Morgunblaðið - 11.05.1980, Side 27

Morgunblaðið - 11.05.1980, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MAI 1980 27 Ingimar Þorkels- son — Minningarorð Kallið er komið, komin er nú stundin. vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðasta blund. V.B. Ingimar var fæddur 12. ágúst 1902 á Vöglum í Vatnsdal í Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru Þorkell Helgason og Þórunn Þorleifsdóttir, sem bjuggu þar, var Ingimar næst yngstur fjög- urra systkina. Hann var barn að aldri þegar foreldrar hans brugðu búi og fluttu út á Blönduós og 15 ára var Ingimar þegar foreldrar hans fluttu til Reykjavíkur og bjuggu þau hér í borg til æviloka. Nú eru öll systkinin horfin yfir móðuna miklu. Ingimar byrjaði snemma að vinna eins og títt var um unglir.ga í þá daga, 17 ára réðst hann að Straumfirði á Mýrum og var þar í 9 ár. Fyrir 52 árum 19. maí 1928 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína Maríu Þórðardóttur. Eignuðust þau fjögur mannvænleg börn, þau eru Haukur, kvæntur Asu Hjálm- arsdóttur, Þorkell, kvæntur Grétu Kortsen, Martha, gift Alesander Jakobssyni, og Ólafur, kvæntur Guðnýju Kjartansdóttur, en Ólaf- ur drukknaði er hann tók út af togaranum Guðmundi Pétri í des- ember 1973. Var þeim hjónum það sár harmur að missa son sinn frá konu og þrem litlum börnum. Eina stúlku ólu þau upp sem sína, Karlottu Aðalsteinsdóttur, var hún þriggja ára þegar hún kom til þeirra, þá nýbúin að missa móður sína. Reyndist Ingimar Karlottu eins og bezti faðir, en nú eru 13 mánuðir síðan María og Ingimar urðu að kveðja fósturdótturina hinztu kveðju og horfa á eftir henni í gröfina frá tveim litlum börnum. Ingimar byrjaði að vinna við höfnina 1932 og vann hann þar meðan heilsa og kraftar leyfðu. Fyrstu búskaparár Ingimars og Maríu voru á Bjargarstígnum, það segja mér kunnugir, að þar hafi verið gestkvæmt enda gestrisinn maður Ingimar. Fyrir 25 árum festu þau kaup á húseigninni Halldór Halldórsson skipasali — Minning Hinn 11. janúar sl. lézt í Reykjavík Halldór Halldórsson skipasali, eftir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm. Það stríð var lengra en flesta grunaði og skiptist á sókn og gagnsókn, sigrar og undanhald beggja stríðs- aðila, unz hildarleiknum lauk með friði og sáttum. Að ósk hins látna fór kveðjuathöfnin fram í kyrrþey í Dómkirkjunni. Þetta er að sönnu síðbúin kveðja, en þar ber margt til. Kyrrþeyrinn kemur í veg fyrir birtingu greinar á ákveðnum degi, og margur mun síðan hafa búizt við því af öðrum, sem hann ella myndi sjálfur gera, því að Halldór átti mikinn fjölda vina og kunn- ingja. En að því leyti er ekkert seint í þessu efni, að flestum mun finnast svo stutt síðan hann kvaddi, að þeir eru varla búnir að átta sig á því enn. Svo lifandi var hann alla tíð og áhugasamur um framtíðina jafnt sem líðandi stund, að jafnvel þeir sem gerzt máttu vita um veikindi hans, trúðu því þangað til allra síðustu vikurnar, að enn ætti hann eftir að sjá veturinn víkja fyrir vori. Það lék aldrei kyrrþeyr um Halldór Halldórsson um ævinnar daga. Hann gleymist ekki þeim, sem af honum höfðu kynni. Hann var hraustbyggður, hár og gjörvi- legur og snyrtimenni, svo af bar. Hann var hvikur í hreyfingum, og það sópaði af honum. Hann gat einnig notið kyrrðar og þá helzt úti í náttúrunni, því að hún varð að vera mikilfengleg. Önnur kyrrð var honum lítt að skapi, nema hin nauðsynlegasta hvíld. Hann vildi njóta lífsins og láta