Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 21

Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980 21 húvitaiifi SfHHEIIISCHí liEfi.tVBTSCUAD ARBBXTSBKSCHEIHIOOSC M* Kgl.sehwedlsche SesaíuUschaTt he- *«helBlgt hi««lt,da»* Frl. A S n e • Mandl fcel der a«patrlleru«gBS.bteilung der Oe. schaft ood dee Sehwedlachen Ratan Kreusea atdadls* Arbelt leietet. Bodapeat.danU: .Ah£U«t 1944. Agnes Mandl er ein þeirra tugþúsunda Gyðinga sem á líf sitt að þakka vegabréfi útgefnu af Wallen- berg. Wallenberg ásamt leiðtogum Gyðinga i Búdapest. Háifsystkin Wallenbergs, sem haldið hafa uppi stöðugum fyrirspurnum um afdrif hans. Þau taka þátt í vitnaleiðslunum i máli hans i Stokkhólmi í byrjun maí, en meðal forvígismanna þar er Simon Wiesenthal, „nazistaveiðarinn“ frægi. Wiesental sagði nýlega, að meira máli skipti að upplýsa mál Wallenbergs en að þefa uppi nazistaforingja. sendur hafði verið til Ungverjalands þeirra sérstöku erinda að bjarga Gyðingum frá því að lenda í gasklefum nazista. „Þetta var ofur venjulegt kvöldverðar- boö", sagði Lars Berg nýlega, en hann er nú starfandi í sænska sendiráðinu í Brazilíu. „Við drukkum koníak og töluðum saman í bróöerni, en ef viö litum út um gluggann gátum við fylgzt með skothríð rússneska stórskotaliðsins". Berg minnist þó orðaskiþta milli Wallenþergs og Eich- manns þetta kvöld, sem ekkert áttu skylt við góðlátlegt sþjall.„Heyriö mig nú" sagði Wallenberg, „Þið eruö búnir að tapa stríðinu. Hvers vegna gefizt þið ekki uþþ nú?“ Eichmann sneri sér að Wallenberg og sagði með þjósti: „Látið yður ekki koma til hugar aö þér séuð óhultur, aðeins vegna þess að þér eruö diþlómat frá hlutlausu riki". Nokkrum dögum eftir þetta ók þýzkur flutningavagn á bifreið Wallenbergs. Bif- reiöin gjöreyöilagöist, en Þjóðverjum hafði orðiö á í messunni. Wallenberg var alls ekki í bifreiðinni. Hann færði þetta í tal við Eichmann nokkrum dögum síðar, en Eichmann sagði aðeins: „Við reynum aftur." Raoul Wallenberg haföi kallað yfir sig reiði Eichmanns, en starf hans í Búdapest var að vinna markvisst gegn því sem Eichmann hafði þar fyrir stafni. Wallenberg var af hinni auðugu sænsku ætt, sem oft er nefnd „sænska Rockefeller-fjölskyldan", en sænska stjórnin hafði fengið honum þaö verkefni aö fara til Búdapest og láta þar einskis ófreistaö til aö bjarga svo mörgum Gyðingum frá gasklefunum sem auðið væri. Wallenberg kom til Búdapest hinn 9. júlí 1944 og vann þar látlaust að björgun Gyöinga þar til hann gekk í greiþar Rússum 17. janúar 1945. Á þessum líma er taliö að honum hafi beinlínis tekizt að bjarga 20 þúsund mannslífum, en þá eru ótaldir allir þeir ungversku Gyðingar sem hann aðstoöaði og átti hiut í aö bjarga frá tortímingu. Þegar líða tók aö lokum styrjaldarinnar urðu nazistar gripnir örvæntingu á öllum sviöum, og ekki varð annað séð en að þeir legðu allt kaþp á að tortíma sem allra mestu fyrir uppgjöfina. Ekki sízt virtust þeir staðráðnir í að ganga endanlega frá Gyðingum í Evróþu. Málsmetandi menn um allan heim bundust samtökum um að bjarga því sem bjargaö yrði, og liður í þeirri viðleitni var stofnun alþjóðlegrar nefndar, sem átti að hafa umsjón með sérstökum björgunaraðgerðum. Ira Hirschmann, einn nefndarmanna, var sendur til Tyrklands og þar tókst honum í samvinnu við Rauða krossinn að frelsa þúsundir Gyðinga í löndunum á Balkan- skaga úr fangabúðum. Nefndin fór þess á leit vð sænsku stjórnina, að hún sendi fulltrúa til Búdaþest til að standa fyrir björgunarstörfum þar, en um þær mundir var ástandið