Morgunblaðið - 20.04.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980
7
Umsjón: Gísli Jónsson
45. þáttur
Valgarður Egilsson í
Reykjavík skrifar mér svo:
„Ég vona að þáttur þinn í
Morgunblaðinu þoli smágrín,
— þótt nokkur alvara fylgi
... Ég á reyndar meira grín í
pokahorni, en ég skammta
smátt ennþá.“ Kemur þá
meginefni bréfsins: „Nefnd
fjallar um samræmingu
móðurmálskennslu á fram-
haldsskólastigum. Miðstýr-
ingar er þörf. Málið er flókið.
Málið þarf að samræma.
Málið mætti tölvuhæfa.
Hvað um starfsheiti?
Fyrir eru í málinu orð eins
og nýliði, nýr maður til
starfs, og sjúkraliði. Má ekki
sjómaður heita hafliði og
vetrarmaður veturliði. Eða
kaupamaður á sumri sumar-
liði og þá afreksmaður sigur-
liði? Eftirlaunamaður elliði,
hermaður illiði, starfsmaður
á Gefjun ulliði, úrsmiður
úrliði, . kapítalisti auðliði,
kommúnisti rauðliði, ótrygg-
ur sambýlismaður þriliði,
aflraunamaður ofurliði, óður
maður brjáliði, sjúklingur
þjáliði, fjölmiðlafræðingur
tjáliði, fótsnyrtingarstarfs-
kraftur táliði?“
Um þetta „smágrín" ræði
ég ekki frekar að sinni, en í
bréfi þessu kemur fram að
höfundur kann að beygja
orðið Gefjun, en á því hefur
verið talsverður misbrestur
um sinn meðal fólks og á það
sér sína skýringu.
Tvær af verksmiðjum
Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga á Akureyri heita
Gefjun og Iðunn í höfuðið á
fornum gyðjum. Enda þótt
endingar orðanna hljómi
eins, hafa þessi orð beygst
sitt með hvoru móti. Iðunn
beygist eins og kvennanöfn
með endingunni -unn, svo
sem Þórunn og Steinunn.
Hefur það þá tvö n í öllum
föllum og samsetningum.
Menn vinna á Iðunni og
ganga í Iðunnarskóm.
Orðið Gefjun fyllir hins
vegar þann flokk kvenkyns-
orða sem myndast oft með
endingunni -un af samsvar-
andi sögnum, t.d. skoðun,
ræktun og myndun. Þessi orð
hafa eitt n í öllum föllum og
öllum samsetningum. Því
þykir rétt að segja að maður
vinni á Gefjun, efnið sé frá
klæðaverksmiðjunni Gefjun
eða maðurinn gangi í Gefj-
unarfötum.
Hver dregur dám af sínum
sessunaut, og svipað fer um
orðin. Eitt lagar sig eftir
öðru, og kallast það áhrifs-
breyting (analogia) á máli
fræðanna. Einhvern veginn
hefur það farið svo í verk-
smiðjunábýlinu á Akureyri,
að Iðunn hefur orðið sterkari
en Gefjun. Kemur þetta
þannig út, að sagt er um
einhvern að hann vinni á
Gefjunni. Ég hef ekki orðið
var við áhrifsbreytingu á
hinn veginn, að sagt sé að
einhver vinni á Iðun. Niður-
staðan er sú að réttast sé að
halda þessu í sundur, beygja
orðin Gefjun og Iðunn hvort
með sínu lagi, Gefjun eins og
t.d. boðun og vitrun, en
Iðunn eins og Jórunn og
Sæunn.
Valgerður Björnsdóttir á
Akureyri hringdi til mín og
líkaði að vonum ekki vel að
hafa heyrt prest tala um að
skíra krakka í útvarpsvið-
tali. Að sjálfsögðu vildi hún
tala um að skíra börn. Það er
rétt að minnkunarmerking
en gamalgróin í orðinu
krakki. Hitt er annað að sú
merking hefur mjög dofnað í
áranna rás, þannig að í öllu
daglegu tali er krakki ekkert
smánaryrði, en virðulegt get-
ur það ekki talist né sam-
rýmast svo hátíðlegri athöfn
sem skrírninni.
