Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 37
\ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 37 Clash og lista- hátíð í feluleik Enn er ekki með öllu útilokað að einhver hljómsveit komi og haldi uppi heiðri popptónlistarinnar á listahátíð. Nú síðast hefur Clash verið orðuð við hljómleikahald, en hvað úr verður skal látið ósagt. En vissulega væri gaman ef heppnaðist að fá Clash hingað til landsins. í útvarpi fyrr í vikunni var frá því sagt að Clash kæmi og héldi hljómleika, en er listahátíðarmenn voru spurðir frétta fyrir nokkrum dögum kváðust þeir ekkert vilja um málið segja. Clash er nú í hljómleikaferð um Bretland og víst er að í London halda þeir tvenna hljómleika 15. og 16. júní. Flogið hefur fyrir að hljómsveitinni hafi verið boðið gull og grænir skógar, ef hún kæmi og hafa verið nefndar hærri tölur en áður hafa þótt koma til greina. Víst er að sakir áðurnefnds hljómleikaferðalags kann að reynast erfitt að finna heppilegan hljómleikadag, sem báðir aðilar gætu sætt sig við. Einhverjum kann að finnast sem örvænting hafi hlaupið í listahátiðarnefnd, þegar ljóst var að Nina Hagen kæmi ekki og þeir leitað með logandi ljósi að annarri hljómsveit. Virðist enda allur feluleikurinn með Clash bera því vitni. Clash er í dag talin með betri hljómsveitum Bretlands og vissulega væri mikill fengur í að fá þá. Þeir njóta töluverðra vinsælda hérlendis og eru af þeim sökum mjög heppilegir fulltrúar popptónlistarinnar. Listahátíðarnefnd væri mikill sómi af komu Clash, en á hinn bóginn væri með öllu ófyrirgefanlegt ef engin hljómsveit kæmi. - SA. Steríó flytur inn 20.000 watta hljómburðarkerfi Hljómtækjaverslunin Steríó hefur tekið að sér það stórræði að flytja inn á eigin kostnað hljómflutnings- tæki sem eru það mikil, sterk og góð að héðan í frá þurfi ekki að flytja inn hljómsveitir með allar sínar „græjur" með til landsins. Áætlaður kostnaður við að flytja hljómburð- artæki stórra hljómsveita á borð við Led Zeppelin og Bob Marley mun vera um 20—30 milljónir króna og mun geta verið allt að helmingur kostnaðar vegna hljómleika erlendra hljómsveita hér. Tæki þau sem Steríó flytja inn eru af gerðinni Electro-Voice og eru meðal 3—5 aðal nafna í heimi hljómburðarkerfa í heiminum og notuð af flestum stórhljómsveitum heims. Hugmyndin er su að leigja þessi tæki út og verður hægt að skipta kerfinu upp í smærri einingar. Tækin sem eru um 15 tonn sam- anstanda af: 32 Electro Voice hátöl- urum, 4 Tapco mögnurum og 12 SAE mögnurum, 3 Tapco „mixerum", 2 Tapco tónstillum, 1 Tapco „Reverb", 6 Electro Voice electrónískum tíðni- deildum, 12 Electro Voice hljóðnem- um, 12 Audio-Technica hljóðnemum og 4 Electro Voice, „Monitorum". Innkaupsverð mun vera um 35 millj- ónir. Tækin eru komin til landsins. Hljómar og Bubbi Morthens á Satt kvöldi MIÐVIKUDAGINN 24. júní verður haldið sjötta SATT kvöldið í Klúbbnum. Þeir sem fram koma í þetta sinn eru hinir víðfrægu Hljómar frá Keflavík sem hafa ekki starfað um langt árabil en komu þó síðast fram um páskana í Stapa. Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Engilbert Jensen og Erlingur Björnsson voru í frægustu útgáfunni af Hljómunum og þeir koma fram á miðvikudagskvöldið. Auk þess kemur fram bjartasta vonin þessa dag- ana, Bubbi Morthens og Utangarðsmennirnir og flytja eitthvað af lögunum af væntanlegu breiðskífunni þeirra. Guðmundur Ingólfsson og félagar verða einnig til stað- ar og bjóða mönnum að jamma með sér. Þess má geta að á þessu Satt kvöldi verður gestum einnig gefinn kostur á að ganga í plötuklúbb SATT. HIA about the boys and girls playing together". I stuttu spjalli sögðu þeir Hall- grímur og Hróðmar að platan væri tilraun til að gera nýja hluti. borið saman við fyrri plötuna væri þessi miklu léttari og hrárri, á þeirri nýju hefðu þeir reynt að ná fram „Original" Melchior-stemmning- unni. „Við höfum forðast að drekkja karakter laganna með því að ofhlaða þau hljóðfærum," sagði Hallgrímur. Ástæðuna fyrir því að þeir hefðu gert allt sjálfir sagði Hróðmar þá, að það hefði gefið þeim tækifæri til að nota nýja tækni í vinnubrögðum. „Við notum klippingar mjög mikið," sagði Hróðmar og bætti við að þeir hefðu umfram allt verið að skemmta sér, og vonandi öðrum. Textar og lög voru yfirleitt samin á staðnum og þá lögin gjarnan á undan. Hallgrímur sagði að textarnir væru tvískiptir, ann- ars vegar stemmnirigstextar, sem fyrst og fremst væri ætlað að lyfta undir stemmninguna í lögunum, og hins vegar textar, er fjölluðu um hvers kyns patentlausnir sem fólk festi sig í. Væru þeir miklu frekar mannlífsádeila, en þjóðfélagsá- deila, í léttum dúr. SA W't . Umsjón: Bergljót Ingólfsdóttir Lambakjöt í karrý „de luxe“ 1,5 kg. beinlaust lambakjöt, skorið í smábita. 4 matsk. jurtaolía 1 hvítlauksrif, saxað, 1 bolli sax. laukur, 1 xh —2 matsk. karrý, 1 bolli brytjuð epli, lmatsk. hveiti, Saga daganna eftir Árna Björnsson: Hvítasunna í BÓKINNI Sögu daganna eftir Árna Björnsson, sem út kom hjá bókaforlaginu Sögu má lesa eftirfarandi um hvítasunnuna: „í kristnum sið er hún til minningar um úthellingu heilags anda yfir lærisveinana sjöunda sunnudag eða fimmtugasta dag eftir upprisu frelsarans. Meðal gyðinga var hún upp- haflega fagnaðarhátíð vegna hinna nýþroskuðu ávaxta eins og páskarnir sakir lambanna ný- fæddu. Má nærri geta, að hvor- ugt hefur gerst á ákveðnum almanaksdegi, heldur miðað við fyrstu tunglkomu eða fyllingu, eftir að ástæða var orðin til að fagna. Síðar var hún talin til minnis um birtingu lögmálsins eða boðorð Móse sjö vikum eftir að hann leiddi ísraelslýð út af Egyptalandi. Þar sem „sending Heilags anda“ varð 50 dögum eftir upp- risuna, heitir dagurinn á máli Nýja testamentisins, grísku, ein- faldlega „pentekoste", sem þýðir „fimmtugasti". Af því orði er dregið nafn hátíðarinnar á þýzku og skandinavísku málun- um (Pfingsten, Pinse). Islenska orðið er hinsvegar komið úr engilsaxnesku, líklega á 11. öld. Hinn upphaflegi „hvítasunnudagur" hjá kirkj- unni var og er allt annar, nefnilega 1. sunnudagur eftir páska. Hann heitir á latínu „Dominica in albis", og var það reyndar kórrétt þýtt á íslensku sem „drottinsdagur í hvíta- sunnu". Þannig stendur á nafn- inu, að aðalskírnartími kristinna manna á fyrri hluta miðalda voru vikurnar hvor sínu megin við páskana. Meðan það stóð yfir, klæddust hinir nýskírðu hvítum klæðum sem tákni sak- leysis rétt eins og börn eru enn í dag öðru fremur ausin vatni í hvítum kjól. Hvítur heitir „alb- us“ á latínu, og af því drógu vikurnar nafn. Ennþá heitir fyrsti sunnudagur eftir páska Weisser Sontag á þýzku og Hvidesöndag á dönsku. Minningarhátíðin um send- ingu heilags anda var annar helsti skírnartími hinna kristnu söfnuða. Og engilsaxneska kirkj- an færði skírnarhátíðina alfarið þangað frá páskavikunni. Því heitir hún enn á ensku Whit- sunday líkt og hér. Mun þetta með eldri dæmum um hina frægu bresku sérvisku. Heitið hwitan sunnandæg kemur fyrir í engilsaxnesku þeg- ar um 1100 og mun vafalítið komið þaðan inn í íslensku með hinum ensku farandbiskupum, sem hér voru á stjái snemma á 11. öld, áður en biskupsstóll var settur í Skálholti." 