Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. MAÍ1980 11 Asmundarsalur: Fróðleikur um hvali SÝNING Green Peace-samtak- anna um hvali og hvalvernd stendur yfir í Ásmundarsal og er opin kl. 14—22 um helgina. Þar er að sjá mikinn fróðleik um þessar merkilegu skepnur, hval- ina. Eftir helgina koma tveir þekktir náttúrufræðingar og hvalvernd- armenn og flytja fyrirlestra á sýningunni. Það eru þau Sylvia A. Earle og dr. Sidney Holt, sem hefur verið ráðgjafi FAO og er í vísindanefnd Alþjóðahvalveiði- ráðsins. Dr. Sylvia er í stjórn World Wildlife Fund Internation- al. Ráðstef na um þarfir barna á sjúkrahúsum RÁÐSTEFNA um þarfir barna á sjúkrahúsi verður haldin í Hjúkrunarskóla Islands við Eiríksgötu þriðjudaginn 27. maí n.k. Ráðstefnan hefst með ávarpi Halldórs Hansen yfirlæknis, en að því loknu kynnir Sigríður Björnsdóttir, myndlistarmaður nýstofnað norrænt félag um þarfir sjúkra barna. Prófessor John Lind frá Svíþjóð flytur fyrirlestur um læknisfræðilegt gildi leikmeð- ferðar: Ivonny Lindquist deildar- stjóri í sænska heilbrigðisráðu- neytinu flytur fyrirlestur um barnið á sjúkrahúsi; prófessor Emma Plank frá Bandaríkjunum fjallar um þætti, sem skipta máli í umhyggju veikra barna; Sig- urlín Gunnarsdóttir, hjúkrunar- forstjóri Borgarspítalans ræðir um viðhorf hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum, þar sem ekki eru barnadeildir og Atli Dagbjarts- son, barnalæknir Barnaspítala Hringsins ræðir um foreldra og veik börn. Ráðstefnunni lýkur síðan með hringborðsumræðum foreldra veikra barna, en umræð- unum stýrir barnalæknir frá Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Megin markmið ráðstefnunnar er að auka skilning á áhrifum veikinda og sjúkrahúsvistar barna, að kynna hvernig komið er til móts við tilfinningalegar og félagslegar þarfir barna á sjúkrahúsum erlendis, að auka áhuga og skilning starfsfólks sjúkrahúsa á þörfum veikra barna og foreldra þeirra. Allur undirbúningur hefur verið í höndum hóps, sem í nóvember sl. var boðið til fundar í Gautaborg á vegum sænska heilbrigðisráðuneytisins, en þar var stofnað norrænt félag um þarfir sjúkra barna (NFSB). Af hálfu Islands voru kjörnar í stjórn félagsins Sigríður Björns- dóttir, myndlistarmaður og Helga Hannesdóttir, læknir. Til ráðstefnunnar er boðið öllum þeim, sem á einhvern hátt tengjast umönnun barna á sjúkrahúsum. Fyrirhugað er að stofna íslandsdeild NFSB í lok ráðstefnunnar. Fundarstjórar verða þær Helga Hannesdóttir og Hertha Jónsdóttir, hjúkrun- arkennari. Hluti hópsins, sem vann að undirbúningi ráðstefnunnar og kynnti hana á fundi með blaðamönnum. Frá vinstri: Sigríður Björnsdóttir, Helga Hannesdóttir, Hulda Jónsdóttir og Hertha Jónsdóttir. Ljósm: Emllfa. Við, sem um langan tíma höfum þekkt Albert Guðmundsson sem dugmikinn drengskaparmann er hvers manns vanda vill leysa, efumst ekki um að hann sé mjög hæfur til að gegna embætti forseta íslands. Við drögum ekki í efa að vegna mannkosta sinna, reynslu og glæsilegra framkomu yrði hann landi okkar til sóma í embætti forseta, jafnt innan- lands sem utan. Við munum því eindregið vinna að kjöri Alberts Guðmundssonar og skor- um á aðra að vinna með okkur að því marki að hann nái kjöri sem forseti íslands. Bjarni Jakobsson, formaður Iðju, Reykjavík Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar Sigurður Óskarsson Hilmar Guðlaugsson múrari Björn Bjarnason, starfsmaður Iðju, Reykjavík Hilmar Jónasson, formaður Verkalýðsfélags Rangæinga Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands ísl. Sigurður Kristinsson, formaður Landssambands iðnaðarmanna Þórhallur Halldórsson, varaformaður BSRB Björn Þórhallsson, formaður Landssambands ísl. verslunarmanna Elís Adolphsson, starfsmaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur Magnús Geirsson, rafvirki Þórir Gunnarsson, formaður Sveinafélags pípulagningamanna Simca 1100 Margfaldur sigurvegari Þaö er löngu sánnaö aö SIIVICA 1100 er einhver dugmesti fimm manna fólksbíllinn sem völ er á hér á landi. SJMCA 1100 er fimm manna framhjóladrifinn fjölskyldubíll, sem eyðir 7,7 I. á 100 km miðað við 90 km akstur á klst. og ca. 91. í bæjarakstri. Fáir sambærilegir bílar hafa jafn góða aksturseiginleika á erfiðum vegum og þessi franski gæðabíll. Ekki má glevma að Simca-bílar eru eina bíltegundin sem fjórum sinnum hefur sigraö í rallaksturskeppnum hér á landi. Þannig hefur SUMCA 1100 reynst best við erfiðustu hugsanlegar aðstæður á íslenzkum vegum og vegleysum í byggð sem óbyggð. Sá sem vill eignast góðan bíl velur sér SIMCA 11(H). Gleyniiö ekki að SIMCA 1100 ér einhver besti smábíllinn í endursölu og stendur af sér verðbólguvandann. CHRYSLER Vökull hf SUÐURLANDSBRAUT 10. SIMAR; 83330 83454

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.