Morgunblaðið - 11.05.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAÍ1980
23
Vals-
dagur
í dag
Knattspyrnufélagið
Valur er 69 ára á þessu
ári og í dag verður
haldið upp á árin með
veglegum Valsdegi.
Verður hann haldinn í
dag við félagsheimilið
að Hlíðarenda. Há-
tíðahöldin hefjast
klukkan 15.00 og verða
alls kyns kappleikir á
dagskrá auk kaffisölu
o.m.fl.
Vorferð
Hvatar á
uppstign-
ingardag
HVÖT, félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík, efnir
til ferðar fyrir alla fjöl-
skylduna 15. maí nk., upp-
stigningardag, og er för-
inni heitið austur í
Þykkvabæ í Rangárvalla-
sýslu. Lagt verður af stað
kl. 10 árdegis frá Sjálf-
stæðishúsinu Valhöll, Háa-
leitisbraut 1, og áætluð
heimkoma um kvöldmatar-
leyti.
A austurleið verður stansað á
Hellu eða í nágrenni og snætt
nesti, síðan verður haldið að
Hábæjarkirkju og hlýtt á messu
kl. 14. hjá séra Auði Eir Vil-
hjálmsdóttur. Að messu lokinni
verða bornar fram veitingar í
skólahúsinu í Þykkvabæ og eftir
það mun ferðafólkinu gefast kost-
ur á að skoða sig um á þessum
slóðum.
Þátttaka tilkynnist í síðasta
lagi fyrir hádegi þriðjudaginn 13.
maí í Valhöll. Fargjald er kr. 7000
fyrir fullorðna en kr. 4000 fyrir 12
ára og yngri, en ókeypis fyrir
börn, sem ekki taka sæti í bíl.
Þátttakendur taki með sér nesti
til að hafa um hádegið, en innifal-
ið í farinu er öl og gosdrykkir og
veitingar síðdegis í Þykkvabæ.
(Fréttatilkynning).
SNORRABRAUT 56 SIM113505
Austurstrscti 10
sinii: 27211
UfSISEíFfrn JAPAN
Utvarpssegulbandstæki
i bila
með stereo móttakara
TC -850/860 ML
Bylgjur: LW/MW/FM —MPX
Magnari: 2x6 wött
Hraðspólun: Áfram og til baka
Auto Reverse Suóeyðir (Noise killer)
Styrkstillir fyrir móttöku
TC-25 ML
Bylgjur: LW/MW/FM —MPX
Magnari: 2x6 wött
Hraðspólun: Áfram
Verö kr. 128.000-
Verö kr. 79.500.-