Orðið krakki er trúlega
skylt orðinu kraki = stöng,
rengla; lítill, rindilslegur
maður. Orðið var frægt af
konungi þeim sem fékk það
að viðurnefni af því að Vögg-
ur, sem komið hafði til að
líta tign Hrólfs konungs í
Hleiðru, varð undrandi er
hann sá að í hásætinu sat
kraki einn lítill, þar sem
hann hafði búist við stór-
menni. Hrólfur konungur
misvirti ekki hreinskilni
Vöggs, en þar sem hann lét
örvænt að Vöggur hefði efni
á að gefa sér fé að nafnfesti,
þá gaf hann Vögg gullhring
fyrir nafnið kraki. Vöggur
lofaði konung mjög og vildi
hefna hans, ef svo bæri
undir. Mælti þá Hrólfur það
sem oft hefur verið eftir
haft: „Litlu verður Vöggur
feginn."
Valgarður og Valgerður
eru falleg nöfn og myndarleg
og samsvara hvort öðru. Ein-
kennilegt er að ósamsetta
myndin, Garður, hefur týnst
sem karlmannsnafn, en
ósamsetta kvenmyndin Gerð-
ur orðið lífseigt og mjög
vinsælt nafn. Orðin merkja
að sjálfsögðu sá eða sú sem
veitir skjól, verndar eða
hlífir, og er sú merking
algeng í mannanöfnum.
Um forliðinn Val- er meiri
vafi og eru þar skýringar
fleiri en ein og fleiri en tvær.
Einhvern veginn finnst mér
nærtækast og masminnst að
setja þetta í samband við
sögnina að velja. Val- í
mannanöfnum merkir þá úr-
val eða ágæti.
Austurstræti 7 Eftir lokun
Gunnar Björns. 38119
Sig. Sigfús. 30008
Háaleitisbraut
3ja herb. íbúö á 4. hæð á einum
besta staö við Háaleitisbraut,
bílskúrsréttur fylgir.
Langholtsvegur
4ra herb. risíbúö 2 stofur 2
svefnh. söluverð 30 millj. íbúðin
er laus strax.
Vesturberg
4ra herb. á 3ju hæð vönduö
íbúð söluverð 33 til 35 millj.
Vesturbær
4ra herb. á fyrstu hæð góð íbúö
söluverð 33 til 35 millj.
Grettísgata
3ja herb. mjög glæsileg íbúð.
íbúöin hefur verið innréttuð að
nýju, allar innréttingar tæki og á
gólf, allt mjög vandaö.
Þessi íbúö selst í skiptum fyrir
2ja herb. íbúð eða beinni sölu.
Garðhús — Hraunbæ
húsið er stofur 4 svefnh. nýr
bflskúr með kjallara undir. Til
greina kemur að taka íbúð uppí.
Höfum kaupendur að öllum
stærðum eigna.
Kristján Þorsteinsson
viöskiptafr.
Miöbæjarmarkaöurinn
Aðalstræti 9
sími: 29277 (3 línur)
Grétar Haraldsson hrl.
Bjarni Jónsson s. 20134.
Opið í dag kl. 1—3.
Garðabær einbýli
Falleg 130 fm. einbýlishús úr timbri. Stór bflskúr fylgir. Mjög
falleg vel ræktuð lóð. Bein sala eða skipti á 120—130 fm góðri
íbúð í Reykjavík.
Hæö og ris í Noröurmýri
Einstaklega falleg 140 fm sér efri hæö ásamt risi, sem í eru m.a.
3 svefnherb. Bftskúr fylgir. Eign þessi er í algjörum sérflokki.
Smáíbúðahverfi 4ra herb.
100 fm úrvals íbúö í 10 ára gömlu húsi. Mikil og góö sameign.
Verð 37 millj.
Raöhús viö Miklatún
Endaraöhús 3x75 fm. Bein sala.
Fossvogur einbýlishús
200 fm úrvals einbýlishús ásamt stórum tvöföldum bflskúr.
