Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980 „Allt írá sólgleraugum upp í sumarbústaði“ UM hvítasunnuna verður opnuð i Sýningahöllinni á Ártúns- höfða sýningin Sumarið '80, sem er sýning á margvíslegum sumarvörum, allt frá sólgier- augum upp í sumarbústaði, að því er segir í frétt frá Alþjóða vörusýningunni, Sumarið '80. Sýningin verður opin dagana 22. maí til 2. júní næstkomandi. Þar munu hartnær 50 fyrirtæki og félög sýna framleiðslu sína og starfsemi á 5000 fermetra sýn- ingarsvæði á tveimur hæðum hússins. Á sýningunni verður m.a. að finna hraðbáta, ferðabíla, sumarhús, hjólhýsi, fellihýsi, tjöld og viðleguútbúnað, garð- húsgögn og húsgögn í sumarbú- staðinn, sport- og ferðafatnað og margskonar sportvörur aðrar. Alla daga sýningarinnar verða matvæla- og sælgætiskynningar á vegum nokkurra íslenskra fyrirtækja, fjölbreytt skemmti- dagskrá verður á skemmtipalli tvisvar á dag, teikni- og fræðslu- myndir verða sýndar viðstöðu- laust í kvikmyndasal meðan opið er daglega og fleira verður til skemmtunar. Kaffitería, þar sem seldar verða fjölbreyttar veitingar, verður opin meðan á sýningunni stendur. Ókeypis barnagæsla verður á sérstöku leiksvæði inn af kaffiteríu á efri hæð hússins. Á þeirri hæð verða einnig fjöl- breyttar tískusýningar tvisvar á dag. Eftn verður til gestahappdr- ættis meðan á sýningunni stend- ur og vinningar dregnir út dagl- ega. Aðalvinningurinn er Camp Tourist tjaldvagn frá Gísla Jónssyni h.f. í Sundaborg. Sýningin verður opin daglega kl. 16—22, en laugardaga og sunnudag verður opið kl. 14—22. Opið verður alla Hvítasunnu- helgina. Skemmtiatriði, kynn- ingar og tískusýningar verða daglega kl. 17:30 og 20:30. Tónleikar: ísafjörður: Ljósmyndasýn- ing í bókasafninu ")N Hermannsson opnar Ijós- yndasýningu i Bókasafninu á afirði i dag, laugardaginn 24. mai I. 14. Jón sýnir þar um 40 ækkaðar litmyndir sem hann hef- r tekið og unnið sjálfur. MvnHipnar ppii mimpraftar na árit- aðar á svipaðan hátt og grafíkverk. Sýningin verður opin á hvítasunnu- dag og á annan í hvítasunnu frá kl. 14—18 og síðan á opnunartíma safnsins. Síðasti sýningardagur verður sunnudaginn 1. júní og verð- ur þá opið frá kl. 14 til 19. Sýning á sumarvörum: Hótel Valhöll opnar á morgun HÓTEL Valhöll á Þingvöllum opn- ar nú um hvítasunnuna — á morgun: Talsverðar breytingar og endurbætur hafa verið gerðar á hótelinu. í sumar verður bryddað á ýmsum nýjungum á Valhöll. Þar eru fyrirhuguð „barbicue-kvöld“, það er fólk grillar steikina úti í garöi. Þá mun fyrirhugað að þeir Halli og Laddi komi fram og einnig hljómsveitin Brimkló, þó það verði ekki nú um helgina. Fjölbreyttur matseðill verður á boðstólum, svo og „konditore-kökur“ bakaðar á Þingvöllum. Nýir gestgjafar hafa tekið við hótelinu. Það eru hjónakornin Óm- ar Hallsson, Þórscafé og Rut Ragn- arsdóttir. Opnunartím- ar skemmti- staðanna um hvítasunnu SKEMMTISTAÐIR verða lokaðir í dag, og á morgun, hvítasunnudag, en verða opnir á annan í hvíta- sunnu til kl. 1 eftir mið- nætti. Serkin í Þjóðleik- húsinu Jón Hermannsson við nokkrar mynda sinna. Leiklist: Skemmtanir: Píanósnillingurinn Rudolf Serkin heldur tónleika í Þjóðleik- húsinu í dag kl. 15. Á efnisskránni eru ítalski konsertinn eftir Bach, Tilbrigði og fúga um stef eftir J. Seb. Bach eftir Max Reger og sónata í C-dúr op. 53 eftir Beethov- en. Leikhúsin lok- uð til mánudags VEGNA hvítasunnuhátíðarinnar vcrða engar leiksýningar á laug- ardag og sunnudag. Á annan í hvítasunnu sýnir Leikfélag Reykjavíkur Ofvitann kl. 20.30 en Þjóðleikhúsið sýnir Smalastúlkuna og útlagana á stóra sviðinu kl. 20 og „í öruggri borg“ á litla sviðinu kl. 20.30. tlr leikriti Jökuls Jakobssonar „í öruggri borg“ sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu á annan i hvítasunnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.