í málum Gyðinga einna verst í Ungverjalandi. Fyrlr vaiinu varð Raoul Wallenberg. Af ótta við Rússa, sem óðfluga nálguö- ust landamærin, brá hin Hitlers-sinnaða stjórn Ungverjalands á það ráö að viðra sig uþþ við Bandamenn, þar sem Ijóst var orðiö að nazista biði ekkert annað en ósigur. Þjóöverjar þrjóskuöst við að gefast upp og komu til valda í Ungverjalandi meðfærilegri stjórn. Eitt meiriháttar vandamál var enn óleyst í Ungverjalandi, — hvernig staöið skyldi að „endanlegri lausn" varðandi ungversku Gyðingana, sem voru nærfellt 900 þúsund, en f lok stríðsins voru hvergi fleiri Gyöingar samankomnir innan landamæra nokkurs Evróþuríkis. Hitler var afar óánægður með hversu illa hafði tekizt að útrýma Gyðing- um í Ungverjalandi, sem átti þó að heita eindregiö stuðningsríki nazista. I marz 1944 hafði hann sent þangaö fjölmenn herliö, auk þess sem Eichmann hafði verið sendur til að hafa yfirumsjón með fram- kvæmdinni. Þegar kom fram í júlí 1944 var búið aö flytja um 400 þúsund Gyðinga í útrýmingarbúðirnar í Auschwitz og Birken- au, 300 þúsund voru á öðrum vísum stöðum — í fangabúðum og flutninga- miðstöðvum og 200 þúsund biðu í merkt- um húsum í „ghettóunum" í Búdapest. Síðla hausts voru Þjóðverjar orðnir svo aðþrengdir að þeir gátu ekki lengur flutt Gyðinga með gripaflutningavögnum til Auschwitz. Eichmann leysti vandamálið með því að láta fórnarlömbin leggja af stað fótgangandi að landamærum Austurríkis. Hófust þar með „dauðagöngurnar" ill- ræmdu, en á leiðinni urðu afföll svo mikil að jafnvel harðsvíraðir nazistaforingjar sáu sig tilneydda til að taka í taumana. Ekki þó af mannúöar- heldur af hagkvæmnis- ástæðum, því að líkin lágu eins og hráviöi í slóöinni. Heinrich Himmler, sem hafði gert sér grein fyrir því að leikurinn væri tapaður, gaf fyrirmæli um að útrýmingunni skyldi hætt, en ungverskir nazistar gátu ekki hugsað sér aö endi yröi bundinn á þetta hugsjónarstarf, svo þeir tóku málið í sínar hendur. Þeir drógu fólk í þúsundatali út úr húsum í Búdapest og stráfelldu þaö, og seint mun fyrnast yfir þau ósköþ er freðin lík flutu í röðum niður eftir Dóná í blóði drifnu íshrönglinu. Þegar komið var fram í janúar 1945 hafði Wallenberg orðið svo vel ágengt í björgunarstarfi sínu, að hann hafði útveg- að a.m.k. 20 þúsund Gyðingu í Búdapest sænsk vegabréf, og öörum .13 þúsundum hafði honum tekizt aö koma fyrir í „öruggum" húsum sem hann tók á leigu og merkti meö sænska fánanum. í þessum umsvifum gat Wallenberg sér mikið orð fyrir hugrekki sem sumir töldu fífldirfzku. Hann tók sér stööu í járnbraut- arvögnum, dreifði þar vegabréfum og kraföist þess síðan að handhafar þeirra fengju heimild til að yfirgefa lestina. I eigin persónu kippti hann fólki út úr „dauða- göngunum" og færði því vistir þegar vegabréfin voru á þrotum. Wallenberg var ekki hetjulegur ásýnd- um. Hann var hæglátur maður og formleg- ur í framkomu. Sviþmótið viðkvæmnislegt og röddin þýð. í útliti var hann ólíkur löndum sínum í sendiráðinu. Þeir voru yfirleitt hávaxnir og Ijósir yfirlitum, en Wallenberg var meöalmaður á hæö, dökk- ur á brún og brá, byrjaður að fá skalla. Þjóöverjar létu undir höfuð leggjast að taka fram fyrir hendurnar á Wallenberg, en Rússar höföu hinn versta bifur á honum frá fyrstu tíð. Þeir vissu að hann var af „kaþítatistum" kominn. Þeir grunuðu hann um græsku vegna þess að Þjóðverjar höfðu látiö hann eiga sig, og síðast en ekki sízt höfðu þeir hann grunaðan um njósnir í þágu Bandaríkjanna. 