Morgunblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1980
41
kvöldum, sem karlmenn tóku líka
þátt í, nema hvað mig minnir að
yngri húsbóndinn væri nú laus við
það, en meira bundinn við náms-
lestur, enda að búa sig undir
framhaldsnám. Sögur voru oft
lesnar á kvöldvökum. Ekki þurfti
að kvarta um skort á skemmtun-
um. Það var margt ungt fólk og
skemmtilegt þá í Stöðvarfirði og
kaupmannshjónin Karl og Petra
liðleg að lána húsnæði. Það tók
ekki langan tíma að ryðja stóra
salthúsið hans Karls og búa þar til
leikhús. Við æfðum og lékum
„Prestkosninguna" eftir Þorstein
Egilsson og eitthvað fleira. Síðan
var dansað með miklu fjöri. Ekki
spillti þegar Jón Snædal var
gestur í Kaupmannshúsinu og lék
dillandi „dansmúsik“ á orgel.
Hann fékk og verk sitt vel borgað
þar sem hann fékk fyrir eiginkonu
fallegustu stúlkuna í firðinum,
Stefaníu Karlsdóttur.
Mér geðjaðist mjög vel að Aust-
firðingum, fundust þeir frjálslegri
og ófeimnari en ég hafði áður átt
að venjast, kurteisir og háttprúð-
ir. Ég hef oft sagt, að þar var
maður þéraður, jafnt í afdölum
sem kauptúnum. Máske hefur
þetta dálæti mitt á Austfirðinum
verið fyrirboði þess, að fyrsti
tengdasonur minn er ágætur
Austfirðingur.
Svona liðu tvö ár. Þá kom
örlagaárið 1918, kulda- og farsótt-
arár, en það ár hinn 28. sept.
kvæntist og vinur minn, Sigur-
björn, unnustu sinni Sigurbjörgu
Jónsdóttur kennara frá Fáskrúðs-
firði. Hún var ágætlega gefin og
vel menntuð kona, hafði verið þrjú
ár í skólum, stórmyndarleg og
fyrirmannleg í fasi, enda reyndist
hún hin besta móðir og eiginkona.
Hér verður að geta þess, að hún
var kaupakona í Stöð sumarið
1917 og tók þátt í skemmtiferð
r / ■■■
^ERLENT,
Karpov og Timm-
an efstir
BuKojno. 22. mai. AP.
KARPOV heimsmeistari og
Timman eru nú efstir á stór-
meistaramótinu í skák í Bugojno
að loknum tíu umferðum. Hafa
þeir hlotið sex vinninga hvor, en
þeir eiga eftir að ljúka við
biðskák sína úr níundu umferð-
inni. Talið er að Karpov eigi
möguleika á vinningi úr þeirri
skák. Danski stórmeistarinn
Bent Larsen er í þriðja sæti með
5,5 vinninga en hann á ólokið
þremur biðskákum. Svínn And-
erson er í fjórða sæti með 5
vinninga og eina biðskák. Ein
umferð er ótelfd á mótinu.
Eyða gervi-
hnöttum
New York, 22. maí. AP.
NEW YORK Times skýrði frá
því í dag, að Bandaríkjastjórn
hafi fyrir því öruggar heimildir
að Rússar hafi smíðað tæki sem
getur eyðilagt gervihnetti á
braut um jörðu. Tækið sendi frá
sér svokallaðan lasergeisla. Það
sé starfrækt frá jörðu, en að
einnig séu Rússar að smíða sams
konar tæki sem skjóta megi á
braut um jörðu.
Varna losun
úrgangsefna
Rottrrdam. 22 maí. AP.
TALSMENN Greenpeace sam-
takanna sögðu í dag að reynt
yrði áfram að koma í veg fyrir
að tvö vestur-þýzk skip létu úr
höfn í Rotterdam með úrgangs-
efni frá kjarnorkuverum. Skipin
áttu að láta úr höfn í gær en
komust hvergi. Þau hafa verið í
stanzlausum flutningum með úr-
gangsefni, sem losuð hafa verið
á svæði í Norðusjónum, í um 40
kílómetra fjarlægð frá strönd
Hollands.
okkar vinanna upp á Fljótsdals-
hérað, sem varð í alla staði hin
besta og ég aldrei gleymi. Þá
rættist æskudraumur minn, að sjá
Hallormsstaðaskóg og ég varð
ekki fyrir vonbrigðum.
