Morgunblaðið - 11.05.1980, Síða 32
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
JHornnnblBbib
SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1980
Veður fer
hlýnandi
um allt land
— VORIÐ er sennilega komið
aítur, sagði Gunnar Hvammdal
Sigurðsson veðurfræðingur er
Mbl. spjallaði við hann í gær.
Spáð er áframhaldandi austan-
og suðaustanátt næstu tvo sól-
arhringa með rigningu öðru
hverju. Veður mun fara hlýnandi
um allt land og virðist því vor-
hretið vera yfirstaðið.
Olvun og óspekt-
ir og hræðilegt
ástand í borginni
— segir lögreglu-
varðstjóri
TALSVERT annríki var hjá
Reykjavíkurlögreglunni í fyrri-
nótt, og var þar í flestum
tilvikum um að kenna áfengis-
neyslu borgarbúa. Aðalvarð-
stjóri lögreglunnar sagði
ástandið i bænum hafa verið
hræðilegt um tíma, mikil ölvun
og óspektir alla nóttina og fram
á morgun.
Sem dæmi um þau mál sem
lögreglan hefði þurft að hafa
afskipti af nefndi hann rúðubrot,
bensínstuldi, ósamkomulag í
heimahúsum, óspektir eftir dans-
leiki, slys og óhöpp í umferðinni,
skemmdir á ljósastaurum, menn
hentu sér í sjóinn og fleira og
fleira.
Vildi varðstjórinn kalla þetta
árvissan viðburð, ölvun væri yfir-
leitt mikil um þetta leyti árs.
Vorhugur væri í mönnum og
brytist hann út með þessum
hætti hjá sumum, þá væri próf-
um lokið hjá sumum, en upplestr-
arfrí hafin hjá öðrum. — Þetta
eru eiginlega okkar „vorverk" að
standa í þessu á þessum tíma árs,
sagði hann.
Ljósm. Mbl. Kristján.
Mikið var um ölvun og óhöpp í Reykjavík í fyrrinótt, en þó án
aivarlegra slysa. Hér hefur iítilli fólksbifreið verið ekið á
ljósastaur við Hljómskálann, og lögreglumenn eru komnir á
vettvang. Ljósm. Mbi. júííus.
Vorverk
MIKILL áhugi er nú víða um land
fyrir ýmiss konar loðdýrarækt. Er þar
ekki aðeins átt við minka og refi,
heldur eru einnig margir, sem vilja fá
leyfi til að flytja inn og rækta
ullarkanínur, þvottabirni, flóðarelda
Chinchilla er dýr skylt hér-
anum og er upprunnið í Perú.
Einn bóndi í Arnessýslu hefur
sótt um leyfi fyrir þetta dýr,
sem þykir sérstaklega
skemmtilegt, en þarf að hafa í
vel einangruðum húsum.
Sömuleiðis hefur einn bóndi í
Árnessýslu sótt um leyfi fyrir
þvottabjörnum.
Umsóknir hafa komið frá
bændum í Bárðardal og Rang-
árvallasýslum fyrir ullar-
kanínum eða angóra-kanínum,
en yfir 20 bændur um allt land
hafa sýnt áhuga á að fylgjast
með hvernig gengur hjá þeim
og chinchilla. Umsóknir um mikinn
f jölda dýra af þessum tegundum liggja
nú í landbúnaðarráðuneytinu og verð-
ur málið væntanlega afgreitt um miðja
vikuna.
umsóknir borizt og á það hefur
verið bent að nægilegt fram-
boð er af kjöti hérlendis. Loks
er það flóðareldur eða ild, sem
sótt hefur verið um leyfi fyrir
á Svalbarðsströnd. Þetta dýr
er mikið í vötnum og slær þá
bjarma á skinn dýrsins. Þykir
þetta sérlega hagkvæmt með
tilliti til húsa, sem þurfa ekki
að vera dýr í byggingu. Dýrið
er af marðarætt og skinnið
eftirsótt.