Ránargata 2ja herb.
Ósamþykkt kjallaraíbúö. Verð 12 millj. Útb. 8 millj.
Hverfisgata 3ja herb.
íbúðin selst tilb. undir tréverk og málningu og er til afhendingar
mjög fljótlega. Verö 19,6 millj.
Raöhús óskast
fyrir mjög fjársterkan kaupanda.
3ja herb. íbúö óskast
í Fossvogi eða öðrum góöum stað í borginni. Hröð og góð útb.
82744
Opiö í dag 1—4
82744
Opið í dag 1—4
HRAUNBÆR 90FM
3ja herbergja íbúð ásamt auka-
herb. í kjallara. Parkett og ný
teppi á gólfum. Vestursvalir.
Verð 33 millj. Útb. 24 millj.
HRAUNTEIGUR 90 FM
3ja herbergja (búð í samþykkt- _
um kjallara. Sér inngangur og
sér hiti. Verö 26 millj. Útb. 20
millj.
KRÍUHÓLAR 85 FM
3ja herbergja ágæt íbúð á 3.
hæð í lyftuhúsi. Frystiklefi í kj.
Bein sala. Verð 27—28 millj.
ÁSBÚÐ KÓP.
4ra herbergja íbúð með s.svöl-
um.
FLÚÐASEL 110 FM
Ný 4ra herb. íbúð á 2. hæð í
blokk með sér þvottahúsj. Björt
endaíbúð. Verð 38 millj. Útb. 28
millj.
HRAUNBÆR 110 FM
4ra herbergja íbúð á 2. hæð.
Suöur svalir. Gott skápapláss.
Verð 37 millj. Útb. 28 millj.
ENGJASEL 110 FM
Rúmgóð 4ra herb. íbúð á 1.
hæð Þvottahús og ,búr innaf
eldhúsi. Laus skv. samkl. Verö
36 millj.
HÆÐARGARÐUR
125 FM
Raöhús í húsaþyrpingunni á
horni Hæðagarðs og Grensás-
vegar er til sölu. Allt nýtt
innandyra og vandað að öllum
frágangi. Arinn í stofu. Sér
inngangur. Bein sala. Verð
53—55 millj. Útb. 40 millj.
FJARÐARÁS
FOKHELT
Éinbýlishús á eignarlóð, tilbúiö
til afhendingar. Teikningar á
skrifstofunni. Innbyggður
bilskúr. Beðið eftir húsnæðis-
málastjórnarláni. Verð 45 millj.
HRAUNBÆR 120 FM
4—5 herb. íbúð á 3. hæð efst í
Hraunbænum. Suöursvalir.
Stórar stofur. Bein sala. Verö
41 millj. Útb. 32 millj.
LINDARBRAUT
SELTJARNARNES
116 ferm 4ra herb. íbúð á
jaröhæö í þríbýlishúsi með sér
inngangi og sér þvottahúsi. Sér
hiti, danfoss. Getur losnað
fljótt. Bein sala. Verð 35—36
millj.
VESTURBERG 107 FM
4ra herbergja íbúö á 2. hæð. 3
svefnherö., stofa og stórt hol,
eldhús og stórt baðherb. meö
tengingum fyrir þvottavél. Bein
sala. Verð 35—36 millj. Útb. 27
millj.
HRAUNBÆR 108 FM
4ra herb. íbúð á 3. hæö. Sér
þvottahús. Búr innaf eldhúsi.
Góð íbúð. Verð 38—39 millj.
Útb. 29 millj.
REYKJABYGGO
MOSFELLSSVEIT
Einbýlishús rúmlega tilbúið
undir tréverk. Verð 55 millj.
HRINGBRAUT HAFN:
3ja herb. neðri hæð í tvíbýli, sér
inngangur. nýjar innréttingar á
baði og í eldhúsi. Verð: 26 millj.
HRAUNBÆR 118 FM
3—4 herb. íbúð á efstu hæö í
blokk. Tilbúin undir tréverk.
Þvottahús á hæðinni. íbúðar-
hæf. Verð 29—30 millj. Laus
strax.
