Morgunblaðið - 20.04.1980, Qupperneq 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980
Gróöureyðirinn sem Bandaríkjamen
í Víetnam var tvíeggja,ð vopn. Aflei .
eru aÖ komafram— á þeim sjálfiam
Landganga í Da
Nang-flóa í Suð-
ur-Víetnam. „Fót-
gönguliðar grátu
oft ekki skipt um
föt dögum saman
og urðu að drekka
úr ám og lækjum
sem voru orðnir
mengaðir af eitr-
inu.“
Sum þessara vansköpuðu barna
líkjast „thalídómið-börnunum“
þar sem augun og eyrun vantar og
limir eru vanskapaðir eða vantar
alveg. Einng hafa sum barnanna
fæðzt með líffæri utan líkama eða
fleiri en eitt líffæri sömu tegundar
eða að líffærið vantar algerlega.
Um það bil 500 fyrrverandi
Víetnamhermenn hafa höfðað mál
gegn efnaverksmiðjunum er eitur-
efnið framleiddu handa banda-
ríska hernum en þær eru: Dow
Chemical Company, Monsanto
Company, Hercules Incorporated,
Diamond Shamrock og North Am-
erican Phillips Corporation.
Krafan er sú að efnaverksmiðj-
urnar setji á stofn margra millj-
arða dala sjóð sem eigi ekki aðeins
að borga læknishjálp og örorku-
bætur þeim sem fyrir tjóninu urðu
og fjölskyldu þeirra, heldur skuli
sjóðurinn einnig greiða þeim her-
mönnum sem heilsutjón kunna að
hljóta af völdum eiturefnisins
síðar og þeirra afkomendum. Mál-
inu er hagað þannig að aðrar
kærur mega bætast við eftir
þörfum. Victor Yannacone, sem
hefur á höndum formennsku
þeirra tólf lögfræðifyrirtækja er
sækja málið' fyrir hermennina,
segir að það séu ennþá nokkur
».
«•»**««*
Sér grefur
gröf þótt grafi
hundruð hermenn sem ættu að
taka þátt í þessari málshöfðun og
að það séu um það bii 2.4 milljón
Víetnamhermanna í hættu af
völdum eitursins. Ríkisdómari í
New York hefur einfaldað málið
með því að úrskurða að öll málin
megi sameina og sækja fyrir hans
dómstóli og er búizt við að réttur
verði settur í málinu innan árs.
Vítavert gáleysi
Ákæran hljómar á þá leið að
fyrirtækin sem framieiddu gróð-
ureyðinn, hafi hvorki hirt um að
aðvara yfirvöld hersins né gefið
sér tíma til þess að framleiða efni
sem ekki væri jafn skaðvænlegt.
Hafi þetta vítaverða gáleysi
sprottið af gróðasjónarmiði ein-
vörðungu. Það voru Bretar sem
áttu hugmynd að notkun slíkra
efna og notuðu þeir efnið 2,4,5-T
til þess að halda opnum birgða-
leiðum í Malasíu.
„Rauðgula" efnið, en svo var það
kallað vegna þess að tunnurnar
sem það kom í voru auðkenndar í
þeim lit, var helmingsblanda af
2,4,5-T og 2,4-D en þau efni hafa
verið notuð um árabil til þess að
eyða illgresi.
Það er afar örðugt að framleiða
slík efni í fullkomlega hreinni
mynd. Það verður varla hjá því
komizt við framleiðsluna á 2,4,5-T
að mynda ögn af díoxíni, nefndu
TCDD. Þetta er banvænasta efni
sem framleitt verður og er það
Víetnamstríðinu kann enn að
vera ólokið fyrir mörgum þeim
hermönnum sem i þvi börðust.
Grunur leikur á að efni það sem
notað var til þess að eyða öllum
gróðri á milljónum hektara i Viet-
nam geti valdið sýkingu og dauða
hermannanna er þar börðust og
töldu sig hafa komizt lifs af úr
hörmungum stríðsins.
Sumir þeirra hafa nýlega dáið
úr krabbameini, aðrir hafa lamazt,
og margir eru haldnir þrálátri
meinsemd sem hlýzt af dioxineitr-
un.
Dioxin er eiturefni sem finnst i
gróðureyði þeim er mest var
notaður af bandariska hernum.
