Morgunblaðið - 11.05.1980, Page 20
Myndir frá grunn-
skólanum á Hofsósi
Barna- og fjölskyldusíðan hafði samband við kennara á Hofsósi og
bað hann um að ieggja verkefni fyrir nemendurna. Þau brugðust
skjótt við og sendu blaðinu margar skemmtilegar teikningar og
birtum við þær hér á þessari siðu.
Þegar kennarinn lagði fyrir nemendurna verkefnin voru þeir að
fara yfir Úlfabörnin i samfélagsfræði og fylgja því 4 myndir úr
frásögunni um úlfabörnin.
Við þökkum kennara og nemendum fyrir góðar myndir og sögur og
vonum, að þetta verði öðrum hvatning til að senda okkur frumsamið
efni.
Fjórar myndir úr „Úlfabörnum“
C/^hLA smsropiM
Gamla símstöðin er einn af bestu leikvöllum okkar barnanna. Þar förum við í ýmsa leiki t.d. Yfir,
Eina krónu, Stórt skip og lítið skip og ýmsa aðra leiki.
Gamla símstöðin er ekki nema um 40 ára og var hætt að nota hana í kringum 1960. Nú er komin ný
simstöð við hlið þeirrar gömlu. Stundum felum við okkur líka bak við nýju símstöðina og húsið, sem er
við hina hliðina á gömlu simstöðinni og niður í bakkanum fyrir neðan gömlu símstöð.
Kristín Sigþrúður
og íris Björg
Dóra Guðrún, 5 ára teiknaði líka tvær myndir. önnur þeirra gerist á sunnudegi og eru allir bílarnir á
leið til kirkju.
Hin myndin gerist á leikvellinum.