Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRIL 1980
45
enginn nágrannabær eftir,
rannar, engin hjálp, engin von .. .
(SJÁ: ALMANNAVARNIR)
AFKVÆMIN
Meybarn í matinn
best.
Fram hafa komið kenning-
ar um, að mataræði kvenna
geti ráðið úrslitum um það.
hvort þær eignast drengi eða
telpur. Ef þær borða t.d.
mikið af kjöti og eggjum eru
líkur til þess að þær eignist
telpur, svo framarlega sem
maturinn sé ósaltaður. Vilji
þær hins vegar eignast
drengi er hyggilegt að fara
eftir matarleiðbeiningum,
sem sérfræðingar í París og
Montreal hafa sett saman og
hafa nýlega verið birtar opin-
berlega. Þessar leiðbeiningar
gera ráð fyrir mikilli salt-
neyzlu, en útiloka egg, mjólk,
kökur og gosdrykki.
VEIÐIÞJOFAR
Dregur síst úr framboöi
á forboðnu fílabeini
t Zaire og nokkrum Afrikulönd-
um er miðstöð ólöglegra filabeins-
sölu sem nú ógnar tilveru filanna á
öllu meginlandinu. að þvi er senir í
nýútkominni skýrslu eftir Iain
Douglas-Hamilton, sem cr sérfróð-
ur um flcst er að fílum lýtur.
í skýrslunni segir, að frá Zaire
komi mest af fílabeininu og þó að
Mobutu forseti hafi bannað fílaveið-
ar árið 1976 og útflutning á vörum
úr fílabeini tveimur árum síðar hafi
það haft lítil sem engin áhrif á
veiðarnar og smyglið. Einnig er
fullyrt að fjórir háttsettir menn í
flokki forsetans og einn ættingi hans
séu meðal þeirra sem standa að
þessari ólöglegu iðju. Fílabeinið er
einkum flutt flugleiðis til S-Afríku
en einnig smyglað úr landi um
Uganda, Mið-Afríkulýðveldið, Bur-
undi og Kongó.
Á síðasta áratug hefur filabeins-
verslunin blómgast mjög. Verðið
hefur tífaldast á tíu árum og inn-
flutningurinn, sem var aðeins 100
tonn á öndverðum sjötta áratugnum,
er kominn í 1000 tonn og hefur ekki
verið meiri í 60 ár. Stór hluti
fílabeinsverslunarinnar er lögmætur
í alla staði en veiðiþjófar bera
ábyrgð á afganginum. Fátækir
þorpsbúar í Afríku geta fengið fyrir
eitt kíló af fílabeini það sem tæki þá
annars heilt ár að vinna fyrir og ein
tönn getur sem hægast vegið 10 kíló.
Um það bil 1.300.000 fílar eru eftir
í Afríku og kannski ekki hægt að
segja að hætta sé á að þeir verði
aldauða innan skamms en samt sem
áður hefur mjög gengið á stofninn og
í skýrslu Douglas-Hamiltons segir,
að þar sé eingöngu veiðiþjófnaði um
að kenna. — GEOFFREY LEAN
Fílabeinsgripir eru svo sem ekki nýir af nálinni. Þetta egypska
svipuskaft er gert úr hinu verðmæta efni og er frá 14. öld fyrir Krist.
SAMLÍFl
Kvaöir á kossunum
Trúmálayfirvöld í Malasíu hafa
fyrirskipað öllum Múhameðstrúar-
mönnum, sem eru í hjónabandi, að
bera öllum stundum á sér gift-
ingarvottorðið.
Tilgangurinn er sá að koma upp
um ógift fólk sem hefur brotið gegn
„Khalwat" — hugtak, sem nær yfir
hvers kyns skírlífisbrot, m.a. það að
finnast „á afskekktum stöðum í
grunsamlegum tilgangi." Slík brot
varða allt að sex mánaða fangelsi
og kvartmilljón króna sekt.
Þessar aðgerðir yfirvaldanna
beinast aðeins gegn Múhameðstrú-
armönnum sem búa í Malasíu, en
öll hegðan þeirra og framkoma
lýtur lögum íslams. Töluvert ber
orðið á kröfum um það að breyta
lögum landsins í samræmi við hin
ströngu siðalögmál Kóransins og
hverfa frá núverandi löggjöf, sem
er að brezkri fyrirmynd. Sérstök
ráðstefna var haldin um þessi mál
fyrir tveimur árum og var þar rætt
um, hvort fremur bæri að grýta
bersynduga í hel en taka af lífi með
húðstrýkingu.
Það var ljóst, að ríkisstjórn
landsins var skelfingu lostin við
tilhugsunina, en það var ósköp fátt
sem hún dirfðist að segja um málið.