En þessi ráðabreytni vinar
míns, hafði í för með sér, að við
skildum að skiptum. Ungu hjónin
hófu búskap uppi á Héraði, það
var ekki húsrými fyrir tvö heimili
í Stöð. Ég var hinsvegar lengur í
Stöð en ég ætlaði, en það er önnur
saga.
En það fór þó svo að ungu
hjónin fluttu að Stöð aftur 1920.
Þar var byggt nýbýli 1927, sem
nefnt var Háteigur. Þar bjó svo
Sigurbjörn en fluttist aftur á
heimajörðina 1932, þegar Bene-
dikt gerðist kaupfélagsstjóri
þeirra Stöðfirðinga og flutti út í
þorpið. Hafði á þeim árum verið
byggt upp í Stöð og tún sléttuð og
stækkuð.
Bjó svo Sigurbjörn í Stöð, þar til
hann flutti að Borgargarði í
Kirkjuhólsþorpi 1944, en hætti
búskap í Stöð, nema hvað hann
átti kindur nokkrar, sér til gagns
og gleði. Hann mun aldrei hafa
haft stórt bú því að þá voru
kreppuár í landbúnaði á þriðja og
fjórða áratugnum, sem kunnugt
er. En góður bóndi var hann, sem
gekk vel um sitt og var snyrti-
menni hið mesta. Hann var líka í
miklu áliti meðal sveitunga sinna
og var trúað fyrir flestum störf-
um, sem sveitafélögin hafa upp á
að bjóða nema hvað hann slapp
við oddvitastörfin. Ég sé í
Kennaratalinu, að hann hefur
verið í hreppsnefnd, skólanefnd,
sáttanefnd, forðagæslumaður o.fl.,
o.fl. sem ég tel óþarfa að tíunda
hér. En það sýnir hve fjölhæfur
maður Sigurbjörn var, vel mennt-
aður og vel gefinn, enda hvers
manns hugljúfi, ef segja má svo
um gamlan mann.
Hér mun eiga við að telja börn
þau, er þau Sigurbjörg eignuðust
þessi ár.
Þau skulu talin hér:
Álfhildur, gift Karli Kristjáns-
syni skipstjóra á Eskifirði. Þau
eiga 5 börn og 6 barnabörn.
Álfhildur er nú látin fyrir fáum
árum, öllum harmdauði.
Flosi, cand mag. í íslenskum
fræðum nú kennari Menntaskól-
ans við Sund hér í Reykjavík,
kv. tur Jónu Kristjánsdóttur,
ken -ra. Þau eiga 2 börn og 2
barnabörn.
Stefanía, gift Kristjáni Guð-
mundssyni, skrifstofumanni á
Eskifirði. Þau eiga 4 börn og 1
barnabarn.
Þannig eru þá afkomendur vin-
ar míns orðin stór og góð viðbót
við þann fjölda afkomenda Stöðv-
arhjóna er ég áður nefndi. Mér er
sagt, að allt sé þetta myndarfólk,
svo sem það á kyn til. Man ég það
að Sigurbjörn sagði mér frá ýms-
um þessum ættingjum sínum
síðustu árin og var honum óbland-
in ánægja að minnast þeirra. En
atvikin höguðu því svo, að Flosi
einn gat verið honum nærri og
stoð hans og styrkur síðustu
æviárin og gerði það með prýði,
enda þótt aðrir afkomendur hefðu
bréfasamband við hann er veitti
mikla ánægju.
Svo fer það hjá flestum. Börnin
tvístrast og búa víða. Þegar Sigur-
björn hætti búskap voru börnin
búsett víðsvegar. Þá mun brátt
hafa borið á heisubilun hans.
Tvívegis var hann hér syðra undir
læknishendi vegna þrálátrar höf-
uðveiki. Þá hitti ég hann — en
alltaf jafnrólegan og elskulegan.
Konu sína missti hann 1958. Var
það honum sár harmur, sem hann
tók með kristilegri ró og stilingu,
enda var hann trúmaður. Gegndi
lengi meðhjálparaembætti í
kirkju sinni og var söngmaður
góður.