hluti gerast, og hann var gæddur mörgum þeim kostum, sem bera menn langt og víða og skapa mönnum marg- slungin örlög. Það mannlíf og umhverfi, sem mótaði Halldór í uppvexti, var stórbrotið á margan hátt. Hann ólst upp í samfélagi, sem byggði tilveru sína á sókn á auðug fiskimið, en bjó í dalverpi milli snarbrattra fjalla, þar sem mjög er snjófljóðahætt. Hættur hafa jafnan fylgt sjósókn á íslandi, svo að þjóðinni hefur lærzt að taka mannskaða á sjó því nær sem náttúrulögmáli, en yfir æsku- stöðvum Halldórs, sjávarþorpinu Hnífsdal, vofðu einnig á hörðum vetrum aðrar hættur af völdum náttúrunnar — á snjóflóðum. Þeim áföllum var tekið eins og öðrum, en oft var af þeim eigna- tjón og manntjón. Hinn hrikalegi harmleikur í febrúar 1910 er þó mestur í sögu sjávarþorpsins, er snjóflóð féll úr Búðarhyrnu og sópaði nokkrum húsum og mörgu fólki á haf út. Fórust þá 20 manns og margir slösuðust. En áfram var lifað í Hnífsdal, sjórinn sóttur af kappi og mannlífið gekk sinn gang. Þessi atburður gerðist fyrir minni Halldórs, sem þá var á öðru ári, en í skugga hans ólst hann upp. Svo virðist sem slíkt nábýli við hættur efli frekar með mönn- um æðruleysi en ótta, og ef svo er, þá hefur það tvímælalaust verið um Halldór. Og það er því jafn- framt eðlilegt, að þeir menn láti öðrum fremur skeika að sköpuðu. Það var eitt af einkennum Hall- dórs. Þegar Halldór var stýrimaður á vélskipinu „Nönnu", lenti hann í aftakaveðrinu 16. sept. 1936, þegar „Pourqoi pas?“ fórst undan Mýr- um. Þeir Halldór og félagar bjugg- ust lengi vel við því, að hver stund gæti orðið þeirra síðasta. En í hvert skipti, sem Halldór minntist á þetta að gefnu tilefni og ég heyrði til, þá hló hann. Halldór Halldórsson var fæddur 3. október 1908, og voru foreldrar hans hjónin Margrét Þórðardóttir, f. 1880, d. 1947, og Halldór Auð- unsson, f. 1879, d. 1942. Þau bjuggu í Hnífsdal 1902—7, síðan að Svarthamri og Dvergasteini í Súðavíkurhr. til 1911, er þau fluttu aftur í Hnífsdal, þar sem þau voru til ársins 1925, en þá fluttu þau suður til Hafnarfjarð- ar. Þau hjónin Margrét og Halldór voru hið mesta dugnaðar- og sæmdarfólk, sem átti barnaláni að fagna, þar sem þau eignuðust 12 mannvænleg, hraust og heilbrigð bðrn. Halldór ólst því upp í glöðum systkinahópi, en 6 þeirra eru nú horfin með honum. Hin eru: Auður, Lára, Sæunn, Guð- munda, Sólveig og Þórður. Svo sem sjálfsagt var fór Hall- dór þegar sem unglingur að vinna til sjós, enda átti hann að fyrir- mynd hinn vaskasta sjómann, þar sem faðir hans var. Varð hann einnig snemma eftirsóttur sjó- maður og má geta þess, að hann var um árabil stýrimaður hjá hinum landsþekkta aflamanni, Guðmundi í Tungu, á línuveiðar- anum „Freyju". Jafneðlilegt var það, að Halldór fýsti að sjá sig um í heiminum og réði hann sig því til skipa, sem gerðu honum það fært. Fór hann þá víða um lönd og höf, norður til Grænlands og suður til Svarta- hafs. En síðan kaus hann að hafa fast land undir fótum um hríð og gekk á land. Hóf hann þá verzlun- arstörf og rak síðan verzlanir sjálfur og hafði á tímabili allmikil umsvif. Um skeið rak hann einnig veitingastofu í Keflavík. Síðan nálgaðist hann sjóinn aftur í vissum skilningi, þar sem hann setti á fót fyrirtæki, er nefndist „Skipasala og skipaleiga", fyrir nær tveim áratugum og var æ síðan í lifandi tengslum við at- hafnalífið við sjávarsíðuna. í því starfi fékk hann notið sín ágæta vel, það útheimti bæði elju og þrautseigju, og