö líta inn. Næg bílastæöi. Verksmiöjuútsalan — Brautarholti 22. Inngangur frá Nóatúni gegnt Þórscafé. Kantlímdar - smíðaplötur (Hobby-plötur) fyrir fagmenn og leikmenn. s Þónlagöar n,®0 KOTO- "Whösny-, eikar furuspSn,- Tf,Va,,d « skápa eldhÚ8inn- réttlngaamída. Hvítar plast- hillur ■ breidd. 244 cni i lengd. Hurðir á fata- skápa m°ö eikar- •P»ni, til- búnar undir *skk og bæs. Plast- lagdar hillur leak mahogany- °0 luruvið ■rtíki. 60 cn 6 breidd 00 244 cm á lengd. til- valið i akápa 09 hillur. KROSSVIÐUR SPÓNAPLÖTUR VIÐARÞILJUR, n lrtniiiliii á gömlu lágu verði IBJORNINN Skúlatúni 4. Sími 251 50. Reykjavík I Við erum aðeins að rýma fyrir nýjum birgðum á gólfteppum og bútum AFSLATTUR STENDUR I NOKKRA DAGA Tepprlrnd GRENSÁSVEGI13 Simar 83577 og 83430

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.