Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980 31 Brezk vika á Hótel Loftleiðum: og Glasgow“ verður sýning þeirra í Kristalssal Hótels Loftleiða kl. 15.00 en síðari dagana í anddyri hótelsins. Auk hótelhringsins Swallow Hotels sem rekur mörg gistihús í Skot- landi og norðanverðu Englandi, verður fulltrúi Grand Metropolit- an Hotels sem hafa 23 hótel og gistihús í London þar á meðal eitt á May Fair. Þá verður fulltrúi frá Anglo and Continental Education- al Group sem hefur á sínum vegum tólf málaskóla í Bretlandi og einnig frá Anglo World Educa- tional Ltd. sem standa fyrir nám- skeiðum í ensku í Oxford, Cam- bridge og viðar. Þá verður fulltrúi frá Woodcock International í Yorkshire sem sér um skipulagn- ingu ferða um Skotland, Wales og England og fleira mætti telja. Þá mun stofnun sú sem sér um uppbyggingu í Skotlandi og norð- anverðu Englandi eiga þarna full- trúa en meðal annarra verkefna þeirrar stofnunar er að auka ferðamannastraum til þessara starfa. VERSLIÐ Í SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800 BUÐIN „Bretland er London ÍBÚAR Reykjavíkur og nágrenn- is eiga von á tilbreytingu í borgarlífinu 23. april til 2. maí n.k. þegar haldin verður brezk vika á Hótel Loftleiðum, hin fyrsta sem hér hefur verið haldin. Sérstakur borgarkallari. Ray Goode, mun koma hingað í tilefni vikunnar og mun hann vekja athygli á henni með köllum á götum borgarinnar. Tilgangur brezku vikunnar er að kynna Bretiand og brezkar vörur og þá ekki síst ferðamannalandið Bretland. „Okkur langar að sannfæra íslendinga um það að Bretland en ekki bara London og Glasgow heldur miklu, miklu meira. Við erum bjartsýn og byggjum það á mjög góðum undirtektum íslendinga við Jersey-kynningunni á dögunum." sagði ungfrú Stephens, sem hingað er komin frá Brezka ferðamálaráðinu vegna brezku vikunnar. Flugleiðir, Breska ferðamála- ráðið, Sendiráð Bretlands í Reykjavík og Hótel Loftleiðir standa fyrir Bresku vikunni sem hefur að undanförnu verið vand- lega undirbúin. Þá daga sem Breska vikan stendur verður breskur matur á boðstólum en listafólk í ýmsum greinum kemur fram. „Pub“-píanóleikari frá London skemmtir og sýningar verða á gulli og gimsteinum bresku krúnunnar, listaverkum frá Skotlandi og Wales og Vínlandsbar verður breytt í ensk- an „pub“. í Blómasal verður kalt breskt -borð í hádeginu þá daga sem Bretlandssýningin stendur en frá því 25. apríl til 2. maí verður breska kynningin í Víkingasal að undanteknum kvöldunum 28., 29. og 30. apríl en þau kvöld verður Bretlandskynningin í Blómasal. Þarna verða á boðstólum breskir drykkir og breskur matur. Heið- ursgestur á Bresku vikunni verður Magnús Magnússon sjónvarps- maður sem mun koma fram á hverju kvöldi. Einn þáttur Bresku vikunnar er ferðakaupstefna þar sem fulltrúar breskra ferðaskrifstofa og breskra gistihúsa munu ræða við íslenska starfsbræður sína. Hinn 25. apríl ekki bara EinkaumboÖ ^ a íolonHi Sungið við undirleik enska .,pub"-píanóleikarans. I-i"sm- M1>l. RAX. Skólasýning í Ásgríms- safni að ljúka í DAG lýkur 16. skólasýningu Ásgrimssafns, sem opin hefur verið undanfarnar vikur. Safnið hafa heimsótt nemendur úr öllum skólum á höfuðborgar- svæðinu, sem fermast á þessu ári. Auk þess nemendur á ýmsum aldri, meðal þeirra nokkrir barna- hópar. Einnig skólafólk úr skólum utan Reykjavíkur. Ásgrímssafn verður lokað um tíma vegna lagfæringa í húsinu. Næsta sýning þess verður hin árlega sumarsýning. í dag er safnið opið frá kl. 1.30—4. Aðgangur er ókeypis. AUGLYSIMGA- TEIKNISTOFA MYIMDAMOTA Adiilstræti 6 sinn 25810

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.