Morgunblaðið - 20.04.1980, Síða 20
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1980
í þetta sinn tökum við fyrir þrjú
stór nöfn, sem eru með plötur
sem aðdáendur hafa beðíð eftir,
þ.e. 10 cc, Genesis og Beach
Boys. Allar þessar plötur eiga
það sameigínlegt, að hafa verið
rakkaöar niður í tónlistarblööum
erlendis.
Til dæmis eru lokaoröin um
„Duke“ plötu Genesis í NME „Ef
þeir heföu eitthvað enn í sér,
hættu þeirl“
Beach Boys eru dæmdir fyrir
að upphefja sjálfa sig og vinsæld-
ir fyrstu lage sinna með því að
semja lög í sama stíl og jafnvel
ástaróða til þeirral
10 cc hafa fengið líkan skell og
Genesis, þ.e. fyrir hugmynda-
snauö og endurtekningar.
Að auki eru hér teknar fyrir
tvær aðrar plötur, safnplata frá
Janis lan, og fyrsta plata popp-
hljómsveitarinnar Beat, sem er
bandarísk hljómsveit undir for-
ystu Paul Collíns.
„Duke“
Genesis
(Charisma)
Þegar Genesis fór fyrir alvöru aö
safna að sér aödáendum með
þriöju plötu sinni „Nursery Crimes"
var undirritaöur meðal þeirra
fyrstu hér sem aöhylltist tónlist
þeirra. Hugmyndir þeirra voru
ríkulegar og andinn yfir tónlistinni í
senn dulrænn, myndrænn og líf-
legur, og tónlistin var ný í poppinu,
þó hljómsveitir á borö viö King
Crimson og Yes hafi líka veriö aö
þreifa jákvætt fyrir sér. Þessi
þróun Genesis hélt nokkuö áfram
og á „Foxtrot" náöu þeir hápunkti
í fágun og stíl, en upp úr því virtist
meiri tími fara í sviösútfærslu, á
kostnaö tónlistarframfara. Peter
Gabriel, sem leitt haföi hljómsveit-
ina hætti en Philip Collins, trymbill
fór þá aö syngja, en svo vildi til aö
rödd hans var ekki ólík rödd
Gabriels. „Duke“ er aftur á móti
önnur plata Genesis án Steve
Hackett gítarleikara. Einungis þeir
Peter Banks, Phil Collins og Mike
Rutherford leika á plötunni og er
hljómboröiö gegnumgangandi
ásamt þunglamalegum trommu-
s. Btti Collins. Banks er sérlega
lipur og stílhreinn á hljómborö, en
þyrfti greinilega aö komast í að
vinna meö einhverjum öörum til
tilbreytingar og frekari þróunar.
Phil Collins sér aö öllu jöfnu vel um
sönginn þó raddbeiting hans sé
eins og einhæf mest alla plötuna.
Nokkuö virðist tónlist úrvinda,
þ.e. mikiö er um margendurtekna
frasa, sem þeir hafa jafnvel marg-
oft notað áöur. Melódíurnar eru
ekki sérlega sterkar, þó undan-
tekningar séu þar á, samanber
„Turn It On Again" sem er á
smáskífu þeirra og „Misunder-
standing".
Platan er annars þunglamaleg í
heildina, það þarf að bera meira á
borö en stílinn helberan.
„KEEPIN’ THE
SUMMER ALIVE“
Beach Boys
(Caribou)
Allt þaö besta sem frá Beach
Boys hefur komiö hefur boriö meö
sér birtu og gleöi í tónum. „Keepin’
The Summer Alive” er ein bjart-
asta plata sem Beach Boys hafa
fært í áraraöir meö 9 topp Beach
Boys lögum.
Beach Boys veröur ekki kynnt
hér og nú (en vonandi gefst þess
tækifæri síöar) en þó má geta þess
að hljómsveitin var fyrst vinsæl
1962 og hefur haldið sínum vin-
sældum síöan þó þær hafi veriö
mismiklar.
