Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980 „Er alveg trylltur Ikon sem rússneskur drenííur bauð Lárusi undir borð á hóteli í Leningrad í fyrra, allur málmsleKÍnn og fagurlega gerður. tjöldum. Þarna vann ágætis fólk og það var gott að vinna þarna, flínkir menn i hverri stöðu. Ég kom svo heim eftir að hafa unnið við eitt og annað í Danmörku í eitt ár og tók til starfa hjá Iðnó, fór beint i leiktjöldin og þá fékk ég aðstöðu til þess í kjallara Þjóð- leikhússins. Þar var allt óupphitað og ég fékk sjokk þegar ég sá aðstöðuna sem ég átti að búa við miðað við það sem hafði verið hjá Konunglega. En það varð að tjalda því sem til var og ég reyndi að hita upp með olíuofnum. Ékkert vatn var í húsinu og ég varð að sækja það út í Sanitashús. Þetta var svo sem ekki björgulegt en gekk. Svo kom herinn og þá fór nú að kárna gamanið, því þeir tóku af mér vinnustofuna. Það varð ,iú reynd- ar hálf spaugilegt. Fyrst fékk ég að vinna í húsinu eftir að þeir lögðu það undir sig með því að hafa passa með mynd af mér, en svo kom að því að mér var boðið í fína boðsferð og kynnisferð til Bretlands ásamt fólki frá ýmsum löndum og það var British Couns- il. Þetta voru leikhúsferðir og sitthvað í mínu fagi og maður hugsaði gott til glóðarinnar þegar heim kæmi úr þessari ágætu ferð til Bretlands, en þegar ég kom heim aftur voru þeir búnir að taka af mér vinnustofuna, helvítis Bretarnir. Þetta var árið 1940. Bjóða manni í glæsilegt ferðalag, en hirða svo af manni vinnustof- una. Ég fékk svo inni í geymslu- húsi bak við Naust og þar var ég þangað til ég fékk aðstöðuna í Þjóðleikhúsinu aftur þegar stríðið var búið. Ég var svo ráðinn að Þjóðleikhúsinu 1949 og þá var aðstaöan bætt, en það var þröngt. það var feiknalega mikið að gera þessa daga þegar verið var að koma húsinu í stand fyrir leik- í helgimyndir44 „Fyrsta íkoninn fékk ég að gjöf og síðan hef ég verið brjálaður í þessar helgimyndir. Þetta var í Kaupmannahöfn í upphafi fjórða áratug- arins. Ég hjálpaði til við að setja upp kabarett fyrir rússnesku kirkjuna þar og ég var eiginlega sá eini sem var ekki Rússi í uppfærslunni. Síðan hef ég keypt mikið af þessum sérstæðu helgimyndum í Finnlandi, Rússlandi, Eistlandi og víðar, en líklega á ég eitthvað um 20 íkona, þá elztu frá 16. öld.“ Við erum í heimsókn hjá Lárusi Ingólfssyni leiktjaldamálara og leikara, en á heimili hans á Bergstaðastræti 68 er margt sér- kennilegra og fagurra muna í austrænum stíl. Um þessar mund- ir eru 50 ár síðan Lárus lék fyrst í Iðnó í leikritinu Flónið sem Ind- riði Waage leikstýrði. Þá lék Lárus í flestum fyrstu revíunum og auðvitað flettaðist leiklist inn í spjall okkar í fyrradag þótt ætlun- in væri að rabba um rússnesku helgimyndirnar sem heita íkonar. „Fyrsta leikritið, sem ég lék í á fjölunum í Iðnó var frumsýnt á jólakvöldi. Það var mjög hátíðlegt, en líka fyndið man ég. Haraldur okkar Á. lék djákna og þar kom að djákninn segir við prestinn: „Það er maður hérna fyrir utan sem vill tala við yður, ég held að hann sé Gyðingur." „Hver hefur nokkru sinni heyrt talað um fátækan Gyðing?“ svar- ar klerkur. „Jú, Bernburg," svaraði Halli þá á sinn sérstæða hátt og allur salurinn sprakk af hlátri. Þetta var að sjálfsögðu ekki í rullunni, en allir vissu hver Bernburg var. Hann spilaði á fiðlu á Hótel Island í gamla daga, en var afskaplega fátækur og það vissu allir. Hann var andskoti góður fiðluleikari, kallinn, spilaði á öllum böllum og var mjög popular." „Hvenær fórstu til Kaupmanna- hafnar?" „Ég fór fyrir 1930 og var ráðinn til Konunglega leikhússins að Nýja sviðinu 1929. Þar vann ég síðan til 1932 þegar það var lagt niður vegna kreppunnar sem olli miklu atvinnuleysi og vanda. Þar hafði ég unnið við það að teikna búninga og gera módel af leik- Lárus Ingólfsson Guðsmóðirin og Jesú i Austur-Evrópskum ikon, helgi- myndum Austur-Evrópsku kirkjunnar, en nú er t.d. búið að banna dreifingu á ikonum i Rússlandi þar sem það er ekki þóknanlegt stjórnvöldum. Málmsleginn ikon með málaðri mynd í bakgrunni, en oft eru ikonarnir upphleyptir með málaðri mynd af andliti, höndum og stundum hjarta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.