17. janúar, þremur vikum eftir að Rússar héldu innreið sína í Búdaþest á aðfanga- dagskvöld jóla, lögðu Wallenberg og aðstoðarmaður hans, Vilmos Langfelder, af stað til Debrechen í fylgd með tveimur rússneskum herforingjum, en Debrechen er miöja vegu milli Búdapest og sovézku landamæranna. Wallenberg átti frum- kvæðið aö þessari ferð, en hann hafði leitað aðstoðar Rússa í viðureign sinni viö ungversku nazistana. Wallenberg er enn ókominn úr þeirri ferð. ál Wallenbergs hefur löngum verið ráðgáta, en fjölskylda hans og sænsk stjórnvöld hafa aldrei sætt sig við þá skýringu aö hann væri „horfinn", „látinn í fangelsi", „fallinn í bardögum" eða „óþekktur". Ailt frá því að hans var saknaö í stríðslok hefur fyrirsþurnum verið haldið uþþi um afdrif hans. Daginn áður en Rússar tóku hann í sína vörzlu tilkynnti sovézka utanríkisráðuneytiö sænska sendiráðinu í Moskvu að Rússar hefðu ákveðið að halda yfir honum sérstakrl verndarhendi, og um það bil mánuði eftir hvarfiö tilkynnti sendiherra Sovétríkjanna í Svíþjóð, Alexandra Koilontaj, móöur Wall- enbergs, Maj von Dardel, að sonur hennar væri heill á húfi í Rússlandi. Framan af fengust engin svör í Sov- étríkjunum við Sþurningum um afdrif Wallenbergs, en 18. ágúst 1947 barst orösending frá Arndrey Vyshinsky, utan- ríkisráðherra Sovétríkjanna, þar sem sagöi, að sovézk stjórnvöld könnuust ekki við nokkurn mann, sem héti Raoul Wallen- berg, og áreiðanlega væri hann ekki niðurkominn í Sovétríkjunum. Wyshinsky taldi helzt líkur á að hann hefði látið lífið í bardögum í Búdapest. Árin eftir stríð streymdu stríðsfangar frá Rússlandi og margir höfðu þá sögu að segja, að þeir hefðu rekizt á Wallenberg í Moskvu. Samkvæmt framburöi þessa fólks var hann í hinum og þessum fangelsum í borginni allt frá því í febrúar 1945. Skýrslur um uþþlýsingar þessar voru sendar sov- ézkum stjórnvöldum og krafa sænsku stjórnarinnar bar þann árangur aö lokum, að Andrei Gromyko, þáverandi aöstoðar- utanríkisráðherra Sovétríkjanna, lagöi fram nýjar upplýsingar í málinu í bréfi sem dagsett er 6. febrúar 1945. Að sögn Gromykos hafði tekizt að finna handskrif- að bréf í skjalasafni Ljúbjanka-fangels- isins. Það var dagsett 17. júlí 1947. Þar skýrir yfirlæknir fangelsisins, A. L. Smolt- sov, öryggismálaráðherra Sovétstjórnar- innar, Abakumov, svo frá: „Hér með upþlýsi ég að fanginn Wallenberg, sem yður er kunnugt um, lézt skyndilega í klefa sínum í gærkvöldi. Banamein hans er talið hafa verið hjartaslag". Að fengnum þessum upplýsingum kvaðst Gromyko telja auðsætt að Wallen- berg væri látinn. Fangelsun hans hefði verið liöur í glæþastarfsemi Abakumovs. Sá maður hefði í fyllingu tímans veriö dæmdur til dauða og síðan skotinn, en önnur skjöl varðandi Wallenberg en þessi handskrifaði seðill fyrirfyndust ekki í Sov- étkerfinu. Yfirlýsing Gromykos stangaðist á við vitnisburði fólks, sem kom úr rússneskum fangelsum eftir stríö. Staöhæfingar hans voru þó að því leyti merkilegar, að þarna hafði Sovétstjórnin þó loks viðurkennt að Wallenberg hefði verið í fangelsi í Moskvu. Aldrei hefur fengizt skýring á ástæðunni fyrir því að Wallenberg var handtekinn, en samfangar hans hafa margir hverjir sagt að almælt hafi verið að Rússar hefðu sakað hann um njósnir gegn Sovétríkjun- um. Orðsending Gromykos sýndi á hinn Jjóginn aö Sovétstjórnin kærði sig ekki um að fara út í þá sálma, heldur var reynt aö varpa ábyrgðinni á sovézkan ráðherra, sem hafði verið handgenginn Stalín þar til hann hlaut makleg málagjöld. Á sjötta áratugnum veitti fjöldi manna upþlýsingar um fangelsisvist