Morgunblaðið - 24.05.1980, Side 1

Morgunblaðið - 24.05.1980, Side 1
80 SÍÐUR OG LESBÓK 116. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kreisky, Palme og Gonzalez til íran? Stokkhólmi, Tehcran. 23. maí. AP. ÞRÍR evrópskir jaínað- armannaleiðtogar, Oloí Palme, Bruno Kreisky og Felipe Gonzalez, hafa í hyggju að fljúga til Teher- an á sunnudag og freista þess að fá bandarísku gíslana, sem nú hafa verið í haldi í 202 daga, látna lausa. Berndt Carlsson, forseti Alþjóðasambands jafnaðarmanna, skýrði frá þessu í Stokkhólmi í dag, en ferðin yrði á vegum sambandsins. Verði af ferðinni, er gert ráð fyrir að Palme, Kreisky og Gonzalez hafi aðeins nokkurra klukkustunda viðdvöl í íran. íranski herinn hélt því fram í dag, að hann hefði komið upp um ráðagerðir nokkurs hóps manna um að gera gagnbylt- ingu og steypa núverandi stjórn landsins. Aftökusveit aflífaði í dag níu menn til viðbótar í Teher- an fyrir að hafa stundað eiturlyfjasmygl. Hafa alls 29 menn verið líflátnir fyrir þess- ar sakir undanfarna daga. Eldgosið í Bandaríkjunum: Fjölda manns er enn saknað Vancouver, Washington, 23. mai. AP. SAUTJÁN lík hafa nú fundizt en sjötíu og eins manns er enn saknað af eldgossvæðinu í Washingtonfylki í Bandaríkj- unum. Veður var í dag orðið skárra til leitarflugs og leit- uðu þyrlur á fimmtán stöðum, þar sem líklegt er talið að fleiri lík kunni að leynast. Óttazt er að einhverjir sem nærri eldfjallinu voru kunni hreinlega að hafa horfið af yfirborði jarðar, þegar sprengingin varð í fjallinu á sunnudag. Leitarmenn fundu lifandi hund á leitarsvæðinu í gær- kvöldi en annað lífsmark fannst ekki á svæðinu.í dag barst aðeins gufa upp frá eld- fjallinu og stigu gufubólstrarn- ir sex kílómetra upp í loft. Neðanjarðarhræringar undir fjallinu mældust einnig á mæli- tækjum vísindamanna. ÓEIRÐIR I S-KÓREU — Mótmælendur og andstæðingar stjórnarinnar þeysa um göturnar i Kwangju í herflutningavagni, sem þeir tóku traustataki. Viðræður milli leiðtoga mótmælendanna og hernaðaryfirvalda héldu áfram á föstudag, en mótmælendur hafa sett ýmis skilyrði fyrir þvi, að þeir sleppi þvi haldi sem þeir hafa á borginni. Alls er talið að 65 hafi beðið bana í átökunum undanfarna daga og 400 særzt. (Simamynd AP) Berjast 3000 Kúbu- menn í Kambódíu? Genf, 23. maí. AP. RÁÐHERRA í útlaga- stjórn Pol Pots í Kambód- íu sagði í dag í Genf, að þrjú þúsund kúbanskir hermenn og mörg þúsund sovézkir hermenn berðust við hlið þeirra 250 þúsund Víetnama, sem í landinu væru. Ráðherrann, frú Ieng Thirith, félagsmála- ráðherra í ríkisstjórn þeirri, sem viðurkennd er af Sameinuðu þjóðunum sem lögmæt stjórn lands- ins, er stödd í Genf til að sitja ráðstefnu S.Þ. um aðstoð við Kambódíu. Ieng Thirith sagði á frétta- mannafundi í dag, að bæði Kúbumennirnir og Sovétmenn- irnir hefðu komið til Kambódíu þegar í upphafi innrásar Víet- nama í landið og klæddust þeir sínum eigin einkennisbúningum. Sagði hún þá vera dreifða um mestallt yfirráðasvæði Víet- nama í landinu og stjórnuðu Sovétmennirnir loftárásum Víetnama á yfirráðasvæði Pol Pots. Thirith sagði að her stjórnar sinnar hefði komið 140 þúsund víetnömskum hermönnum fyrir kattarnef á þeim 17 mánuðum, sem barizt hefur verið í landinu, þrátt fyrir aðstoð utanaðkom- andi herstyrks, sem Víetnamar hefðu notið. Ráðherrann sagðist vona að ráðstefnan í Genf, sem hefst á mánudag mundi leiðrétta „mis- tök“ sem gerð hefðu verið á ráðstefnu S.Þ. í New York í nóvember, þegar ákveðið var að afhenda stjórninni í Phnom Penh mikinn hluta þeirra hjálp- argagna, sem Kambódíumönn- um hafði verið heitið. Sagði ráðherrann að þau hjálpargögn hefðu runnið til víetnamska her- aflans en ekki til sveltandi almennings. Yfir 50 ríki hafa hætt við þátttöku í Moskvuleikunum London, 23. mai. AP. FJÖLDI ríkja tilkynnti í dag um þátttöku á Ólympíuleik- unum í Moskvu í sumar, og talsmaður sovézku ólympíu- nefndarinnar sagði að allur undirbúningur gengi eins og bezt yrði á kosið. Ólympíu- nefndir Ástralíu, Spánar, Frakklands, Venezuela, Lux- emborgar, Nepal og fleiri landa sendu sovézku ólymp- iunefndinni skeyti í dag, þar sem tilkynnt var um þátt- töku í leikunum. Búizt er við að yfir 80 þjóðir verði með í leikunum, en vitað er um 52 ríki, sem fallið hafa frá þátttöku. í þeim hópi eru Bandaríkin, Kína, V-Þýzka- land, Kenya, Noregur og Kanada. Fresturinn til að tilkynna þátttöku rennur út í dag, laugardag. Sovézki sendiherrann í Nígeríu hefur upplýst, að allir afrískir íþróttamenn, sem fara á Ólympíuleikana verði sérstakir gestir sovézkra stjórnvalda og fái fríar ferðir til Moskvu og frítt uppihald þar. Frá þessu skýrði frétta- stofa Nígeríu í dag. Vladislav Chevtchenki, talsmaður sovézku ólympíu- nefndarinnar, sagði í Brussel í dag, að allar ákyarðanir um hið ytra form Ólympíuleik- anna yrðu teknar á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í Lausanne í byrjun júní og myndu Sovétmenn fara eftir þeim í einu og öllu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.