Vinsældir þeirra jukust á síðasta
ári með útkomu lítillar plötu meö
laginu „Here Comes The Night” í
diskóútsetningu, en lagið var síöan
á breiöskífunni „LA (Light Album)”
sem varö mjög vinsæl í kjölfarið,
en af þeirri plötu urðu lögin „Good
Timin’”, „Lady Lynda’’ og „Suma-
hama” einnig vinsæl.
Þess ber að geta aö á „Keepin’
The Summer Alive” eru enn betri
melódíur og útsetningar stílhreinar
og góöar þó einfaldar séu. Bruce
Johnston viröist reynast þeim góð-
ur upptökustjóri, en á samt eina
lélega lagið sem á plötunni er,
„Endless Harmony”, sem er
kannski ekki rétt lýsing á því,
textinn og lagið er upphafning á
Beach Boys og tónlist þeirra og
fullmikiö fyrir minn smekk.
Brian Wilson og Mike Love hafa
hér samið saman fimm laganna
„Goin’ On’’ sem er á uppleið á
bandaríska listanum, „Oh Darlin’”
sem er rétt útkomiö á smáskífu í
Bretlandi, „Sunshine”, „When Girls
Get Together” og „Some Of Your
Love".
„Goin’ On“ minnir afskaplega
mikiö á Gunnar Þóröarson og
hans stfl, og gott ef lagið minnir
ekki eitthvaö á „Drottninguna" af
2-földu plötunni hans! „Some Of
Your Love” heföi sæmt sér vel á
einhverri Lónlí Blú Bojs plötunni
meö Rúnar syngjandi, líflegur
Beach Boys rokkari. „Oh Darlin’”
er í stíl viö „Lady Lynda" rólegt
fallegt lag með sterkri aöalrödd og
„Sunshlne” er sannkallaö sólsklns
og sumarlag og ætti aö koma út á
litla plötu og gera þaö gott.
Brian á líka eitt annaö lag á
plötunni sem hann samdi ásamt Al
Jardine, „Santa Ana Winds” sem
er dreymandi Ijúft lag. Carl Wilson
hefur veriö driffjööur þeirra þegar
bróöir hans Brian hefur brugöist,
en Carl á hér tvö ágæt lög
„Keepin’ The Summer Alive” og
„Livin With A Heartache” sem eru
bæöi samin ásamt Randy Bach-
mann (Bachmann Turner
Overdrive /Guess Who). Rúsínan á
þessari plötu hefur eflaust átt aö
vera „School Days” Chuck Berrys
sem er vissulega skemmtilega flutt
af Mike Love og félögum, en
platan er öll sterk.
Björt sumarplata og ein sú
besta frá Beach Boys í seinni tíö.
„LOOK HEAR“
10 cc
(Mercury)
Þaö er ekki ofsögum sagt aö 10
cc virðast vera að brenna út, og
tilburðir þeirra til að viöhalda fyrri
Janis Ian
reisn eru fremur haldlitlir á „Look
Hear" þó vissulega sé aö finna
punkta á plötunni sem eru í sama
klassa og þeir hafa gert skást á
plötunum eftir aö Godley og
Creme hættu, (sem hafa ekki
heldur gert jafn góöa hluti upp á
eigin spýtur).
Eric Stewart og Graham Gould-
man eiga 9 laganna, Rick Fenn eitt
og tvö hálf og Duncan Mankay eitt
hálft.
„One Two Five" sem er lagiö
sem var gefiö út á litla plötu er í stíl
„Dreadlock Holiday" og vinnur þó
ekki sé þaö klassískt, en besta
lagiö er lag Graham Gouldmans „I
Hate To Eat Alone" sem er Ijúft og
þægilegt meö hnyttnum texta.