af því hafði hann nóg, hann þurfti að hitta og tala við fjölda manns, og af því hafði hann gaman, því fylgdi spenna og tvísýna, og það átti við hann, allt snerist um báta og skip, vélar og veiðarfæri, og þar var hann heima, og þeim mun flóknari og illleysanlegri, sem vandamálin varðandi kaup og sölu voru, þeim mun meira fannst honum í glím- una varið. í starfi sínu ávann hann sér virðingu, traust og vin- áttu fjölda manna. Síðustu 15 árin eða lengur var Skipasalan til húsa að Vesturgötu 3, og þangað lögðu margir leið sína einnig án þess að hafa skipakaup í haga, því að það var alltaf gaman að hitta Halldór að máli. Húsið er í hjarta bæjarins, gamalt og notalegt, og á sér langa og lilríka sögu. Það sómdi Hall- dóri vel að hafa smekklega búnar skrifstoiur sínar, þar sem áður voru stássstofur hefðarmanna í bænum. Við vinir hans, sem oft komum þangað, minnumst margra ánægjustunda með þakk- læti og soknuði og förum ekki svo framhjá þessu vinalega húsi, að Halldor birtist ekki í huga okkar brosandi og fagnandi. Nú verða þær mir.ningar að nægja, en þess ber þó að gæta, að það sem gleður, þótt gengið sé, á góðan þátt í því lífi, sem enn er lifað. 27. nóvember 1937 gekk Halldór að eiga hina ágætustu og glæsi- legustu konu, Sigríði Jónsdóttur, gullsmiðs, Sigmundssonar í Reykjavík. Þau eignuðust þrjá sonu, en þeir eru: Ragnar, vél- stjóri, f. 1941, Jón Halldór, bif- vélavirki, f. 1942, og örn, trésmið- ur, f. 1947. Þau Sigríður og Halldór slitu samvistum. Seinna eignaðist Halldór dóttur með þýzkri konu, sem þá dvaldist hér á landi, Dagmar Malzhan. Dóttir þeirra er nú gift kona, Elvira Cech, og býr í Bamberg í Þýzkalandi. Halldór hafði alla tíð heiðarlegt og ræktarlegt samband við mæðgurnar og þeirra fólk, og þau skiptust á heimsóknum milli landa, þó að oftar færi Halldór til þeirra í Þýzkalandi. Þetta sam- band var honum dýrmætt. Sambýliskona Halldórs tvo síðustu áratugi ævi hans var Hrefna Berg, ritari hjá Eimskipa- félagi íslands. Bjó hún honum fallegt, bjart og hlýlegt heimili og sýndi alvörumanninum og gleði- manninum Halldóri Halldórssyni skilning, umhyggju og ástúð. Þakklæti til samferðamanna á lífsins leið fyllti hug Halldórs, er hann bjóst til að brjóta saman sitt ferðatjald. Hafi hann þökk fyrir góða samfylgd. Það voru alla jafna ánægjustundir. Blessuð sé hans minning. Sveinn Ásgeirsson Skipasundi 86 og hafa búið þar æ síðan. Til þeirra hef ég komið, sam þessar línur skrifa, bæði í gleði og sorg. Reyndist mér Ingimar ráð- hollur og úrræðagóður maður. Ingimar var skapmaður, ákveðinn en blíður. Hrókur alls fagnaðar í sínum hóp. Maður alltaf sívinn- andi. Heimilið, konuna og börnin mátti ekkert skorta. Það var því mikið áfall þegar sjónin fór að bila, því hann var hagur bæði á tré og járn. Bíllinn gaf honum margar ánægjustundir, enda ferðaðist hann um landið með konu sinni meðan heilsa og sjón leyfðu, því hann unni náttúrufegurð þótt hann væri ekki margmáll um slíka hluti. Seinni árin varð Ingimar að vera heima vegna sjónleysis og veikinda. Undraði mig það oft, jafn starfssamur maður og Ingi- mar var, hvað hann tók aðgerða- leysinu með mikilli stillingu. Ingimar bað mig, eftir sinn dag að bera konu hans Maríu þakkir fyrir allt, sem hún hefði fyrir hann gert. Það var með eindæm- um hvernig hún hjúkraði bónda sínum. Anægjulegt var að koma og sjá hvað hún skreytti matar- bakka Ingimars fallega, til að vita hvort hann hefði betri lyst. Fyrir þetta