Sérhver tilraun af hennar hálfu til
að tryggja sjálfstæði einstaklings-
ins gagnvart valdi íslams yrði
túlkað af Múhameðstrúarmönnum
sem brot á lögmálum Kóransins, en
þeir eru í miklum meirihluta meðal
kjósenda í landinu. Flestir ráðherr-
arnir eru menntaðir í Englandi og
það er ein skýringin á þeirri
varnarstöðu sem þeir eru í þegar
stjórnarandstæðingar krefjast
svara um afstöðu þeirra til íslams.
Sú trúarlega vakning, sem orðið
hefur meðal Múhameðstrúar-
manna, hefur einkum dregið til sín
ungt fólk, sem vill beina spjótum
sínum að yfirvöldunum og endur-
vekja þjóðarstoltið.
Ríkisstjórnin hefur reynt að
koma sér í mjúkinn hjá Múhameðs-
Franska blaðið Le Monde
birtir reglulega þætti um
læknavísindi og fyrir skömmu
var þar fjallað um rannsóknir
á þessu sviði. Joseph Stol-
kovsky prófessor við Parísar-
háskóla og Dr. Henrion og Dr.
Papa við kvenlækningaspítal-
ann í Port Royal skýra þar frá,
að þeir hallist að þeirri kenn-
ingu, að karlkyns-frjó, sem
nefnd eru „Y“ þrífast einkum í
alkalíefnum en kvenkyns-
frjóin „X“ þrífist betur í
líkama ríkum af kalsíum og
magnesíum.
Rannsóknir þessar eru upp-
haflega ættaðar frá Kanada,
en hópur vísindamanna við
Sacre Coeur sjúkrahúsið í
Montreal hófu þar tilraunir á
froskum, rottum og kúm og
loks á konum. Síðan var rann-
sóknunum haldið áfram í
París. Vísindamennirnir í
Montreal hafa skýrt frá, að
kenningarnar hafi staðist í
81% tilvika, en Stolkovsky í
París hefur skýrt frá, að 38
konur hafi verið látnar á
matarkúrinn, og tilraunin hafi
misheppnast aðeins 6 sinnum.
Læknarnir við Port Royale
telja, að matarleiðbeiningar
þessar séu sérlega mikilvægar
fyrir foreldra barna, sem
haldin eru erfðasjúkdómum,
og fram komu á öðru kyninu
en ekki hinu.
Matarleiðbeiningarnar eru
mjög nákvæmar. Vilji foreldr-
arnir eignast dreng má móðir-
in drekka te og kaffi og borða
allar tegundir af kjöti, brauð,
grænmeti og ávexti. Hins veg-
ar er mjólk og ostur alger
bannvara. Ef foreldrarnir
vilja eignast telpu má móðurin
alls ekki drekka te, kaffi eða
súkkulaði og ekki borða saltan
ost, skinku og pylsur. Sykur-
neyzla virðist engin áhrif hafa
á kynfeíði barna, og því er í
báðum tilvikum heimilt að
borða sykur og hunang.
- WALTER SCHWARZ
Helst vilja hinir „sanntrúuðu" fá
að grýta bersynduga í hel.
trúarmönnum í þeirri von að
styrkja pólitíska stöðu sína. Afleið-
ingin sést meðal annars á því, að
áður en vestrænir framhaldsþættir
eru sýndir í sjónvarpinu, t.d. Dýrl-
ingurinn, þá er skylt að lesa upp
tilvitnanir í Kóraninum.
En fæstir telja slíkt fullnægja
þeim sem vilja grýta bersynduga í
hel.
- M.G.G. PILLAI
Nýtt — Nýtt
Sumardragtir, pils, vesti, blússur.
Baömullarkjólar — bolir.
Glugginn, Laugavegi 49.
RUM
Form og gæöi
Eigum fyrirliggjandi nokkur finnsk og ítölsk rúm á
sérstöku kynningarverði.
Einstaklingsrúm frá kr. 87.100.-
Hjónarúm frá kr. 129.200,-
Náttborö frá kr. 34.480.-
Viður: Fura og Askur.
Vönduð og vel hönnuð vara.
Nýborg c§d
Armúla 23, sími 86711.
^Baukne cht
Frystir og kœlir
í einum skáp
Tekur ekki meira rúm en
venjulegur kæliskápur
Alsjálfvirk affrysting í kælirúmi
Ódýr í rekstri
Fáanlegur í lit
Greiðsluskilmálar eða
staðgreiðsluafsláttur
Utsölustaóir DOMUS, „
og kaupfélögin um landallt
Véladeild
Sambandsins
Ármúla3 Reykjavik Simi 38900