Eftir lát konu sinnar var hann
eitthvað hjá börnum sínum, en
heilsu hans hrakaði svo, að hann
fékk vist hér á Hrafnistu 1971. Þar
leið honum vel og ég heyrði hann
aldrei kvarta. En ég get ekki að
því gert að ég kann illa við að sjá
vini mína sem hafa haft mikil
umsvif, búsetta í þessum stóru
húsum en litlum herbergjum, með
einhverju óskyldu fólki. En þetta
stendur til bóta. Bæði er nú hægt
að fá nú vel út búin herbergi og
annað sem er enn betra og skyn-
samlegra, að reisa elliheimili
heima í byggðunum svo að gamla
fólkið þurfi ekki að hrekjast ó
ókunnugt og olíkt umhverfi.
En það er önnur saga, er hér
skal ekki sögð. —
En hér mun best að ljúka
hugleiðingum mínum um minn
kæra æskuvin. Mér fannst hann
aldrei gamall, andlitið var jafnan
slétt og fallegt. Heilsu okkar
beggja var þannig farið að við
sáumst sjaldan síðustu mánuðina.
Og Sigurbjörn kvaddi lífið fremur
snögglega, en naut þeirrar gæfu
að einkasonur hans dvaldi hjá
honum síðustu stundirnar.
I dag eru jarðneskar leifar hans
lagðar til hvíldar í Stöðvarkirkju-
garði, einmitt í þeirri mold sem
hann unni, þar sem hann elskaði
hvert strá og hvern stein og þar
sem bjarkaþytur flytur blómailm
yfir gröf hans von bráðar. Sam-
herjar hans eru margir horfnir, en
margir vinir hans munu samt
fylgja honum síðasta spölinn og
hugsa með mér hin fleygu orð:
„Þar sem góðir menn fara eru
guðsvegir" og svo endi þessa
pistils — orðstírr deyr aldregi,
hveim sér góðan getr“.
Sjálfur segi ég: Vertu sæll kæri
vinur, hjartans þökk fyrir ævi-
langa vináttu. — Hittumst von-
andi fljótlega á hinni ókunnu
strönd.
Reykjavík, 26. apríl 1980.
Ingimar H. Jóhannesson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra nær og fjær er sýndu okkur samúö
og hlýhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar,
tengdamóöur og ömmu.
GUÐRÚNAR SIGURDARDÓTTUR
Hjallavegi 56, Rvík.
Ingvar Ingvarsson
Magnús Þór Jónsson, Aöalheiður Gústafsdóttir,
Sigurjón Ingvarsson, Anne Heys,
Guóni Þór Ingvarsson, Matthildur Hjartardóttir.
og barnabörn.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma
MAGNÚSÍNA GUÐRÚN GRÍMSDÓTTIR
Kambahrauni 3,
Hverageröi
veröur jarösungin laugardaginn 24. maí kl. 14.00 aö Kotströnd í
Ölfusi.
Fyrir hönd vandamanna
Júlíanna G. Ragnarsdóttir, Guöni Þorsteinsson,
Helga Sigurjónsdóttir, Valur Snorrason.
og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til ykkar allra sem veittu mér og börnunum mínum
aöstoö og hluttekningu viö fráfall eiginmanns míns, fööur okkar og
sonar,
GUNNARS MOSTY,
Vesturbergi 128,
Ester Jörundsdóttir
Rósekla Gunnarsdóttir,
Helga María Gunnarsdóttir,
Garöar Kenneth Gunnarsson,
Kalla Karlsdóttir
og Guörún Jónsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir ocj afi,
ARNLJÓTUR DAVIÐSSON,
Mánagötu 2,
sem andaöist í Borgarspítalanum 18. maf, veröur jarösunginn frá
Háteigskirkju þriöjudaginn 27. maí kl. 15.00.
Ágústa Figved
Jens Arnljótsson,
Davíö Arnljótsson, Hulda Erlingsdóttir
Halla Gísladóttir
og barnabörn.
t
HAUKUR JÓHANN SIGURÐSSON,
Njólsgötu 36, Reykjavík,
lést föstudaginn 23. maí.
Helga Guömundsdóttir
Siguröur Hauksson,
Sigrún Hauksdóttir,
Marfa Hauksdóttir,
Guörún Hauksdóttir,
Ásrún Hauksdóttir
og barnabörn.
Ása Kristjánsdóttir,
Steindór Júlíusson,
Leifur ísaksson,
Sigurbergur Sigsteinsson
frá JAFAN