allt vill hann þakka, því hann mat hana mikils. Það þekkti ég Ingimar vel að ef hann mætti mæla, þá vildi hann koma fram þakklæti til lækna og hjúkrunarliðs á deild A 7 á Borgarspítalanum fyrir frábæra hjúkrun og umönnun í síðustu 12 vikurnar, sem hann lifði. Ingimar andaðist sunnudaginn 4. maí. Hann verður borinn til hinztu hvílu mánudaginn 12. maí kl. 3 frá Fossvogskirkju. Vil ég biðja góðan Guð að styrkja konu hans, börn, barna- börn og litla langafasoninn. Veri kær vinur kært kvaddur, Guði á hendur falinn. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Jónína Björnsdóttir Kirkjukaffi Kvenfélags Grensássóknar Í DAG sunnudaginn 11. mai, heldur Kvenfélag Grensássóknar kirkju- kaffisölu i Safnaðarheimilinu við Háaleitisbraut og hefst það kl. 15:00. Guðsþjónustan verður kl. 11:00. Kaffisalan er árlegur viðburður í vetrarstarfi félagsins. Þetta er því hátíð þar sem fólki gefst kostur á að koma saman, njóta góðra veitinga og styrkja um leið gott málefni. Kvenfélagið er ein styrkasta stoð kirkjunnar hér í sókninni. Bæði hefur almenn starfsemi félagsins verið mikil og góð og það hefur fært kirkjunni margar gjafir. Ég vil því skora á allt safnaðarfólk í Grensássókn, svo og aðra velunn- endur kirkjunnar að fjölmenna í Safnaðarheimilið sunnudaginn 1. maí og sýna , konunum, að við kunnum að meta hið mikla og fórnfúsa starf þeirra, og um leið efla og styrkja kirkjuna og safnaðar- starfið. Á boðstólum verður að vanda gott kaffi og mikið úrval af kökum og brauði. Kvenfélagskonur hafið þökk fyrir gott og göfugt starf og Guð blessi ykkur allar. Halldór S. Gröndal. 5VAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Hvað segið þér um ókvæntan mann, sem trúir á Jesúm Krist (hann er um fimmtugt) og sækist sífellt eftir að umgangast laglegar, ógiftar konur? Ef hann sækist eftir að umgangast konur, er miklu betra, að þær séu ógiftar en giftar. Eg sé ekkert athugavert við það, að ókvæntur maður sækist eftir samfélagi við heiðvirðar konur, ef því fylgir ekki ósiðlæti. Við gerðum þetta öll, þegar við vorum ung, og við ættum ekki að gagnrýna þennan miðaldra mann, þó að hann vilji hitta myndarlegar konur, enda þótt okkur finnst hann taka svolítið seint við sér. Biblían hvorki letur né hvetur fólk til að forðast samneyti kynjanna. Hún hvetur til kynningar og hjónabands og vegsamar heimilið. Þó ámælir hún ekki þeim, sem kjósa að vera ógiftir af einhverjum ástæðum. Páll sagði þessi óljósu orð: „Þess óska eg, að allir menn væru eins og eg er sjálfur.“ Ef til vill var Páll ókvæntur. En þegar Páll hefur ritað þessi orð, heldur hann áfram (í 7. kap. fyrra bréfsins til Korintumanna) að leggja giftu fólki heilræði. Hann viðurkennir, að ofannefnd orð séu sögð „í tilhliðrunarskyni, ekki sem skipun". Það var með öðrum orðum hugmynd hans sjálfs, en ekki endilega innblástur heilags anda. Konan er „hinn aðilinn", uppfylling mannsins. Heimurinn væri daufur og drungalegur án kvenna. En það á ekki að fara með þær eins og hluti, sem við eigum, heldur persónur, manneskjur. Sú skoðun nýtur æ meira fylgi, að konan hafi verið sköpuð til þess eins að vera manninum til ánægju og þjónustu, og það er vel. Það var kona, sem fæddi Jesúm Krist. Það var kona, sem var síðust við krossinn og fyrst við gröfina. Hún er tákn eða fulltrúi hinnar heilbrigðu, hreinu konu allra tíma. Kristur veitti konunum hinn rétta sess, ef til vegna hennar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.