Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980 EIMSKIP * Smíði 30 parhúsa að ljúka Kosta tæpar 30 milljónir A VEGUM Framkvæmdanefndar byggingaráætlunar er um þessar mundir verið að ljúka smíði 30 íbúða í parhúsum. en hér er um að ræða lokaáfanga framkvæmda nefndarinnar og íbúðir þessar smíðaðar m.a. til að fá verðmis- mun á íbúðum í parhúsum og fjölbýlishúsum. Er þetta síðasta verkefni F.b. og og sagði Eyjólf- ur K. Sigurjónsson formaður nefndarinnar, er húsin voru sýnd á dögunum, að hlutverki hennar skv. lögunum væri nú lokið. Framkvæmdir við húsin, sem eru við Háberg og Hamraberg í Hólahverfi í Reykjavík, hófust árið 1978 og er söluverð íbúðanna 29,8 milljónir króna, sem er um 20% hærra verð en á sambæri- legum íbúðum. sem nefndin hefur byggt í fjölbýlishúsum. Hver íbúð er 103 fermetrar og er þeim skilað fullfrágengnum, eikarparket á gólfum, nema dúklögð í anddyri og baði og loft og veggir tvímáluð. Þá eru húsin fullfrágengin að utan. Kaupverð skal greiðast þannig að 10% greiðist fyrir afhendingu, á næstu 2 árum önnur 10%, en 80% kaupverðs lánar Húsnæðismála- stofnun til 33 ára með 2% vöxtum og fullri vísitölubindingu. Ibúðir þessar á að selja láglaunafólki, meðlimum í verkalýðsfélögum eða iðnnemum og skulu þeir sitja fyrir, sem ekki hafa á sl. 2 árum átt viðunandi íbúð og eru með stóra fjölskyldu. Framkvæmdanefnd byggingar- áætlunar hóf starfsemi sína í framhaldi af yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar árið 1965 um að hún láti reisa 1.250 íbúðir í Reykjavík og verði með þeim gerð tilraun til að lækka byggingakostnað með fjöldaframleiðsluaðferðum og verði þær notaðar til að útrýma heilsuspillandi húsnæði. Sem fyrr segir eru parhúsin lokaverkefni F.b. nema hvað unnið er nú að byggingu menningarmiðstöðvar í samvinnu við Reykjavikurborg. Samþykkt var árið 1978 að fyrn- ingarsjóði F.b. skyldi ráðstafa i þá byggingu, sem er í Breiðholts- hverfi, en í dag er sjóður þessi yfir 400 m.kr. með vöxtum. Grunnur og botnplata eru tilbúin og eru útboðsgögn til og verður framhald byggingarinnar boðið út þegar endanlegt samþykki borgarstjórn- ar liggur fyrir, sennilega í þessum mánuði. Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar á lóðinni við parhúsin í Hólahverfinu, frá vinstri: Rikharður Steinbergsson verkfræðingur, sem er framkvæmdastjóri F.b„ Gísli Halldórsson arkitekt, Ingólfur Finnbogason framkvæmdastjóri, Eyjólfur K. Sigurjónsson endurskoð- andi, formaður, Guðmundur J. Guðmundsson alþingismaður og óskar Hallgrimsson framkvæmdastjóri. Hafnað að nota þorskveiði- bann til að lengja hafnarfrí „SÚ HUGMYND kom up hjá sjó- mönnum á ísafirði, að hugsanlega mætti nýta óráðstöfuð þorskveiði- bonn með einhverjum hætti til að koma til móts við kröfu sjómanna um aukin hafnarfri, til dæmis með sex tíma viðbót við gildandi hafn- arfrí,“ sagði Grímur Jónsson, einn samningamanna Alþýðusambands Vestfjarða, þegar Mbl. hafði sam- band við hann i gærkvöldi. Þeir Gunnar Þórðarson, formaður Sjómannafélags ísfirðinga, og Grímur áttu fundi í gær og i fyrradag með Steingrími Her- mannssyni, sjávarútvegsráðherra, þar sem þeir reifuðu hugmyndir um nýtingu óráðstafaðra þorsk- veiðibanna til að ná fram 30 stund ahafnarfríi, sem er ein af helstu kröfum Sjómannafélags ísfirðinga. Hafnarfrí þar er nú 24 stundir. „Við gerðum okkur vonir um, að þetta gæti leitt til þess, að eitt stærsta og erfiðasta ágreiningsmál í deilu okkar við útgerðarmenn leyst- ist á þann hátt, að báðir gætu við unað,“ sagði Grímur ennfremur og hélt áfram: „Við fengum góðar undir- tektir hjá Steingrími Hermannssyni, sjávarútvegsráðherra, og einnig fengum við góðar undirtektir hjá Óskari Vigfússyni, formanni Sjómannasambands íslands. Það sem síðar gerðist í þessu máli mun vera það, að vegna harðrar andstöðu LÍÚ og Óskars Vigfússonar sem virðis hafa snúist hugur, náði málið ekki fram að ganga. Hér var um að ræða hugmynd, sem ekki er alfarið ný af nálinni og hefði að okkar mati flýtt fyir væntanlegum samningum Sjómannasambands íslands." Alþýðusamband Vestfjarða hefur óskað eftir fundi með sáttasemjara, en sá fundur hefur ekki verið dag- settur. Minkalæðurnar fluttar frá borði á Akureyrarflugvelli. Ljósmynd Mbl. Pálmar Gunnarsson. 