Þá liggja í ráðuneytinu um-
sóknir um leyfi fyrir um 1900
refalæðum vítt og breitt um
landið. Ef leyfi verða veitt rísa
ný refabú í Skagafirði, Eyja-
firði, Árnessýslu, Vestmanna-
eyjum, Eskifirði, Jökuldal,
Borgarfirði, Kjós, Hafnarfirði,
V-Barðastrandarsýslu og við
Isafjarðardjúp. Einnig liggja í
ráðuneytinu umsóknir um
2500 minkalæður fyrir ný bú
víða um landið.
fyrstu ef leyfi verður veitt. Þa
hefur einnig verið rætt um
ræktun kjötkanína, en engar
Paradísarheimt
frumsýnd í Þýzka-
landi i október
íslenzka sjónvarp-
ið getur fengið
myndina fyrr
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
Paradísarheimt verði frum-
Ný ensk-ísl.
orðabók
á leiðinni
NÝ ENSK-íslenzk orðabók,
stærri og efnismeiri en nú er
til, hefur verið unnin og kem-
ur væntanlega út á næsta ári.
Þetta kemur fram í viðtali
við Sören Sörenson, höfund
verksins, á bls. 34 í blaðinu í
dag.
Orðabókin tekur yfir 40—50
þúsund uppsláttarorð með þýð-
ingum á einstökum orðum,
framburðarleiðbeiningum og
bætt inn í skýringum og fyllri
lýsingum. Orðabókin byggir á
stórri bandarískri orðabók, en
aukið við hana. Hefur Sören
m.a. safnað nýjum hugtökum
og orðum á íslenzku í vísindum
og fleiri fræðum.
sýnd í V-Þýzkalandi í októ-
bermánuði næstkomandi, en
myndin var tekin hér á landi
og viðar á síðasta ári. Myndin
verður sýnd í þremur 45
mínútna þáttum í sjónvarpi
um allt V-Þýzkaland, en hins
vegar mun islenzka sjónvarp-
inu standa tii boða að fá
myndina fyrr til sýningar.
Aðeins er eftir að ljúka
hljóðsetningu myndarinnar
fyrir þýzka sjónvarpið og þá
m.a. að setja þýzkt tal yfir það
íslenzka.
Fyrir nokkru voru þýzkir
sjónvarpsmenn á ferð hér á
landi og unnu þá að gerð
heimildarmyndar um Halldór
Laxness. Fyrirhugað er að sýna
þá mynd í þýzka sjónvarpinu
viku áður en sýning Para-
dísarheimtar hefst. I þeirri
mynd verður fjallað um ævi og
störf Nóbelskáldsins, bækur
hans og viðhorf íslendinga til
Halldórs og bóka hans. Peter
Hassenstein gerði heimildar-
myndina, en Sigrún Valbergs-
dóttir var upptökustjóri og tók
viðtöl.
Staða bankanna gagnvart Seðlabanka:
Er 11,8 milljörðum
verri en um áramót
„STAÐA bankanna gagnvart
okkur batnaði um 4,1 milljarð
króna í aprilmánuði, aðallega
vegna greiðslna, sem fengust
fyrir útflutning,“ sagði Jóhannes
Nordal, Seðlabankastjóri, er Mbl.
spurði hann i gær um lausafjár-
stöðu bankanna og stöðu þeirra
gagnvart Seðlabankanum.
Um áramótin var staða bank-
anna gagnvart Seðlabanka jákvæð
um 8,6 milljarða króna, en versn-
aði í janúar um 15,9 milljarða og
var í lok þess mánaðar neikvæð
um 7,3 milljarða króna. í febrúar
versnaði staða bankanna enn um
tæpa þrjá milljarða, en í marz
batnaði hún um sömu upphæð og
var í lok hans aftur tæpum 16
milljörðum verri en við áramótin
og þá neikvæð um 7,3 milljarða
sem fyrr. Batinn í apríl upp á 4,1
milljarð leiðir til þess, að staða
bankanna gagnvart Seðlabanka
hafði versnað um 11,8 milljarða
frá áramótum og var þá neikvæð,
þegar til heildarinnar er litið, um
3,2 milljarða króna.
Fjöldi umsókna um leyfi
fyrir minka, refi, ullar-
kanínur, þvottabirni o.fl.