NEÐRA BREIÐHOLT
240 FM
Tæplega fullklárað raðhús með
5 svefnherbergjum fæst í skipt-
um fyrir hæð t.d. í Hlíðum eða
góöa 5 herbergja í blokk við
Háaleiti.
STÓRAGERÐI 110 FM
4ra herb. endaíbúð á 4. hæð
laus strax. Verð 38 millj.
KLEPPSVEGUR
4ra herbergja íbúð á 3. hæð
með sér þvottahúsi og aukaher-
bergi í kjallara með sér snyrt-
ingu. Laus strax. Verð 38 millj.
Útb. 28 millj.
j ÁLFHEIMAR 120 FM
J 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í
* blokk. Bílskúrsréttur. Bein sala.
( Verð 38 millj.
FAXATÚN GARÐABÆ
Mjög fallegt 130 ferm einbýlis-
hús. Nýlegar innréttingar.
Bflskúr, falleg lóö. Skipti koma
til greinaá 4—5 herbergja sér-
hæð í austurbæ Reykjavíkur.
Verð 57 millj.
ÞÓRSGATA
3ja herb. mjög snyrtileg íbúð á
2. hæð í góöu eldra steinhúsi.
Nýleg eldhúsinnrétting. Nýl.
tvöf. gler. Verð 25 millj. Útb. 19
millj.
ENGJASEL
Rúmgóð 3ja herb. íbúð á 3.
hæð góðar innréttingar. Laus
skv. samkl. Fullfrágengiö
bflskýli. Verð 33 millj. Útb. 26
millj.
LEIFSGATA 100 FM
Rúmgóð 4ra herb. hæð í þríbýl-
ishúsi. Fallegur garður. Laus
fljótlega. Verð 37 millj.
ÁLFHÓLSVEGUR
SÉRHÆÐ
140 ferm. 6 herbergja efri hæð í
þríbýlishúsi ásamt fokheldum
bflskúr. Frábært útsýni. Allt sér.
Verð 55 millj. Útb. 42 millj.
HELGALAND
MOSF.SVEIT
Sérlega vandað 127 fm einbýl-
ishús meö 35 fm. bflskúr. Góðar
innréttingar. Möguleg skipti á
raöhúsi í Mosf.sveit.
VESTURBERG 109 FM
Rúmgóð 4ra herb. íbúð á 3.
hæð. laus skv. samkl.
VESTURBÆR
5 herb. falleg íbúð á 4. hæð við
Kaplaskjólsveg fæst í skiptum
fyrir rúmgóða 3ja herb. íbúð í
Austurbæ Reykjav. Æskileg
hverfi: Fossvogur eða Háaleiti.
LINDARBRAUT SELTJ.
Sérlega rúmgóð og glæsileg 2ja
herb. íbúð tilb. u. tréverk.
afhendist 01.06. ’80. Sér inn-
gangur. Stór bflskúr. Teikn. á
skrifst.
KRÍUHÓLAR 65 FM
Ágæt 2ja herbergja íbúð á 2.
hæð í blokk. ailt nýlega málað
og snyrt. Verð 24 millj. Útb. 18
millj.
ÞORLÁKSHÖFN
Einbýlishús úr timbri með
steyptum bflskúr við Lísuberg.
Möguleg skipti á húsi í Stór-
Reykjavík. Verð 33—35 millj.
GARÐYRKJUBÝLI Á
SUÐURLANDI
Til sölu er garðyrkjubýli ásamt
söluskála í fullum rekstri og til
afhendingar strax. Miklir mögu-
leikar fyrir réttan mann. Skipti á
íbúð eða húsi í Reykjavík æski-
leg. Teikningar og nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni.
LAUFÁS
. GRENSÁSVEGI22-24
|^^_0JTAVERSHÚSINU 3.HÆÐ) ^
Guömunduc Reykjalín, viösk.fr.
LAUFÁS
GRENSASVEGI22-24
^ (LITAVERSHÚSINU 3.H/EÐ)
Guömundur Reykialín, viösk tr.
y