„I Took You Home” lag Eric
Stewart er líka gott og hreinskiliö
lag um æskuminningar, „How’m I
Ever Gonna Say Goodbye" er létt
lag sungiö á „tungulipran hátt” af
Gouldman.
Lög þeirra Mackay og Fenn eru
„Welcome To The World" og
„Don’t Send Me Back” sem fjallar
um „bátafólkiö” á barnalegan og
byrjandalegan hátt!
Tónlistarflutningurinn sjálfur er
greinilega miðaöur viö aö hægt sé
að flytja tónlistina á hljómleikum,
einfalt og aögengilegt. Þó lög eins
og „Lovers Anynomous”, „Strange
Lover", og „It Doesn’t Matter At
All“ séu í sjálfu sér ágæt lög þá eru
þau greinileg meöalmennskulög en
Nýjustu plötur
Beach Boys,
Genesis, 10 cc,
Janis lan og
Beat
Beach Boys Genesis
Vinsœldarlistar
BRESKU LISTARNIR
LITLAR PLÖTUR
1. WORKING MY WAY BACK TO
YOU BABY
/FORGIVE ME GIRL (3)
Detroit Spinners
2. DANCE YOURSELF DIZZY (2)
Liquid Gold
3. GOING UNDERGROUND (1)
Jam
4. SEXY EYES (9)
Dr. Hook
5. KING-FOOD FOR THOUGHT (10)
U.B. 40
6. NIGHT BOAT TO CAIRO (—)
Madness
7. TURNING JAPANESE (4)
Vapors
8. POISON IVY (7)
Lambrettas
9. STOMP (6) Brothers Johnson
10. TURN IT ON AGAIN (8) Genesis
STÓRAR PLÖTUR
1. DUKE (1)
Genesis
2. GREATEST HITS (2)
Rose Royce
3. 12 GOLD BARS (3)
Status Quo
4. TEARS & LAUGHTER (4)
Johnny Mathis
5. HEARTBREAKERS (5)
Matt Monro
6. STAR TRAKS (7)
Ýmsir K-Tel
7. TELL ME ON A SUNDAY (6)
Marti Webb
8. REGGATTA DE BLANC (9)
Police
9. THE CRYSTAL GAYLE
SINGLES ALBUM (8)
Crystal Gayle
10. WHEELS OF STEEL (—)
Saxon
BANDARÍSKU LISTARNIR 2. AGAINST THE WIND (2)
LITLAR PLÖTUR Bob Seger & The Silver Bullet Band 3. MAD LOVE (3)
1. ANOTHER BRICK IN THE WALL (1) Linda Ronstadt
Pink Floyd 4. GLASS HOUSES (4)
2. CALL ME (3) Billy Joel
Blondie 5. DAMN THE TORPEDOES (5)
3. WORKING MY WAY BACK TO YOU Tom Petty & The Heartbreakers
/FOHGlVt Mt (álHL (2) 6. THE WHISPERS (7)
Spinners The Whispers
4. RIDE LIKE THE WIND (7) 7. OFF THE WALL (10)
Christopher Cross Michael Jackson
5. TOO HOT (5) 8. LIGHT UP THE NIGHT (9)
Kool & The Gang Brothers Johnson
6. SPECIAL LADY (8) 9. AMERICAN GIGALO (—)
Ray, Goodman & Brown Blondie, Georgio Moroder o.fl.
7. WITH YOU l’M BORN AGAIN (-) 10. DEPARTURE (—)
Billy Preston & Syreeta Journey
8. CRAZY LITTLE THING CALLED LOVE (4)
9. I CAN’T TELL YOU WHY(-)
Eagles JAZZ PLÖTUR
10. OFFTHE WALL(-) 1. SKYLARKIN (1)
Michael Jackson Grover Washington Jr.
2. CATCHING THE SUN (6)
STÓRAR PLÖTUR Spyro Gyra
1. THE WALL (1) 3. FUN AND GAMES (2)
Pink Floyd Chuck Mangione