Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 7

Morgunblaðið - 24.05.1980, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 7 Ég þakka fjölmörgum sem hafa hjálpað mér til þess að halda þessum þætti í horfi. Uppörvun er nauðsynleg til þess að svo megi verða, og hennar hef ég notið. Ótelj- andi eru samtöl, símtöl og bréf. Mestur fengur þykir mér í bréfunum, og öruggast er að efni þeirra komi til skila. Töluð orðin týnat fremur og gleymast. Enn skal á það minnt, að þessum þætti hefur ekki verið ætlað hlutverk dómstóls, þótt af- staða sé tekin til eins og annars. Hann er einkum vettvangur, þar sem menn skiptast á skoðunum og upp- lýsingum um íslenskt mál í öllum tilbrigðum; ég held nauðsynlegur vettvangur. „Orð mér af orði orðs leit- aði,“ segir í Hávamálum. Þóroddur Jónasson á Ak- ureyri heyrði ekki aðeins vestfirska skólabræður sína segja hakka og lakka, fyrir hækka og lækka, heldur einnig: Mistari ætlar ustur, fyrir Meistari ætlar austur, eða annað sambærilegt. Um tvíhljóðsflótta hef ég aldrei talað, en í öllum þessum dæmum er um það að ræða, að tvíhljóð verður einhljóð. Um það kannast ég við orðin stytting, grenning og ein- hljóðsmyndun. í öllum þess- um dæmum verður breyting- in vegna þess að á eftir kemur fleira en eitt sam- hljóð. Stutt tvíhljóð eru víst að verða veraldarundur og eitt af því sem einkennir íslenskt mál. Vonandi tekst okkur að varðveita þau. í dæmum Þórodds er það ekki síst eftirtektarvert, að fyrri þáttur (kompónent) tvíhljóðsins getur horfið allt eins og síðari þátturinn, ef langt samhljóð eða fleiri en eitt fara á eftir. Framburð- urinn mistari hef ég raunar ekki heyrt fyrr en Þóroddur tilgreindi þessi dæmi. Sigurlaugur Þorkelsson í Reykjavík, starfsmaður Eim- skipafélags íslands, skrifar mér fyrir hönd fyrirtækisins, og finnst mér það viðhorf, sem í bréfinu birtist, til fyrirmyndar. Ég rek hér efni þess: Fyrst er þess getið, að margar nýjungar í skipa- rekstri og flutningatækni á síðari árum hafi leitt til þess að ný tökuorð hafi borist inn í málið, en nýyrði skorti. Geti þetta stundum leitt til talsverðra óþæginda og jafn- vel valdið tilfinnanlegum misskilningi. Það er því hugmynd þeirra í Eimskipafélaginu að bæta hér nokkuð úr og leitast við að taka upp góð íslensk orð í stað hinna erlendu. Síðan segir Sigurlaugur orðrétt: „Við leyfum okkur því með bréfi þessu að senda örfá erlend orð, sem dæmi um hvað við viljum gefa íslensk heiti, en af mörgu er að taka: 1. Ro-Ro-skip. 2. Ro-Ro-aðferð. 3. Multi Purpose Vessel (um þetta hefur verið notað fjölskip og fjöltækniskip). 4. Mafi og Tugmaster (þetta eru ákveðin heiti á mis- munandi dráttarvögnum og væri gott að fá sitt heitið á hvorum þeirra). 5. Flats (þetta hefur verið kallað — fleti, sbr. rúm- fleti, en ekki flötur). Fleira teljum við ekki upp að sinni, en biðjum þig vin- samlega að láta okkur heyra viðhorf þitt og gagnlegar ábendingar ..." Viðhorfi mínu hef ég áður lýst, en gagnlegar ábend- ingar hef ég enn ekki á takteinum, m.a. vegna van- þekkingar á þeim hlutum sem nefna þarf. Vísa ég vandanum sem fyrr til orðsnjallra lesenda. Oft verður mér orðs vant og dettur stundum í hug vísa, sem sagt er að Vilhjálmur Hjálmarsson kvæði, er hon- um varð í bili svarafátt á fundi einhvern tímann: Fann ég eigi orðin þá, er ég segja vildi. Varð því feginn eftir á, að ég þegja skyldi. Vilhjálmur kenndi mér reyndar á dögunum talshátt sem ég hafði enga vitneskju um áður: Nú gerðir þú hólk úr sálu minni = Nú fórstu illa með mig, nú komstu mér í klípu, nú „spældirðu" mig. Þá hefðu kerlingarnar heima sagt um viðeigandi mótleik, að gera skyldi bragð úr ellefta boðorðinu. Ég vissi af eðlisávísun hvað það þýddi: vera úrræðagóður í (miklum og óvæntum) vanda, þótt aldrei væri lokið upp fyrir mér þeim leyndardómi, hvernig ellefta boðorðið hljóðaði. Ég heyrði í sjónvarpsfrétt- um talað um dropann sem fyllti mælinn. Er hér ekki verið að blanda saman drop- anum, sem holar steininn, og korninu sem fyllir mælinn? Sýningu Tryggva að ljúka Mikil aðsókn hefur verið að sýningu Tryggva Ólafssonar í' Listmunahúsinu við Lækjargötu. Af 34 myndum á sýningunni höfðu 22 selzt í gær, en nú fer í hönd síðasta sýningarhelgi. í dag og um hvítasunnuna verður sýn- ingin opin kl. 14—18, en henni lýkur á mánudagskvöld. verður haldin á brautinni við Straumsvík 24. eða 25. maí. Verða slegin ný met? Frítt fyrir börn. Nánar í útvarpsauglýs- ingu. Stjórnin Stúdenta- fagnaður Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík veröur haldinn aö Hótel Sögu, Súlnasal, föstudaainn 30. maí og hefst meö boröhaldi kl. 19.30. Aögöngu- miöasala veröur í anddyri Súlnasals Hótel Sögu, miövikudaginn 28. maí kl. 17—19 og fimmtudaginn 29. maí kl. 15.30—18.00. Samkvæmisklæðnaður. Stjórnin. Orlofsheimila- og sumarbústaðaeigendur Félag kaupsýslumanna Vestmannaeyjum býöur ný- standsett orlofsheimili (4 herb., eldhús og baö) á góöum staö í Vestmannaeyjabæ í leiguskiptum fyrir sambærilega aöstööu í öörum bústööum uppi á landi. Miöaö er viö vikudvöl hjá hverjum aöila. Til greina kemur aö semja um lengra tímabil. Þeir sem áhuga hafa á þessum samskiptum sendi uppl. í box 41, Vestmannaeyjum fyrir 5. júní nk. Frekari uppl. má leita í síma 98-1500 á matmáls- tímum. Félag kaupsýslumanna, Vestmannaeyjum. GUDLAUGS ÞORVALDSSONAR Aöalskrifstofa Brautarholti 2, (áöur Hús- gagnaverslun Reykjavíkur). Símar: 39830, 39831 og 22900. Aöstoöarfólk óskast. Innritun Umsóknum um skólavist næsta vetur, ásamt ljósriti af prófskírteini grunnskólaprófs, ber að skila sem fyrst á skrifstofu skólans, Grund- arstíg 24, 2. hæð, og eigi síðar en 9. júní. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans alla virka daga kl. 9—12 og kl. 1—3. Verzlunarskóli íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.