Einnig hefur borið á þvi að fyrr-
verandi Vietnamhermenn hafa
eignast vansköpuð börn.
sömu tegundar og efnið sem lak út
úr efnaverksmiðju og mengaði
borgina Seveso á Italíu árið 1976.
Yannacone heldur því fram að
öryggi hafi verið virt að vettugi,
og ekki hafi verið hirt um að
forðast díoxínmyndun þegar Dow-
og Monsantoverksmiðjurnar
höfðu varla undan að verða við
eftirspurn flughersins.
Ekki er hægt að sækja herinn
til saka því að fyrir 30 árum skar
Hæstiréttur Bandaríkjanna svo úr
um að eigi væri hægt að bera fram
kæru á hendur ríkinu vegna van-
rækslu hernaðaryfirvalda gagn-
vart hermönnum á ófriðartímum.
Efnaverksmiðjurnar sem í hlut
eiga afneita allri ábyrgð og ber
aðalhlutaðeigandinn, Dow Chemi-
cals, það upp á yfirvöld, að þau
hafi misnotað eiturefnið í Víet-
nam. Dow Chemicals heldur því
einnig fram að yfirvöld hefðu í
fyrsta lagi átt að vita um hættuna
og hefðu í öðru lagi bannað að láta
varúðarreglur fylgja geymunum
sem eitrið var flutt í til Víetnam.
Hver sem sökudólgurinn er þá
hefur notkun gróðureyðisins í
Víetnam haft ófyrirsjáanlegar af-
leiðingar. Margir þeirra sem hafa
orðið heilsulausir og eignast van-
sköpuð börn eru fyrst núna farnir
að rekja orsakir veikinda sinna til
eitursins.
Þingað í kirkju
Um það bil 100 manns frá New
York og nánasta umhverfi hittust
nýlega laugardag einn í KirKju a
Long Island. Margir þeirra höfðu
börn sín meðferðis. Þar á meðal
var barn sem fæðst hafði án
vélinda og kornabarn með hendur
sem uxu út úr herðunum og einnig
glaðleg níu ára telpa, Kerry Ryan
að nafni sem hafði þurft að ganga
undir óteljandi skurðaðgerðir.
Telpan fæddist tveimur árum
eftir að faðir hennar kom heim af
vígvellinum. Faðirinn, Michael
Ryan, telur örkuml telpunnar
stafa af áhrifum eitursins á sig og
heldur því fram að hefði þeirra
ekki gætt, væri telpan heilbrigð.
Hvorugt þeirra hjóna á ætt sína
að rekja til fjölskyldu með slíka
erfðagalla.
Það komu fram 18 erfðagallar
hjá Kerry litlu, þar á meðal
fæddist hún án endaþarms, hafði
gat á hjarta, tvöföld kynfæri og
vanskapaðan handlegg. Auk þess
var hún blind í tvö ár og getur
ekki gengið. Sjúkdómseinkenni
föðurins eru ekki jafn augljós en
hann horaðist mjög mikið, varð
fyrir lifrarskemmdum, þjáist af
þrálátum höfuðverk og húðsjúk-
dómi sem kallaður er chloracne og
er það eitt helzta sjúkdómsein-
kenni díoxíneitrunar.
Þessi sjúkdómseinkenni urðu til
þess að fólk tók að ræða það hvort
eitrið gæti haft áhrif á afkvæmi
þeirra og hvort áhrifanna kynni
jafnvel að gæta langt fram í ættir.
Foreldrar Kerry vörpuðu fram
þeirri spurningu hvort afkomend-
ur dóttur sinnar hefðu kannski
getað orðið vanskapaðir þótt hún
sjálf hefði sloppið við það fyrst
díoxínið verkar á gen líkamans.
„Það er skelfilegt til þess að
vita," sagði Victor Yannacone á
fundinum," að díoxínið hefur áhrif
á kjarnasýrur líkamans og er það
málefni sem varðar öll ykkar sem
eigið eftir að eignast börn.“
Einn mannanna sagði frá því að
hann hefði nýlega orðið að gang-
ast undir skurðaðgerð vegna
krabbameins í eistum. Hann varð
að láta gelda sig vegna snertingar
við eitrið.