250 minkalæður til Grenivíkur Grenivík, 18. apríl. UM klukkan þrjú í nótt lenti á Akureyrarflugvelli flugvél frá Iscargo með 250 minkalæður innanborðs. Læðurnar fara að refa- og minkabúinu að Lóma- tjörn í Grýtubakkahreppi. Þetta eru fyrstu minkalæð- urnar sem keyptar eru að Lóma- tjörn en þær eru af amerískum stofni, en koma frá Refa- og minkabúinu Dalchomziemink Farm í Skotlandi. Búið er að para læðurnar þannig að þær eiga að gjóta eftir um það bil 2—3 vikur. Fyrir eru í búinu um 30 refir og var unnið við það í gær að para þá og er fjölgunar að vænta hjá þeim um 20. maí. Tilraunarefaræktin hefur gengið vel hjá búunum í Eyja- firði en þó hefur komið upp hjá Grávöru hf. á Grenivík „Alli- sonsveiki", sem veldur ófrjósemi, og hefur nokkrum minkum þegar verið slátrað af þeim sökum. Eigendur búsins að Lómatjörn eru bræðurnir Heimir og Jóhann Ingólfssynir og Arfit Kro. Mikil viðhöfn var á flugvellin- um þegar minkarnir komu m.a. vopnaðir lögreglumenn og eig- endur búsins. Minkarnir voru fluttir frá flugvellinum með flutningabíl að Lómatjörn, þar sem þeirra bíða ný heimkynni. — Vigdís. Húnavaka að hefjast HÚNAVAKA, hin árlega skemmti- og fræðsluvaka Ung- mennasambands Austur-Hún- vetninga, hefst að þessu sinni þriðjudaginn 22. apríl og stendur til sunnudags. Að þessu sinni sýnir Leikfélag Blönduóss Skáld-Rósu á Húnavök- unni. Ragnheiður Steindórsdóttir leikstýrir verkinu og leikur Rósu. Með önnur helstu hlutverk fara Þórhallur Jósefsson sem leikur Natan og Sveinn Kjartansson sem leikur Ólaf. Leikritið verður frum- sýnt á Blönduósi laugardagskvöld- ið 19. apríl en á Húnavöku verða sýningar á þriðjudags: og mið- vikudagskvöld kl. 20. Á fimmtu- dagskvöld kl. 19.30 og á laugardag kl. 17. Kl. 14 á sumardaginn fyrsta verður sumarskemmtun í Barna- skólanum á Blönduósi. Að sumar- skemmtuninni lokinni verður dansleikur sérstaklega ætlaður börnum innan við 12 ára aldur. Ungmennasambandið gengst fyrir dagskrá kl. 17 á föstudag, sem verður sniðin við hæfi barna og unglinga. Þar mun Ómar Ragn- arsson skemmta og ungmennafé- lagar í sýslunni sýna leikþætti og ýmislegt fleira. Söngvararnir Elín Sigurvins- dóttir, Rut L. Magnússon, Frið- björn Jónsson og Halldór Vil- helmsson syngja einsöng, tvísöng og kvartettsöng við undirleik Jón- asar Ingimundarsonar á laugar- daginn en þau koma á Húnavök- una í boði Tónlistarfélags Aust- ur-Húnavatnssýslu. Á föstudag verður húsbænda- vaka en meðal gesta þar verða Halldór E. Sigurðsson fyrrv. ráð- herra og Ómar Ragnarsson. Tvær myndlistasýningar verða á Húnavöku, Gunnlaugur Schev- ing sýnir vatnslitamyndir og Steingrímur Sigurðsson sýnir olíu, vatnslita-, pastel- og kolkrítar- myndir og teikningar. Fyrsti dans Húnavöku verður að kvöldi síðasta vetrardags, á sumardaginn fyrsta verður ungl- ingadansleikur, en á föstudags- og laugardagskvöld verða almennir dansleikir. Leiðrétting ERLA Sesselja Jónsdóttir, Jörfa- bakka 30, sem er skráð meðal fermingarbarna í Breiðholtssókn í dag, verður fermd nk. sunnudag 27. apríl. . - Ragnheiður Steindórsdóttir og Þórhallur Jósefsson í hlutverkum sínum í Skáld-Rósu sem Leikfélag Blönduóss sýnir á Húnavöku. Stjórnin Aóalfundur Aðalfundur H.f. Eimskipafélags íslands verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn 2. maí 1980, kl. 13.30. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein samþykkta félagsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins samkvæmt 15. grein sam- þykktanna. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, 25. til 30. apríl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.