2 matsk. tómatsósa úr flösku, Vi bolli brytjað selleri (stilk- ur), 1 Vi tsk. salt, 1/4 tsk. pipar, lítið lárviðarlauf, 2 tsk. rifinn sítrónubörkur, 2 matsk. ljós púðursykur, 1/4 bolli chutney. Kjötið er brúnað í olíunni, sett til hliðar, þá er hvítlaukur, laukur, karrý og epli sett út í olíuna smástund. Síðan er pott- urinn tekinn af hellunni og hveitinu hrært út í ásamt dál. vatni. Kjötið sett aftur út í pottinn, ásamt tómatsósu, sell- eri, salti, pipar, lárviðarlaufi og sítrónuberki. Suðan er látin koma upp og síðan látið malla í rúml. klst. eða þar til kjötið er meyrt. í lokin er púðursykri og chutney hrært saman við. Ætlað 1 fyrir 6. Borið fram með soðnum hrísgrjónum og einhverju af eftirtöldum smáréttum: 1. Grænn pipar, skorinn smátt. 2. Chutney. 3. Saltaðar hnetur. 4. Kókósmjöl. 5. Bananar í sneið- um, vættir í sítrónusafa. 6. Rúsínur. 7. Agúrka, skorin smátt. 8. Sýrður rjómi. 9. Anan- asbitar. Perur í eftirrétt Púrtvínsperur 4—6 perur safi úr einni sitrónu 2 dl. púrtvin Perurnar afhýddar, skornar í tvennt og kjarninn tekinn úr. Peruhelmingarnir lagðir í ofnfast fat, kúpta hliðin upp og sítrónusafa dreypt á. Púrtvíni hellt í mótið, sem sett er í ofn í ca. 20 mín., eða þar til perurnar eru meyrar. Gott að ausa púrtvíniiu yfir á meðan. Ef að notaðar eru niðursoðnar perur þurfa þær að sjálfsögðu styttri tíma, eða rétt til að hita þær. Brytjuðum hnetum stráð yfir um leið og borið er fram. Þeyttur rjómi borinn með, í 2 dl. rjóma má blanda 2—3 tsk. neskaffi, 2 tsk. kakói og 1 matsk. flórsykri. Perur Diana 8 hálfar niðursoðnar perur. Deig úr: 150 gr. möndluflögum 150 gr. smjörliki 2 dl. flórsykri 2 matsk. hveiti 4 matsk. rjóma Þessu er öllu blandað saman í pott, suðan rétt látin koma upp. Tveir peruhelmingar settir í ofn- fasta einsskarnmtsskál, deigið látið yfir. Skálarnar settar í ofninn, hafðar í 8—10 mín. aðeins með yfirhita. Borið fram með þeyttum rjóma, sem í hefur verið hrært örlítið romm. Perur í hvítvíni Innihald einnar dósar af niður- soðnum perum sett í ofnfasta skál. Hvítvíni, eftir smekk, hellt yfir og blandað sykurleginum. Hitað í ofni, álpappír settur yfir. Borið fram með stífþeyttum rjóma, sem í.er blandað dáiitlu bræddu súkkulaði. Perur Betty 6 bollar af ferskum perum afhýddum og i sneiðum XA bolli heitt vatn púðursykur xk tsk. rifinn sitrónubörkur, 1 matsk. sitrónusafi Vi tsk salt Vi tsk engifer Vh bolli af þurrum fransk- brauðsmolum 2 matsk. smjör Perurnar settar í pott, vatni hellt á, látið malla í ca. 5 mín. Út í það er síðan baett xk bolla af sykri, sítrónuberki og safa. Helmingurinn af þessari blöndu er settur í grunna ofnfasta skál. xh bolli sykur, engi- fer, salt og brauðmolar blandað saman og helmingnum stráð yfir perurnar í skálinni. Hinn helming- ur peranna settur ofan á, það sem eftir er af sykri, kryddi og brauði sett yfir. Smjörbita dreift efst. Bakað í ca. 25 mín. í meðalheitum ofni. Rauðvínsperur 4—8 meðalstórar perur Lögur úr: 2 dl. rauðvini 2 dl. vatni einni kanilstöng dál. af rifnum sitrónuberki Perurnar afhýddar, skipt í tvennt og kjarninn tekinn úr. Peruhelmingarnir soðnir í rauðvínsleginum, þar til þeir eru meyrir, þá eru þeir teknir upp með gataspaða. Perurnar settar í skál, soðið upp á leginum, honum hellt yfir í gegnum sigri. Kaldur þeyttur rjómi með.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.