Wallenbergs eftir 1947. Vitnin voru ýmist frá Austurríki, Þýzkalandi, Sviss, Frakklandi og Finnlandi, ellegar þá að þau voru ríkisfangslaus. Sumir höfðu séð Wallenberg í eigin persónu, aðrir höfðu skipzt á skilaboðum við hann í fangelsinu, og enn aðrir höfðu af honum áreiðanlegar fregnir frá öðrum föngum í Vladimir-fangelsinu. Á grundvelli þessara upplýsinga gerði sænska stjórnin enn tilraun til að hreyfa málinu við Sovétstjórnina. Áriö 1960 geröu tveir sænskir hæsta- réttardómarar, Ragnar Gyllensvárd og Per Svantesson, úttekt á málinu, og varð niðurstaða þeirra þessi: „Þær upplýsingar, sem unnt hefur verið að ganga úr skugga um að séu réttar, hafa verulegt gildi, og styðja hverjar aðra. Við teljum, að skýrsla sú sem fyrir liggur, bendi eindregið til þess — þótt fullnægjandi sannanir séu ekki þar um — að Wallen- berg hafi a.m.k. verið á lífi í upphafi sjötta áratugarins, og að hann hafi á þeim tíma verið í fangelsi í Vladimir." Ijanúar 1961 var Nanna Svartz prófess- or á ferð í Moskvu þar sem hún færði mál Wallenbergs í tal viö starfsbróöur sinn sovézkan, prófessorinn A.L. Myasni- kov, sem hún hafði þekkt um nokkurra ára skeið. Myasnikov tjáði Svartz að hann þekkti til Wallenbergs. Svíinn væri sjúkur og væri á geðveikrahæli. Á grundvelli þessara óvæntu upplýsinga skrifaði Tage Erlander þáverandi forsætis- ráðherra Svía bréf til Nikita Krúsjeffs, sem á þessum tíma fór með æðstu völd í Sovétríkjunum. Erlander óskaði eftir heim- iid Krúsjeffs til að senda sænska lækna til Sovétríkjanna til að undirbúa heimferö Wallenbergs. Krúsjeff tók þessi tilmæli illa upþ og skömmu síðar tók Myasnikov aftur þaö, sem hann haföi sagt í samtalinu viö Nönnu Svartz. Hún hitti þennan rússneska starfsbróöur sinn þrívegir eftir þetta, síðast skömmu fyrir andlát hans árið 1965. í öll skiþtin minnti hún hann á ummælin 1961, en ævinlega fór á sömu lund. Myasnikov kvaðst ekki skilja hvað hún væri að fara — hún hlyti að hafa misskiliö hann, — hann þekkti engan Wallenberg. Nönnu Svartz hefur aldrei blandazt hugur um að hún hafi skilið Myasnikov rétt. Enn berast uþþlýsingar um Raoul Wall- enberg til fjölskyldu hans og sænska utanríkisráðuneytisins. Undanfarin misseri hefur það gerzt að pólskur Gyðingur, Abraham Kalinski, nú búsettur í Israel, hefur gert nákvæma grein fyrir fangavist Wallenbergs á þremur stöðum í Sovétríkj- unum á sjötta áratugnum, og sjálfur sá hann Wallenberg í fangelsisgarðinum er þeir voru samtímis í Vladimir. Þá tjáði rússneskur Gyöingur, Kalinski, að hann hetði árið 1975 hitt Svía í Butyrka-fangels- inu, og hafi sá verið í fangelsi í Sovétríkjun- um um þriggja áratuga skeið er þeir hittust. Jan Kaplna, hinn rússneski, kvað Svíann hafa virzt fullkomlega heilbrigðan. Að fengnum þessum upplýsingum krafðist sænska stjórnin enn nýrrar rann- sóknar á málinu í Moskvu. Svar kom við þeirri málaleitan. Þaö var á sömu lund og áður: Wallenberg lézt árið 1947. Sænska utanríkisráðuneytinu hetur bor- izt vitneskja um að Jan Kaplan tókst að koma upplýsingum um Svíann í Butyrka til nokkurra aðila á Vesturlöndum. Nýlega geröist nokkuð í málinu, sem vekur sérstaka athygli, og rennir nýjum stoðum undir kenninguna um að Wallenberg sé enn á lífi, eða hafi a.m.k. verð til skamms tíma: Dóttir Kaplans, sem býr í ísrael, fékk nýlega bréf frá móöur sinni. Þar staðfestir frú Kaplan sögu manns síns, en rétt eftir að bréfiö var sent var Jan Kaplan varpað aftur í fangeisi í Sovétrikjunum, _ Á.R.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.